Vísir - 31.10.1950, Qupperneq 8
Þriðjudaginn 31. október 1950
Rússar taka við stjórn
Yékhmw kowsta mpp
Ím £iufjs ri i„
Vín (UP.)., — Rússneskir
sérfrœðingar hafa verið sett-
ir yfir Skodaverksmiðjurnar
og fleiri tékkneskar vopna-
verksmiðjur.
■ Þá er einnig unniö af
kappi aö því að breyta tékk-
neska hernum, svo að hann
verði raunverulega rússnesk
ur. Stjórn Tékkóslóvakíu hef
ir látiö íbúa Pilsen rýma
fjölda hús, svo að rússnesku
sérfræðingarnir fái húsnæöi
og er talið, að þess veröi ekki
langt að bíða, að Tékkar
„óski“ þess við Rússa, að þeir
taki að sér yfirstjórn hers og
vígbúnaðar til þess að þar
verði allt unnið eins vel og
kostur er á.
Frásagnir um þetta -hafa
borizt með 25 ára gömlum
flugmanni, Jaroslav Valou-
sek frá Brúnn, sem komst úr
landi fyrir tíu dögum. Sagði
hann ennfremur frá því, að
þeir flugmenn, sem hefðu
barizt í brezka flughernum
á stríðsárunum — en margir
Carnegie
Austurðœjarbíá byrjar nú
enn að sýna hina ■ frdbœru
hljómlistarmynd, Carnegie
Hall.
Það er haft fyrir satt, að
sumir menn hafi séð þessa
mynd allt að sjö sinnum,
þegar hún hefir verið sýnd
hér áður og víst er, að hún
býður upp á ódýrasta kon-
sert, sem hægt er að hugsa
sér hér á landi. Þar koma
líka fram ýmsir frægustu
tónsnillingar heimsins og
verkin, sem tekin eru til
rneðferðar, eru eftir því„
Sketnmdir af
stórviðri á
Akureyri.
í fyrrinótt gerði stórviðri
á Akureyri af suðaustri og
olli nokkrum slcemmdum.
Mestar urðu skemmdir á
olíugeymi, sem Olíufélagið
á í smíðum á Gleráreyrum.
Skekktist geymirinn á und-
irstöðunum, svo að rnikið
verk mun vera að gera viö
hann, en hann var nærri
fullgeröur. Auk þess urðu
nokkrar skemmdir á bátum
á höfninni og á bæjum úti
úm sveitina.
þeirra gátu sér góöan orðstír
— hafi ýmist verið hraktir
úr flughernum eða bókstaf -
lega verið fangelsaöir,, Til
þess að koma í veg fyrir, að
menn geti flúið í flugvélum,
hefir sérstök lögregluflug-
sveit verið stöfnuð og er ein
flugvél úr henni jafnan á
sveimi yfir hverjum flugvelii
landsins til að skjóta niður
flugvélar, sem fara þaðan í
óleyfi. Valousek slapp nins-
vegar með því að fljúga upp
í sama mund og lögregluflug
vélin lenti til að taka elds-
neyti og slapp þannig.
„Væri hver maður, sem
gerist brotlegur að dómi
stjórnarinnar, settur í fang-
elsi, mundi öll þjóðin verða
höfð í haldi,“ sagði Valousek
að endingu 1 viðtali við
fréttamenn.
1
herbergi.
Eldur kom upp í kjallara-
herbergi í Þingholtsstræti 16
í nótt.
Ekki er \itað um orsakir
eldsupp'taka. Þarna býr mað-
ur að vísu en var fjarver-
andí, er eldurinn kviknaði.
Fólk á efri Iiæð varð elds-
ins vart uni kl. hálf tvö í
nótt og gerði slökkviliðinu
aðvart. 'Var þá koniinn tö!u-
vcrður eldur i hefbergið og
.nikill reykur.
Slökkvibðinu tókst strax
að kæfa el 'inu en sktnand-
ir urðu töb.ivu'ðar i hrrberg-
uiu.
Fulltrúar 14 þjóða hafa
lagt til, að Trygve Lie, aðal-
ritara (framkvœmdastjóra)
SÞ. verði. falið að gegna á-
fram störfum sínum um 3
ára skeið.
Erfiðlega vii'ðist ganga á
allsherjarþingi SÞ að koma
sér saman um eftírmann
Trygve Lies, en starfstími
hang er nú útrunninn. Þó er
það víst, að Rússar leggjast
gegn því, að Lie gegni starf-
inu áfram, eins og skýrt hef
ir komið fram í yfh’lýsingu
Vishinskys.
Lie sjálfum er ekkert
kappsmál að halda áfram
í þessu mesta virðingarem-
bætti SÞ, og vildi helzt draga
sig í hlé, Hins vegar munu
fulltrúar vesturveldanna
fylgja uppástungu fulltrúa
ríkjanna 14 um, að Lie
gegni starfinu áfram, unz
önnur lausn fæst.
yr ireoissKur ira lyrra
ri seldur á
s&m
Nýlega tókst að selja á
Bretlandi allan frosna fiskinn
frá fyrra ári, eða um 650
lestir.
Sveinn .Tónsson, fram-
kvæmdarstjóri frá Sandgerði,
ei' nýkominn heim frá Bret-
landi, þar sem hann annaðist
ofangreinda sölu. Þá tókst
Sveini að selja allt flatfisk-
magnið, sem framleitt liefir
verið á þessu ári, en það er
um 1.-100 lestir, svo og um 400
lestir af þorskflökum með
Bridge
Handknattleiks-
meistaramót Rvíkur
hefst á morgun.
