Vísir - 22.01.1948, Blaðsíða 1
Í8. ár.
Fimmtudaginn 22. janúar 1948
17. tbl.
Límvatn gott
tii áburðar.
Tilraunir hafa verið gerð-
ar með að nota límvatn —
úrgangsvatn frá síldar- og
fiskimjölsverksmiðjum —
sem áburð á tún.
Skýrði Gísli Jónsson frá
því á þingi i gær, að er lim-
vatn væri blandað gegn
tveim hlutum vatns og not-
að til áhurðar, gæfi það betri
sprettu en föst áburðarefni.
Kvað hann ástæðu til að
þetta mál verði rannsakað,
því að árlega fara stórkost-
leg verðmæti í sjóinn með
límvatninu.
eliisheiði
menn selja
Þýzkalands
Einkaskeyti
til Vísis frá U.P.
Norskir fiskútflytjendui'
eru væntanlegir bráðlega til
London, til þess að ræða fisk-
sölur til Þýzkalands.
Umræðurnar munu aðal-
lega snúast um aukinn fisk-
útflutning til Vestur-Þýzka-
lands. 1 brezka blaðinu
„Times“ segir, að Marshall
eigi frumkvæðið að umræð-
um þessum og hafi liann
stungið upp á þeim við Bevin
í vikunni er Ieið. Fullyrt er,
að Bretar séu reiðubúnir til
þess að kaupa fiskafurðir
fyrir tvær milljónir sterliugs-
punda frá Norðmönnum, til
þess að bæta úr matvæla-
ástandinu í Þýzkalandi.
liÚtÍð shs'Ú^
svijjíi is&m^
siívðuB' sjöuir*
Skráning handhafaverð-
bréfa og sparisjóðsinr.stæðua
stendur yfir í Landsbankan-
um.
Er fólki bent á, að eftir
lok þessa mánaða verða eng-
in handhafaverðbréf skráð
og falla þar með úr gildi
lögum samkvæmt. Nauðsyn-
legt er fyrir fólk, sem á
sparisjóðsinnstæður, að láta
skrásetja þær hjá viðkom-
andi innlánsstofnunum fyrir
lok febrúar n.k.
JFW*. BBBB8
mllawves'h
smiöju
wíhisins.
Komið er fram á Alþingi
frv. til laga um nýtízku ull
arverksmiðju ríkisins í Hafn-
arfirði.
Á verksmiðjan að geta
unnið úr 350—400 smáJ. ull-
ar árlega eða rúml. þriðjungi
ársframleiðslunnar, sem er
800—1000 smál., þegar vor-
ullin ein er talin. Starfandi
ullarverksmiðjur geta unnið
úr um 300 smál. ullar á ári.
tii Paiestiiio
bafa
þelr
Bretar munu ekki leyfa
neina aukningu á innflutn-
ingi Gyðinga til Palestinu
meðan þeir fara þar með
umboðsstjórn.
Sir Alexander Cadogan
lýsti yfir fyrir hönd Breta, að
þeir myndu ekki leyfa meiri
iinnflutning Gvðinga til
Palestinu, en áður hafði ver-
ið ákveðinn mánaðarlega,
cn það eru 1500 Gyðingar.
Þeir myndu hins vegar taka
þátt í umræðum um inn-
flutninginn til Palestinu hjá
Sameinuðu þjóðumun, er
þeir hefðu lagt niður um-
boðsstjórn sína þar og ræða
um möguleikana á því að
innflutningurinn yrði þá
aukinn, ef tiltækilegt þætti
vegna Araba.
Cadogan hefir einnig skýrt
frá því, að Bretar vilji ekki
að Gyðingar þeir, er nú
dvelja á Cyprus, verði þar
áfram. Þeir munu og hefja
umræður á fundi Sameinuðu
þjóðanna um hvernig eigi að
ráðstafa þeim Gyðingum, er
til eyjarinnar hafa vei-ið
flutlir, en er umboðsstjórn
Breta lýkur í Paléstinu vilja
þeir losna við Gyðingana, er
þar dvelja.
Powell Crosby, jr. heldur þarna á 59 punda Crosby-vél,
er þykir sérsíakiega sparneytin. Vélin hefir 26.5 hestöfl.
