Vísir - 10.12.1949, Blaðsíða 7

Vísir - 10.12.1949, Blaðsíða 7
Laugardaginn 10. desember 1949 V I S I R 7’ 9 Saklaus s&kmr ímntíinn Eftir Richard Macauly. þess að draga kerru af þessari gerð, og lagði af stað í ævintýraferðalag sitt. Hún var úm þessar mundir komin á þá skoðun, að hún mundi aldrei taka gleði sína aftur, aldrei geta verið glöð með glöðum, en liún hikaði livergi við að framkvæma ákvörðun þá, sem ln'm hafði tekið. Ivkki liafði hún gert neina áætlun um ferðalog sit-t, nema halda vestur á bóg- inn. Það var sem hún hefði einhverja óijósa hugmynd um, að ferðalagi hennar mundi ljúka i Kaliforníu, þótt hún hefði ekki ákveðið neitt fyrirfram um þær leiðir, er hún færi. Þannig atvikaðist, að morgun þann, sem hér er greint frá, vaknaði Ellen í kerru sinni, éftir að hafa ekið um það bil einn þriðja leiðarinnar frá Manhattan til Kali- forníu. Er hún liafði búið um rúmið og tekið til, en rúm- ið var af þeirri gerð, sem leggja mátti saman, eins og „harmoniku-bedda“, bjóst hún til að fá sér bað í inn- byggðu baðkeri, sem var í kerrunni, en fyrst setti liún smáketil með vatni á rafmagnsplötu, því að hún ætlaði að fá sér morgunsopa að venju. Orkuna fékk hún' frá raftaug á bifreiðastæðinu. í kerrunni var einnig kæli- skápur, sem hægt var að framleiða í allt að 25 pund af ís, sem vanalega nægði til næstu áningar á bifreiðastæði, eða annarsstaðar, þar sem raforka var fáanleg. Þegar Ellen liafði baðað sig og snætt morgunverð sinn, steikt egg og smurt brauð og drukkið kaffi, fór hún að klæða sig. Hún klæddist brókum og fór í peysu og batt bandi um hár silt. Er hún liafði gengið frá öllu í kerr- unni gekk hún út og dró séf ferskt inorgunloftið. Hún lokaði kerrudyrunum vandlega, en læsti þeim ekki. Því næst losaði hún rafmagnstengslin, fann umsjónarmann bifreiðastæðisins að máli og greiddi gjald sitt. Að því búnu gekk lnin til bifreiðar sinnar, setti hreyf- ilinn i gang, og ók út af bifreiðastæðinu, og stefndi i vest- úrátt. Er hún beygði út á þjóðveginn skauzt ungur maður fram, opnaði kerrudyrnar snarlega og liljóp inn i kerruna, og lokaði dyrunuin á eftir sér, án þess að Ellen Veitti því neina aíhygli. ----v—— Áfram var ekið eftir þjóðveginum, hægt og rólega. Port- er fór brátt að lilýna, og er honum var vel lieitt orðið, fór að síga á hann liættuleg værð, því að þótt hann liefði ekki svefns notið í fullan sólarhring, var ekki á það hættandi, að sofna eins og sakir stóðu. Ilann ásetti sér að sofna ekki og fór að gang um gólf í vagninum, en það var engan veginn auðvelt, þótt hægt væri ekið. Svo var eins og hann allt í einu fyndi mjög sárt til þess, að hann var næringar þurfi. Iíann liafði ekki nærzt á neinu, síðan er hann fór úr fangelsinu, nema ef telja skvldi súkkulaðistengurnar, en þær seinustu hafði hann borðað fyrir löngu. Hann fór að gægjast inn í matarskápinn og fann þar sneilt hveitibrauð. I kæliskápnum litla fann hann ost. Vatn var og fyrir hendi, svo að þetla var sannarlega við- unandi morgunverður fyrir mann, sem eins var ástatt fyrir og Porter. Þar sem liann hafði ekki tekið neinar ákvarðanir um hvað liann næst tæki sér fyrir hendur, þá gætti hann þess að skilja livcrgi eftir brauðagnir, loka skápunum og ganga frá öllu, svo að ekki væri augljóst við fyrstu sýn, að i þá hefði verið farið. Þetta gérði hann vegna þess, að það gat cins vel dottið í hann'að hlaupa út úr kerrunni, án þess bílaeigandinn vissi um, eins og að hafa við í henn um sinn. Hann lagðist nú fyrir og hallaði sér upp að mjúkum svæflum og reyndi að gera sér grein fyrir aðstæðum og liorfum. Það mundi litlum vafa undirorpið, að um hádeg- isbilið vrði bíllinn með hinni yfirbyggðu kerru aftan í, kominn út úr héraðinu. Ef svo revndist hefði liann skotið bæði borgar- og' héraðslögreglunni ref fyrir rass. — Stúlkan, — hann vissi ,að það var stúlka, sem ók bíln- um, — ók ennfremur rólega, iðulega aðeins -10 kílómetra á klukkustund, hraðast á að gizka 60—65 — og það var engan veginn loku