Vísir - 07.01.1952, Side 2
2
V í S I R
Mánudaginn 7. janúar 1952
Hitft og þeftfta
Judy Holliday hljóp.illa á sig
í veizlu í Hollyw.ood. Hún
sneri sér að sessunaut sínum
við borðið og spurði: „Hvaða
skrípi er þetta. sem sitnr þarna
apdspænis okkur til hægri?“
„Það er nú hann bróðir
minn,“ svaraði sessunauturinn.
Judy skipti litum, en glopr-
aði svo út úr sér: „Klaufi gat
«g verið að sjá þetta ekki
strax!“
Einn af stórlöxunum í kvik-
myndaiðnaðinum var á
skemmtigöngu á götunum í
Hollywood og mætti þar yngis-
snót, sem var sannarlegt augna-
yndi. Hann tók hana þegar tali
og reyndi að viðra sig upp við
hana eftir bezta megni. „Nei,
.góðan daginn, ungfrú! Það má
nú segja að lánið leikur við mig
í dag, að eg skuli hitta yður
hér. Það vill nefail. svo vel til,
að eg ætla að halda dýrindis-
veizlu í kvöld. Og þér megið til
að koma.“ — „Hvar á veizlan
að verða?“ spurði stúlkan. —
„Hún á nú að verða heima hjá
mér. Og þar verður nú mikið
xim að vera. Þar verður sym-
fónía og resalertium — sungið
■og dansað, vín verður þar á
hoðstólúm og enginn veit hve-
nær gleðskapnum lýkur.“ —
„Hverjir verða þar?“ sagði
stúlkan og var nú orðin fíkin
i að heyra meira. •—• Þá svaraði
Mnn væntanlegi gestgjafi:
-,Þar verða nú bara þér og eg,“
•dúfan mín.“
Jón sofnaði við stýrið og vissi
«kki fyrri til en hann hafði ek-
iS í gegnum veginn á litlu
húsi, sem stóð við veginn og
var bifreiðin hálf inni í dag-
síofunni. Hann skreið út úr
bifreiðinni sár-skömmustuleg-
ur og muldraði: „Getið þér vís-
að mér á veginn til borgarinn-
ar?“
Húsfrcyjan, sem setið hafði
í stofunni, virti hann fyrir sér
kuldalega og sagði: „Já, akið
þér bara áfram, beint í gegnum
skápinn þarna og víkið svo til
vinstri hjá slaghörpunni.“
Cim Aimi tiat.
Hinn 7. janúar 1922 mátti
m. a. lesa eftirfarandi í bæjar-
fréttum Vísis:
Eldur kviknaði
- í húsi við Njálsgötu, neðar-
lega, í gærkveldi. Brunaliðinu
tókst að slökkva. Fjöldi fólks
]kom til að horfa á og var tals-
vert aðstreymi að brunastaðn-
um, þegar eldurinn hafði verið
slökktur og allar dælur komn-
ar niður á brunastöð.
Tveir ísmávar
(ungir) sáust hér við höfnina
annan nýjársdag. Mávur þessi
<Larus eburneus) sést hér ekki
oft, — heimkynni hans er norð-
ar. Þó var einn skotinn á Mýr-
■unum x haust og Náttúrugripa-
safnið á ham af tveim eða þrem.
Þéir eru á stærð við ritú, nxjall-
hvítir á búkinn, en nefið svart
•og gráir upp undir augu.
Mánudagur,
7. janúar, — 7. dagur ársins.
Sjávarfölh
Árdegisflóð var kl. 4.55. —
Síðdegisflóð verður kl. 17.20.
Ljósatími
bifreiða og annarra ökutækja
er kl. 15.20—9.50.
Ungbarnavernd Líknar,
Templarasundi 3, er opin
þriðjudaga kl. 3.15—4 og
fimmtudaga kl. 1.30—2.30.
Bólusetning gegn barnayeiki.
Pöntunum veitt móttaka
þriðjud, 8.- janúar kl. 10—12 f.
h. í síma 2781.
