Vísir - 07.01.1952, Blaðsíða 5

Vísir - 07.01.1952, Blaðsíða 5
Mánudaginn 7. janúar 1952 V í S I R S Carlson skipstjóri var í sigling- um hér við land á stríðsárunum. * Æ hursBs maryes kumm~ intjjm hér í hm síöam. VÍSI varð kunnugt um það s.l. laugardag, að skipstjórinn á bandaríska flutningaskipinu Flying Enterprise, sem svo mjög hefir verið getið í heimsfréttunum að undanförnu, hefði verið í siglingum hingað til lands á styrjaldartímanum. Hefir tíðinda- maður frá blaðinu nú fundið fulltrúa á Hafnarskrifstofunni, stjóra á þeim árum. „Þegar eg las í blöðum hér um aldur Carlsons skipstjóra á „Flying Enterprise“, sagði Helgi Hallgrímsson, „lagðist í mig, að um sama mann væri að ræða og skipstjóra með sama nafni, er kom hingað til lands marg- sinnis á styrjaldarárunum, fyrst sem stýrimaður og síðar sem skipstjóri á flutningaskipinu Yemessee, sem var þá eitt af leiguskipum Eimskipafélagsins, og þegar eg sá mynd af skip- stjóranum á Flying Enterprise, sem birt var í blaði hér, var eg ekki í neinum vafa lengur.“ „Þér hafið vafalaust kynnst honum gegnum starf yðar á Hafnarskrifstofunni?“ „Já, en vanalega komust við starfsmennirnir á Hafnarskrif- stofunni ekki í náin, persónuleg kynni við skipverja á þeim skipum, sem hingað koma, og það var nánast tilviljun, að eg kynntist mæta vel Kurt Carlson skipstjóra, Mortensen 1. vél- stjóra og fleiri skipverjum á Yemassee. Þetta var 5000 lesta skip, finnskt, og var þar valinn maður í hverju rúmi. Hlekktist skipinu aldrei á í hinum áhættu sömu ferðum hingað á styrjald- að máli Helga Hallgrímsson, sem kynntist Carlson skip- arárunum. Eitt sinn er Yemasse var í lest undan Reykjanesi lögðu skipverjar sig í mikla hættu við að bjarga mönnum af skipi, sem var skot- ið í kaf. Heyrði eg aldrei æðruorð til þeirra, en man vel, er fundum bar síðast saman og mestu hætturnar hjá garði, að þeir voru þakklátir fyrir hve farsællega allt hafði gengið fyr- ir þeim, og glaðir yfir, að nú var þetta að baki. Síðar hefi eg haft fregnir af sumum þessara manna. Mortensen vélstjóri, sem eg nefndi, er til dæmis nú vélstjóri á 20.000 lesta olíu- skipi, sem er í förum til Suður- Ameríku." „Viljið þér segja lesendum Vísis eitthvað nánara frá kynn- um yðar við Kurt Carlson?“ „Það skal eg gera með á- nægju. Það vakti í fyrstu at- hygli mína hve þessi ungi og vasklegi sjómaður hafði fljótt unnið sig upp í skipstjórastöðu, en þá var hann um. þrítugt. Hann kom mér fyrir sjónir sem maður hæglátur, öruggur og yfirlætislaus, og fráhverfur því að láta bera á sér. Kemur mér ekki annað í hug en að það hafi verið skyldurækni hans, stefnufesta og sannfæring, byggð á þekkingu hans á skip- inu, sem hefir ráðið þeirri af- stöðu hans, að halda kyrru fyr- ir á skipsfjöl, þar sem því yrði komið í höfn ef auðna réði. — Carlson var mjög tíðrætt um nútíma radio-tækni, sem hann hafði mikinn áhuga fyrir, og hefir þessi áhugi hans og þekk- ing hans og reynsla sem áhuga- manns'í þessum efnum nú kom- ið honum að góðum notum. Carlson kom eitt sinn á að- fangadagskvöld ásamt fleiri skipverjum á Yemassee á heim- ili mitt og gaf hann mér þá þessar myndir.