Vísir - 12.07.1945, Blaðsíða 6

Vísir - 12.07.1945, Blaðsíða 6
6 VISIR Fimmtndaffinn 12, júlí 1045 UNGLINGA vantar þegar í stað til að bera út blaðið um LAUFÁSVEG * Talið strax við afgreiðslu blaðsins. Sími 1660. Dagblaðið Vísir. Við Þingvallavatn er til sölu mótorbátur mcð scm nýrri GÖTA 2i/2 hestafla vél. Uppi'ýsingar gefur Jónas S. Jónasson, í síma 4005 — og í lcvöld kl. 8—9 í síma 2426. Auglýsingar sem birtast eiga í blaðinu á laugardög- um í sumar, þurfa að vera komnar til skrifstofunnar eigi síðar en kl. 7 á föstudagskvöld, vegna þess að vmna í prentsmiðjunum hættir kl. 12 á há- degi á laugardögum á sumrin. Húseignin nr. 26 við Tjarnargötu (biskupshúsið) cr til sölu, ef viðunandi boð fæst. Tilboð óskast til undirritaðra, sem gefa allar frck- yri upplýsingar, fyrir 17. þessa mánaðar. JJaóteic \JeÁlréfaóa lan icjna- ocj (Lárus Jóhannesson, hrm.) Suðurgötu 4. Símar: 4314, 3294. vegna sumaxleyfa frá 14. til 30. júlí. GuTiipressan Stjariiaii Laugaveg 73. Forstöðukona óskast að barnaheimili því, sem Reykjavíkurbær hefir í hyggju að reka að Kumbaravogi. Umsókn- ir sendist til Jóns Pálssonar, Laufásvegi 59, Reykja- vík, fyrir 1. ágúst næstkomandi. Bamaverndarnefnd Reykjavíkur. STÁLULL Klapparstíg 30. Sími 1884 GÆFAN FYLGIR hringunum frá SIGURÞÓR Hafnarstræti 4. -J ^4tL ua lis uerL lók: \ Eftir Valgeir Skagfjörð, cand. theol. ' — t Bók þessi er gefin út í tilefni af því, að í sumar eru liðin 10 ár frá andláti höl'undar. Hann lézt ung- ur, eftir langá vanheilsu, að nýloknu guðfræðiprófi. Þeir, sem þekktu hann, þóttust sjá, að þar væri að koma frain maður, sem verða mundi óvenjulega mik- ilhæfur liðsmaður íslenzkrar kirkju, ef honum entist aldur. Bókin ér safn af ræðum og erindum, sem hann hafði haldið, og flytur óvenju- lega lífrængn. og þróttmikinn boðskap. Hún mun verða kærkomin öllum þeim, sem þekktu þenpitn uuga og mikilhæfg mann og einnig öðrum, er kynnast vilja boðskap Iians. . - Verð kr. 18,00 ób. og kr. 25,00 innb. Fæst kjá öllum bóksölum. oteaýen (fin czCilla. JaU WölL- Framh. af 4. síðu. móti allt stárf Jakobs Möll- ers, auk þess, scm liann er mannkostamaður á alla lund og góðmenni. Hefir hann á- vallt reynzt þeim drjúgur liðsmaður, sem lakast liafa verið settir í; þjóðfélaginu og átt stöðugt öruggu fylgi að fagna meðal verkamanna. Fyrir hagsmunum þeirra hóf hann barátt’u scm ritstjóri þessa blaðs, óg þótt hann liafi aldrei fylgt' stéttarflokkum þeirra í stefnumálum, hefir verkalýðurixin átt þar hauk í horni varðandi kjarabætur og íiienningarbaráttu. Jafn- framt hefir Jakob lcyst vanda ýmsra þeirra, sem til hans hafa lcitað, og mér er ekki grunlaust nm, að hann hafi jafnvel gert það um efni fram, að minnsta kosti um all-langt skeið. I þessum lírium hefir ver- ið stikláð á stóru og margt gleymzt, sem ástæða væri til að geta, en bitt cr auðsætt, að í einni blaðagrein cr ekki unnt að rekja st’örf manns, sem unnið hefir að l'lestum framfaramálum ]>jóðarinnar um rnarga áratuga skeið. Þar mun