Vísir - 08.01.1952, Blaðsíða 2

Vísir - 08.01.1952, Blaðsíða 2
2 Hitt og þetta Dwight Morrow vildi ekki kannast við það fyrir vinum sínum að hann væri utan við sig — hann sagðist aðeins vera dálítið annars hugar. Þá kom það fyrir einn daginn er hann var á hraðri ferð eftir götu, að vinur hans einn ávarpaði hann og bauð honum til hádegis- verðar með sér — og hann þáði það. Stakk Morrow svo upp á því að þeir mötuðust á greiða- sölustað rétt hjá, því að þar þætti honum gott að koma. Þegar þeir voru að ákveða hvað snæða skyldi sagði Morrow: „Eg vil bara fá eitthvað létt. Eg er ekki vitund svangur.“ „Fyrirgefið,“ sagði þjónninn. „Þér voruð rétt að ljúka máltíð hérna, fyrir fáum mínútum.“ Á Grikklandi, í fornöld, létu konur klippa hár sitt til merkis um að þær væri syrgjendur. — En Rómverjar létu sér vaxa skegg, er svo stóð á. Það var sakleysisleg og stór- eygð yngismær, sem stóð í vitnastúkunni og talaði máli sínu. Hún sagði, að það væri alrangt að saka sig um að aka of hratt, hún hefði ekki ekið fram mót rauðu Ijósi og hún hefði ökuleyfi. Dómarinn var gamall og föð- urlegur og hugsaði sér að vera vægur. „Jæja, barnið gott,“ sagði hann. „Eg er fús á að trúa yð- ur, en eg verð að vita vissu mína. Vitið þér hvernig fer fyrir þeim sem ljúga fyrir rétti?“ „Já, herra. Lögfræðingurinn minn sagði mér það.“ „Og hVað sagði hann að fyrir kæmi ef framburður yðar væri rangur?“ „Hann sagði að þá gætum við unnið málið.“ Messalína, kona Klaudiusar keisara, setti upp gula hárkollu til þess að dulbúa sig þegar hún fór út í ævintýraleit. Síðar varð hárkollan einkenni vændis- konunnar og lauslátar konur svo og J>ær, sem vafasamar voru að siðferði, hafa síðan verið kenndar við Messalínu. CiHU AÍHHÍ i)aK... Meða'l bæjarfrétta Vísis um þetta leyti fyrir 30 árum voru þessar: Súkkulaðigcrðin Freyja hefir ekki fengið leyfi til að flytja inn efni til súkkulaði- gerðar og er það að því leyti ó- sanngjarnt, að allmikið út- lent suðusúkkulaði hefir verið flutt inn allt til skamms ííma. Ekki miðar það til þess, að „efla innlendan iðnað“. 27 þúsund króna verður á þessu ári varið til skálda og listamanna. Umsókn- ir eiga að sendast dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fyrir 20. þ. m. Snjór er talsverður á götunum og sáralítil bifreiða-umferð. V I S I R Þriðjudaginn 8. janúar 1952 Þriðjudagur, 8. janúar, — 8. dagur ársins. Sjávarföll. Árdegisflóð var kl. 5.45. — Síðdegisflóð verður kl. 18.10. Ljósatími bifreiða og annarra ökutækja er kl. 15.20—9.50. Ungbarnavernd Líknar, Templarasundi 3, er opin þriðjud. kl. 3.15—4 og fimmtud. kl. 1.30—2.30. Kveldvörður L. R. (Kl. 18—0.30) er Kristbjörn Trýggvason. Næturvörður L. R. (Kl. 24—8) er Bergþór Smári. Næturvörður er í Lyfjabúðini Iðunni; r.ími 7911. Víðförli, tímarit um guðfræði og kirkjumál. Próf. Sigurbjörn Einarsson, sem er ritstjóri tíma ritsins, ritar áramótahugleið- inu, og á þarna auk þess grein arnar Nútímaviðhorf í guð fræði, Skólarnir og þjóðin. Vottar Jehóva. Auk hans ritar í blaðið Helgi Tryggvason, Þórir Baldvinsson, próf. Magn- ús Már Lárusson og Sigurður Magnússon. Ritið er allt hið læsilegasta. Útvarpið í kvöld: 20.30 Erindi: Utanríkisverzl- un fslendinga á þjóðveldisöld- inni; I. (Jón Jóhannesson próf- essor). 