Vísir - 03.08.1946, Side 2
2
V I S I R
Laugardaginn 3. ágúst 1946'
Tóm i istarbra m t £*«/#?/#* m d £
írú 19. öid.
Jóii Palsson
/ 3. 8.1865,
1 18. 1. 1946.
— Bergsætt —
1 þessari stuttu grein,
ælla eg mér ekki þá
dul að skrifa tæmandi um
Jón Pálsson og hans fjöl-
breyttu störf, Það væri nægt
efni í heila hók. Hér verða
aðeins rakin að nokkru sá
liður í störfum hans, er
snertir tónlistarmálin. Því
ekki veldur það tvímælis að
Jón Pálsson verður alltaf
stór og ógleymanleg persóna
í söngsögu okkar Islendinga
frá 19. og 20. öld.
I. Forspjall.
Sögu menningarinnar í
gegnum aldirnar má telja
þrotlausa baráttu, baráttu
sem haldið hefir verið uppi
af þeim einstaklingum er
skarað hafa fram úr að víð-
sýni og mannkærleika. Kem-
ur þar einatt fram að einn
tók við er annar féll. Sú hlið
menningarinnar hér á landi
er snýr að tónlistarmálunum
hefir tiltölulega .við margt
annað átt fáa hrautryðjend-
ur, allt fram á seinasta hluta
19. aldarinnar. Afleiðingin
var því að þjóðin drógst aft-
ur úr á því sviði.
Um og eftir 1840 barst
rómantíska stefnan hingað
til lands, og andaði suðrænni
hlýju í lögum og Ijóði yfir
þjóðina, og vakti hana af
svefni liðinna alda. Sú stefna
féll vel inn í þjóðarsálina,
og eignaðist brátt afburða
stuðningsmenn, er vörðu
hæfileikum sínum henni til
útbreiðslu.
Það liefir verið almenn
skoðun að umhverfið eigi
ekki svo lítinn þátt í andleg-
um þroska einstaklingsins.
Stórbrotin náttúrufegurð,
víðfeðmi (hafið), lyfti hug-
anum hærra. Skapi göfugan
hugsunarhátt, að finna til
með smælingjunum, jafnvel
skapi þrá til að kasta stein-
um úr götu þeirra. Þetta
styðst við . rök, sem er að
finna á ýmsum sviðum sög-
unnar.
n. Tónlistarlífið á Stokks-
eyri og Eyrarbakka fyrir
90 árurn.
Um og eftir 1847 verða
straumhvörf í tónlistarjifi á
Stokkseyri og Eyrarbakka.
Með komu Thorgrímssens-
fólksins að Eyrarbakka. Og
ennfremur er lengra leið inn
í árin og þeir fóru að vaxa
upp bræðurnir frá Syðra-
Seli, Bjarni, Jón, Isólfur og
Gísli þá komu þar nýir kraft-
ar til sögunnar.
Bjarni, fæddur 1857 varð
boðberi hins nýja tima, ljúf-
ur sem vorblær. Hann var
syngjandi svanur sinnar
samtíðar, þar til hafaldan
lokaði hans votu gröf 27.
febrúar 1887.
Sylvia Thorgrímssen
kenndi honum að spila á
harmoniku. Hann varð
organleikari við kirkjuna á
Stokkseyri er hún eignaðist
hljóðfæri 1876. Hann stofn-
aði söngfélag. Hann kenndi
bræðrum sínum að spila, og
fjölda annara er sótti
kennslu til hans. Þessi ungi
tónlistarvísir á Stokkseyri
og' Eyrarbakka átti sterkan
hauk í horni þar sem Thor-
grímssensfólkið var.
Lífið í þorpinu gjörbreytt-
ist. Söngur og orgelspil var
um haft um hönd öll mögu-
leg tækifæri. Kennslan var
ókeypis, ekki í krónuskyni.
Þar var gróandi þjóðlíf.
Ctlendar tónlistarbækur
voru nægar til heima í hús-
inu, svo var kallað hús verzl-
unarstjórans. Ymsar af bók-
um þessum eru enn til, og
eru talandi vottur um þá
tónlistarmenningu, sem átti
sér stað á Stokkseyri og Eyr-
arbakka fyrir 90 árum.
III. Jón Pálsson lærir að
spila á harmoníum.
Á árunum í kringum 1880
var ekki venja að halda
unglingunum til náms, ann-
að en til undirbúnings ferm-
ingar. Ræðst það því af
sjálfu sér hvað þarflegt það
þótti, er Jón Pálsson, þá
unglingur fór að fá leyfið,
en það var eingöngu bundið
við frístundir er hann hafði
frá öðrum störfum. En —
þar með var ekki allt feng-
ið. — Hljóðfæri var ekkert
á heimilinu og aðeins í
kirkjunni. Þangað varð Jón
að hlaupa til þess að æfa
sig, en kallt hefir það verið
að vetrinum í óhituðu húsi,
er hann kom sveittur af
hlaupunum. En ódrepandi á-
hugi og listhneigð hans vann
sigur á öllum örðugleikum,
hann lærði að spila á harm-
oníum og það vel eftir því
sem þá voru föng á hér á
landi.
