Vísir - 16.05.1945, Blaðsíða 4

Vísir - 16.05.1945, Blaðsíða 4
4 VISIR VlSIR DAGBLAÐ Utgefandi: BLAÐAUTGÁFAN VlSIR H/F Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. Símar 16 6 0 (fimm línur). Verð kr. 5,00 á mánuði. Lausasala 40 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Gott máleíni. Jgr söfnun til nauðstaddra Dana var hafin hér á landi duldist fáum, að þar var um gott málefni að ræða. og fyllilega tímabært. Menn hrugðust vel við málaleitun nefndar þeirrar, sem beitli sér fyrir söfnuninni, en ríkisstjórn, forseti Alþingis, formenn allra stjórnmálaflokka í landinu og margt annað stórmenni skrifaði undir áskorun til þjóðar- innar'um að bregðast drengilega við og veita málinu stuðning. Nokkrir ágætir menn sendu þegar í upphafi rausnarlegar gjafir til þess að livetja jafnframt aðra til að gera liið saraa, og síðar hefur alhir almenningur ]át- ið nokkurt fé af hendi rakna, liver eftir sinni getu. Mestmegnis í smágjöfum hefir þegar safnazt um 300 þúsundir króna, en vitað var um fleiri framlög, sem enn voru ekki greidd til skrifstofu þeirrar, sem söfn- uninni veitlu forstöðu, en voru þó þangað tilkynnt. Bera framlög þessi ljósast vitni um hug 'alþýðu manna til dönsku þjóðarinn- ar og þeirra, sem nauð liða í heimalandi liennar eða erlendis. Vegna þessara gjafa reyndist nefndinni unnt að verða við til- inælum sjendiráðs Dana í Stpkkhólmi og greiða götu landflótta manna, sem þar dvöldu, með lítilsháttar framlagi. Mátti þó gera ráð fyr-ir að er Danmörk yrði losuð úr heljarklóm nazistanna, myndi þörfin fyrir hjálp verða enn ríkari, og að einmitt þá myndu íslendingar hregðast vel við og styrkja Dani í heimalandinu einnig, en .vn sem vitað er hefir Danmörk verið rúin af fé og gæðum öðrum. Ríkisstjórn íslands hefir nú lekið söfnuu þessa að sér, og ber slíkt vitni uiri liugarfar hennar. Menn úr ríkisstjórninni eiga greið- an aðgang að fjársterkum mönnum, sem nú hafa brugðist vel við, er vænta má sambands við Danmörku, og Iátið verulegar fjárhæð- ir af liendi rakna. Úr þessu stendur þjóðin ull og óskipt að söfnuninni, eins og á að vera og tilgangur þeirra manna var ,sem unnið hafa að mál- inu undanfarið ár. Hafa þeir þannig fengið viðhorf sitt viðurkennt og geta glaðst yfir góðum árangri. Er þess fastlega að vænta að ■engin úlfúð verði til að spilla fyrir fjár- söfnuninni, en að allir þeir, sem aflögu eru færir leggisl á eilt í fjárframlögum og fjár- söfnun, þar sem því verður við komið. Er .goll til þess að vita að einmitt nú verður fjársöfnuninni hraðað svo sem frekast er unnt, en jafnframt hafa verið gerðar ráð- stafanir til að tryggja skip til flutninga á vörum til Danmerkur, en þar mun vcra iskortur á klæðum og fæði. Islenzka þjóðin •er örlát á fé, jafntel um of í óþarfa liluti jen hvað þá, þegar um framlag er að ræða lil manúðarstarfa. Danir og Norðmenn hafa þolað þyngstu raunir ófriðarins. Guð og gæf- an hafa leitt hörmungarnar að mestu hér hjá garði. Við erum, aldrei ])essu vant, af- lögufærir og viljum reynast vinir í raun. jOrðagjálfur um norræna samvinnu er einsk- is virði, en sýnum í verkinu viljann og sam- úðina