Vísir - 14.08.1947, Blaðsíða 8
Apótek. — Sími 1618.
Næturlæknir: Sími 5030. —
NæturvörSur: Laugavegs
Egiptar vil|a her
Breta burt fyr-
ir 1. sept.
/ gær hófnsl umræður í
öryggisráðinu um kæru
Egipta á hendur Bretum.
Nokrashy Paslia, forsælis-
ráðherra Egipla hafði fram-
sögu og sagði, að á styrjald-
arárunum hefðu Bretar liaft
mikil afskipti af innanlands-
málum Egipta og stjórn
landsins yfirleitt. Nú væri
cngin þörf þess, að brezkur
lier væri i landinu og væri
það krafa Egipta, að allur
lier Breta væri farinn úr
landinu fyrir 1 næsta mán-
aðar. Sir Alexander Cadog-
an varð fvrir svörum fyrir
Jiönd Breta og játaðþað Bret
ar hefðu hafl afskipti af
stjórn landsins á styrjaldar-
árunum, cn það hefði verið
gert í þágu sameinuðu þjóð-
anna. Hann mótmælti því
liins vegar, að Brefar væru
að seilast eftir yfirráðum i
Egiptalandi, en sagði að þeir
væru ákveðnir i þvi að halda
fast við samninginn frá 1930,
sem Bretar liefðu gert við
Egipta.
Ifirezka þingiH
ræðir
Palestínis.
Neðri deild brezka þings-
ins hefir nú hafið umræður
um Palestínumál og hélt Jo-
ues nýlendumálaráðherra
Breta ræðu í málstofunni í
gær.
Jones segir, að ástandið í
Palestínu sé orðið vægast
sagt óþolandi. Sumarhlé
brezkra þingmanna -verður
með styzta móti í ár. An-
thony Eden hefir borið fram
tillögu um að brezka þingið
komi aftur saman í fyrstu
viku september. Vcnjulega
lcemur það saman um 20.
september, en nú liggja mörg
aðkallandi mál fyrir þvi og
þurfa afgreiðslu.
„Ogeirs rímun
danska“ komnar út.
Komnar pru á hókamarkað-
inn „Olgeirs rímur danska“,
eftir Guðmund Bergþórsson.
Ríniurnar eru í tvcim Ijind-
um og bjuggu þeir Björn Iv.
Þórólfsson og Finnur Sig-
mundsson þær undir prent-
un.
Samtals eru bindin bæði
766 bls. að vöxtum, en rím-
urnar alls 60.
Landsbókasafn Islands og
Isafoldarprenlsmiðja gáfu
rímurnar út og virðist frá-
gangur í bezta lagi og má
ætla, að þær verði mikill
fengur bókavinum.
Fimmtudaginn 14. ágúst 1947
Útlitsteiknir.g af væntanlegu mjólkurbúi, sem reist verður á Sauðárkróki næsta sumar.
Arkitektarnir Þórir Baldvinsson og Árni Möller hafa-gert teikningar af byggingunni.
Pakistan verður sam-
veldisland Breta.
HáfiðahöEd hófosf þar i dag.
/ dag hófust hátíðahöld í
Pakistan, vegna þess, að á
morgun verður ríkið form-
lega tekið í tölu samveldis-
landa Breta.
Mountbatten lávarður er
staddur i Ivarachi og mun
halda þar ræðu í dag. Hann
verður fyrsti umboðsmaður
Breta í liinu frjálsa Pakist-
anríki.
Óeirðir í Punjab.
Punjabfylki verðui- skipt
milli Pakistan Múhameðstrú-
armanna og Hindústan, og
liafa þar verið miklar óeirð-
ir undanfarna daga. í gær
er talið að a.m.k. 100 manns
hafi verið drepnir i götu-
bardögum.
Kveðja frá konungi.
Georg VI. Bretakonungur
hefir sent stjórn liins nýja
ríkis, Pakistan, orðsendingu,
þar sem hann segir að stjórn-
vizka indverskra stjórn-
málamanna hafi gcrl það.að
verkunl, að mögulegt liefði
verið að stofna Pakistan-rík-
ið. Pakistan væri hezta sönn-
un þess, að Bretar hefði gert
rétt, er þeir samþykktU, að
ríkið vrði stofnað og Ind-
landi skipt.
inger eiga eeiii
c éeirðom.
/ fréttum frá Palestínu er
sagt, að slcgið hafi í bardaga
milli Araba og Gyðinga í
gær.
I Jaffa, hinni helgu borg
Araba, réðist flokkur G)rð-
inga á matsölutorg og
brenndu allar byggingar þar.
Sjö Gyðingar og 12 Arabar
létu lífið í óeirðum i Palest-
ínu í gær. Margir Arabar og
Gyðingar særðust einnig.
öanir smiða ís-
hafsskip.
Um tuttugasta þ. m. verð-
ur lokið við smíði á nýju
skipi í skipasmíðastöð Hels-
ingjaeyrar í Danmörku.
Skip þetla hefir stjórn
Grænlands látið smíða til
jiess að koma í stað þeirra
tveggja Grænlandsfara, Hans
Egede og Gertrud Rask, sem
hafa farizt. Hið nýja skip
hefir verið skýrt „G. C. Am-
drup“, í höfuðið á vara-
aðmírálnum, sem hefir far-
ið i vísindaleiðangur til
Grænlánds. Skipið er ekki
stórt, aðeins 540 lestir og 53
metrar á lengd, en það er
mcð afbrigðum sterkbyggt.
