Vísir - 05.01.1952, Blaðsíða 2
$
VÍS I K
,.Laúgardaginn 5. janúar 1952
Hitt og
ítjk.
Francois Rosay, hin franska
íistakona nýtur mikiliar hylli í
föðurlandi sínu og er aikunn
fyrir hjartagæzku. Dag nokk-
urn kom ókunnur maður og
heimsótti hana í búningsher-
hef’gi hennar.
Maðurinn lýsti fyrir henni
xniklum vandræðum fjölskyldu
sem liði neyð. „Þetta er mjög
sorglegt“, sagði hann. „Maður-
inn var fangi í styrjöldinni og
hefir enga vinnu. Konan er
sjúk. Börnin eru fimm og það
elzta aðeins sjö ára. Aumingja
fólkið getur ekki borgað húsa-
léigu og ef það greiðir hana
«kki á morgun, liggur ekki
annað fýrir en það verði rekið
át á götuna."
Francoise komst mjög við 'a£
þessari lýsingu og sagði:
„Þetta er hörmulegt að heyra,
reglulega sorglegt. Ög eg er
yður innilega þakklát fyrir að
þér leituðuð til mín. Það er
auðsætt að þér þekkið þetta
:fólk vel, Eruð þér ef til vill ná-
granni þess?“
,,Nei,“ sagði maðurinn. „Eg
<er húseigandinn“.
Við stóðum tveir og töluðum
saman og liöfðum báðir verið
íbúar í bænum árum saman.
Þá renndi bifreið að okkur og
ökumaðurinn spurði, hvort við
gætum sagt sér hvar væri bezt-
an. mat að fá þarna í bænum.
„Eg get það,“ sagði félagi
minn, „en mér er bölvanlega
vúð að gera það. Því að þegar
þér eruð búinn að borða þar,
þá álítið þér, að aldrei hafið
þér fyrirhitt annan eins lygara
og mig.“
Samuel Garth var frægur
brezkur læknir, en ekki vakti
hann á sér athygli sem náms-
maður. Þegar hann átti að ganga
undir lokapróf í læltnisfræði
sat hann uppi alla nóttina og
Jas og las.
Morguninn eftir var hann
alltaf að hugsa um svör þau
sem hann ætti að hafa á reið-
um höndum og þegar hann
gekk fram fyrir „sensor“ana
•var hann spurður: „Hvað heit-
ið þér?“
Hann svaraði örugglega:
„Einn dropa“.
Cinu lóihhi ðar....
Um þetta leyti fyrir 30 árum
mátti m. a. lesa eftirfarandi í
bæjarfréttum Vísis:
Svalan
kom í nótt frá Bretlandi eftir
langa og harða útivist, svo að
menn voru farnir að óttast um
h,ana hér. Hún var hlaðin kol-
um t'il LandVerzlunar.
Þ j óðmin j asaf ninu
hafa nýskeð borizt þessir
dýrgripir úr búi Þorvalds sál-
;uga Thoroddsen: Gullúr, sem
brezka landfræðifélagið gaf Þ.
Th., ein silfurmedalía og fimm
g.ull-medalíur, sumar mjog
stórar ’ og : þýkkar. Ennfremur
gullhringur með steini og áletr-
u.ðu ártali 1636, Hring þenna
bar prófessor Þorvaldur lengi.
Aðrir munir úr búi hans, s.em
.safninu voru ánafnaðir, koma
í vor, og verða þeir„sem komn-
ir eru, ekki sýndir fyrr en allir
gripirnir eru komnir hingað.
Laugardagur,
5. janúar, — 5. dagur ársins.
Sjávarföll.
Árdegisflóð var kl. 3.05. —
Síðdegisflóð verður kl. 15.35.
Ljósatími
bifreiða og annarra ökutækja
er kl. 15.00—10.00.
Næturvörður
er í lyfjabúðinni Iðunnií sími
7911.
Kvöldvörður L.R. (kl. 18—0,30)
er Jón Eiríksson.
Slysavarðstofan
hefir síma 5030.
Ungbarnavérnd Líknar,
Templarasundi 3, er opin
þriðjud. kl. 3,15—4 og fimmtud.
kl. 1.30—2.30.
