Vísir - 06.09.1950, Qupperneq 2
V I S I R
Miðvikudaginn 6. september 1950
Miðvikudagur, ,
6. septeniber, —.249- dagjur árs-
ins.
SiáyarfölJ.
Síðdegisflóö var kl. 13-35.
Ljósatími
bifreiða og annarra ökutækja
er kl. 2a.10-5.40.
Næturvarzla.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030. Næturvörð-
ur er í Laugavegs Apóteki, sími
1616.
Bólusetning
rnaveiki fer
Templarasundi 3 í dag.
gegn barnaveiki fer fram í
„Fiskur“,
tímarit um matvælaframleiöslu
úr íslenzkum hráefnum, 2—3.
tbl- I. árgangs, er nýkomið út.
Rit þetta er hitS læsilegasta. —
Þessir menn eiga greinar eða
ritgerðir í heftinu : Haraldur
Ásgeirsson verkfr., Sveinbjörn
Jónsson framkv.stj., Ólafur
Jensson verkfr., Jón Loftsson
frkv.stj., dr. Júlíus Sigurjóns-
son próf-,Sveinn Árnason fyrrv.
, fiskimatsstjóri, B. A. Berg-
steinsson fiskiniálastj., Kristján
J. Reykdal fulltrúi, Magnús K.
Magnússon yfirfiskimatsmaður,
dr- Jakob Sigurðsson og enn-
fremur er grein um Ólaf Árna-
son yfirfiskimatsmánn, fimm-
tugan. Útgefandi „Fisks“ er
Samband fiskmatsmanna ís-
lands, en ritstjóri er Gísli Þor-
lcelsson.
Hvar eru skipin?
Eimskip: Brúarfoss fór frá
Akureyri í gær til Húsavíkur-
Dettisfoss fór frá Akureyri I-
þ. m. til Hollands og Hamborg-
ar. Fjallfoss var væntanlegur til
Reykjavíkur j dag. Goðafoss
fer frá Reykjavík'í dag' til FIull,
Bremen, Hamborgar og Rott-
erdam. Gullfoss fór frá Leith
4- þ. m. til Reykjavíkur. Lagar-
foss er í New York- Selfoss .er
í Gautaborg. Tröllafoss er j
Botwood "í -'Néw Fóúndland,
f.ermir þar 2500 tonp af pappír
til JSiew Yprk.
Ríkisskiþ: Hekla var vænt-
anleg til Reykjavíkur í morg-
un. Esja var á Akureyri í morg-
un. Herðubreið var væntanleg
til Reykjavilcur í nótt. Skjald-
breið er í Reykjavik og fer það-
an i kvöld til Snæfellsness- og
Breiöafjarðarhafna- Þyrill er í
Faxaflóa.
Eimskipafélag Rvíkur li.f.:
M-s. Katla lestar saltfisk á Aust-
fjörðum.
Heilsuhælissjóði
Tíáttúrulækningafél. íslands
hefir borizt áheit íyrir heilsu-
hjálp að upphæð eitt þúsund
krónur frá A. L. — Kærar
þakkir- — Stjórnin.
Heilsuvernd,
timarit Nátturlæliningafélags
íslands, 2- hefti 1950, er ný-
komið út, fjöllireytt að efni og
vandaS aö frágangi. Úr efni
ritsins má nefna: Liðagigt, eft-
ir ritstjórann, Jónas læknir
Kristjánsson. Kjarni málsins,
eftir Grétar Fells- Um barna-
tennnr eftir Margréti Berg-
lækning og varnir krabbameins,
mann, tannlækni. Náttúrleg
bg er það síðasta greinin í
greinaflokki um þaö efni eftir
Björn L. Jónsson. Húsmæðra-
þáttur: Grænar blaðjurtir með
hrásalatuppskriftum {Dagbjört
Jónsd,), Frásagnir af lækningu
tveggja krabþanteins- og
tveggjá liöagigtársjúklinga. —
Ný krúskuuppskrift- Lífrænn
og tilbúinn áburður (tilraunir).
Brauðin og fytinsýran. Spurn-
ingar og svör. Reykingar og
kvillasemi. Röng næring orsök
oídrykkju. Varnarefni gegn
sýkingu í hveitikimi. Félags-
fréttir o. fl.
