Vísir - 23.04.1947, Qupperneq 1
vi
L
37. ár
Miðvikudaginn 23. apríl 1947
91. tbl.
JKreiffast
he&rri im mna.
AS undanförnu hefir Fé-
lag læknanema staðið í
samningum við stjórn rík-
isspítalanna um bætt kjör.
Hafa þeir samnmgar nú
strandað, og kandídatar
lyfjadeildar Landspítalans
og læknanemar hætt störf-
um af þeim orsökum.
í desember s. 1. hóf launa-
nefnd Félags læknanema
samningaumleitanir fyrir fé-
lagsins hönd, og skrifaði í ]>vi
augnamiði stjórn ríkisspítal-
arina. Því bréfi var strax svar-
að, og því lofað, að málið
yrði athugað. Síðan hefir lítið
eða ekkert gerzt í málinu.
Á lyfjadeild Landspítalans
iirðu kandidataskipti um
síðuslu mánaðamót. Kandí-
íiatinn, sem þá tók við störf-
um, setti þann fyrirvara, að
ef eigi hefðu tekizt samning-
ar lyrir 20. þ. m„ myndi liann
hætta störfum. Hefir liann
nú gert það, þar sem engir
samningar liafa verið gerðir.
Þá hafa lælcnastúdentar,
sem þá-tt tóku í námskeiðum
við Landspítalann, einnig
hætt störfum. Mun aðal-
ástæðan vera sú, að liægt er
að láta þá, sem lengst eru
Fréffatilkynning
Til birtingar samtímis í Nor.
egi og á íslandi að morgni
þriðjudags 22. apríl 1947. —
Undanfarið liafa farið
fram viðræður í Reylcjavik
milli islenzkrar og norskrar
samninganefndar um ýmis-
leg málefni, er snerta bæði
londin, svo sem sameiginleg
áliugamál í sambandi við
fiskveiðar, útflutning í'isk-
afurða og vöruskipti milli
Nóregs og Islands.
Viðræðurnar, sem nú er að
sinni lokið, liafa farið fram
með fullum skilningi beggja
aðilja á sjónarmiðum liins.
Munu báðar samningánefnd-
irnar ráðleggja ríkisstjórn-
um sinuin, að umræðum um
ákveðin atriði, sem nánari
ihugunar krefjast, verði
haldið áfram síðar. (Frétta-
tilk. frá utanríkisráðuneyL
inu.)
komnir, vinna kandídata-
störf.
Kandidat handlæknadeild-
arinnar heldur enn áfram
störfum, þar eð hann er
samningsbundinn til 6 mán-
aða enn.
oCandlie lcj iámdíiÉ:
Hannes Haf-
stein dæmd-
ur í 6000
kr. sekt’
Sýslumaður Eyjafjarð-
arsýslu, Friðjón Skarphéð-
insson, kvað nýlega upp
dóm í máli eins bátsins,
sem tekinn var í landhelgi
s. 1. laugardag.
Eins og kunnugt er,
flugu tveir menn frá land-
helgisgæzlunni norður
fyrir land til eftirlits s. I.
laugardag. Sáu þeir að 9
bátar voru í landhelgi í
Húnaflóa, ýmist að botn-
vörpuveiðum eða að und-
irbúa veiðar. Var þeim
skipað að halda til hafnar
þegar í stað og kom einn
þeirra til Akureyrar, en
það er vb. Hannes Haf-
stein.
Eins og fyrr greinir hef-
ir verið kveðinn upp dóm-
ur í máli bátsins og var
hann dæmdur til að greiða
ríkissjóði 6000 kr. í sekt. 1
dómsniðurstöðum segir,
að báturinn hafi ekki ver-
ið að veiðum í landhelgi,
en hafi hinsvegar verið að
undirbúa veiðar.
Mandólín-
hljómleikar.
Mandólínhljómsveii Rvik-
ur efnir til hljómleika fyrir
styrktarmeðlimi sína á
Iföstudagskvöldið kemur. —-
Hljómleikarnir verða i Tri-
poli og hefjast kl. 9.
Hljómleikar þessir verða
fjórskiptir, í fyrsta lagi
mandólinkvartett, í öðru
lagi guitarsóló (sólóisti er
Karl Sigurðsson), þá er
mandólíntrió og foks leikur
15 manna hljómsveit. Hljóð-
færin í hljómsvpitinni eru:
mandólin, guitarar, mandól-
ur, kontrabassi og mandó-
celló.
Mandólínhljómsveitin lief-
ir nú starfað í þrjú ár og
lialdið hljómleika á hverju
ári. Síðustu liljómleikarnir
á vegum sveitarinnar voru
hljómleikar sænska guitar-
leikarans, Nils Larsons, s.I.
haust.
Stjórnandi mandólín-
hljómsveitarinnar er Har-
aldur Guðmundsson.
Íbiíðarskúr
brennur.
Um ellefu-leytið í gær
kviknaði í geymslu og íbúð-
arskúr, sem stendur skammt
frá Sundhöllinni.
I skúrnum bjuggu fjórir
menn og komust þeir með
naumindum út. Auk þess var
einn maður gestkomandi þar
og brenndist hann mjög illa.