Útvarpið x kvöld:
18.00 Útvarpssaga barnanna:
„Hjalti kemur heim“ (Stefán
Jónsson rith.). — X. 19.25 Tón-
leikar: Samsöngur (plötur). —
20.20 Leikrit Þjóðleikhússins:
„Lénharður fógeti“ eftir Einar
H. Kvaran. Leikstjóri: Ævar
Kvaran. — 22.10 Fréttir og
veðurfregnir. 22.15 Danslög
(plötur) til kl. 24.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip: Hekla var væntan-
leg til Rvk. í nótt eða á morg-
un. Esja er í Álaborg. Herðu-
breið fór frá Rvk. í gærkvöldi
til Breiðafjarðarhafna. Skjald-
breið er í Rvk. Þyrill er á Sauð-
árkróki. Ármann fór frá Rvk.
í gærkvöldi til Vestm.eyja.
Þorsteinn Einarsson,
Rauðarárstíg 30, hefir fengið
leyfi byggingarnefndar til þess
að standa fyrir byggingum í
Reykjavík sem múrari.
Bæjarr-áð
hefir samþykkt að veita þeim
Jóni Ág. Guðbjörnssyni, Skúla-
götu 52 og Herði Davíðssyni,
Miðstræti 5, löggildingu til
starfa við lágspnnuveitur.
KwAAtyéta HK ISIS
Lárétt: 1 fisk, 3 tónn, 5 byrja,
6 himintungl, 7 úrkoma, 8 sigti,
9 fæði, 10 gera prestar, 12 fornt
karlmannsnafn, 13 reyki, 14
guði, 15 samhljóðar, 16 manha.
Lóðrétt: 1 dauðraríki, 2 frá,
3 illménni, 4 ávöxtui',.5 hetja í
goðafræði Grikkja, 6 leggi í
jörð, 8 biti, 9 æði, lí á hálsi, 12
kona, 14 neyzluhæf.
Lausn á krossgátu jir, 1514.
Lárétt: 1 Kór, 3 SJ, 5 bál, 6
ýta, 7 al, 8 Amor, 9 Ægi, 10
dáta, 12 sá, 13 úti, 14 Týr, 15
rá, 16 Bár.
Lóðrétt: 1 Kál, 2 ól, 3 stór, 4
jarlar, 5 Baldur, 6 Ými, 8 aga,
9 æti, 11 áta, 12 sýr, 14 tá.
Messur á morgun.
Dómkirkjan: Messað kl. 11.
Síra Óskar ,J. Þorláksson.
Hallgrímskjrkja: Messað. kl.
11. Síra Jakob Jónsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 1.30. Síra
Jakob Jónsson. Kl. 5. Síra Sig-
urjón Þ. Árnason.
Fríkirkjan: Messað kl. 2. Síra
Þorsteinn Björnsson. Barna-
guðsþjónusta- kl, 11. Síra Þor-
steinn Björnsson.
Laugarneskirkja: Barnaguðs-
þjónusta kl. 10.15. Síra Garðar
Svavarsson. — Engin síðdegis-
messa.
Hjúskapur.
Á dag verða gefin saman í
hjónaband af síra Þorsteini
Björnssyni María Sigurðar-
dóttir og Konráð Ó. Kristins-
son. Heimili þeirra verður í Há-
túni 21. Þá verða gefin saman
í dag af sarna presti Helga
Margrét Onash og . Kristján
Helgason, Njálsgötu 22.
í dag verða gefin saman í
hjónaband af síra Emil Björns-
syni Sigrún Jóhannesdóttir og
Snorri Sturluson, rafvirki.
Heimili þeirra verður í Engi-
hlíð 7.
HeJgidagslæknir
á morgun, sunnudaginn 6.
janúar, er Kristján ÞorvarðS-
son, Skúlagötu 54; sími 4341.
. ; r...
Peningagjafir
til fólksins frá Mlámey.
- S. B. kr. 50, Einar Ólafsson o.
fl. 65, Sig. Halldórsson 20,
Hansa h.f. 500, Guðm. Aðal-
steinsson 25, Jóhann Pálsson
100, Sighvatur Brynjólfsson 50,
Loftur Guðmundsson 100,
Magnús 200, Ónefndur 10,
Kristmann Þorkelsson 100,
Hörður Hjararson 20, Ónefndur
100, Ónefndur 100, Iielga
Helgadóttir 20, Fjölskyldan
vliðtúni 20 50, Sig. Guðmunds-
son 50, Stefán Egilsson 200,
Úlfar Jakobsson 50, Gerða og
Dista 100, 1530 200, Ónefndur
200, J. Þ. 100, Guðlaug Sveinsd.
