Vísir - 08.10.1946, Blaðsíða 8
Næturvörður
er í Laugavegs Apóteki, sími
1018.
Næturlæknir: Sími 5030. —»
Þriðjudaginn 8. október 1946
Lesendur eru beðnir að
athuga að s m á a u g I ý s-
ingar eru á 6. síðu. —
íslendingar kaupa fullkomin tækí
til fiskirannsókna í ám og vötnum.
VeiðimtílmsiJórZ rtttettsttk*
ttöi þrertkr JLtttjtsrSijóis
í stttttttr.
Hinn nýskipaði veiðimála-
stjóri, Þór Guðjónsson,
fiskifræðingur hefir í sum-
ar kynnt sér veiðimál í ám
og vötnum hér á landi, og
rannsakað sérstaklega að-
stæður fyrir fiskirækt á
Austurlandi.
Éins og áður liefir verið
frá skýrt, var með lögum um
lax- og silungsveiði, er end-
anlega voru samþykkt á AJ-
þingi 1941, ákveðið að stofna
embætti veiðimálastjóra.
Þetta atriði kemst þó ekki til
framkvæmda fyrr en með
skipun Þórs Guðjónssonar
fiskifræðings í þelta embætti
og tók liann við því 1. maí í
vor.
Starf veiðimálasljóra er,
samkvæmt þessum lögum,
að annast nauðsynlegar
• rannsóknir vatna og fiska
og skrásetningu veiðivatda,
sjá um söfnun á skýrslum
um veiði og fiskirækt, að láta
gera uppdrætti að klakstöðv-
um og fiskvegum og bafa
umsjón með gerð þeirra
mannvirkja. Ennfremur skal
veiðimálastjóri gera tillögur
um reglugerðir og önnur
ákvæði um friðun eða veiði-
skap og loks að veita mönn-
um leiðbeiningar um veiði-
mál og vera ráðherra til að-
stoðar um allt, sem að þeim
lítur.
Samkvænit upplýsingum,
sem Þór GúðjórisSón veiði-
málasljóri liefir gefið Vísi,
liafa nýlega verið keypt
til landsins fullkomin
rannsóknatæki vestur i
Bandarikjunum til rann-
sókna á lífsskilyrðum fiska
og fiskumnn sjáifum. Eru
þetta fyrstu tæki þessarar
tegundar, sem íslendingar
bafa eignazt. Tækin eru
flest komin til landsins.
Eilt belzla viðfangsefni
veiðimálastjóra i sumar var
að rannsaka þverár Lagar-
íJióls og aðstæður í Yopna-
firði riieð’ hiiðSjón til fiski-
læktar. Þessar rannsóknir
stóðu í sambandi við fr'uiri-
varp, sem Jagt var fyrir síð-
asta Alþingi um fiskirækt i
Austfirðingafjórðungi. Frv.
var þá vísað frá með rök-
studdri dagskrá vegna ónógs
undirbúnings, en veiðimála-
stjóra hinsvegar falið að
rannsaka aðstæður á þessu
vatnasvæði áður en málið
vrði tclcið fyrir að nýju. Við-
aði veiðimálastjóri að sér
miklu af gögnurn í þessari
för sem unnið verður úr i
liaust og velur.
Þór sagði, að með lögun-
um um lax- og silungsveiði
og stárfi veiðiinálastjóra
vekti fvrst og frenist það, að
auka fiskistofninn í ám og
vötnum unz því marki væri
náð, að bver einstök á eða
vatn framleiddi eins mikið
liskimagn og mögulegt væri.
Þetta næst með tvenns-
konar aðgerðum, annarsveg-
ar friðun, sem kemur fram
i lakmörkuðum veiðitíma og
veiðiaðferðum, li i nsvegar
með ákveðnum framkvæmd-
um, svo sem klaki, fiskaeldi,
skapa fiskigöngur á vatna-
svæði þar sem fiskur hefir
ekki verið áður, ýirisum
lagfæringum á árfarvegum
o. s. frv.
Starf þetla cr fyrir löngu
hafið, svo sem með veiðílög-
gjöfinni sjálfri, starfsemi
Veiðimálanefndar og fiski-
ræktárráðunauts o.fl.,en enn-
þá er samt langt í land. En
nú, þegar vísindalegar rann-
sóknir verða teknar í þjón-
uslu þessara mála á svipuð-
um grundvelli og þekkist
meðal annarra menningar-
þjóða, má vænta meiri ár-
angurs a. m. k. þegar rann-
sóknir þessar eru komnar í
ákveðið form og reynsla
fengin til að byggja á.