Það voru Danir, sem þarna
bjuggu, og misstu þeir allt
sitt. Talið er, að kviknað liafi
í út frá olíuofni.
Flugvélar F.í.
fiuttu 1335 far-
þega í marz.
í marz-mánuði s. 1. fluttu
flugvélar Flugfélags Islands
alls 1335 farþega.
Auk þess fluttu flugvélar
félagsins 7159 kg. af pósti og
1800 kg. af flutningi öðrum
en farþegaflutningi, svo sem
vörum o. s. frv. —- Til sam-
anburðar má geta þess, að i
marz í fyrra fluttu flugvélar
félagsins 395 farþega og
2317 kg. af pósti.
-v'"
Georg C. Marshall utan.
ríkisráðherra Bandaríkjanna.
Þessi mynd var tekin, er hann
hafði svarið embættiseið sinn.
Skipnlagi Vinnuveitendaiélagsins
breytt til að efla iélagið.
Það verður samband félags-
deilda atvinnurekenda.
Sú breyhng hefir veriÖ
gerð á Vmnuveitendafélagi
Islands, að eftirleiðis verð-
ur það Vmnuveitendasam-
band Islands.
Samkvæmt þessari breyt-
ingu verður Vinnuveitenda-
félagið liér eftir samband
félagsheilda, en áður gátu
bæði einstaklingar og fé-
16 læknar sækja nm
héraðslækitis-
embættið
í HaínarfirðL
Sextán læknar sækja lim
héraðslæknisembættið i
Hafnarfirði. Nöfn umsækj-
endanna fara hér á eftir:
Agnar Johnson, læknir í
Danmörku, Árni Guðmunds-
son, Akureyri. Bjarni Guð-
mundsson, Patreksfirði,
Bjarni Snæbjörnsson, Hafn-
arfirði. Einar Ástráðsson,
Eskifirði. Kjartan Jóhanns-
son, ísafirði. Guðjón Ivlem-
cnsson, Hofsósi. Knútur
Kristinsson, Reykhólum.
Magnús Ágústsson, IHepp-
járnsreykjum. Ólafur Ein-
arsson, Stykkishólmi. Pétur
Thoroddsen, Neskaupstað.
Snorri Ólafsson Reyðiunýri.
Torfi Bjarnason, Sauðár-
króki. Brynjólfur Dagsson,
Hvammstanga og Ólafur P.
•Jónsson, Bíldudal.
Nýr listmálari
1 dag opnar Magnús Þór-
arinsson, listmálari, sýningu
í Listámannaskálanum. —
Sýnir hann.á annað hundr-
að myndir.
Magnús liefir eklci sýnt
myndir eftir sig áður og er
þessi sýning hans því hin
fyrsta. Alls eru á sýning-
unni 94 olíumálverk og rúm-
lega 60 vatnslitamyndir og
teikningar. — Málverkasýn-
ingin er opin daglega frá kl.
10—22 e. h.
lagadeildir gerzt meðlimir
þess. Breyting þessi var gerð
að tilhlutan Félags íslenzkra
iðnrekenda, sem undanfar-
ið hefur v.erið langstærsta
félagsdeild V. I.
Nafni Vinnuveitendafé-
lagsins verður breytt í heit-
ið „Vinnuveitendasamhand
íslands“ er tryggt þvkir aN
nafnbreytingin dragi ekki úr
réttindum félagsins, sam-
kvæmt löggjöf landsins.
Aðeins fá sérgreinafélög
eru innan samtaka Vinnu-
veitendafélagsins, en liins-
vegar fjöldi einstakiinga,
sem jafnframt eru meðlim-
ir í fag- eða sérgreinafélög-
um. Samkvæmt áorðinni
breytingu ér félögum, sein
ganga sem deild inn í Vinnu-
veitendasambandið, veitt
hlunnindi- með lægri iðgjöld-
iim. fyrir livern einstakling,
ef félagið hefir sérstaka
starfandi skrifstofu.
Það er gert ráð fyrir að
aðeins stærstu atvinnufyrir-
tæki geti gengið sem beinn
aðili í samtökin, en smærri
vinnuveitendur, sem ekki
tilheyra neinu sérgreina- eða
liéraðafélagi, myndi sér-
staka deild inrian Vinnu-
veitenda-sambandsins og
nefnist hún „Almenna deild-
in“.
Eklci þykir ástæða til þess,
að víkja einstaklingi úr V. í.,
sem þegar liefir gengið í
það, ef hann vill ekki ganga
í neina deild þess.
Þess er ákveðið vænzt, að
þau atvinnurekendafélög, er
til þcssa hafa staðið utan við
Vinnuveitendafélag Islands,
gangi nú í Vinnuveitenda-
sambandið, og gerist aðilar
að þeim samtökum seiri öll-
,um vinnuveitendum í land-
’nu eru nauðsynleg.
VÍSIR
er 10 síður í dag. —
kemur út á föstudas.
Næsta, blað
VI S ! R
Lar öííum ieiendt
oi
iínuin
um
GLEÐILEGS
SUMARS.