100, Rósa 100, Sveinbjörn 50,
Jón 200, N. N. 35, Gunnl. Lofts-
son 100, Tveir félagar 110,
Baldur Jónsson 50, Guðmunda
Kristinsd. 100, Karl Guðmunds-
son 100, N. N. 100, Guðm. Ól-
afsson 100, Austurbæjarbíó
500, Guðjón Jónsson 50, Jensa
100, J. B. 100, H. og M. verzl.
Victor 1000, N. N. 500, Ellert
Schram 50, Grímseyingar 1.230.
Samtals kr. 7.085.00. -----
■; ve$=r:ti ■ ' íí'Jjf .
100. Veðurstofan ðg starfsf. 175,
Ester, Erna og Valur Fránklín
200. Vélsmiðjan Héðinri 800.
Helgafell h.f. 250. Mjölnir h.f.
250. I. V, 5Ó. Anton Sigurðsson
100. Slippfél. og starfsf. 535.
Hamar h.f. 1000. Starfsf. hjá
Hamar h.f. 1300. Þorsteinn Jó-
hannsson 100. Bifreiðastöð
Steindórs og starfsf. 170. Leift-
ur stafrsf. 115. N. N- 100. Nafn-
laust 100, Sighvatur Einarsson
& Co. 200. Nafnlaust 50. Þor-
vaidur Jóhannsson 100. Arn-
grmíur Kristjánsson 25. Guð-
rún 100. M. G. 50. Sigríður fot.,
A. Þ. 50. Salvör Ingimundard.,
jólapakka. Unnur Gottsveinsd.
25. A. S. 200. Lilja, Mummi,
Kristján 30. Gunnar Vilhjálms-
son 50. Jónas Sólmundsson
200. Hljóðfæraverzlun föt. Ás-
geir Þorsteinsson 300. Mummi
50. U. Á. 50. Gunnvör og Lóa
100. Nafnlaust 100. A. G. 50.
Naínlaust 50. N. N. 15. Karl
.100. V. V. 100. J. J. 150. Magn-
Ús Kristjánsson 150. Guðný
Sveinsd. 50. Valdís 30. Hóla-
prent 320. J. S. T. 50. A. O. 100.
Nafnlaus 50. Þorbjörg og Inga
SO.Helg i Ólafss. 50. Margrét
Ólafsd. 100. Henny Ottósson
ÍÓÖ. Ingibjörg Ólafsd. 20. Erla
100. S. T. H. 100. Carl D. Tuli-
nius 200. Nafnlaust 100. J. H.
50. X. X. leikföng. Guðríður,
Erla Kjartansdóttir 20. Guð-
björg Sigurðard. 25. H. S. 35.
J. H. 50. Beggy, Donny og Erla
100. Fjórir bræður 50. Magga
og Siggi 200. Lilly og Hjördís
50. Hélgi litli 100. S. Bj. 50.
Þ. G. 100. Jens Guðbjörnsss. 50.
Landsbankinn, starfsf. 495. Al-
þýðubrauðgerðin og starfsf.
290. E. G. 60. G. J. 100. G 100.
Ingibjörg 100. Magnús og Birna
100. Gunnar 100. J. Þ. 50. Ein-
ar 20. Lalla 100. Veggfóðrarar-
verzlun Viktors Helgas. 150.
Lára Tómasd. 40. Landsmiðj-
an 340. Svala Ragnheiður 50.
G. O. A. 50. Margrét Guð-
mundsd. 50. N. N. 100. N. N.
100. Magnea Þórðard. og Vero-
nika Einarsd. 100. Kristinn 100.
S. K. 50. Lára og Herluf Clau-
sen 100.
Kærar þakkir. — Nefndin.
aqa
skrlfstofy eru að fiefjast
Ferösr veröa fyrsí um sinn þrjá daga vikunnar.
•R. 946 Gefinn akstur vegna
flutnings á fatnaði kr. 42.57.
