Vísir - 07.08.1946, Síða 2
2
V I S I R
I dag er Sigvaldi Kaldalóns
tónskáld til moldar borinn.
Nú er hljó'ðnuð fyxár fullt og
allt hans þýða raust, sem svo
fagurt ómaði, að öll þjóðin
lilustaði hugfangin. Þjóðin
syrgir tónskáldið, en þeir,
sem þekktu manninn sjálfan,
syrgja Ijúfmennið og góðan
dreng.
Tónskáldð ' var þagnað
löngu áður en það hvai’f úr
þessum heimi. í maimánuði
i fvrra fékk Sigvaldi heila-
blæðingu, en rétti nokkuð við
aflur. Hann fékk annað áfall
i ágúst þar á eftir, komst þó
á fætur og hafði fótavist
þangað til þrem dögum fyrir
andlátið, sem bar að hinn 28.
júli s. 1. Eftir að Sigvaldi
kenndi þessa meins, mátti
hann várt hönd né tungu
hræi’a, og gat því elcki skrifað
neinar nótur á pappírihn.
Síðasta lagið samdi hann í
xnaímáixuði 1945 og lieitir það
„Minning“. Textinn er eftir
Hreiðar Geii’dal.
Sigvaídi Kaldalóns er fædd-
ur í Vaktai’abænum i Grjóla-
þorpinu liér í Reykjavík 13.
janúar 1882. Nú er Vaktara-
bæi’inn talinn nr. 23 við
Gai’ðasti’æti. Stefán Egilsson
múrari, faðir Sigvalda, keypti
lxálfan bæinn og timbuihús á
ióðinni árið 1880 og virðist
hafa orðið síðar einn eigandi
eignarinnar, því að liann
seldi liana árið 1889 og fluttist
þá í Teitshús við Suðurgötu,
en það hús er nú búið að rifa
og stóð þar sem nú er baklóð
slökkvistöðvai’innar. Á
bei’nskuárum mínum var
Suðurgatan og umhverfi
hennar sá heimur, sem eg
lífði og lirærðist i. Þá mátti
oft heyra organslátt og fagr-
an söng óma frá Teitshúsi, en
þá voru þeir bxæðurnir Sig-
;valdi og Eggert að syngja og
spila.
Eins og áður er sagt var
Stefán múrari faðir Sigvalda.
Ilann var virtur og dugandi-
maður í sinni stétt. Kona
hans var Sesselja Sigvalda-
dóttir Ijósmóðir, sem enn Iif-
ir í hárri elli. Eg veit ekki
svo margt um ætt Sigvalda,
að eg geti sagt frá þvi, hvar
eða hvérnig tónlistargáfa hafi
fyrst birtzt í henni, en list-
rænt eðli hefir verið í henni
og komið frarn í öðrum
myndum og voru t. d. þeir
Sigvaldi og Guðmundur
Kamban náskyldir. Bræður
Sigvalda hafa og oi’ðið þjóð-
kunnir menn, hver á sínu
sviði, en þeir eru Guðmundur
glímukappi, Snæhjöi’n tog-
araskipstjóri og Eggert
söngvari.
Sigvaldi var settur til
mennta, varð stúdent 1902 og
lauk lækiiisprófi 1908. Hann
lxefir sagt svo frá sjálfur, að
vel hefði lesturinn gengið, ef
allar bækurnar hefðu vei’ið
ski’ifaðar með nótum. Á þess-
um .árum var hann fai’inn að
sexnja sönglög og hafa nokk-
ur þeiri’a síðar oi’ðið þjóð-
kunn. Fyrsta lagið, sem hann
gjöi’ði, var við kvæði til
Bjarna Jónssonai’, nú vígslu-
biskups, en siðar orkti Halla
skáldkona undir laginu
kvæðið „Æ, hvar er blómið
blíða“. Fyrstu spoi’in í tón-
list lærði Sigvaldi hjá Jónasi
Ilelgasyni, sem þá kenndi
söng við barnaskólann í
Reykjavik og notaði fiðlu við
söngkennsluna og kenndi
börnunum að syxrgja eftir
nólum. Síðar varð Brynjólfur
Þoilákssön, fyrrv. dóm-
kirkjuorganisti, lil að opna
enn betur fegurðarheim tón-
listarinnar fyxár honum. Og
eftir að Sigfús Einax-sson var
kominn heim frá útlöndum,
þá voru þeir Sigvaldi og Sig-
fús saman ölluxn stundum og
þótti Sigvalda mikið til um
þjóðlagaraddsetningar Sig-
fúsar. Sigvaldi hefir aldrei
notið skipulegi’ar tilsagnar í
tónlist, en það sem liann
kunni hafði hann að mestu
numið af 'sjálfum sér. Hann
lék listavel á hai’moníum,
sem þá var útbreiddasta og
vinsælasta hljóðfærið liér á
landi, og þótti enginn taka
honum,fram í þeirri list,
neina ef vera skyldi Brynjólf-
ur dómkirkjuorganisti.