Italska stjórnin mun verða
krafin um 100,000 sterlings-
pund fyrir hönd erfingja
Viktors heitins Emanuels.
Er krafa þessi rökstudd
með því, að konungur hali
jafnan greitt líftryggingaið-
gjöldin úr cigin vasa, svo að
ætíingjum Iians beri að af-
henda skírteinið, sem er í
höndum stjórnarvaldanna á
Ítalíu. — Viktor Emanuel lét
eftir sig eigur, er nema um
40 millj. punda.
Swée&B' hígupís
Svíar liafa samið við Breta
um kaup á nokkrum þrýsti-
loftsflugvélum.
Þeir hafa áður samið um
kaup á og fengið þrýstilofts-
flugvélar frá Bretlandi. —
Flugvélar þær, er þeir eiga
að fá, eru af de Havailand-
gerð.
arnir óséffir em
Ekki er ennþá búið að
vitja happdrætíisbifreiðanna
tveggja, sem dregið var um
skömmu f'yrir áramót.
Er hér um að ræða I.R.-
hílinn, scm kom upp á happ-
drættismiða nr. 22.692, og
Ármanns-bílinn, eu hann
híýtur eigandi miða nr. 23.-
161. Þeii’, sem kunna að
eiga þessa miða í fórum sín-
um, eru vinsamlegast heðn-
ir að gefa sig fram við við-
komandi íþróttafélög.
Skömmtun nauðsynja í
Eire — írska fríríkinu —
hefir verið rýmkuð til mik-
illa muna.
Hætt er að skammta all-
an fatnað, bæði ytri falnað
og nærföt. Skömmtun á gasi
og kolum hefir einnig verið
lögð niður. Enda þótt
skömmtunin sé að verða ó-
þörf í Eire, verður verðlag
ekki gefið frjálst að sinni.
Kanada hefir selt og sent
til Kína verksmiðju, sem
framleiðir vélbvssukúlur.
íÍFÍngt að' kömast yf-
Sf ineS sifóýtE,
|æði HellisKeiði og Mos-
fellsheiði eru ófærar af
snjó sem stendur. í morg-
un var moksturskafald þar
efra, og engm tök að kom-
ast yfir Hellisheiði, en óvíst
hvort tekst að brjótast yfir
Mosfellsheiði með ýtu.
I gær voru þrjár á
Hellisheiðarvegjnum, en þær
gátu ekki athafaá'ð sig neitt
vt’gna hríðarve'ðurs og sum-
parí vegna bilana. Bílar 'voru
sendir i bæinn með biluð
stvkki úr ýtunum, en þeir
sátu fastir í snjónum. í gær
og nótt brutust snjóýtur frá
Lögbergi upp í Skíðaskálann
í Hveradölum og komu þang-
að kl. 2 í nótt. Var þá kom-
inn klofsnjór á veginn og
svo blint, að nær ómögulegt
var að greina liann, enda fór
ein ýtan út af veginum. Ýt-
urnar munu svo gera tilraun
til þess að komast niður úr
í dag, en frekari tilraunum
til þess að komast yfir heið-
ina sjálfa verður þar með
hætt í bili.
Mosfellsheiði.
Mosfellsheiði er einnig ó-
fær sem stendur, og hefir þar
kyngt niður snjó i allan gær-
dag, nótt og' morgun. Ýrta
var send á heiðina í gær og
ruddi hún bilunum braut,
sem brutust í kjölfar hennar
yfir heiðina. Snemma í
morgun fór ýtan aftur á stað,
en ekki er vísi hvort henni
tekst að. brjótast i gégn. —
Yfirleitt taldi vegamálaskrif-
stofan horfur ískyggilegar á
að halda samgöngum opnum
austur .yfir fjall, meðan veð-
ur breytist ekki.
J
Mjólkin. ,
Mjólkurflulningum hefir
enn verið hægt að lialda uppi
yfir Mosfellslieiði, en mikill
hluti dagsins í gær fór í það
að kömast yfir liana. Sú
mjólk, sem kom í gær, fcr í
búðir í dag, og má búast við
nægjanlegri mjólk í dag. —
Hinsvegar er allt í óvissu um
framtíðina, ekki aðeins vegna
samgönguerfiðleika austur