Vísir - 26.05.1945, Side 3
Laugardaginn 26. mai 1945
VISIR
V
I
er a morgun.
Fyrsta vallarmót sumarsins.
Á morgun (sunnudag) fer
fram fyrsta vallarmót ársins
í frjálsum íþróttum, en þaö
er „fþróttamót K.R.“. Er
þgtta í þriðja sinn í röö, sem
K.R. stendur fyrir frjáls-
íþróttamóti um þessi mán-
aðarmót.
Að þessu sinni eru kepp-
endur 29 frá fjórum félögum,
K.R., Í.R., Ármanní og F.H.,
en auk þess keppir með sem
gestur þekktur amerískur
þolhlaupari, Victor J. Dyr-
gall.
AIls verður kcppí i eftir-
töldum 8 íþrótlagreinum og
i þessari röð:
300 metra hlajp: 4 kepp-
cndur, m. a. bæói núverandi
metliafi Kjartan Jóhannsson
(Í.R.) og sá fyjrverandi,
Brynj. Ingólfsson (K.R.). Er
búist við spennandi keppni
og jafnvel nýju meti, ef veð-
ur verður gott.
Langstökk án atrennu: 7
keppendur. Skúli Guðmunds-
son (K.R.) er eiirna liklegast-
ur til sigurs, en Sveinn Ing-
varsson (Ii.R.) getur orðið
honum hættulegur. Báðir
hafa stokkið 3,01 m., en met-
ið er 3,03 m. sett af Sig. Sig-
urðssyni (K.V.) 1936. Má al-
veg eins reikna með þvi, að
það falli.
Kúluvarp: Einnig 7 kepp-
endur og þeir ekki af lakari
endanum. Gunnar Huseby
(K.R.) er meðal keppenda og
því mjög miklar líkur til að
árangurinn verði á alþjóða-
mælikvarða. Af öðrum kepp-
endum má nefna Jóel Sig-
urðsson (Í.R.) og Jón Ólafs-
son (K.R.), sem mikils er
vænzt af báðum.
3000 m. hlaup: 5 keppend-
ur mjög jafnir og góðir, en
auk þess hleypur með sem
gestur, ameríski þolhlaupar-
inn Victor J. Dyrgall. Fyrstu
þrír menn úr Víðavangs-
hlaupinu þeir Har. Björnsson
(K.R.), óskar Jónsson. (í.R.)
og Hörður Ilafliðason (Á.)
munu reyna að gera sitt til að
lianga í honum og gaman
verður að sjá hvort þeim
tekst það eða ekki.
Hástökk: 5 keppendur m.
a. methafinn Skúli Guð-
mundsson (K.R.) svo árang-
urinn verður vonandi á
heimsmælikvarða eins og i
kúluvarpinu, enda þótt nokk-
uð snemmt sé. Hinir fjórir
eru Árni Gunnlaugsson, F.IL,
Björn Vilmundsson, Jón
Hjartar og Jón ólafsson, allir
úr K.R.
110 m. grindahlaup: 4
keppendur; Skúli, Brynjólf-
ur Jónsson, Finnbjörn og
Hjálmar Kjartansson. Keppn-
in verður áreiðanlega spenn-
andi og skemmtileg og ekki
ólíklegt að Skúla takist að
ógna metinu.
Spjótkast: 7 keppendur frá
3 félögum, Hér eru keppend-
ur svo jafnir að ómögulegt er
að segja um hvar sigurinn
lendir. Jón Iljartar (íslands-
meistarinn), Jóel og Finn-
björn (Í.R.) hafa mestar lík-
urnar, en hinir, svo sem
skíðakapparnir Jónas Ás-
geirsson og Gísli Kristjáns-
son geta orðið þeim skeinu-
hættir.
4x200 m. boðhlaup er síð-
asta greinin og liklega ekki
sú lakasta. í>ar keppa 5 sveit-
ir frá 4 félögum og ógerniilg-
ur að segja um úrslitin. K.R.
á metið 1:36,4 mín. sett 1943.
Eins og sjá má af þessu
verður þetta mót óvenju fjöl-
breytt og spennandi. Og jjeir
sem fylgdust með frjáls-
íþróttamótunum hér í fyrra
gera sér vonir um góðan ár-
angur strax á þessu fyrsta
móti.
Mótið mun hefjast kl. 4,30
e. li. á íþróttavellinum.
Finnska stigataílan
fcomin út.
Ómissandi handbók fyrir
íþróttamenn.
Nýlega er komin út bók, er
nefnist „Stigatafla fyrir
frjálsar íþróttir“ (Finnska
stigataflan).
í bók þessari er liægt að
finna hvað þau afrek, er
iþróttamenn vinna i hinum
ýmsu greinum frjálsa íþrótta,
gefa mörg stig.
Er tafla þessi því mjög
handhæg fvrir íþróttamenn
og aðra íþróttaunnendur.
Bókin er gefin út að tilhlut-
an Í.S.Í. en um útgáfuna hafa
séð þeir Magnús Baldvinsson
og Ingólfur Steinsson.
Bókin verður til sölu á
íþróttamóli K.R. á morgun.
HATÍÐAHdLD
17. JÚNl.
Orðsending frá ríkis-
stjórninni.
Ríkisstjórnin vill hér með
beina þeim tilmælum lil allra
bæjar- og sveitarstjórna i
landinu, að þær bafi forgöngu
um almenn hátíðahöld um
land allt á hinum nýja þjóð-
hátiðardegi, 17. júní.