Kvöldvörður (kl. 18---0.30)
þann 7. janúar er Kolbeinn
Kristófersson.
Nætixrvörður (kl. 24—8)
þann 7. janúar er Axel Blöndal.
Næturvörður
er í Lyfjabúðinni Iðunni, sími
7911.
Dregið var
i ' jólagetraun íslendinga-
sagna-útgáfunnar í gær og
hlutu þessir verðlaun: 1. verðl.,
kr. 300, Jón Þorsteinsson, Bar-
ónsstíg 12, Rvk. 2. verðl. 1 eint.
af Þiðreks sögu, Óskar Jónsson,
Vík í Mýrdal. 3. verðl., 1 eint.
af Þiðreks sögu, Oddný Krist-
jánsdóttir, Snorrabr. 42, Rvk.
4. verðl., 1 eint. af Þiðreks sögu,
Dagur Tryggvason, Laugabóli,
Reykjadal, S.-Þings. 5. verðl.,
1 eint. af Þiðreks sögu, Friðrik
Hjartar, skólastj., Akranesi. —
Alls sendu 107 rétta úrlausn;
þar af úr Rvk. 48.
Gjafir til Mæðrastyrksnefndar.
N. N. kr. 25, Sigga 50, Hamp-
iðjan 300, Ólafur Þorsteinssön
100, Magnús 20, Auður Eygló
100, S. B. 20, R. S. 50, Kristín
Ólafsd. 50, Erlendur Blandon:
ný föt, Framtíðin: föt, K. G. 50,
G. Helgason & Melsted 350,
KnAAqáta hk /5/6
Lárétt: 1 svik, 3 landsbóka-
vörður, 5 eftir trésmíðar, 6
ryðst, 7 jökull, 8 drykkjateg-
und, 9 bruni, 10 borg í Síbiríu,
12 frumefni, 13 látinn, 14 sögu-
hetja í útvarpinu, 15 opinber
stofnun, 16 væl.
Lóðrétt: 1 vei’kur, 2 fanga-
niark, 3 fugl, 4 menn falla
stundum í þá, 5 vitmanns, 6
þrek, 8 slæm vinna, 9 bílastöð,
11 -mannsnafn, 12 í fjöru, 14
ráðherra.
Lausn á krossgátu nr. 1515:
Lárétt: 1 háf, 3 fa, 5 hef, 6
sól, 7 él, 8 sáld, 9 ali, 10 tóna,
12 Án, 13 ósi, 14 æsi, 15 RT, 16
íta.
Lóði’étt: 1 Hel, 2 af, 3 fól, 4
aldini, 5 Hektor, 6 sái, 8 slá, 9
ani, 11 óst, 12 Ása, 14 æt.
Chemia: vörur, N. N. 400, A. A.
100, Sesselja og Sigurveig 20,
E, 20, S. L. 15,. S, G, .50, Þór
og Leifur 5Q, Lögreglustöðin
230, Almenna Byggingarfél.
100, Gull & silfursmiðjan Erna
starfsfólk 200, N. N. 10, Guðrún
Sæmundsd. 100, Frá þrern
bræðrpm 100, Chic yerzlunin
300, Nærfatagerðin 300, M. J.
50, N. N. 50, Verzl. Byynja 500,
Svava Þórhallsd. 75, Verzl.
Gullfoss: föt, Starfsfólk hjá L.
í. B. 300, Dagblaðið Vísir starfs-
fólk, 70, Þuríður Lange 100,
Ryden: kaffi, S. T. 100, Þ. 100,
Margrét og Brynjólfur 100, H.
H. 50, G. J. 25, Sigurbjörg 100,
Jóhann Rönning & starfsfólk
190, Rósa Stefánsson 50, Sig-
ríður Sighvatsdóttir 100, D. 20,
Ólafur Orrason 100, Ingibjörg,
Ágúst, Guðmundur 50, Lúðvílc
Þorsteinsson 125, Ingólfs Apó-
tek og starfsfólk 146, N. N. 10,
Kexverksmiðjan Esja: ' kex,
Valgerður Sveinsd. Suðurgötu
15 500, Guðm. Guðmundsson &
Co. 250, N. N. 50, Skóbúð
Reykjavíkur: skófatnaður, Ásta
Hannesd. 30, Þói’dís 50, Ólafur
Magnússon 50, Erla og Ingólfur
50, Snjófríður Benediktsd. 50,
Helgi Magnússon 30, Á. Einars-
son & Funk 250, Á. Á. 50, N. N.
