Vísir - 31.10.1950, Side 1

Vísir - 31.10.1950, Side 1
40. árg. Þriðjudaginn 31. október 1950 tbl. Éiús4*Í4.&hím 13Sr ú ih þús- iif’. Togarinn Elliði frá Siglu- fir&i hefur verið á karfaveið- um aö undanförnu og aflað ágætlega. Á fimm vikum, eöa á tíma bilinu 19. september til 27. október sl. fór ,,Elliöi“ fjór- ar ferðir á karfaveiðar og veiddi í þessum ferðum sam tals 1494 tonn af karfa, auk lúðu og annars fiskjar. Karfinn fór nær allur til bræðslu í Ríkisverksmiðj- urnar, að undanteknum 30 —40 tonnum í hverri veiði- för ,er för til flökunar í frysti húsið Hrímni á Siglufirði. Hásetahlutur á þessum fimm vikum nam kr. 5194.19 og má það teljast mjög gott. Á Siglufiröi er nú einstæð veðursæld og sumarblíða og snjóinn sem festi í fjöll í kuldahretinu í haust hefur nú tekið upp„ Nokkrir bátar hafa róið á Siglufirði að undanförnu, en afli hefur verið tregur. Mest hafa þeir haft 5 tonn í róðri, en venjulega ekki nema 2—3 tonn. Aflinn hefir að mestu leyti farið í salt, nema ýsa — hún hefir verið fryst. Leiðangursfarar fluttir að Vatnajöklí Vegna óhagstæös veðurs, gdt lielicoptervélin ekki flog ið austur að Vatnajökli fyrr en í gærmorgun. En laust fyrir hádegi í gær lagði vélin af stað austur með þá Árna Stefáns son og Friðþjóf Hraundal og verðm- nú gripiö fyrsta tæki færi, sem gefst til að ganga á jökulinn. F'uHérúar í Móreunefndz Fjórar þjóðir hafa nú til- nefnt fulltrúa í liina vænt- anlegu Kóreunefnd, sem á aö sjá um sameiningu lands- ins í lýðræðisríki á grund- velli S.Þ. Þetta eru fulltrúar Ástra- líu, Chile, Filippseyja og Tyrklands, en Holland, Pak- istan og Thailand eiga eftir að tilnefna sína fulltrúa í nefndina. iooverjar i Agæt ísfisksala Austurlands báta á Bretlandsmarkaði. Nokkurir vélbátar af Aust- urlandi hafa byrjað ísfisk- veiðar og nokkrir selt afla sinn á Bretlandi við ágætu verði. Sumir bátanna seldu við sérlega góðu verði, t. d. Gixll- 'fax'j frá Neskaupstað, sem fékk 1811 sterlingspund fyrir 567 vættir og Ásþór frá Seyð- isfirði, 517 vættir fyrir 1944 sterlingspund. Er talið, að þctta sé um það bil heímingi liærra en gamla hámarks- verðið, en eins og er, er ekk- ert hámarksverð á fiski á Bretlandi. Sunnanbátar eru einliverjir bvrjaðir ísfiskveiðar og niunu sigla með aflann sjálf- ir. Mun Bragi bafa fengið nær fullférmrog vera á förum út. Þá liefir frétzt, að Ileima- klettur úr Revkjavík muni ætla að stunda isfiskveiðar og sigla með aflann. Loks má geta þess, að ís- lendingur muni vera í þann veginn að hefja ísfiskveiðar, en hann er nú gerður út frá ísafirði. Af skipum, sem vitað er, að eru á leiðinni, eða í þann veginn að fara frá Eyjafirði má nefna ,,Sæfinn“, „Stjörn- una“ og „Snæfell.“. Verða þettá fyrstu ísfisksölurnar á þessu hausti. Viðreisnin gengur furðanlega fljótt í Hamborg um þess- ar mundir, þótt margt dagsverkið sé þó enn eftir. Fyrir nokkru var olíuhreinsunarstöðin hér á myndinni vígð, en hún er eign býzk-brezk-íransks félags. indverjar uggandi vegna „frelsunar" Tibets. Tel|a atferSi fCaiiverja svika fiunueleuiell™ ur htehkur„ Frá og með deginum í dag þriðjudegi 31. október — hefst á ný skráning á gengi KanadadoIIars. Verður sölugengi hans kr. 15,55, en kaupgengið kr. 15,50, miðað við 1 Ivanada- dollar. Eldra sölugengið var kr. 14,79, og er þá um að ræða 4,8% hækkun á gengi þessa gjaldeyris. (Frá Landsbank- anum). Samkvæmt fregnum frá Nýju-Dellii er nú fengin ör- ugg vitneskja um, að