Útvarpið l kvöld:
20.30 Útvarpssagan: „Ketill-
inn“ eftir William Heinesen;
XXVII. (Vilhj. S. Vilhjálms-
áon rith.) 21-10 Tónleikar (plöt-
ur). 21.20 Erindi : Undir erlend-
tjm liitnnum; II. (Kárí Isfeld
ritstjóri). 21.45 Danslög (plöt-
ur). 22-00 Fréttir og veður-
fregnir- 22-10 Danslög (plötur).
Veðrið?
/
Fvrir norðausturlandi er
rjúp og víðáttumikil lægð, sem
er nær kyrrstæð Og fer rninnk-
andi. Önnur lægð er norðaustur
af Bretlandseyjum og fer hún
vaxandi.
Veðurhorfur: Norðan og
norðvestan átt, stinningskaldi í
dag, en kaldi í nótt; víðast úr-
komulaust og léttskýjað-
Sölugengi erlends gjaldeyr-
is í íslenzkum krónum:
1 Pund kr. 4570
1 USA-dollar — 16.32
1 Kanada-dollar .... — - 14.84
100 danskar kr — 236.30
100 norskar kr — 228.50
100 sænskar kr — 3IS-50
100 finnsk mörk .. — 7.09
1000 fr. frankar .. — 46.63
100 belg. írankar .. — 32.67
100 svissn- kr — 37370
100 tékkn . kr. — 32-64
100 gyllini — 429.90
Söfnin.
Landsbókasafnið er opin kl.
10—12, 1—7 og 8—10 alla virka
daga nema laugardaga kl. 10—
12 yfir sumarmánuðina. —
Þjóðskjalasafnið kl. 10—12 ogj
2—7 alia virka daga nema laug-;
ardaga yfir sumarmánuðina kl-
io—12- — Þjóðminjasafnið kl-
1—3 þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga. — Listasafn Ein-
ars Jónssonar kl. 1.30—3.30 á
sunnudögum. — Bæjarbóka-
safnið kl. 10—10 alla virka daga
nema laugardaga kl. 1—4, kl-
1.30—3 og þriðjudaga og
fimmtudaga. Náttúrugripasafn-
ið er opið á sunnudaga.
• Til gagns og gamans
/Íi • J • Skariit fyrir ofan Baldurshaga .. , II
tf* VtM fjlfht' fældist hestur milli bifreiða I nroMyata m llcó
30 árui/n.
Vísir segir m. a- svo frá í
Bæjarfréttum sínum hinn 6-
septemlier 1920:
Bifreiðarslys. 1 gærmorgun
var verið að skipa upp úr stein-
olíuskipinu við hafnarbakkann.
Viidi þá svo slysálega til, að
flutningsbifreið steinolíufélags- ^
ins rakst á mann og meiddij
hann mjög mikið- Biíreiöin
rendi aftur á bak upp að skip-j
inu, en maðurinn varð í rnilli.
Hann heitir Júlíus G. Guð-j
brandssón, áður dyravörður í
Ijarnaskólanum. Þrivegis hafði
liðið yfir hann, áður en hann
var fluttur á spítalann. Flutn-,
ingahifreiðir fara ógætilegastl
allra bifreiða, og einkanlega á
hafnarbakkanum. Er það furða,
að ekki skuii hat'a hlotist slys
ívrr en þetta.
Annað slys. Fjöldi íólks íór
út úr bænum í gær að skemta
sér. Voru sumir ríðandi, aðrir^
á hjólum eða í bifreiðum og
var þröngt á veginum inn að ^
Elliðaám og þar fyrir ofan. t
Skamt fyrir ofan Baldurshaga
fældist hestur milli bifreiða
undir Ludvig Einarssyni
(Arnasonar) og liljóp frarnan á
aðra bifreiöina og yfir hana-
Braut hann glerið á bifreiöinni,
en Ludvig meiddist mikið á
gffrbrotunum og hesturinn líka.
ST/nœlki —
Glæpamaður lék lausum hala
í Cleveland á árunum frá 1935
—'38 og íhunu fáir menn hafa
vakið jafnmikinn ótta, jafnvíða.
