Vísir - 08.01.1952, Blaðsíða 1

Vísir - 08.01.1952, Blaðsíða 1
Þriðjudaginn 8. janúar 1952 42. árg. Eisenhower hershötðingi er nú laiinn iikiegur ssm t'orsetaeim repuDnnana við kosningarnar í haust. Myndir þessar eru teknar í Róm, er Norður-Atlantshafsráðið hélt fund þar nýverið. — Tvö laus jf® 1 o 1 © fiskiskip dregin — stýris- hafnar. Annað er enskf, hiff þýzkf. Tvö erlend fiskiskip urðu fyr- ir áfalli fyrir sunnan land í of- viðrinu, tók stýrið af báðum þeirra, en verið er að draga þau til lands. Brezki línuveiðarinn Hetty, sem staddur var um 60 sjómíl- ur suður af Grindavík, sendi í gær frá sér neyðarmerki, þar eð stýri hans hafði brotnað. — Loftskeytastöðin hér heyrði neyðarkallið, og togarinn Marz, sem var á útleið, mun hafa far- ið á vettvang til aðstoðar skip- inu. Veður var þá afar vont og gat togarinn ekkert aðhafzt eins og var, en varðskipið Þór kom síðar til skipsins, og er nú með það í eftirdragi áleiðis til Reykjavíkur. í nótt barst loftskeytastöðinni annað neyðarkall, að þessu sinni frá þýzka togaranum Buxta, kallmerki DESC, en skip ið hafði misst. stýrið um 45 sjó- mílur suðvestur af Vestmanna- eyjum. Loftskeytastöðin var í sambandi við togarann Fylki, sem var á leið hingað frá Bret- landi. Um kl. 6 í morgun var Fylkir kominn að hinu nauð- stadda skipi. Tókst að ltoma dráttartaug í það, og er Fylkir nú á leið hingað með togarann. Ennþá var haugasjór á þess- um slóðum, en veður fór batn- andi. TurmoiB 80 m. frá Faimoufh. Turmoil og Flying Entcrprisc voru í morgun 80 mílur frá Fal- mouth. Ef allt gengur að óskum, er búist við, að skipin verði kom- in inn á Falmouthflóa í fyrra- málið. Stöðugt er siglt með þriggja mílna hraða. —- Fjórir dráttarbátar slógust í fylgd með skipunum í nótt. Líkur eru fyrir, að hvessi á þeim slóðum, þar sem skipin eru nú, ög áð ájógan'gur'auKist. Eldur í lang- ferðabíl. Nokkru eftir hádegi í fyrrad. brunnu allar rafleiðslur í vél áætlunarbíls, sem var á leið hingað frá Selfossi. Var bifreiðin stödd milli Sel- vogs og Krýsuvíkur, þegar eld- ur kviknaði í poka, sem öku- maðurinn hafði lagt yfir vélina, til að verja hana blota af fjúki. Aðstoðuðu farþegar við að slökkva eldinn, en hreyfillinn var ónothæfur á eftir og urðu menn að bíða í 5 klst., áður en unnt var að halda ferðinni á- fram í annarri bifreið, er bar þarna að. Talsamham! komið á f IB Akur- eyrar. Talsamband komst á laust fyrir hádegið í dag til Sauðár- króks og Akureyrar. í morgun var unnið að við- gerð á símabilunum í Ljósa- vatnsskarði. Var búist við að þeim yrði lokið um hádegis- leytið í dag og kemst þá á tal- samband áfram austur úr. í gær brotnaði símastaur í Hrútafirði og olli það truflun- um á símasambandi. Er það nú í viðgerð. Ennfremur er unnið að við- gerð á símalínum sem slitnað höfðu á Rangárvöllum og und- ir'Eýjaf jöllum. JFi'fB&iiianeS : Pleven farinn. Teltnr tle fiíaiBÍIe i iiii við? Pleven forsætisráðherra Frakklands baðst lausnar í gær fyrir sig og ráðuneyti sitt. Fylgismenn de Gaulles, jafn- aðarmenn og kommúnistar greiddu atkvæði gegn stjórn- inni, er til atkvæða komu til- lögur í sambandi við fjárlaga- frumvarpið. Líklegt er, að myndun nýrr- ar stjórnar reynist erfið. Hún virðist vart gerleg nema mið- flokkarnir geri samkomulag við jafnaðarmenn, eða sveigi til hægri til samkomulags við de Gaulle, en fylgismenn hans vilja að hann hafi stjórnarfor- ystu. Hins vegar hefir ekkert komið fram, sem bendir til að nokkur hinna flokkanna vilji taka þátt í stjórn undir forýstu hans. &EWM Kommúnistar hamast nú eins og óðir væru gegn því, að hér verði reist áburðarverksmiðja sú, sem verið hefir á döfinni um. all-Iangt