með frændþjóðunum, og minnumst þess, að senda þeim þann varning einan, sem þjóðinni er til sórna, — og alls elckert lírkast. ] Miðvikudaginn 16, mai 1945 Stríðið V: Mönduiveídin þurftu að ná yfirráðum T yfir egar Þjóðverjar höfðu náð Frakklandi á vald sitt, var augljóst, að stríð- ið mundi færast suður til Miðjarðarhafs og Norður- Afríku innan skamms. Fall Frakka liafði gefið Þjóðverjum og bandamönn- um þeirra yfirráð yfir Franska Marokko, Tunis og Alsír, svo að þeir höfð'u yfir- ráðin á Mið-Miðjarðarhafi. Þarna gafst því kærkomið tækifæri til að rjúfa alveg flutningaleið Breta frá Ind. landi, svo að herstjórn 'mönd- ulsins tólc ákyörðun um að næst skyldi sótt að Suez- skurði og hann tekinn. Fyrsta verlc möndulsins í þá átt var framsókn í Austur-Afriku, austan skurðsins, í júlíniánuði 1940. ítalskar hersveitir sóttu frá Ethiopiu suður í Iyenya og norður á hóginn inn i Egiipzka Sudan. Steðjaði því mikil hætta að vesturbakka skurðsins og Rauðahal'sins, sem er raunveridegt fram- hald hans. í ágúst fóru ítalir með her gegn Brezka Somali- landi, sem er við Aden-flóa, tóku það og með því móti var skurðinum raunvcrulega lok- að að sunnan. ftalir upp með sér. Mánuði síðar gerðist það norður við Miðjarðarhaf, að Rudolfo Graziani marskálk. ur hóf fyrstu eyðimerkur- sókn möndulsins með þvi að fara yfir landamæri Egipta- lands. Nú átti einnig að loka Suez-skurðinum að vestan. Italir þm-ftu eklci að óttast að Frakkar mundu koma aftan að sér, þar scm eftirlit var liaft með öllu, sem gerðist í nýlendum þeirra vestan við Libyu, svo að ítalir þóttust hvergi hræddir, er þeir sendu um 250,000 manna her inn i Egiptaland. El/kert varð um varnir á landamærunum, enda höfðu Bretar þar engar vei-ulegar víggirðingar, eins og ítalir höfðu komið sér upp sín megin. ítalir voru raun- verulega svo sannfærðir um sigurinn, að þeir liöfðu með- ferðis sigurmerki úr marm- ara, þegar þeir fófu yfir landamærin. Bretar höfðu miklu minna lið, svo að þeir sáu, að það var fásinna að reyna að verj- ast við Iandamærin. Ilopuðu þeir því á hæli liægt og liægt, en ítalir fylgdu þeiny ef tir og að fáeinum vikum liðnum voru framsveitir þeirra komnar til Sidi Barrani, sem er um 160 km. innan landa- mæranna. Er hér var komið, lét Graziani slaðar numið, að því er virtist til að koma flutningaleiðum sínum i lag og fylkja her sínum á nýjan leik fyrir sóknina, sem álli að ríða Bretum að fullu í Norð- ur-Afríku og Miðjarðarhafi austanverðu. Er hann færi á slúfana næst, átti ekki að nema staðar fyrr en við Suez- skurð. En í desember fengu Bret- ar liðsauka, svo að þ'eir urðu fyrri til en ítalir. 130.000 fangar. Áslralíumenn, Ný-Sjál#nd- ingar og índverjar undir stjórn Sir Arcliibaid Wavells þreifuðu fyrir sér víð varnir ílala, komust að þeirri niður- stöðu, að þær mundu ekki vera erfiðar viðfangs og lét til skarar skríða. Þeir her- tóku Sidi Barrani fyrir jól og héldu síðan viðstöðulaust véstur yfir lándamærin. Ilafnarhorgin Tobruk, karavanastöðvarnar Derna og Benghazi leijgsf vestur í Cyrenaica og fleiri voru tekn- ir með áhlaupi eftir snarpa bardaga. Um 130,000 ítalskir hermenn