“ Sýndi hr. Helgi Hallgríms- son tíðindamanninum nú 3 myndir og var ein þeirra af Carlson skipstjóra, tekin af hon um í skipstjóralráetu hans, er Yemassee lá hér í höfninni. — Bauð Helgi Vísi myndirnar til birtingar og var það að sjálf- sögðu vel þegið og birtir blaðið nú myndina af Carlson, þar sem hann situr í káetu sinni. „Vegna kunningsskapar míns við Kurt Carlson,“ sagði Helgi Hallgrímsson að lokum, „og með tilliti til þess hve farsæl- lega tókst til með ferðir þessa skips, sem hann var stýrimaður og síðar skipstjóri á í mörgum hættuferðum hingað til lands og með það í huga, að honum bærist kveðja frá starfsmanni við höfnina og frá íslandi, hefi eg sent honum skeyti og óskað honum hjartanlega til hamingju með afrek hans og ósltað hon- um allra heilla.“ a. Hér sést Kurt Carlson skipstjóri í káetu sinni á Yemassee. Myndin er tekin í Reykjavíkurhöfn. Aukin aðsókn að Sundhöllinni. Aðsókn að SundhöII Reykja- víkur var betri árið sem leið en urn nokkurt undangengin ár. Venjuleg árleg aðsókn ac¥ Sundhöllinni hefir verið sem næst 200 þús. manns, en heild- artala Sundhallargesta á s.l. áril nam 220279 manns. Aðsóknin skiptist sem hér segir: Karlar 69047, konur 28444, drengir 47800, stúlkur 42079, íþróttafélagar 5350 og skólanemendur 27559. Talið er að það sé fyrst og fremst Norrænu sundkeppninni. að þakka að aðsókn varð þetta. miklu meiri s.l. ár en að und- anförnu. En auk þess telur Sundhallarforstjórinn, Þorgeir Sveinbjarnarson, að aukinnar aðsóknar hafi gætt þó nokkuð- fram yfir það að Norrænií. sundkeppninni lauk. Einkunx. hafi þess gætt í aukinni að- sókn kvenna. 400,000 verka- menn óskast! London. (U.P.). — Rreta. skortir nú um 400.000 verka- menn til allskonar starfa heima fyrir. Það er hinn aukni vígbúnað- ur, sem því veldur, að hörgull. er á vinnuafli. Til dæmis þurfa. flugvéla- og hergagnaverk- smiðjur hins opinbera á. 175.000 mönnum að halda. Verður sennilega að draga eitt- hvað úr framleiðslu neyzlu- varnings á næstunni til þess að: beina verkamönnum til nauð- synlegri starfa. Mtappdrœtti MMdskóta íslands Númerum og vinningum hefur verið fjölgað, og eru nú 30.000 hlntir — 10.000 viniftiiigar 70% af andvirði hlutamiðanna eru greidd í vinninga á árinu, alls 5.020.000 krónur Þriðja hvert númer hlýtur vinning á hverju' ári — Happdrættið hefur á 18 árum greitt í vinninga 29 mílljónir króna Verð miðanna er óbreytt: 1/1: 20 kr. Vz • 10 kr. *4: 5 kr. á rnánuði. llmboðsiuénn í IIe vk jj a\ í k: Arndís Þorvaldsdóttir kaupkona, Vesturgötu 10. Sími 6360. Bókaverzlun Guðm. Gamalíelssonai', Læk jarg. 6B. Sími 3263. Bækur & ritföng, Laugaveg 39 (Kiistján Jónsson). Sími 2946. Bækur & ritföhg, Austurstræti 1. Sími 1336. (Áður í Austui-stræti 14, Carl D. Tulinius & Co.). EIís Jónsecn kaupmaðui', Kirkjuteigi 5. Sími 4970. Hélgi Sfvertsen, Austurstræti 12. Sími 3582. Maren Pétursdóttir, frú, (VerzL Happó), Laugavegi 66. Simi 4010. Pálína Ármann, frú, Varðarhúsinu, Sími 3244. N Y UMBOÐ: = Hildur Jónsdóttir, frú, hannyrðakennari, Efstasundi 41. Sími 80122. Z Sigurjón Danívalsson, Borgarholtsbr. 21E, KópavogshreppL Sími 5008. S í Hafuarlíirði: Valdimar Long kaumaður, Strandgötu 39. Sími 9288. Verzlun Þorvalds Bjarnasonar, Strandgötu 41. Sími 9310. Viðskiptameiiii ha£a forgangsrétt ad ínimeriim sínum til 10. jan. : DREGID VERÐUR 15. JANÚAR Vinningar ent skattfrjálsir (tekjuskattur og tekjuútsvar). Nú geta menn keypt heilmiða og hálfmiða, en eftirspurnitn er ntikil.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.