Verður það að sjálfsögðu
að fara eftir mati þeirra, er
forgönguna hafa, hversu há-
tíðahöldunum skuli fyrir
komið á hverjum stað, en þó
vill ríkisstjórnin láta í Ijós þá
ósk, að stefnt verði að því að
haga svo skemmtunum og
öðrum mannfagnaði, að allir
eigi þar sem greiðastan og
jafnastan aðgang.
Rikisstjórn íslands,
23. maí 1945.
Norðmenn hafa sett á lagg-
irnar skrifstofu, sem á að sjá
um að fólk sem liefir orðið að
rýma íbúðir sinar vegna
Þjóðverja eða quislinga, fái
þær sem fyrst aftur.
Landssöfiuinin
nálgast nú tvær
milljónir.
Sambandið og kaupfélögin
gefa 150 þúsund krónur.
I gær barst skrifstofu
Landssöfnunarinnar bréf og
100 þúsund króna ávísun frá
Sambandi íslenzkra sam-
vinnufélaga. Er gjöf þessi frá
sambandinu og allflestum
sambandsfélögum, en jafn-
framt er frá því skýrt, að
þau félög, sem ekki taki þátt
í gjöf þessari, hafi gefið til
söfnunarinnar livert á sín-
um stað, og muni þau tillög
nema um 50 þús. kr.
Á hvítasunnunni söfnuð-
ust tæpar 6.600 kr. i kirkjum
í Reykjavík, og afhenti síra
Friðrik Hallgrímsson dóm-
prófastur í gær það, sem
safnazt hafði hjá söfnuðum
þjóðkirkjunnar. Gamall mað-
ur, S. að nafni, kom og af-
henti 50 kr. á skrifstofunni,
en kom að vörmu spori aft
ur og bætti 50 kr. við.
Eg á xiokkur
dekk
felga 16x475 og
500. — Vil skipta
og fá 16x650. —
Aðeins skipti koma
til greina.
LOFÍUR,
Nýja Bíó.
Kappsigiinga-
bátur
er til sölu af sérstökum
istæðum. — Til sýnis í
bragga nr. 13 við Nýbýla-
veg og Hafnarfjarðarveg
vestanverðan kl. 6-8 í dag.
Haglega gerður
veggskjöldur af
Jóni Sigurðssyni.
Síðustu daga hefir verið til
sýnis i skemmuglugga Har-
aldár Árnasonar haglega
gerður veggskjölcþir af Jóni
Sigurðssyni forsela. Ýmsir
málsmetandi menn hér í bæ,
hafa farið lofsamlegum orð-
um um skjöldinn, sem er
gerður úr ljósum málmi,
liúðaður með eir, og „oxider-
aður“. Er hægt að panta hann
i síma 2287 milli kl. 5—7
daglega.
Barnakórinn
Sólskinsdeildin.
Á morgun ld. 1.30 e. b.
syngur Barnakórinn Sól-
skinsdeildin undir stjórn
Guðjóns Bjarnasonar i Gamla
Bió. Rennur ágóðinn allur til
Landssöf nunarinnar.
Þess má vænta, að margir
vilji hlýða á söng barnanna
og styi’kja um leið gott mál-
efni.
Aðgöngumiðar fást i verzl-
unum til hádegis og eftir það
á skrifstofu Landssöfnunar-
innar, Vonarstræti 4, senx
verður opin lil kl. 10 í kvöld.
Mæoradagoirinn er á mcrgun.
Eins og að undanförnu hefir
Mæðrastyrksnefnd blómasölu
þann dag, og verða bau afhent
í eftirtöldum skólum: Austur-
bæjarskóla, Miðbæjarskóla, Laug-
arnesskóla, Mýrarhúsaskóla,
Skildinganesskóla. Einnig verða
þau afhent í Elliheimilinu og i
Þingholtsstræti 18, á morgun kl.
9 f. h. Börn fá sölulaun, og þeim
duglegustu verða veitt verðlaun.
TILKYNNING
ins
Tekið verður á móti pöntunum á aðgöngu-
miðum að skemmtunum Sjómannadagsins
3. júní næstkomandi í skrifstofu sjómanna-
blaðsins Víkmgur, Bárugötu 2, fyrst um sinn
alla virka daga kl. 2—4 e. h.
Allir pantaðir aðgöngumiðar verða að vera
sóttir fyrir mánaðamót.
Mæðradagurinn
er á morgun og eru bá blómabúðir okkar opnar
- frá kl. 10—4.
Fléra.
Lifla blómabúSin.
Blómabúðm Gaxður.
Kakiusbúðin.
Blóm & Ávextir.
Blémaverzlun Önnu Hailgrímsson.
Verzlunin Stígandi,
Laugavegi 53.
Býður yður fyrsta flokks ferðaútbúnað,
svo sem:
Tjöld, allar stærðir, tjaldbotna, bakpoka,
allar stærðir, svefnpoka, þrjár gerðir,
hliðartöskur, vatnsfötur, innkaupatöskur.
Einnig alls konar fatnað og útbúnað.
syngur í Gamla Bíó á morgun kl. 1,30. Aðgöngu-
miðar hjá Eymundsson, Sigríði Helgadóttur, Hljóð-
færahúsmu og á skrifstofu Landssöfnunarinnar, Von-
arstræti 4.