her- sveitir kínverskra kommún- ista séu komnar inn í Tibet, sæki í áttina að Lhasa, hinni lielgu borg Tíbet-manna og eigi þangað ófarna um 300 km., er síðast fréttist. Áður höfðu borizt lausa- fregnir um þetta, eftir nokk urra vikna „taugastríð“ kín verskra kommúnista, sem einkum beittu útvarpsstöð- inni í Feiping til þess aö draga kjark úr stjórnarvöld- unum í Tíbet. Fregnir eru enn óljósar af sókn kommúnistahersins, en ekki er talið, að um neina mótspyrnu sé aö ræða, að heitið geti. Þó er. bent á, að sóknin kunni að verða hæg, vegna staðhátta, þar sem landiö er afar hátt og illt yfirferðar. Brezk blöö, sem um inn- rásina fjalla, segja m. a., að mikill uggur sé í Indverjum vegna þessara atburða, og saki margir þeirra Kínverja um svik, þar eð þeir höfðu talið, að unnt yrði að jafna deilumálin á friðsamlegan hátt. Lundúnablaðið Times seg- ir í grein um innrás komm- únista, að „ekki komi til mála, aö Lhasa, höfuðborg Tíbet, hafi veriö miðstöö bandarísks heimsvaldaáróð- urs, eins og haldið hefir ver- iö fram í Peiping-útvarp- inu.‘ — Er þessi staðhæfing kommúnistaútvarpsins gott dæmi um yfirskinsástæður þær, sem nauðsynlegt er talið að grípa til, þegar rétt- læta skal nýja innrás og of- beldisaðgerðir. Annars vekur innrás kom- múnista eki ýkja mikla at- hygli 1 stórblöðum, enda var vitaö að hverju fór, og kom- múnistastjórnin í Peiping hafði löngu lýst yfir því„ að „frelsun“ Tíbets stæði fyrir dyrum. Lengsta olíuleiðsla í heimi fullgerð. Beirut (UP). — Lengsta oliuleiðsla, sem lögð hefir verið, er nú fullgérð frá Persaflóa til Miðjarðarhafs. Leiðsla þessi er 1700 km. á lengd og liggur til liinnar fornu borgar 'Sidon á strönd Miðjai'ðarhafs. Kostnaðurinn við hana nam 250 milljóri- um dollara, en stálið, sem varið var til hennar, óg 323,000 smálestir. Ekkert samkomulag hefir náðzt á fundi landvarna- nefndar Norður-Atlants- hafsríkjanna í Washington um, hvort Þjóðverjum skuli leyft að taka þátt í vœntan- legum Evrópuher. Jules Moch, hermála- ráðherra Frakka, lýsti yfir ugg sínum í sambandi við þátttöku Þjóðverja í land- vörnum Vestur-Evrópu og kvað hana geta leitt til frekari endurvígbúnaðar þeirra, en allir þekktu af- leiöingarnar af honum. Shinwell, hermálaráð- herra Breta, sagði í því sam bandi, að þessi ágreiningur mætti ekki á neinn hátt verða til þess að tefja að- gerðir í landvarnamálum. ■*—’ Marshall lýsti afstöðu Bandaríkjamanna í málinu, en síðan var frekari umræð- um frestaö. Hernámsstjóri Frakka í V.-Þýzkalandi hefir átt tal viö Adenauer, kanzlara landsins um þessi mál, og í því sambandi er minnzt á þau orö kanzlarans, að þátt- taka Þýzkalands komi ekki til mála, nema þýzkir her- menn njóti sömu réttinda og aðrir hermenn. -----+;---- Ólafur Björnsson prófessor endur- kjörinn formaður BSBR. Stjórnarkjör fór í gær fram á þingi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og var Ólafur prófessor Björns- son endurkjörinn formaður þess. Auk þess var Arngrímur Kristjánsson skólastjóri end- urkjörinn varaformaður, en aðrir i stjórn voru kosnir: Steingrímur Pálsson símrit- ári, Þorvaldur Árnason skatt- stjóri, Guðjón B. Baldvius- son deildatstj., Karl Bjarna- sori vara-slökkviliðsstjóri og Sigurður Ingimundarson kennari. * . Endurskoðendur voru kosnir Andrés Þormar og Björn L. Jónsson. Á dagskrá þingsins í gær voru dýrtíðarmálin og stóð fundur fram á nótt. ,Á !

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.