IV. Jón Pálsson verður
organleikari á Stokks-
eyri og Eyrarbakka.
Þegar Bjarni Pálsson
drukknaði árið 1887 tók Jón
við störfum bróður síns, sem
söngkennari, og ennfremur
organleikari við kirkjuna og
þegar kirkjan á Eyrarbakka
var byggð 1893 varð hann
einnig organleikari við hana
og hélt því starfi, þangað
til þau hjónin fluttu til
Reykjavíkur.
Jón kynntist snemma út-
lendum kirkjusöngsbókum.
Lét hann söngflokkinn æfa
úr þeim ýms falleg lög við
sálma úr islenzku sálma-
söngsbókinni. Sérstaklega-
minntist eg tveggja laga, er
henn gat um við mig, bæði
eftir Lindeman: „Lifandi
guð eg leita þín“, og „Hve
sælt hvert hús.“ Bæði þessi
lög eru fyrir löngu tekin inn
í íslenzku kirkjusöngsbók-
ina, og eru í miklu afhaldi.
V. Jón Pálsson flytur til
Reykjavíkur.
Árið 1902 fluttu þau Jón
Pálsson og frú frá Eyrar-
bakka til Reykjavíkur. Um-
hverfið og lífsviðhorf breytt-
ist, en það sem ekki breytt-
ist var áhugi hans á tónlist-
armálum. Fríkirkjan í
Reykjavík var stofnuð á ár-
inu 1903, varð hann fyrsti
organleikari við hana, og var
það óslitið til 1915, lengst
af án launa, en síðustu árin
með launum er hann skipti
á milli fólksins, er söng í
kirkjunni. Lagði hann mikla
vinnu í það starf. Æfði stór-
an söngflokk. Heyrði eg
norður í landi mikið orð
gert á því hve vel hefði tek-
ist með flutning á hátíða-
söngvum sira Bjarna Þor-
steinssonar. Kennsla hans
í harmoníumspili jókst með
ári hverju, oft án endur-
gjalds, en væri um borgun
að ræða voru það 50 aurar
á tímann.
Á síðastliðnum vetri tal-
aði eg við gamla konu, er
hafði á unga aldri gengið i
tíma til Jóns, heilan vetur,
um vorið er hún fór að gera
upp við hann kennslukostn-
aðinn voru það 7 krónur alls.
Eitt sinn spurði eg Jón hvað
hann héldi að hann hefði
veitt mörgu fólki tilsögn í
harmoníumspili, Eftir því
sem hann komst næst taldi
hann það mundi vera mörg
hundruð karla og kvenna.
Mig minnir það vera á ár-
inu 1944, er eg kom eitt sinn
heim til hans, var hann að
ljúka kennslustund í harm-
oníumspili, þá 78 ára, sagði
hann við mig með sínu ó-
gleymanlega brosi. „Hvernig
lýst þér á, nemandinn minn
sem er um sjötugt“. Þarna
var starfað á meðan dagur
vannst.
Á ýmsan hátt studdi Jón
Pálsson fólk til tónlistar-
náms, bæði fyrr og síðar.
Mér er persónulega kunnugt
um einn fátækan pilt, sýsl-
unga minn, er hann styrkti
til fleiri ára, og það á tón-
listarskólann, vona eg að
góðvilji hans og drengskap-
arlund verði þar ekki á glæ
kastað, og launist þó siðar
verði.
VI. Innflutningur hljóðfæra.
Ekki er mér kunnugt um
hvenær Jón hóf innflutning
á hljóðfærum, en hyggja mín
er sú að það hafi verið
snemma á árum. Náði hann.
samböndum við frægar verk-
smiðjur, bæði á Norðurlönd-
um og Þýzkalandi. Reynd-
ust hljóðfærin ágætlega, og
seldust víða um land. Oft
lánaði hann verðið, er svo
var smá afborgað. Alls mun
hann hafa selt um 1700
harmoníum og píanó, auk
sniærri hljóðfæra.
VII. Söfnun þjóðlaga.
Þjóðfélagið heillaði huga
Jóns. 1 því fann hann margt,
er lýsti hinum forna tíma
(hugsana og sálarlífs).
Yrði þeim ekki safnað og
bjargað, mundi þau sem
margt annað hverfa og
gleymast. Það ér að segja
flutningur þeirra var svo
margþættur. Einn söng lag-
ið þannig og annar hinsveg-
ar. Viðhöfnin var sérkenni
aldai’andans, og henni varð
að ná. Af þessum ástæðum
pantaði Jón sér áhöld, nokk-
urskonar hljóðnema, er
sungið var inn í, og tók hann
þá lagið eins og það var
sungið inn á válsa, að öllu
leyti með framburði þess er
söng. Að þessu vann hann til
fjölda ára, að láta syngja
lögin inn á valsa, voru þau
sungin af mörgum, og það
víða af Iandinu. Þjóðlaga-
safn þetta er all stórt, og
hið merkilegasta og ábyggi-
legur menningarfjársjóður.