50, Ásta og Jón 100, N. N. 115,
S. Þ. 100, N. N. 100, Til minn-
ingar um Snót Bj.örnsdóttur
25, Fossberg G. J. 500, S. A. 50,
S. B. 50, Iialldór og Alda 50,
Eggert Kristjánsson & Co. og
starfsfólk 390, R. Þ. 100, Stál-
smiðjan h.f. 700, Járnsteypan
h.f. 300, starfsmenn stálsmiðj-
unnar 840, starfsmenn Járn-
steypan 390, Inó, Gurra, Bjössi
300, G. H. 40, G. S. föt, N. N.
100, N. N. 60, Nafnlaust 50,
íngibjörg og Þorvaldur Hafnr
arfirði 100, Guðrún Jónsd. 50,
Guðrún Ólafsd. 50, G. K. 200,
gömul kona 50, María og Elías
Hólm 100, N. N. 25. — Kærar
þakkir. — Nefndin.
Bíll fýkur á
Akureyri.
He«« sSmsmsÉ jþae
mggB'Sra.
Talsyerðar skemmdir urðu á
Akureyri í ofviðrinu á laugar-
dag, en nokkrir menn meiddust.
Símasambandslaust var við
Akureyri í morgun, en áður
var vitað, að víða hafði báru-
járnsplötur tekið af húsum, en
fólk íokið á gaddavírsgirðingar
og slasazt. Ein kona handleggs-
brotnaði. í Grafarholti, skammt
frá Akureyri, fauk skúr, en
maður, sem í honum var,
meiddist,
Þá fauk stór yfirbyggð bifi’eið
á mótum Eyrarlands- og Spít-
alavegar. Þrír menn voru í
henni, Bragi Eiríksson, verk-
smiðjustjóri á Dagverðareyri
og synir hans tveir. Fauk bif-
reiðin yfir girðingu og rann
síðan niður brekku, stakkst á
endamx og staðnæmdist við
húsið nr. 47 við Hafnarstræti.
Feðgarnir vom fluttir í sjúkra-
hús, en drengirnir heim, en
Bragi liggur enn í sjúkrahúsi,
rneiddur á baki. Manntjón hefir
ekki orðið nyrðra, svo vitað sé.
wefgmtki bw'Kenams á
■ >:• ; >:< !'• .-"v' . i'
MJlfsstöðnem.
I sambandi við húsbrunann
á Úlfsstöðum í Hálsasveit fyrir
skemmstu hafa nokkurir menn,
kunnugir aðstæðum, beðið blað-
ið fyrir eftirfarandi:
: Svo sem kunnugt. er .af fregn-
um blaða og útvarps brann þær-
inn að Úlfsstöðum í Borgarfirði
á nýársdag til kaldra kola.
Eldinu bar svo brátt að, að
Ú¥r: i'iúsinu varð ■,engu bjargað
nema æinni sængfc Hjónin. og;
ein dóttii’ , þeirra s.lösuðus,
ýmist af bsnjuaasárum eða skár-
ust, af gleri er. þau reyndu ár-
amgurslaust að bjarga verð-
mætum úr hús.inu..
í bruna þessum tapaði fjöl-
skyldan eignum öllum, þeisn
er innanhúss voru, þ. á-m,,fatn-:
aði, sængurfatnaði, húsgög-n-
um, boröbúnaði o. frv. Bónd- :
inn á: bænu.m, Þorsíeinn .Jófls-.
son, er. landskunnut' gáfumað-
ur, hugsuður og ská.ld. J bi’un-
anum glötuðust handrit, hans
og bókaei.gn öll, sem bæði var
mikil og góð. Hér er því um ó-
venju tilfinnanlegt tjón að
ræða og fyrir því viljum vér
skora á fólk, að bregðast nú vel
við, sem svo oft áður undir
svipuðum kringumstæðum, og
láta eitthvað af hendi rakna
til hinnar nauðstöddu fjöl-
skyldu.