Skipt í 10 jafna hluta, 1 heill
hlutur á hvern fullorðinn og
hálfur hlutur á hvert barn:
Erlendur Erlendsson 5 hlutir
á 708.50 kr. 3.542.50. — Þor-
móður Guðlaugsson 4 hlutir á
-708.50 — kr. 2.834.00. — Vinnu-
maður 1 hluti 708.50. — Samt.
7.085.00. —
Ennfrémur J. S. (kr. 100.
Ingibjörg Sveinsd. 50 og J. Q-
1Q9- ,
ílallgrímur Finnsson,
•Véggfóðraraméistári, Bárugötu
18, er 60 í dag.
Gjafir
til Mæðrastyrksnefndar.
Guðmundur Björnsson 100
kr. Kári Guðmundss. 50. Elín
Bergljót Björgvinsd. 300. S. K.
Skíðaferðir hjá skíðafélög-
unum og Ferðaskrifstofnnni eru
nú í þann veginn að hefjast á
skipulagsbundinn hátt.
Eins og getið hefir verið í til-
kynningum, hafa skíðafélögin
hafið sameiginlegar ferðir, þ. e.
Skíðafélag Reykjavíkur, Skíða-
sveit skáta og Skíðadeild Ár-
manns, Í.R., K.R. og Vals.
. Guðmundur Jónasson hefir
tekið að sér ferðirnar, en eins
og kunnugt er, hefir hann á
að skipa góðum bílakosti.
Fyrst um sinn verða ferðir
bæði á föstudagskvöldum,
laugardögum og sunnudögum.
Afgreiðslustaður í miðbænum
hefir enn ekki verið ákveðinn,
en verður væntanlega í Lækj-
argöíu við Amtmannsstíg. í
Austurbæ verður afgreiðsla í
Skátaheimilinu við. Snorra-
braut. í Vesturbæ í félagsheim-
ili K.R. Upplýsingar um ferð-
irnar verða gefnar í símum
Guðmundar Jónassonar, Skáta-
heimilisins og K. R.
Ferðirnar verða að Lögbergi,
að vegamótum eða í Jósefsdal,
að Kolviðarhóli, í Hveradali og
að Skálafelli síðar.
í næstu viku ætti afgreiðslu-
staður í Miðbænum að verða
tilbúinn með síma þar og munu
félögln tilkynna það þá.
Næsta skíðaferð Ferðaskrif-
stofu ríkisins verður á morgun.
Útlit er fyrir að ekki Verði fært
lengra en að Lögbergi. Verður
því ekki lagt af stað frá skrif-
stofunni, fyrr en kl. 10.
Bílar verða í hinum einstöku
bæjarhverfum. Kl. 9.30 við
Sunnutorg, kl. 9.30 á vegamóí-
um Lönguhlíðar og Miklubraut-
ar, kl. 9.40 á vegamótum Laug-
arness- og Sundlaugavegar, kl.
9.40 við Hlemmtorg (litlu bíla-
stöðina), kl. 9.30 á vegamótum
Kaplaskjóla og Nesvegar, kl.
9.40 á vegamótum Hofsvalla-
götu og Hringbrautar.
Allir þessir aðilar leggja á
það áherzlu að skíðafölk búi sig
vel og athugi vel, að skíði, staf-
ir og bindingar séu í góðu lagi
áður en farið er, og helzt að
hafa þenna ‘útbúnað merktan.
Meðan dagur er stuttur og
allra veðra er von, eru ungling-
ar áminntir um að fara ekki af
alfaraleið, og halda sig í ná-
munda við fullorðið fólk.
Madrid (UP). — Eftir fá-
eina mánuði liefja Spánverj-
nr framleiðslu á nýrri gerð
bíla.
Heitir liinn nýi bíll Pegaso
og vei’ður sportbíll með svo
‘sterkum hreyfli að fáir munu
VerSa fljótari i ferðum.
' Þá munu Fiatverksmiðj-
tirnar á Italiu opna samsetn-
ingarsmiðju í Barcelona á
tiæstu mánuðum.
Hjaríans fíakkir fyrir samáð okkur sýnda
I við'fráfalS og útför komi minBar,
I-S V. ;■■■ ;-/•
Maritasar ©lafsiIwítiBB*.
Fyrir mína könd, baraa miima, tengdabarna
og annarra aðstandenda.
Helgi Guðmundsson.