I þessu sambandi má
benda á þá þýðingarmiklu
nauðsyn, að menn haldi
skýrslur vfir veiði sina og
láti þær veiðimálastjóra i té.
Þetta verða einu handbæru
plöggin sem gefa ásigkomu-
lag í ám og vötmim til
kynna á hverjum líiua.
Vegria þess að víðliaki qg
aukning fiskistofnsins cr
injög undir því komið
hvernig Iagafyrirmæjmn er
jfylgt, ber nauðsyn lil þess,
að allir sem veiðiskap.
stuilda, kynni sér lax- og sil-
ungsveiðilöggjöfina til lilítar
og framfylgi henni. Annars
skortir allt eftirlit með veiði-
ám nema í Borgarfirði og
Hvitá i Árnessýslu.
Eiít af verkefnum veiði-
málasljóra er að sjálfsögðu
að fá úr þvi skorið með at-
liugunum og rannsóknum
livoi’t veiði m álúlöggjöf i n
getur staðizt í þeirri mynd
sem bún er í nú. Önnur verk-
efni Jians er að vinna að
gagngerðum endurbótum á
ýinsum verklegum fram-
kvæmdum svo sem klakað-
ferðum, byggingu Iaxastiga,
fjölgun laxastiga lil þess að
auka fiskigöngurnar, liafa
eftirlit með flutningi fiska á
ný vatnasýæði, atbuga lag-
færingar á árfarvegum, sjá
um fræðslu klakmanna o. s.
frv. í sambandi við þetta má
geta þess að nú þegar hefir
veiðimálasljóri fengið verk-
fræðing til þess að teikna og
gera kostnaðaráætlanir um
fiskistiga í ám.
Veiðimálastjóri kvað sýni-
legan liörgul á starfsliði til
þessara starfa, því að beiðnir
liafa borizt frá ýmsum
mönnum og félögum úti
á landi um aðstoð og
leiðbeiningar á einn eða
málin svo mörg orðin, sem
fyrir liggja, að ekki er unnt
að afgreiða þau öll nema á
löngum tíma. Það er því
sýnilegt, að lil þess að starf
veiðimálastjóra komi að full-
um notum, þarf að bæla við
starfsliði.
Færeyingar kaupa
Gullfoss.
Á siðastl. suinri var eim-
skipið Gullfoss auglýst til
sölu þar sem það var til við-
gerðar í Kaupmannahöfn.
Komu kauplilboð frá Grikk-
landi, Argentínu, Svíþjóð og
Færeýjum, og fengu hinii
síðastnefndu skipið. Gengu
þeir og einnig inn í viðgerð-
arsamninginn. Nokkrai
breylingár verða gérðar á
skipinu og verður t. d. í því
oliukynding og farþegarún
fyrir 100 manns. Munu Fær-
ej’ingar nota skipið til flutn-
ingo milli Færeyja og Kaup
mannahafnar i staðinn fyrii
Tjald, I'arþegask ip Jieirrs
sem f.crst fvrir skömmu1.
— IÞýzkalaBid.
Framh. af l. síðu.
stuðning lil Jjess að ná völd-
unum, en án Jiessa stuðnings
befði nazistabólan vafalaust
orðið að engu og aldrei kom-
ið iil styrjaldar.
Seytján farasl.
Seytján Þjóðverjar biðu
nýlega bana í tveimur spreng-
ingum á Eystrasalti.
Var i bæði skiptin verið að
sökkva sprengikúlum og
flugvélasprengjum i sjó, í
annað skiptið yfir 250 smál.,
en liitt 236 smál. Sprenging
varð i öðru skipinu, scm
var i Jiessum sprengjuflutn-
ingúin og fórust álta menn
með Jivi, en lrinir níu biðu
bana, er sprengjurnar
sprungu á Iiafsbotni.
Prestkosning.