All mörgum árum fyrir
dauða sinn flutti Jón safn
þetta ásamt hljóðnemanum
út í Þjóðminjasafn, og gaf
því allt saman.
Eg bendi á að eitt lagið
í safni þessu er mörgum var
horfið, er hið gullfagra lag:
„Víst er þú Jesú kóngur
klár“, sem nú er í íslenzku
kirkjusöngsbókinni, í radd-
setningu dr. Páls Isólfssonar.
VIII. Samningur söngrita
og útgáfur.
Á árinu 1911 kom út söng-
bók Goodtemplara, hafði
Jón Pálsson ásamt frú önnu
Thoroddsen og Halldóri
Jónssyni unnið að samningi
hennar. Bók þessi varð mjög
vinsæl, og seldist upp. Er nú
ófáanleg.
Árið 1934 gaf Jón út safn
af frumsömdum lögum eftir
Isólf Pálsson bróður sinn.
Rit þetta heitir Fjóla. Nótna-
bókarsafn Jóns er merkilegt
sagn. Ekki fyrir stærðarsak-
ir en i því er að finna mikið
af þeim nótnabókum, er
fluttust hingað upp til lands-
ins um og eftir 1850. Enn-
fremur er í safni hans ýmsar
nótnabækur úr eigu Thor-
grimssensfólksins á Eyrar-
bakka, en einmitt þær bæk-
ur frekar en nokkuð annað
lýsa tónlistarlífinu á Stokks-
eyri og Eyrarbakka fyrir 90
árum.
IX.Loka átök Jóns Pálssonar
á sviSi íslenzkra tónlistar-
mála.
Um fjölda ára skeið hafði
hin hægfara þróun tónlistar-
innar hér á landi verið Jóni
mikið áhyggjuefni. Kennslan
einhæf og ófullnægjandi. En
liér varð ekki ráðin hót á,.
nema leita út úr landinu til
stórþjóðanna, anuað af
tvennu að * fá útlenda
kennslukrafta inn í landið;.
en hin leiðin var að senda
mann til útlanda til lang-
varandi náms. Þessa leið fór
hann. Hann hvatti bróðurson
sinn Pál Isólfsson til utan-
farar upp á kostnað þeirra
hjóna. Eins og alþjóð er
kunnugt fór hann til Þýzka-
lands, og dvaldi þar við tón-
listarnám í mörg ár, undir
handleiðslu hins fræga orgel-
snillings Karls Straube í
Leipzig. Fyrir mörgum árum
er kunnur árangurinn af
þeim hugsjónum Jóns. Dr.
Páll hefir ferðast víða um
lönd og haldið hljómleika, og
fengið lofsamlegustu dóma,
sem orgelsnillingur og tón-
skáld. Auk þess sem hann
hér heima hefir gengt fjöl-
þættum og mörgum störfum
á sviði tónlistarinnar, bæði
sem organleikari, kennari,
skólastjóri tónlistarskólans
og tónlistarráðunautur út-
varpsins. Þess utan æft
hljómsveitir í smærri og
stærri stíl. Jón Pálsson
reyndist samtíð sinni víð-
sýnn og fórnfús. — Hvergi
meðalmaður. — Var þó
verkahringur hans stór og
margbreyttur, frá sjómann-
inum, kennararanum, verzl-
unarmanninum, bankafé-
hirðinum, rithöfundinum,
fræðimanninum og bindind-
ismanninum. Þess utan sem
sem á hann hlóðust hinn
fjölmörgu horgaralegu störf
á öllum tímum æfinnar.
Þó hann sé dáinn, er á-
rangurinn af störfum hans.
í fullum blóma, og verður
um langa framtíð. Hann var
sáðmaðurinn er náði því
frjómagni í þjóðarsálina, er
aldrei deyr,
X. Niðurlagsorð.
Grein þessa hefi eg ritað
án þess að rannsaka hand-
ritasafn Jóns Pálssonar. Mér
dylst þó ekki, að þar muni
margt að finna, er máli skipt-
ir, bæði viðvíkjandi söng-
listarlífinu á Stokkseyri og
Eyrarbakka fyrir 90 árum,
og ennfremur fyrir íslenzka
söngsögu yfirleitt. Að síð-
ustu lesari góður. Nú eru
breytt viðhorf hér í landi á
sviði tónlistarmála frá því
Jón Pálsson var með lopnar
hendur að æfa sig í kirkjunni
á Stokkseyri, og nú að
setjast inn í salarkynni Tón-
listarskólans, með þeim
kennslukröftum, sem þar er
á að skipa.
Það er Grettistakið sem
aukin menning, dáð og
drengskapur einstakra
manna hefir lyft.
Þorsteinn Konráðsson.