Brynjólfur var þá aðalmað-
urinn í tónlistarlífi bæjarins,
ágætur söngstjóri, með næma
lilfinningu fyrir því fagra í
íónlistinni og bera Organtón-
ar, sem hann gaf út, smeklc-
vísi hans fagurt vitni.
Að loknu embættisprófi
sínu í læknisfræði fór Sig-
valdi utan til Kaupmanna-
hafnar til framhaldsnáms í
sjúkrahúsum. Hann drakk
þá í sig alla þá tónlist, sem
hann komst yfir, en þá var
fjörugt tónlistarlíf í Kaup-
mannahöfn. Þegar heim kom
varð hann liéraðslæknir i
Nauteyrarhéraði við ísa-
fjarðardjúp árið 1910, eftir
að hafa þjónað stuttan tíma
annarstaðar, og þar var liann
til ársins 1921. Hann hafði
kennt vanheilsu nokkru áður
en liann fór þaðan og fluttist
þá til Revkjavikur og dvaldi
þar í nokkur ár eða þar til
1926, er liann var skipaður
liéraðslæknir í Flateyjarhér-
aði. Árið 1929 var liann svo
skipaður héraðslæknir í
Keflavíkurhéraði og hafði að-
setur í Grindavik. Árið 1941
fékk hann lausn frá embætti
og bjó uppfrá þvi i Reykja-
vík.
Hvergi undi Sigvaldi sér
betur en við Kaldalón, svo
hefir sonur hans sagt mér.
Þar var fagurt skógarrjóður.
Þar undi tónskáldið öllum
stundum, þegar sól skein i
lieiði, og rjóðrið kallaði hann
Paradis. Það er og eftirtekt-
arvert,-að þarna fyrir vestan
vaknar fyrir alvöru löngun
liarts til að semja tónsmíðar,
og bar margt til, bæði marg-
vísleg álirif náttúrufegurðar
staðarins, uppörfun fólksins
og svo fór Eggert bróðir hans
til söngnáms um það bil, sem
liann varð læknir i Djúpinu,
og þá vaknaði löngun hjá
Sigvalda til að semja lög fyr-
ir liann til að syngja. Hann
liefir samið mörg sönglögin
með söngrödd bróður síns i
huga og síðar átti Eggert
mestan þátt í að syngja þessi
lög inn í þjóðina, svo þau
urðu fljótt alkunn. Halla
skáldkona á Laugabóli færði
honum kvæðin og liann gerði
svo lögin við þau. Sigurður
sonur hennar hvatti hann
mjög til að semja lög og varði
Sigurður sumarhýru sinni, til
að kosta fyrstu sönglagaút-
gáfuna hans, þótt hann væri
þá félítill. Á hinum löngu
kynnum mínum við tón-
skáldið hjó eg margoft eftir
því er eg spurði hvar og hve-
nær þetta eða liitt lagið hefði
orðið til, að Sigvaldi fór þá
að lýsa þeim álirifum, sem
hann hafði orðið fyrir af nátt-
úrufegurðinni þá stundina,
og síðan bætti liann við: Og
þá fæddist lagið. Þótt út-
kjálkastaður á Islandi verði
seint talinn heppilegt um-
hverfi fyrir tónskáld, þá var
samt Ármúli að mörgu leyti
ákjósanlegur staður fyrir
liina skapandi gáfu Sigvalda,
því að hin viðkvæma lista-
mannslund lians fékk fyrst
notið sín, þar sem hún
kenndi ríkrar samúðar fólks-
ins og sterkra áhrifa íslenzkr-
ar náttúru. Og eg er þeirrar
skoðunar, að flest sterkustu
lögin sin samdi hann á þeim
árum, er hann var læknir í
Djúpi.
Sigvaldi Kaldalóns var
söngvaskáld. Hann er það í
orðsins fyllsta skilningi. Af
þeim 200 lögum, sem eftir
liann liggja, eru aðeins örfá
samin fyrir hljóðfæri ein-
göngu. Hónum var sú gáfa
meðfædd, að geta spunnið
lifandi laglinu. Hann var í
eðli sínu „cantabile“tón-
skáld, það er að segja tón-
skáld, sem samdi lög, þar sem
öll áherzlan lá á sjálfri lag-
linunni, en fylgiraddirnár
voru hálfgert aukaatriði. Það
kann að vera, að ónóg kunn-
átta i „kontrapunkti“ hafi
valdið nokkru um þann bún-
ing, er hann klædd lögin sín i,
en þó liýgg eg fremur, að
gáfu hans liafi verið þannig
varið, að lionum lét bézt að
tjá tilfinningar sínar með lag-
hnunni einni saman. En ein-
mitt af þeim ástæðum erú
sönglögin hans fljótlærð,
enda liafa þau mörg orðið
landfleyg. Það var á árunum
1916, 1917 og 1918, sem þrjú
fyrstu sönglagaheftin hans
koniu út. Þau gerðu liöfund-
inn þjóðkunnan á svipstundu.