voru teknir til fanga og 18. febrúar voru brezku hersveilirnar komnar vestur til E1 Agheila. Þeir höfðu þá farið um 800 km. siðan þeir hófu sókn sína. ítalir höfðu heðið svo al- geran ósigur, að þeim var um megn einum að stöðva Breta, ef þeir hefði leitað lengra. Allar líkur eru til, að Bretar hefði getað tekið alla Libyu af ítölum, ef þarna liefði ekki komið tvennt til: í fyrsta lagi hafði Wavell neyðzt til að senda talsverðan hluta liers síns til hjáípar Grikkjum, sem áttu þá í þrengingum og í öðru lagi fengu Italir lijálp frá Þjóðverjum, sem sendu eyðimerkursérfræðinginn Ronmiel suður til Libyu. Hann liafði með sér þýzkar vélahersveitir. Rommel var ekki seinn á sér að, hagnýta sér, hversu ' jlla Bretar voru staddir. Skriðdrekar lnms gerðu harða árás á liðBreta við ElAgeheila seint í marz og varð það að láta undan síga.. Þann 4, apríl liöfðu Bretar liörfað til Beng- liazi. Þrem dögum siðar tók Rommel Deriia og þar í grennd voru þrír brezkir hershöfðingjar teknir til fanga. Hörfað austur til Egiptalands. Rommel lét ekki staðar numið, því að hann sá að hann mundi geta lcomizt lengra, svo að hann sótti á íneð ofurkappi. Herd.eildir hans, sem Þjóðverjar gáfu nú nafnið „Afrika Korps“, linnlu ekki sókninni, fyrr en sveitir Wcivells höfðu verið hraktar alla leið inn í Egiptaland og sókn hans austur á bóginn var mun hraðari en sólcn Breta hafði verið vestur á bóginn um vetupinn. Rommel hreinsaði alll austurhérað Libyu, en einni borg náði liann ekki, Tobruk, þar sem lítilli brezkri sveit tokst að hrinda áhlaupum Iians. Bardagar voru harðir alveg fram í maí, þegar Bret- ar voru aftur komnir austur fvrir landamæri Egiptalands. Þá fyrst gaf Rommel skipun um að sókninni skyldi iiætt, þar eð flutningaleiðir hans voru orðnar hællulega lang- ar og herinn orðinn þreyttur. I grennd við Sollum var lát- ið slaðat numið og meðan hitarnir voru sem meslir voru báðir herir um kyrrt, meðan þeir unnu að því að draga að sér menn og nauð- synjar. Hrein.sað til í Austur-Afríku. Meðan þetta gcrðist i I-i- byu liafði einnig verið barizt af kappi í Austur-Afríku en þar hafði hersveitum mönd- ulveldanna gengið langt frá Framh. á 6. síðu Hömlum Eg býst nú ekki við því, að lesend- af létt. urnir sjái btöðln taka niiklum slakka- skiptum, þótt fréttahönilum þeini, sem á þeim hafa hvílt i fimm ár og fimm daga, hafi nú verið aflétt er ófriðnum er liœtt í Evrópu. Þau breytast ekki eins mikið og þýzku blöði, sem komið hafa árum saman út undir handleiðslu Göbbels, en fá svo allt í einu yfir sig foringja úr herjum Breta, Banda- ríkjamanna eða Rússa. Þvi að þessar liömlur hafa verið sannarlega litlar, þegar þess er gætt, hversu ægilegt stið var um að ræða og mikil- vægt, að örygismálin færu ekki í handaskol- um, þvi að það gat haft ófyrirsjáanlegar af- leiðingar. * Tilslakanir. Það er til orðtak, að til þess séu lögin að brjóta þau, og þannig var nú með þessar reglur stundum, að þær voru brotnar. Stundum var það gert með samþykki hersins, ef einhverjir stórviðburðir höfðu gerzt, sem állir vissu þegar uái, þóft ekki hefði birzt um þá á prenti eða í útvarpi. Þannig var