21.00 Tónleikar plötur). 21.25 Upplestur: „Sagan af Napóleon“ (Jón Norðfjörð leik.). 21.45 Frá útlöndum (Jón Magnússon fréttastj.) — 22.10 Kammertónleikar (plötur). Hvar eru skipin? Hekla kemur væntanlega í dag frá Vestfjörðum. Esja er í Álaborg. Herðubreið er á Breiðafirði. Skjaldbreið er í Rvk. Þyrill er væntanlega á leið frá Vestfjörðum til Rvk. Ármann er í Rvk. Skip SÍS: Hvassafell er í Stettin. Arnarfell er í Aabo í Finnlandi. Jökulfell lestar freð- fisk á Austfjörðum. Slökkviliðið var kvatt út fjórum sinnum í gær, tvisvar að sama húsi, frystihúsi S.Í.S. við innra Kirkjusand. í fyrra skiptið hafði komizt eldur í einangrun í vegg, en í síðara skiptið háfði rafmagnstaug fallið í þakrennu hússins, sem varð rauðglóandi. Þá kviknaði í -húsi við Arnar- götu í Skerjafirði, og urðu þar talsverðar skemmdir af eldi og vatni, áður en slökkviliðinu tókst að kæfa eldinn. Loks var kveikt í rusli í porti hússins nr. 98 við Sætún. Kennsla féll niður í barnaskólum bæjarins í dag, vegna þess, hve veðurútlit var slæmt í gærkveldi. Útför Finns Jónssonar alþm. fór ■ fram í Ðómkirkjunni í dag kl. 2. Þingfundir falla niður vegna hennar. Próf. Sigurbjörn Einarsson hefur Biblíulestur í kvöld fyrir almenning kl. 8 y2 í sam- komusal kristniboðsfélaganna, Laufásvegi 13. Veðurhorfur: Hvass vestan og norðvestan, él. — UnAAqáta hk ISI7 Lárétt: 1 Hlé, 3 þröng, 5 fjör, 6 örlítið, 7 skátafélag, 8 óska, 9 beita, 10 gamanleikrit, 12 tónn, 13 á bersvæði, 14 útl. ávarp, 15 á siglu, 16 flík. Lóðrétt: 1 á hurð, 2 frétta- stofa, 3 sjáí, 6 lár., 4 fyrir föt, 5 í hringleikahúsi, 6 íþrótta- maður, 8 regla, 9 sagnfræðing- ur, 11 ýta, 12 við prjón, 14 al- gengt fangamark. Lausn á krossgátu nr. 1516: Lárétt: 1 tál, 3 FS, 5 sag, 6 þýt, 7 Ok, 8 kóla, 9 bál, 10 Omsk, 12 si, 13 nár, 14 Bör, 15 SR, 16 gól. Lóðrétt: 1 tak, 2 ÁG, 3 fýl, 4 stafir, 5 Soions, 6 þol, 8 kák, 9 BSR, 11 Már, 12 söl, 14 BÓ. Sumarnámskeið British Coundl. Brezka menningarstofnunin British Council efnir til ýmissa námskeiða við háskóla og önnur menníasetur í vor og sumar. Bæklingar með upplýsingum um námskeið þessi fást hjá brezka sendiráðinu hér, en þeir, sem kynnu að óska frekari upplýsinga, ættu að skrifa til: The Director, Courses Depart- ment, British Council, 65 Davies Street, London W.l. Gunnþórunn heiðruð. Annað kvöld efnir Þjóðleik- húsið til sérstakrar afmælissýn- ingar á GuIIna hliðinu í tilefni af áttræðisafmæli Gunnþórunn- ar Halldórsdótíur ieikkonu, sem er á morgun. Fer Gunnþórunn þá með sitt gamla hlutverk, Vilborgar grasakonú og mun mörgum vafalaust þykja gaman að sjá þennan gamla kunningja enn- þá einu sinni. Gunnþórunn er nú búin að leggjr: leikstörfin á hilluna, enda i oá segja að hún sé búin að gera vel. Gunnþórunn kom síðast fram í. hlutverki konu Jóns bónda í Fjalla-Eyvindi er Þjóðleíkbúsic' var opnað vorið 1950. Er það í fyrsta og einasta 'skiptið, sérti hún hefir leikið í 'ÞjóðleikJrúsinú þar tíl nú. * Afmælissýníngin á morgun Argentina fékk fiest stig á Pan-amerísku leikunum. Randaríh in Nýléga voru háðir í Buenos Aires í Argentínu Pan- amerískir leikar, sem er íþróttakeppni með þátttöku Ameríkuríkja einna. Argentína fékk flest stig eða rúmlega 1000, en þá komu Bandaríkin með rúm- lega 700 