Skrifstofa Vísis hefir sýnt oss
þá vinsemd að veita móttöku
gjöfum sem berast kunna.
Brétar selja ekki
herskip.
Bretar hafa ákveðið að hætta
að selja öðrum þjóðum her-
skip.
Þó er búizt við, að nokkrar
undantekningar verði á þessu,
einkum til landa þeirra, sem
aðilar eru að Atlantshafs-
bandalaginu, en m. a. munu
Norðmenn. og Danir fá herskip
frá Bretum. Banninu gegn sölu
á brezkum herskipum, er eink-
um stefnt gegn Egyptum.
ítalskur drengur, 10 ára
gamall, tók fyrir skemmstu
svo miklum breytingum á kyn-
ferði sínu, að læknar hafa nú
lýst hann stúlku.
Gerðist þetta í borginni
Lucca, en nú verður „stúlkarx"
send til Rómar, þar sem nánari
.rannsókn á þessu fyrirbæri á
að fara fram.
Bæjarfiilltriíar
í áfSogum.
Nýlega urðu hressileg áflog
í bæjarstjórn Neapel á Ítalíu.
Rætt var um, hvort kalla
ætti nokkrar götur eftir ít-
ölskum konungum, en af þessu
urðu miklar ýfingar með
kommúnistum og konungssinn-
um, og vai’ð borgarstjórinn að
lokum að fá lögregluna til þess
að ryðja fundarsalinn, en síðan
héldu áflogin. áfram úti fyrir.
A u g I ý s i n
frá Skaftstofu Reykjavíkur.
1. Atvinnurekendur og stofnanir í Reykjavík og aðrir,
sem hafa haft launað starfsfólk á árinu, eru áminntir
um að skila launauppgjöfum til Skattstofunnar í síð-
asta lagi þ. 10. þ. m., ella verður dagsektum heilt. Launa-
skýrslum skal skilað í tvíriti. Komi í ljós að launaupp-
gjöf er að einhverju leyti ábótavant, s.s. óuppgefinn
liíuti af launagreiðslum, hlunnindi vantalin, nöfn eða
heimilisfang launþega skakkt tilfærð, heimilisföng
vantar, eða starfstími ótilgreindur, telst það til ófull-
nægjandi framtals, og viðurlögum beitt samkvæmt
því. Við launauppgjöf giftra kvenna skal nafn eigin-
manns tilgreint.
Sérstaklega er því beint til allra þeirra, sem fengið
hafa byggingarleyfi hjá Reykjavíkm’bæ, og því verið
sendar launaskýrslur, að standa skil á þeim til Skatt-
stofunnar, enda þótt þeir hafi ekki byggt, ella mega
þeir búast við áætluðum sköttum.
Á það skal bent, að orlofsfé telst að fullu til tekna.
Um launauppgjöf sjómanna athugist, að fæði sjómanna,
sem dvelja fjam heimilum sínmn, telst eigi til tekna.
2. Skýrslum um hlutafé og arðsútborganir hluta-
félaga ber að skila til Skattstofunnar í síðasta lagi þ.
10. þ. m.
3. Þeim, sem hafa í huga að njóta aðstoðar Skatt-
stofunnar við að útfylla framtal, skal á það bent, að
koma sem fyrst til að láta útfylla framtölin, en geyma
það ekki til loka mánaðarins, þegar ösin er orðin svo
mikil, að bið verður á afgreiðslu.
Þess er krafist af þeim, sem vilja fá aðstoð við út-
fyllingu framtalsins, að þeir liafi meðferðis öll nauðsyn-
leg gögn til þess að framtalið verði réttilega útfyllt.
Skattstjórinn í Reykjavík.