Síðan liafa birtzt á prenti
fjöldi laga eftir liann, sum i
heftum, önnur sérprentuð,
svo að allá munu um 70 lög
eftir hann liafa komið út.
Ekki veit eg hversu mjög af
þessum 70 lögum eru al-
mennt sungin af þjóðinn, en
eg veit sanxt, að þau eru til-
tölulega svo mörg, að þess
munu fá dæmin að nokkurt
tónskáld geti hrósað happi
yfir jafn góðum undirtektum
hjá almenningi. Lögin hans
eru alþýðleg og snerta streng
í hörpu þjóðarinnar. Sigvaldi
var undir greinilegum áhrif-
um rómantisku stefnunnar í
tónlistinni. Hann var vaxinn
upp við þá tónlistarstefnu,
eins og aðrir af kynslóðinni,
sem er að líða, óg undan rót-
um þessarar stefnu eru runn-
ar margar glitrandi söng-
perlur í bókmenntum tón-
listarinnar. Sönglögin lians
eru mörg þýð og lipur en sum
bera vitni um dramatískan
kraft, svo sem „Heimir“ og
„Alfaðir ræður“. Hér verða
ekki talin helztu lögin hans,
þvi að það yrði of langt mál,
enda lögin kunn hverju
mannsbarni hér á landi, sem
komið er til vits og ára, en þó
má ekki skilja svo við þessi
eftirmæli, að ekki sé minnst
á lagið „ísland, ögrum skor-
ið,“ sem nú er jafnan sungið
á hátíðisstundum þjóðarinn-
ar.
Eg minnist þess, að er
fyrsta sönglagahefti Sigvalda
kom út, þá skrifaði Holger
Wiehe, sem þá var danskur
sendikennari við Háskóla Is-
lands og fróður maður um
tónlist, um lögin, og gat þess,
að ef Sigvaldi hefði vaxið
upp við þau skilyrði, að hann
liefði fengið að læra tónlistar-
reglur til hlýtar og búið með
stórþjóð, þá væri sennilegt að
maður með jafnríka melo-
diska gáfu, sem auk þess átti
til dramatískan kraft, liefði
orðið gott óperutónskáld.
Eg get ekki stillt mig um
að segja frá því, hvernig lagið
„Sofðu, sofðu góði“ varð til.
Tónskáldið sat undir Snæ-
birni syni sínuin tveggja ára
gömlum og raulaði við hann
og þá varð Iagið til. Tveim
árum síðar kom Guðmundur
Guðmundsson skáld að Ár-
múla og varð hrifinn af lag-
inu og orkti þá samstundis
kvæðið.
Miðvikudaginn 7. ágúst 1946
Nú liefir Snæbjörn lyfja-
fræðingur, sonur tónskálds-
ins, liafið reglubundna útgáfu
á öllum lögum föður síns.
Fyrsta heftið er komið út
með 20 lögunum fyrstu, sem
prentuð voru. Annað og
þriðja heftið eru í prentun i
Danmörku og er í því siðara
24 karlakórslög.
Sjálfsagt á breyttur smekk-
ur og ný tízka eftir að fara
höndum um lög Sigvalda
Kaldalóns, eins og öll mann-
anna verk. Sjálfur vissi hann
vel, að hanii hafði sent frá
sér mörg sönglögin í ófull-
kominni mynd, en hann vissi
þó líka, að liann liafði eitt-
livað haft á hjarta, sem liann
liafði hlustað frá þjóðinni og
náttúrunni og að þess vegna
liafði þjóðin tekið við lögun-
um lians.
Það munu margir liorfa
með söknuði á eftir tónskáld-
inu ofan í gröfina, sem hefir
svo fagurt sungið þjóðinni til
gleði, upplyftingar og af-
þreyingar. ,
Sigvaldi var kvæntur
danskri konu Karen Mar-
gretlie Gliristine, sem reynd-
ist lipnum góð kóna og
sluddi Iiann í listaráhuga
hans. Börn þeirra eru Snæ-
hjörn lyfjafræðingur í
Laugavegs Apóteki, Sigvaldi
Þórður garðyrkj uf ræðingur
og Sesselja Maria, gift Jóni
Gunnlaugssyni læknanema.
Baldur Andrésson.
E.s. „Selfoss"
fer héðan á föstudagskvöld
þ. 9. þ. m. kl-. 10 um Vest-
mannaeyjar til Austfjarða..
.Skipið tekur enga farþega.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG
ISLANDS.
*
Odýrar plastic
regnslár á börn
Katlar
fyrir rafmagnsvélar, :
nýkomnir.
Verzl. Ingólfur |
Hringbraut 38. Sími 3247. ,
KKMMMKKMKKXK
BEZT AÐ AUGI.tSA 1VISI
KHKMHKKKKMKM: