Vísir - 20.07.1951, Blaðsíða 4

Vísir - 20.07.1951, Blaðsíða 4
4 V 1 S I R Föstudaginn 20. júlí 1951 &Á6BLIB Bítatjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson, Skiifstofa Austurstrætí 7. Utgefandi: BLaÐACTGÁFAN VlSIR H.E, Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimna línur). Lausasala 75 aurar. Féiagsprentsmiðjan hi. SíIdaEvertíðin. 1 |^enn gera sér almennt góðar vonir um sæmileg aflaföng á yfirstandandi síldarvertíð. Veiðin hófst snemma á sumrinu, miðað við það, sem gerðist fyrr á árum, en þá var sjaldgæft, að veruleg veiði bærist á land fyrr en um og eftir 10. júlí, enda hófu verksmiðjurnar starfrækslu sina um það leyti, þótt nokkuð væri að sjálfsögðu áður urinið að undirbúning. Síldargangna varð fyrst vart við vesturströnd íandsins, og færðust þær að landinu og norður eftir, þvínæst inn á Húnaflóa og allt austur til Langaness og þaðaii út í haf. Allmörg sldp hafa aflað sæmilega í þess- ari fyrstu göngu, en þrátt fyrir það verður ekki talið að um mokafla hafi veríð að ræða. Fyrr á árum töldu menn, að um fjórar síldargöngur væri að ræða á sumrinu og aðalgangan kæmi á miðin nm þetta leyti og þá að vestan. Austansíldin var talin óstöðug og hverful og mætti ekki vænta mikils afla af henni. Á hinu höfðu menn góða trú, kæmi sildin að landinu vestan- verðu eða norðan „úr hafi“, eins og sagt var. Hefði hún þá viðstöðu á heiztu flóum og fjörðum norðanlands og mætti vænta góðrar veiði allt sumarið. Eru þess dæmi, að sum skipin, sem hezt hafa aflað, hafa sótt svo að segja allan afla sinn á sömu mið, og þá helzt út af Skaga, eða jafnvel allt inn undir Þórðarhöfða. Slíkur uppgripaafli var þá oft og einatt, að verksihiðjur höfðu ekki undan, Jiannig að stöðva varð veiði um lengri eða skemmri tírna. Er skip höfðu legið óafgreidd við hryggjur, með aflann um borð, mátti oft sjá meira cn fets mun á borði, sem skipin höfðu lézt og veiðin þannig rýrnað, meðan þau lágu við hryggjurnar. 'Sllk saga endurtekur sig vonadni aldrei. I mestu síldarsumrum hef'ði mátt veiða síld, sem svaraði að verðmæti til nokkrum hundruðum milljónum króna, miðað við núverandi verðlag. Er því engin goðgá, þótt segja megi, að afkoma landsins geti byggst á síldveiðunum og ráði þær öllu um afkomu útvegsins í heild. Sildaraf- urðir hafa reynzt auðseljanlegar og munu vafalaust verða það enn um skeið. Verksmiðjurnar, sem úr hrácfninu vinna, geta rétt við hag sinn á eiriu sumri, þótt áður hafi þær bar- izt við gjaldþrotið. Slika þýðingu hefir þessi atvinnurekst ur fyrir þjóðina og vonandi bregst hann ekki að þessu sinni. Afli er þegar sæmilegur orðinn, en þó mun miuni en um sama leyti á mestu aflaárunum 1942—1944. Síðustu fregn- ir af miðunum benda til nýrrar göngu, sem kemur að vestan, en einriritt nú stendur svo á straunri, að síldar ætti að verða vart í ríkum mæli, fyrirfinnist hún á annað borð á miðunum. Alf'ahrota gæti þá staðið yfir allt frá deginum í dag að telja og fram til miðs ágústs eða jafnvel lengur, ef fleiri göngur berast á miðin, svo sem menn trúðu áður og fyrr. Ekki er vert að gera sér of glæstar vonir, en engu spillir þótt almenningur fylgist vel með veiðunum nyrðra, enda er um fáít rætt frekar manna á meðal. Vélbátaútvegurinn hefir bárizt í hökkum, safnað skuldum og orðið að Ieita opinberrar fyrirgreiðslu. Svo er þó fyrir að þakka, að þeir eru ekki færri, sem engan opin- beran styrk eða fyrirgreiðslu liafa hlotið, en hinir, sem aldrei hafa leitað slikra neyðarúrræða. Menn, sem hafa hagað rekstri sínum með varúð, og ekki hafa viljað „grípa gæsina“ fyrr en hún gefst, og ekki liafa teflt 1 tvísýnu um sildveiðarnar, liafa komizt sæmilega af og vcrið vel bjargólna. Er því með öllu rangt að telja útvegsmcnn sem heiíd opinbera styrkþega. Á hinu eiga þeir rétt, að verðlag á afla þeirra fari eftir tilkostnaði hverju sinni, þannig, að reksturinn sé ekki fyrirfram dauðadæmdur. Hér eiga ekki úívegsmenn einir hlut, heldur bankar og aðrar lánsstofn- anir, sparifjáreigendur og allir þeir, sem hagsmuna hafa að gæta í sambandi við nýtingu aflans og rekstur skip- anna. Vonandi verður Guð og lukkan útveginum liliðholl þetta sumarið, þannig að atvinnurekstur þessi megi retta úr kútnum. Það er sameiginlegt hagsmunamál þjóðarinua'r allrar. Minningarorð um Steingrím Arason. Eg bæði hlakkaði til og kveið fyrir að fara í kennara- skólann. Það var hálfgerður geigur í mér við alla þessa lærðu menn, kénnarana, sem eg heimaalinn og reynslu- lítill sveitadrengur, átti að fara að umgangast og standa skil ó allskonar fræðum. Steingrímur Arason var einn þeirra og um hann vissi eg lítið annað en það, að hann hafði verið ritstjóri „Unga ,Islands“ um alhnörg ár. Eg hafði heillast af sögum hans og frásagnarhætti og hugði gott til að lcynnast honum og njóta leiðsagnar hans. Stein- (grímur var þá æfingakennari j efi'i bekkjum skólans og höfðum við því heldur lítil samskipti við hann fyrr en í 3. bekk. Þar varð liann leið- sögumaður okkar kennara- efnanna um þá vandþræddu leið, sem kennsla og uppeld- jisstarf er. Þar átli hann gnægð þekkingar og reynslu, sem hann miðlaði okkur af örlæti og áhuga. Hann hafði . vakandi auga á öllum nýj- ungum á sviði uppeldismál- anna, lét sér eklci nægja hefð- jbundnar venjur, leita'ði nýrra lirræða og aðferða og dró förigin víða að. En þótt þekking hans á kennslu- og uppeldisfræðum væri með ágætum, er það ekki fyrst og fremst fræðimaðurinn, Steingrímur Arason, sem kemur mér í huga, nú við fráfall hans. Maðurinn sjálf- ur, persónirieiki hans og skapgerð, verða þar drýgri á metunum. — Cr skólasög- unni, sem við kérðum í kenn- araskólanum, man eg skammarlega lítið, enda á út- lendu móli og heldur stremb- in, fannst okkur sumum. Þó situr ennþá í iriér setning úr þeirri hálfgleymdu bók, eitt- hvað á þessa leið: 44 „Það er meira uridir því komið hvað kennai’inn er, heldur en hvað hann veit..“ Eg er ekki þeim vanda vaxinn, að skilgreina eða rekja sundur skapgcrð og eðliskosti Steingríms Arason- ar. En mér finnst setningin úr skólasöguririi eiga vel við hann. Steingrímur „vissi“ mikið og bar í öllu sínu fasi sið- .fágun liins gagnmcnntaða heimsborgara. En mannúð hans og hjartahlýja, mótuð af kristinni lífsskoðun, ætla eg að langlífust verði í nrinni þeirra, er einhver kynni höf'ðu af honum. Eg man, að stundum kom það fyrii' við kennsluæfingar, að okkur fannst Steingrímur leiða hjá sér aðfinnslur og gagnrýni á því, sem miður tókst hjá okkur. I umsögn sinni um frammistöðuna lagði hann höfuðáherzluna á það sem vel hafði tekizt, en lét mistökin fremur liggja milli hluta. Slík var mildi lians og „aðgát í nærveru sálar.“ Beigur sveitadrengsins við lærðu mennina í kennara- skólanum hvarf skjótt. I staðinn kom virðing og þakk- artilfinning, sem ens.t hefir síðan. Þar á Steingrímur Arason sinn bróðurpart. Frímann Jónasson. Grein þessi átti að birtast í Vísi í gær, en varð að biða vegna rúmleysis til dagsins í dag. heimilis aldraðra sjómanna. Um það bil 500 manns tóku sér far með skipinu upp eftir nokkru eftir hádegi. Þrátt fyrir frekar óhagstætt veður skemmti fóllc sér Iiið bezta, bæði um borð og eins í landi þar sem vélsmiðjan Héðinn þreytti knattspyrnukappleik við 1. fl. IBA og sigraði með þrem mörkum gegn einu. Þá var dansað i Báruhúsinu á Akranesi. Formaður sj ómannadags- ráðs á Akranesi þakkaði kom- una, en Böðvar Steinþórsson viðtökurnar, sem voru á- nægjulegar, eins og endra nær. Esja kom svo tilReykja- vikur um.kl. 11 um kvöldið. i Sjómannadagsráð vill þakka i Pálma Loftssyni forstjóra Skipaútgerðarinnar fyrir ó- keypis afnot af Esju í ferð- inni, ennfremur Ingvari Kjar- an skipstjóra og skipshöfn hans fyrir velvilja og aðstoð. Esjuferð sjómanna- dagsráðs tókst vel. Skemmtiferð sjómanna- dagsráðs með m. s. Esju til Akraness s. 1. sunnudag tókst ágætlega og varð nettóhagn- aður af henni um 20 þúsund krónur, sem renna til dvalar- Tímarit fyrir ökumenn. Félag íslenzkra bifreiðaeig- enda hefur hafið útgáfu nýs tímarits, sem nefnist Öku-Þór og er fyrsta heftið komiS út. Höfuð tilgangurinn með ritinu er sá, að því er segir í inngangsorðum, að gera þáð að traustum tengilið milli stjórnar félagsins og meðlima þess. Það á að gæta liags- muna bifreiðaeigenda, flytja þeim allskonar fróðleik uni faratæki þeirra og nýjungar á sviði bifreiða framleiðsl- unnar, stækka sjóndeildar- hring þeirra með auknumt kynnum af samtökum og félagsmálum erlendra bif- reiðaeigenda, gefa þeim góð ráð og holl og leiðbeinirigar sem síðar gætu orðið þeim og öðrum að liði 1 sambandí. við bifreið þeirra og notkun hcnnar. I þessu fyrsta hefti ermargt þarfra og góðra greina sem varðar alla ökumenn. CM Öllum íslendingum, sem komnii' eru til vits og ára, er Ijóst, a'ö okkur er hin mesta nauösyn a‘ð því, að síldveiðar nyrðra takist sem bezt í ár, og að góð síldarvertíð getur liaft hin djúptækustu áhrif á allt athaínalíf landsmanna, ekki aðeins þeirra, sem veið- arnar stunda, eða bátana eiga, heldur okkar allra í heild. * Undan farnar. síldarvertí ðir haía. brugðlzt'. hraþallega, eins og alkunna er, ’og allir vona, að vertíöin riú géfi. mikimi affi, enda liorfir vel þaö, seni af. er. Á íriikUi veltifrV að síldarleitar- nienn séu vel vakandi og gefi sjómönnuju sem gleggstar ttpp- lýsingar um, hvar síldar veröi helzt vart. En slíkar upplýsing- ar eru að sjálfsögöu ætlaðar ís- lenzkum sjómönnum. Því að á þessu sviði. er „enginn annars bróðir í leik“. Nú hefir veriö frá því skýrt í dagblöðunum, a§ nokkur brögö séu að því, að ekki sé notað dulmál það, sem síldarútvegsnefnd hefir til þess aö nota við slíka upplýsinga- þjónustu, og geti keppinautar okkar því notfært sér þær upp- lýsingar. Þetta nær auðvitað engri átt, eins og allir sjá. Auðvelt ætti þó að vera að ráða bót á þessu. En það hefir sagt mér kunnugur maður og málsmetandi, að það sé engan veginn einhlítt að nota þetta dulmál, því að formenn á síldveiðibátunum tali síðan saman í talstöðvum sínum og nefni þá staði réttm nafni þar sem síldar er von.. Liggur í augum uppi, að út~ lendingar geta hagnast á. slíkum viðræðum á miðunum. Nú dettur engum í hug, að ís- lenzkir bátaformenn geri þaS að gamni sínu að vísa erlendum. keppinautttm sínum á miðin,. heldur er þetta vafalaust gert af gáleysi eða greiðasemi viö> félaga sína. En þetta getur verið okkur dýrt. Sé þetta rétt, a« slíkar viðræður eigi sér stað- ínilli bátanna á miöunum, sem geta komiS öSrurn aS gagut, cn til er ætlast, ættu hlutaSeigancli yfirvöld í þessum uiáluni að- brýria þaS mjög stranglega fyr- ir fonnönnum bátanna, aS nota talstöðina af fyllstu varriS og - • _ f i. . ..11 HH.C

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.