Schröder.
Arabar hefja
hevferð gegci
Gyðingum.
Vopnaður flokkur Araba
réðist nýlega á tjaldbiíðir
Ggðinga skammt frá Tel
Aviv og voru nokkrir Gyð-
inganna felldir.
í gær voru þrir Gyðingar
stungnir til bana í Tel Aviv
og slegið hefir í bardaga
milli Araha og Gyðinga viða
í Palestínu. Skothvellir
liejTðust fram eftir nóttunni
í Jerúsalem. Arabar hafa sig
allmikið i frammi í Palest-
ínu og hafa liafið nokkurs
konar lierferð gegn Gyðing-
um þar, vegna yfirgangs
þeirra í landinu. I fréttum
segir, að Arabar dulbúi sig
sem brczkir hermenn og ráð-
ist á Gyðinga. I fyrrad. voru
5 Gyðingar drcpnir af mönn-
um i brezkum einkennishún-
ingum, og er talið, að þetta
liafi verið Arabar.
Mjólkurbií á
Sauðárkróki.
Um þessar mundir er unn-
ið að undirbúningi bygging-
ar nýs mjólkurbús á Sauðár-
króki. Arktitektarnir Árni
Hoff-Möller og Þórir Bald-
vinsson hafa gert teiknngar
af húsinu.
Bygging mjólkurbúsins
mun væntanlega hefjast
næsta sumar, en þá verður
öllum undirbúningi lokið.
Unnið er nú að grunngreftri
o. fl.
Það er Mjólkursamlag
Skagfirðinga, sem ræðst í
byggingu þessa. Húsið er 975
rnetrar að flatarmáli, en rúm-
mál Jæss er um 4500 tenings-
metrar. Það verður búið öll-
um fáanlegum nýtízku tækj-
um.
Fyrst verður lögð áherzla
á lúkningu álmunnar, sem
fyrirhuguð er til framleiðslu
osta. Er hún verður fullbúin,
verður hyggingunni haldið
áfram eftir því scm ástæður
levfa.
Brýn þörf er fyrir nýtt
mjólkurbú fvrir Skagfirð-
inga, þar sem í Skagafirðin-
um er mikil kúarækt og
gamla búið fullnægir hvergi
þeim þörfum, sem eru fyrir
slíkt íyrirtæki. Ekki er hægt
að segja hvcnær mjólkurbú-
ið verður fullgert, j)ar sem
ýms ófvrirsjáanleg atvik geta
tafið málið, eins og t. d. efn-
isskortur og annað.
200 fiiMisk skip
sfiæðci tisneSor-
ílufS.
Siglingar eru enn allhættu-
legar við strendur Finnlands,
einkum suðurströnd lands-
ins.
Bendir til þessa, að upp á
síðkastið liafa Finnar haft
þarna tvö hundruð skip við
að slæða tundurdufl og er
starfið unnið af mikilli ná-
kvæmni.
Lesendur eru beðnir að
athuga að smáauglýs-
i n g a r eru á 6. síðu. —.
Nýr straumur
um helgina.
LitiE síEd nú —
batnar vonandi
þá.
Enn er sama deyfðin yfir
síldveiðunum, Bezta veður er
nú á miðunum og öll skilyrði
til þess að veiða síldina, bara
ef hún lætur sjá sig.
Flotinn er nú dreifður um
allstórt svæði. Víðast hvar
verða skipin vör við síld, en
ef þau kasta á hana, eru ekki
nema nokkrir háfar i kast-
inu. — I fyrradag var saltað
í 4335 tunnur á Siglufirði.
Nýr straumur byrjar um
næstu helgi og gera sjómenn
sér vonir um að síldin muni
þá ganga.
Ný fjaBEaleið
á Aosturiandi.
Á mánudagskvöld var bif-
reið ekið í fyrsta skipti um
Oddsskarð milli Eskifjarðar
og Norðfjarðar.
Var ]>að Jakob Snorrason
múrarameistari, er ók jeppa-
bíl um skarðið og var hann
21/2 tíma á leiðinni. Telur Ja-
kob, að ekki þurfi að lagfæra
mikið í skarðinu, lil þess að
hún sé jafnan fær jeppum að
sumarlagi.
Var keisara-
ekkjan myrt?
í Berlín er nú á döfinni
mál, sem vakið hefir mikla
eftiriekt eða meiri en störf
hernámsverndar banda-
manna um þessar mundir.
Snemma í vikunni
fannst nefnilega Hermina
prinsessa, ekkja Vilhjálms
fyrrum keisara, láíin í
íbúð sinni í rússneska her-
námshlutanum. — Dauði
hennar þótti talsvert grun-
samlegur og telja Banda-
ríkjamenn, að hún hafi
verið myrt með eitri, en
Rússar munu ætla að
kryfja líkið. Grunur hefir
fallið á þýzka konu, sem
heitir Vera Herbst og er
v inkona Ferdinands prins,
sonar Herminu. Hann
gætti djásna þeirra, sem
móðir hans átti. Voru þau
virt á 5 millj. dollara, en
fyrir skemmstu hurfu
tveir fimmtu hlutar þeirra.
Málið hefir verið fengið
þýzku lögreglunni.