Á þessum árum drap hann sjö
karla og fimm konur, limaði í
sundur og gróf líkin víða, helzt
þó í nánd við gil í borginni- —
Þrjú af fórnarlömbum hans var
hægt að þekkja. Nærri 6000
menn voru yfirheyrðir ög einn
þeirra kannaðist við að liafa
baiiað einum manni, en neitaði
að vita nokkuð um aðra, sem
drepnir voru. Þaö var tekið trú-
anlegt og hann dó síöar í fang-
elsi. Borgin eyddi 100 þús. dölr
um í að leita uppi morðingjánn,
sem menn héldu að væri brjál-
aður læknir. Hann fannst aldrei
og enn er það ókunnugt hv.er
hann var.
Lárétt: 1 koma niður, 6
kjassa, 8 tónn, 10 sjó, 11 vang-
ar, 12 fanga, 13 þyngdarein-
ing, 14 gælunafn konu, 16 pípu-
na'erki-
Lóðrétt: 2 Jökull, 3 sælgæti.
4 horfa, 5 harma, 7 minna, 9
koma auga á, *io mylsria, 14
tónn, 15 bardagi.
Lausn á krossgátu nr. 1127:
Lárétt: 1 Rímur, 6 sór, 8 ár,
10 ei, 11 laglega, 12 af, 13 óni,
14 eta, 16 mitti.
Lóðrétt: 2 ís, 3 móálótt, 4 ur,:
5 málar, 7 Miami, 9 raf, 1.0
ego, 14 ei, 15 at.
Húsmæður
Kynnið yður allt, seiii lýtur áð verndun heilsú ýðar,
barna yðar og héimilisfólks. Eina íslenzka ritið, sem
flytur almennan og hagnýtan fróðleik um þessi cíni, er
Heilsuvernd
Efni 2. heftis 1950, sem er nýkomið út,
er þetta:
Liðagigt (Jónas Kristjánsson).
Kjarni málsins (Gretar Fells).
Um barnatennur (Margrét Bergmann, tannlæknir).
Tvær krabbameinssögur.
Tvær liðagigtarsögur.
Húsmæðraþáttur: Grænar hlaðjurtir, hrásalöt
(Dagbjört Jónsdóttir).
Vörn og orsök krabbameins VI: Náttúrleg lækning
og varnir (Björn L. Jónsson).
Ný krúskuuppskrift.
Lífrænn og tilbúinn áburður (tilraunir).
Brauðm og fytinsýran.
Spurningar og svör.
Reykingar og kvillasemi.
Röng næring orsök ofdrykkju.
Varnarefni gegn sýkingu í hveitikími.
Félagsfréttir o.fl.
----o---- ■
Afgreiðsla er í skrifstofu NLFl, Laugavegi 22
(gengið inn frá Klapparstíg). — Sími 6371. — Gerizt
áskrifendur. — Árg. kostar aðeins 20 kr. —
Náttúrulækningafélag Islands.
Nr. 37/1950.
Tilkgnning
Innflutnings- og gjaldeyrisdeild Fjárhagsráðs hefir
ákveðið eftirfarandi hámarksverð á seldri vinnu hjá
netagerðarverkstæðum:
I dagvinnu ................. kr. 14,53
I eftirvinnu ... .......... — 20,82
I nætur- og helgidagavinnu . — 27,12
Þar sem unnið er jafnt nótt og dag, helga daga sem
virka, fyrir sama kauptaxta við viðgerð á síldar-
nótum og netum, er heimilt að selja vinnustundina á
kr. 20,07 og gildir það ákvæði til 30. sept. n.k.
Ákvæði tilkynningar þessarar gilda frá og með 1.
ágúst, 1950.
Reykjavík, 5. sept. 1950.
Verðlagsstjórinn.
Faðir minn og bróðir
Þórður Jónsson,
úrsmiður,
andaðist að heimiii sínu, Öldugötu 2, þriðju-
daginn 5. þessa mánaðar.
Ragnar Þórðarson,
Guðbjörg Jónsdóttir.
Utför konu mínnar,
Astu Hermannsson
fer fram föstudaginn 8. þ.m. Athöfnin hefst
kl. 2 e.h. í Dómkirkjunni.
Þeir, sem hafa í huga að senda blóm eða
kransa, eru vinsamlega beðnir að láta ein-
hverja líknarstofnun njóta þess.
Jón Hermannsson.