til dæmis, þegar Goðafossi var sökkt hér úti á flóanum. Og ef ofviðri skall á, sem orsakaði mikið tjón, þá var einnig slakað til, þvi að þeir, sem eftirlitsins gættu, vissu, að þarna áltu svo inargir hlut að máli, sem nauðsynlegt var að fengju að vita vissu sína um ættingja og vini. En þó mun réttara að segja i þessu til- felli, að nauðsyn brýtur lög. * Brot. En það kom líka fyrir, að uin hrein brot væri að ræða, eins og þegar sagt var frá hafís hér í blaðinu einu sinni. Hann mátti ekki nefna af því, að hann gat ráðið miklu um siglingaleiðina til Norður-Rússlands. En þegar svona kom fyrir, þá var skotið á fundi, málin rædd i bróðerni og hinn brot- legi lofaði „belrun og bót“, eins og i vísunni slendur. Þó var hætt við þvi, að l>etta kæmi fyrir við og við, þvi að mönnum hættir til að gæta sin ekki, þegar eftirlitið er ekki þeim xnun strangara, og harðara eftir þvi gengið, að ölluni reglum væri hlýtt út i yztu æsar. * Tundurduflin. Áður en Bandaríkjamenn komu, áttu blöðin stundum í brösum við öryggisþjónustu Breta, eins og lesendur þeirra hafa ef til'vill tekið eftir á sínum tíma. Blaðamönnum tókst yfirleitt ekki eins vel að lynda við þá, sem þar stóðu fyrir, og margt þótti manni einkennilegt, scm þaðan var upp runnið. Eg man nú einna helzt eftir tundur- duflunum. Þá voru rekdufl á floti víða yið land og þóttu liinn versti vágestur. Útvarpið birti daglega og oft á dag aðvaranir um duflin, en blöðin máttu ekki minnast á þau. Mun þó lít- itl vandi að sjá, að ef lialda átti leyndu um tundurduflin fyrir erlendum niönnum, þá átti auðvitað ekki að láta útvarpið segja frá þeim um allar jarðir. * 400 kr. á hvert Eg var að lesa.í sænskum fregn- mannsbarn. um, að Sviar hefðu veilt öðr- um þjóðum, og þá einkum ná- grannaþjóð sinni, Norðmönnum, allskonar lijálp, sem svarar 400 kr. á hvert mannsbarn í landinu. Það er mikið fé, enda hefir þörfin verið mikil og margir munu Svium þakklátir fyrir hjálpsemi þeirra. Qg varlaMnundu þeir hafa verið þess megnugir, að hlaupa þannig undir bagga, ef þeir hefðu neyðzt út i stríðið eins og aðrar þjóðir. * Hvað gefa í þessu sambandi datt mér í hug, íslendingar? að það væri fróðlegt, ef Hagstof- unni eða einliverri annari stofn- un yrði falið að rannsaka, hversu miklu hjálp við íslendingar höfum veitt ýmsum bágstödd- um þjóðum eða einslaklingum þeirra á siðustu árum. Við höfuin safnað handa Noðmönnum, Dönum, Einnum, Frökkum og víst líka lianda Rússum, og ef allt er talið saman, sem lands- menn hafa látið af hendi rakna lil þessara aðiljg, þá gæli eg trúað að það yrði all-álitleg fúlga. Ekki sízt þcgar það bætist svo við, scm nú er verið að safna. * Þetta má Eg býst ekki við því, að við höf- kynna. um gefið eins mikið á hverja sái og Svíar, enda er þar óliku sainan að jafna. En okkur ælti ekki síður að þykja það nauðsynlegl, að gera þelta framlag okkar heyrin kunnugt, en þeim sitt. Við höfum hlot- ið betra lilulskipti en margur aiinar, en not- um þá nokkuð af því, sem við höfum borið úr býtum til að létta þjáningar annara. Heim- urinn mú gjarnan vita það.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.