skeið, og víst er, að verður landbúnað- inum til mikilla liagsbóta. Hafa þeir skyndilega tekið mikið viðbragð, þegar það hefir frétzt, að sprengihætta fylgir framleiðslunni, og vilja nú helzt enga verksmiðju. Er fróðlegt að rifja upp í þessu sambandi, að kommún- istar hömuðust álíka mikið á Alþingi á sínum tíma, þegar frumvarpið um verksmiðjuna var til umræðu þar, en þá var krafan sú, AÐ VERKSMIÐJAN YRÐI HELMINGI STÆRRI, OG VORU ÞEIR SVÍVIRTIR Á ALLAN HÁTT, SEM FYLGDU EKKI ÞEIRRI TILLÖGU KOMMÚNISTA. AFSTAÐA KOMMÚNISTA TIL MÁLSINS ÞÁ, VAR ÞAR AF LEIÐANDI SÚ, AÐ ÞEIR VILDU AUKA SPRENGIHÆTTUNA UM HELMING, EN VITANLEGA FORÐAST ÞEIR AÐ MINNAST Á ÞAÐ NÚ. í morgun segir Þjóðviljinn meðal annars um þetta mál, að „ráðamenn hernámsliðsins hafa sýnt óvæntan áhuga á áburðarverksmiðjunni." Verður mönnum þá ósjálfrátt á að velta því fyrir sér, hverra erinda kommúnistar hafi rekið á Alþingi, þegar þeir vildu hafa verksmiðjuna helmingi stærri, þar sem það var ákveðið í framvarpinu, sem þeim fannst ganga alltof skammt, að hún skyldi framleiða ammoniumnitrat. -,KwtáiiítsitBhití entiai: Fullur straumur frá Sogi aftur. En Hafnarfjöröur og Suðw- nes enn rafmagnsiaus. .Stg stiffti: Flugumaður- fitn. Á morgun hefst hér í blaðinu ný framhaldssaga, Flugumaðurinnn, eftir ensk- an höfund, Stanley Weyman, sem látinn er fyrir nokkru. Gerist saga þessi á dögum Richelieus kardínála í Frakklandi, og segir frá manni, er hann gerir út til að handsama hættulegan f jandmann sinn. En ástin er einnig að verki í sögu þess- ari — svo sem vera ber — og er víst, að margir munu hafa gaman ef lestri hennar. Fylgist með frá byrjun. Gerist nýir kaupendur, ef þér eruð það ekki þegar. Vísir er ódýrasta dagblað í Reykjavík. Sími 1666. Telja má, að vandræðaástand- j inu í rafmagnsmálum bæjarins, vegna bilananna, sé nú lokið að Vísir átti tal við Ágúst Guð- mundsson, stöðvarstjóra í Ell- iðaárstöðinni í morgun, og tjáði hann blaðinu, að nú væri fullur straumur áSogslínunni til bæjarins.Kom í ljós,eins og Vís- ir hafði skýrt frá í gær, að lín- an var ekki slitin, heldur hafði verið um samslátt að ræða. Er línan nú í lagi, en menn höfðu' verið sendir með henni í gær til þess að gá að skemmdum á henni. Hins vegar er Hafnarfjarðar- línan enn biluð, og Hafnarfjörð ur og Suðurnes því rafmagns- laus ennþá. Þó standa góðar vonir til, að þangað fáist straum ur í dag. Vitað er, að allmargir einangrarar eru bilaðir á lín- unni, og fleiri en búizt var við. Er unnið að viðgerð á þeim nú. Þá er enn straumlaust til Vífilsstaða og notast hælið við varastöð sína. Straumur er þó á nokkrum hluta Vífilsstaðalín- unnar, svo sem á hverfinu í Blesugróf. Þá er kominn straum ur á Reykjalínuna, og þar með straumur í Gufunes. , Ekki verður gripið til neinn- ar óvenjulegrar skömmtunar í Reykjavík í dag, nema eitthvað sérstakt komi til, og vonandi eru rafmagnsvandræðin á enda hér að sinni, og „kertatímabil- ið“ liðið hjá. Norðvestlæg átt á næstunni. Vestan- og norSvestanáttin. helzt enn um land allt og er búist við að hún verði hér ríkj- andi næsta sólarhringinn. í morgun var hvassast í Vest- mannaeyjum, eða 8 vindstig, en 6 vindstig í Reykjavík. Frost var um allt land, 4—12 stiga, hér í Reykjavík var 5 stiga frost. M*nn m unjnn : Nýjar tillögur um fangaskipti. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna í Panmunjom hafa lagt fram endurskoðaðar tillögur um fangaskipti. Sagt er frá bárdögum í grennd við Panmunjom I seinustu fregnum og að hérskip hafi haldið uppi skothríð á stöðvar kommúnista á austurströnd- ínni í 9 klst. samfleytt

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.