fyrir það skotið, að cr kvöldaði, yrðu þau komin vestur fyrir Missisippifljót og út úr fylkinu. Porter gerði sér ljóst, að þótt þetta gengi allt að óskum, væri hann aðeins kominn af mestá hættusvæðinu, og hann yrði áfram að vera stöðugt á verði gegn ótal hættum. En hættan minnkaði með aukinni fjarlægð frá borginni, , þar sem liann var saklaus sekur fundinn, og hafði orðið að hýrast í fangelsi misserum saman. Og næstu nótt yrði liann, ef vel gengi, kominn það langt, að ekki yrðu myndir af honum í fréttablöðunum, með tilheyrandi Jýsingu. Hann vissi, að ef hann gæti komizt hjá að verða lekinn höndum næstu viku, mundi áhugi manna fyrir lionum tekinn að minnka, svo að stórmikið liefði dregið úr öllum hættum, og brátt mundi hann flestum gleymdur, ncma nokkurum áhugasönnnn lögregliimönnúm, þeirra meðal Banning. Eins og sakir stóðu voru liorfurnar ckki seVn vérstar —1 og rétt í bili gat liann verið alveg öruggur, að honum fannst. Eftir eina, tvær, kannske þrjár - ldukkustundir —. Lengra komst liann ekki á hugsanabráutinni. Augu lianns lukust aftur og liann féll i væran svefir. II. Nokkur eftir liádegi kom Ellen auga á liinn ákjósanleg- asla stað til þess að nema staðar og neyta hádegisverðar á bökkum lítillar ár. Hún kaus jafnan frekar slíka staði til hádegisverðar en hina föslu áningarstaði þeirrn, sem ferðuðust með sama liætti og hún. Hún var borin og barn- fædd í stórborg og hafði eigi liaft mörg tækuæri til jæss að njóla einVeru undir beru lofti úti í sveitum landsins, en i þessari ferð liafði hún notið þess, að geta verið ein og í næði á fögrum stöðum, og það var henni mikils virði enis og liugarástand hennar var. Einveran, fegurð náttúr- unnar, kyrrðin, allt hafði þetta hin beztu álirif á lmgsana- líf Iiennar. Hún beygði út af þjóðveginum og stefndi niður á ár- bakkann, en fullvissaði sig um það áður, að þarna voru góð skilyrði til þess að komast aftur upp á þjóðveginn. Hún nam staðar undir gríðar stóru tré. Er lnin liafði stöðvað bireiðina og gengið frá lienni í giri, sótti lnin við- arkubba til þess að skorða lijólin — og fór svo inn í kerruna. iÚti var bjart af sólu og það liðu nokkur augnablik þar til liún sá eins vel og vanalega, og hún veitti Pofter því ekki athygli, fyrr en hún var komin inn i miðjan vagninn. Ilenni brá svo mjög við að sjá manninn þarna sofandi, að hún stóðggem rignegld í sömu sporum, skelfdari en svo að hún fengi nokkuru orði upp komið. Fljótlega vann liún þó bug á mesta óttanum. Ilún sá, að maðúrinn var órakaður, að föt lians voru blettuð og óhrein, og — að Háskélafyrirlestur á afmælisdegi prof. Har. Nielssonar. Fimmti „Haralds Níels- sonar fyrirlesturinn“, eins og þessir fyrirlestrar eru venju- lega nefndir, var haldinn í hátíðasal háskólans kvöldið 30. f. m., en þá var 81 ár liðið frá fæðingu Haralds prófessors. Á undan fyrirlestrinum minntist forseti guðfræði- deildar, # Ásmundur Guð- mundsson, nokkrum orðum síra Haralds. Prófessor Bleeker tók því næst til máls og flutli langt og snjallt er- iiidi um „Eiidurnýjun frjáls- lvndrar guðfræði“. Prófessor Bleeker liefir flutt erindi í guðfræðideild Iláskólans og prédikað í kap- ellunni. Mun liann nú á sunnudaginn, 11. þ. m., kl. 5 e. h. flytja erindi í Dómkirkj- unni um trúarlifið í Hollandi. Mun liann ]»á inæla á sænska tungu. Prófessor Bleeker er mikill gáfumaður og lær- dómsmaður og ágætlega máli farinn. Húsgögn Eikartorð, (kringlótt) spónlagt, ottoman og rúmfatakassi til sölu á Hverfisgötu 112 3. hæð. — Til sýnis eftir hádegi á morgun. JJiL mar löggiltur skjalþýðandi og dótn- túlkur t ensku. Hafnarstr. II (2. hœð). Sítni 4824. Ánnast allskonar þýðingar úr og á ensku. BEZ f AÐ AUGLYSAIVISI Stúlka óskast, helzt vön mat- reiðsju. Gott kaup. Veitingastofa Vega Skólavörðustíg 3. Uppl. í síma 2423. C /?. ÆuwougtUí TARZAM Lúlli skaut, en hitti ekki, hann á flótta. þá lagði Hins vegar skildi hann eftir varnar-* lausa stúlkuna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.