A sunnudaginn var fór
fram prestskosning i Holta-
þrestakalli undir Eyjafjöll-
lun. Kosið var um þrjá um-
sækjendur, sira Sigurð Ein-
arsson skrifstofustjóra, síra
Sveinbjörn Sveinbjörnsson
prest að Hruna og síra Val-
geir Helgason prest að
Þykkvabæjarklaustri. At-
kvæðin voru talin á skrif-
stofu biskups í gær og féllu
þau Jiannig: Síra Sigurður
hlaut 110 atkv., síra Svein-
björn 77 og síra Valgeir 49.
9 seðlar voru auðir og 3 ó-
gildir. Ivosningin er ólögmæt
Jjar sem enginn umsækj-
enda hefir helming greiddra
atkvæða.
Ráðherrar
kommúnista
hiðjast
lausnar.
Forsætisráðlicrra barst
seint í gærkveldi svofclld
lausnarbeiðni frá ráðherr-
um sósíalistaflokksins:
Rvik, 7. okt. 1946.
Með skírskotun til yfirlýs-
ingar Sósíalistaflokksins
viljum vér hér með tjá yð-
ur, liæstvirtum forsætisráð-
lierra, að við litum svo á að
yður bei’i að leggja til við
forseta íslands, að Alþingi
verði rofið og efnt til nýrra
kosninga.
Væntum vér þess að þér
biðjist lausnar fyrir allt
ráðuneytið, J)ar sem grund-
völlur stjórnarsamstarfsins
er ekki lengur til.
Að öðrum kosti óskum við
að þér biðjist lausnar fyrir
okkur undirrilaða.
Brynjólfur Bjarnason.
Áki Jakobsson.
Föi'sáelisráðhei’rá liefir
ekki gcfið neilt opinbert svar
við |)essu ennþá enda telur
hann sér skvlt að ráðgast
við báða stjórnarflokkana,
Sjólfstæðisfiokkinn og Al-
Jjýðuflokkinn, áður en liann
tekur ákvai’ðanir i þessu
máli.
Aldaralmæli
Björns
Jónssonar
í dag eru liðin eitt liundr-
að ái’ frá fæðingu eins af
mætustu sonum Jjessarar
1 Jjjóðar, Björns Jónssonar
ráðherra og stofnanda blaðs-
ins ísafoldar. Björn Jónsson
stóð í fyjkingarbroddi í
sjálfstæðisbaráttu Islend-
inga um langan tíma og lét
öll menningar- og velferðar-
mál til sín taka. Einnig var
llann einn af brautryðjend-
um blaðaútgáfu hér á landi
og fórst J)að með þeim ágæl-
um, að lengi mun til lians
vitnað í þeim efnum sem
einlivers málhreinasta og
skeleggasta blaðamanns ér
hér á landi hefir starfað.
I tilefni af afmæli þessu
kemur út í dag úrval úr
þeim neðanmálssögum sein
liann þýddi í blað sitt ísa-
fold og hefir Sigurður Nor-
dal prófessor valið sögurn-
ar. Þá verður og kvölddag-
skrá útvarpsins lielguð
minningu hans.
ilrgentínu og
U.S. semnr
eklti.
Ai'gentína og Bandaríkin
hafa hætt samningaumleitun-
um um flugmál — um stund
að minnsta kosti.
Ósamkomulag var um
J)að, hvort flugferðir ættu að
vera algjörlega frjálsar og
byggjast á samkeppni og
vildu Bandaiikin J)að. Argen-
tína vildi binsvegar, að aðilar
sæu um flugsamgöngurnar
að jöfnum hlutum.
Amerísk flugfélög lialda
eftir sem áður uppi ferðum
lil Argentínu.
Samningurinn
á ríkisráðsfundi
Á ríkisráðsfundi, sem hald-
inn var í dag, 7. október 1946
á hádegi., veitti forseti fsands
forsætis- og utanríkisráð-
herra heimild til þess fyrir
hönd ríkisstjórnar íslands að
gera samning við ríkisstjórn
Bandaríkja Ameríku um nið-
urfelling hervendarsamn-
ingsins frá 1941 o. fl. samkv.
þingsályktun um sama efni,
er samþykkt var á Alþingi
laugardaginn 5. okt. 1946.
Þeir kaupendur blaðsins, sem
hafa bústaðaskipti núna um mán-
aðamótin, eru beðnir að láta af-
greiðsln blaðsins vita um hið
nýjá heimilisfang sitt, svo komizt
verði hjá vanskilum.