saga landsins geyma nafn hans i röð þess beztu sona. Að loknm skal þcss minnzt, að.frá því árið 1915 hefir Jakob Möllcr verið eigandi þessa blaðs, og á nú sæti i stjórn hlutafélags þess, sem rekur lilaðið. Fyrir hönd stjórnenda og starfsmanna blaðsins vil eg þakka Jionum ánægjulega samvinnu og óska þess jafnfrariit, að liún megi enn varn scm lengst. Þótt Jakolx liafi átt við alvar- lega lieilsubilun að stríða á tímabili, hefir lieilsa lians batnað mjög, enda nýtur hann riú óskertra krafta. Muri sauriast, að hanli á enn mörg verkefniri óunriin og ráð hans verða notadrjúg i hverri raun. Þeir munu þvi margir, sern senda afmælis- barninu Ixlýjar kveðjur og liamingjuóskir í 'dag, en öll þjóðin mun minnast þess mcð virðingu og þakklæti K. G. &œjarfréttir Napturlækirir er í Læknavarðstofunni, simi 5030. Næturvörður er i Ingólfs Apóteki. Næturakstur annast B.S.Í., sími 1540. Skipafréttir. í morgun kom Þórólfur frá Englandi. í gær koniu tvö skip frá Englandi, togarinn Itán og færeyskur kútter. Veðrið í dag. Um liádegi í dag var vestan eða norðvestan gola Vestanlands, en Austan- og Sunnanlands"’ var austan gola og víðast livar bjart og þurrt veður, en dálítil þoku- súld fyrir Vestfjörðum. Hiti cr víðast 9—13 stig. Veðurhorfur í dag. . . . Suðvesturland, Faxaflói og Breiðafjörður: Vestan eða norð- vestan gola og léttskýjað. Vest- firðir( Norðuland og Norðauslur- land: Hægviðri og léttir heldur til. Austfirðir og Suðausturiand: Austan eða suðaustan gola, skýj- að eða léttskýjað. ■ 80 ára er í dag, 12. jiilí, Ingibjörg Páls- dóttir frá Þingeyri, nú til heim- ilis Sellhy Gamp 11, Sogamýri. Útvarpið í kvöld. Kl. 19.25 Hljómplötur: Söng- dansar. 19.40 Lesin dagskrá næstu viku. 20.20 Hljómplötur: a) Tema og tilbigði eftir Arensky b) Slavneskir dansar eftir Dvor- sják. 20.50 Frá útlöndum (Björn Franzson). 21.10 Hljómplötur: Lög leikin á bíó-orgel. 21.25 Upplestur: „Trygg ertu Toppa“ eftir Mary O’Hara, bókarkafli ((Ragnar Jóhannesson .les). 21.45 Hljómplötur: Annie C. Þórðar- Son og Iðnaðarmannajfórinn syngja Rapsodiu eftir Brahms (söngstjóri: Robert Abraham). 22.00 Fréttir. Dagskrárlok. . Heyrnarhjálp. Félagið Heyrnarhjálp óskar þess getið að afgreiðslan verði lokuð vegna sumarleyfis frá 14.—30. júlí og hvetur þá, sem þurfa að kaupa rafhlöður eða annað á þessuni tíma til þess að gcra pantanir sínar fyrir 14. júli (síbi 4046). KROSSG&TA nr. 88. Lárétt: 1 Venjulega, 7 ílát, 8 amboð, 9 faxigamark, 10 eldsvoði, 11 fugl, 13 manix, 14 blaðamaður, 15 tímalxil, 16 gruna, 17 ílátið. Lóðrétt: 1 Smjörlíld, 2 tíndi, 3 þyngdarein., 4 brúlca, 5 korn, 6 sökum, 10 hnöttur, 11 leigja, 12 máiiuðurinn, 13 skaut, 14 sendiboða, 15 fall, 16 fór. » Ráðning á króssgátu nr. 87: Lárétt: 1 Afldætt, 7 nár, 8 tin, 9 T.T., 10 lial, 11 kór, 13 Sál, 14 ei, 15 fár, 16 ann, 17 griðung. Lóðrétt: 1 Anti, 2 fát, 3 kr. 4 ætar, 5 til, 6 tn., 10 hól, 11 Kárx, 12 bing, 13 sár, 14 enn, 15 F.G., 16 au.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.