Handknattleiksmeistaramót
Reykjavíkur hefst að Háloga-
landi annað kvöld.
Ilefst mótið með keppni í
meistaraflokki karla og taka
Reykjavikurfélögin öll, þ. e.
Ármann, Fram, I.R., K.R.,
Valur og Víkingur þátt í þvi.
Annað kvöld lteppir Vik-
ingur við Val, Fram við
Armann og I.R. við K.R.
Er þetta í sjötta skipti sein
mótið er baldið og varð Í.R.
lilutskarpast 1945. Valur varð
sigurvegari 1940 og 1949, cn
Ármann 1947 og 1948.
Keppnin i meistaraflokki
karla lýkur 16. nóvember, en
sunnud. 19. nóv. hefst keppni
í 1., 2. og 3. flokki kafla og
kvenna.
Úrslit í tvímennings-
keppni í 2. fl. í bridgekeppn-
inni eru nú kunn orðin, og
varð röð keppendanna þessi:
Ásbjörn—- Maguús 357 %,
Jón — Stefán 351V4, Konráð
—- Ivristinn 319 'A, Arngrímur
— Iiermann 348(4, Eggert —
Magnea 338 Ví», Jens — Petur
336, Pétur — Sigurður 329%,
Einar — Rútur 317%, Sig-
valdi — Stefán 316, Sverrir
— Þorleifur 303%, Árni —
Magnús 303, Bjarni — Ing-
ólfur 2S8, Aðalsteinn — Eyj-
öLfur 281%, Arndal — Jón
279%, Jóhann — Lárus
277%, Frímann — Þorsteinn
257%. _________
SíÚB'.skip ststt
ú sjó.
New York (UP). — S. 1.
laugardag var hleypt af
stokkunum í Quincy, Massa-
chusett, öðru stærsta skipi,
sem smíðað er í Randaríkj-
unum s. I. 10 ár.
Skip þetta lilaut nafnið
Constitution og var smíði
þess hafin um miðjan júlí á
árinu sem leið. Það verður
um 30,000 smálestir og á að
fara fyrstu för sína í apríl á
næsta ári. Það köstar um 25
inillj. dollara.
berjast með
N.-Kóreu-
Formælandi 10. bandar-
íska herfylkisins í Kóreu
lýsti yfir því í gær, að kín-
verskt herfylki tœki nú þátt
í bardögunum með Norður-
Kóreumönnum. s
Fregn þessi hefir vakið
mikla athygli, enda er hún
fyrsta tilkynningin um, að
Kínverjar skerist 1 leikinn
meö Norður-Kóreumönnum,
og kemur í kjölfar fregn-
anna um, að kínverskur liös-
afli ætli að gæta raforku-
vera við Yalu-fljót í N.-Kór
eu, en þaðan er leidd raforka
til Mansjúríu.
Aðrar fregnir frá vígstöðv
unum í Kóreu eru helztar,
að Norðanmenn hafi byrjað
gagnsókn að baki herjum
Suður-Kóreumanna, og beiti
I skriödrekum og fleiri ný-
i tízku hergögnum.
Nú er unnið að því að selja
um 1000 lestir af frosnum
fiski til Ungverjalands, og er
sennilegt, að það takist. Seld-
ar liafa verið 1650 lestir af
fiski til Austurríkis og i ráði
að selja 430 lestir í viðbót.
Ennfremur er ráðgerð sala á
1500 lestum af frosnum flök-
um til Israelsríkis.
Þessa dagana verður farið
að skipa út í Dettifoss frosn-
um fiski til Randarikjanna,
en bægt væri að selja meira
þangað. — Tékkar eiga eítir
að fá um 800 lestir af flökuin,
er þeir bafa fest kaup á, og
fer sá fiskur væntanlega út í
næsta mánuði og i desember.
Sennilegt má telja, að allt
magnið af frystum karfa sem
framleitt verður í haust verði
selt á Bandarikjamarkað.
Ef sölur þær, sem ráðgerð-
ar eru að framan, komast i
kring, eins og vonir standa
til, er eldd óselt eftir í land-
inu, nema um 1000 lestir.
Botnvörpungurinn „Kefl-
víkingur“ frá Keflavík er
nú kominn á veiðar.
Svo sem kunnugt er sam-
þykktu sjómenn í Keflavík
miðlunartillögu sáttanefnd-
ar í togaradeilunni og eru
nú farnir á veiðar.
Fór Keflvíkingur út sj.
sunnudag og veiðir karfa,
er síöan fer 1 frystihús í
Keflavík.
Gert er ráð fyrir að hver
veiðiför standi yfir í viku til
10 daga.
Engin síld í heila viku.
Norðurlandsbátar flestir farnir heim,
og aðrir hætta, ef veiði verður ekki
næstu daga.
Heildarsöltun Faxasíldar
á liaustinu nam í lok síðustu
viku 86050 tunnum.
Er það aðeins 251 tunnu
meira en i lok vikunnar
næstu á undan, enda var þá
gæftaleysi og hvassviðri nær
alla vikuna„
í gær réru aöeins 4 bátar
frá Sandgerði, fóru þeir
grunnt og öfluðu lítið, fengu
mest 15—20 tunnur og nið-
úr í 3 eða 4. Veður var hag-
stætt.
í dag er gert ráð fyrir að
bátar rói almennt. Munu
þeir þá dreifa sér meira um
miðin og jafnframt verður
séð hvort um síld er að ræða
eða ekki.
Ef síld veiðist ekki næstu
daga, er viðbúið að flestir
bátanna hætti veiðum, og
flestir norðlenzku bátanna
eru þegar hættir og farnir
heim.