st. Náðist að sjálfsögðu góður árangm- í ýmsum greinum, og er úrslita í nokkrum þeirra getið her á eftir: 10.000 m. hl.: 1) Curtis Stone, Bandaríkin, 31.08.6 mín., 2) Ricardo'Bralo, Arg- entinu, 31.10.4 mín. Hástökk: 1) Virgil Sev- erns, B., 1,94 m. 2) Cal Glark, B., og Addilton de Almeida Luz, Braziliu, 1,89 m. 400 m. grindahlaup: 1) iTaime Aparicio, Colombiu, 53.4 sek., 2) Wilson Gomez Carneiro, Brazilíu, 53.7 sek. 50 km. ganga: 1) Sixto Ibanez, Argentínu, 5 ldst. 6 mín. 6.8 selc. 2) J. H. Jack- son, Trinidad, 5.21.12,9 klst. Japan sigraði 4 Asíu leikunum. Asíuleikir — hinir fyrstu, sem efnt er til — voru háðir í Nýju Delhi í sumar og gengu Japanir með sigur af hólmi. Var þetta í fyrsta sinn, sem þeir komu fram í keppni erlendis eftir stríðið. Sköruðu konumar í sveit Japana einlc- um fram úr á leikunum, enda þykir það víða óviðurkvæmi- legt í Asíu, að konur leggi stund á íþróttir, nema þar í landi. * Stig voru ekki gefin leilcum þessum, en sé afrelc einstakra þjóða reiknuð á þann hátt, fengu Japanir alls 130 stig, en Indverjar hlutu alls 95. Um þriðja sætið varð mjög hörð keppni Persa og Filippseyinga. Voru það afl raunajötnar hinna fyrr- nefndu, sem tryggðu þeim 3ja sætið með 43 st., en hin- ir fengu 42. íran fékk fyrstu verðlaun í öllum lyftinga- greinum — sjö alls. Stig skiptust annars þann- ig: Singapore 17, Burma 8, Indonesia 5, Afghanistan 2, Geylon 2, Thailand og Nepal 0. — Búizt hafði verið við miklu af Japönum í sundi, en þar reyndist Singapore sigursæl- asti þátttakandi. Næstu AsíuleLkir verða í Manilía 1955. roru nœst. Langstökk: 1) Gaylord Bryan, B., 7,19 m. 2) Albino Geist, Arg. 7,01 m. Kringlukast: 1) James Fuchs (heimsmetliafi í kúluv.) 48,87 m. 2) Richard Doyle, B. 47,29 m. 800 m. hlaup: 1) Mal Whit- field, B., 1.53.2 mín. 2) Will- iam Brown, B., 1.53.3 mín. 5000 m. hlaup: Richardo Bralo, Arg., 14.57.2 min. 2) John Twromey, B., 14.57.5 mín. Stangarstökk: 1) Bob Richards, B., 4,53 m. 2) jaime Piqueras, Peru, 3,92 m. 200 m. hlaup: 1) Rafael Fortun, Kúbu, 21.3 sek., 2) Arthur Bragg, B., 21.4 sek. Þrístökk: 1) Da Silva, Braz., 15,29. 2) Coutinho da Silva, Braz., 15,17 m. Kúluvarp: 1) James Fuchs, B., 17,25 m. 2) Juan Kahnért, Arg., 14,47 m. Spjótkast: 1) Riehardo Heber, Braz., 68,09 m. 2) Stephen Seymour, B. 67,90 m. 110 m. grindahlaup: 1) Attlesey, B., 14 sek. 2) Koc- ourek 14,2 sek. 400 m. hlaup: 1) Whit- field, B., 47.8 sek. 2) Maiocco, B., 48 sek. 4x100 m. boðhlaup: 1) Bandaríkin, 41 sek. 2) Kúba, 41.2 sék. 4x400 m. boðhlaup: 1) Bandaríkin, 3.09.9 mín. 2) Chile, 3.15.9. Maraþonhlaup: 1) Cabrera, Arg., 2.35 Idst. 2) Valaquez, Guatemala, 2.45 ldst. 10 km. ganga: 1) Laskau, B., 50.26.8 mín. 2) Turza, Arg., 52.27.5 klst. Bandaríkjamenn fengu flest sín stig fyrir frjálsar á íþróttir og sund, en Argen- tínar sköruðu fram úr á öðr- um sviðum. er 7. sýning á Gullna HliSinu að þessu sinni, en á 8. sýningunni, sem er á fimmtudaginn, verða alþingismenn og sendiherrar erlendra ríkja gestir Þjóðleik- hússins. er ekki Latifiieiða. Ágúst Hafberg, forstjóri Land leiða, hefir átt tal við blaðið vegna greinar þeirrar, sem birtist í gær frá Kópavogsbúa. Var spurt um það í grein- inni, hvernig á því stæði, að Landleiðir ykju ekki ferðir um Kópavogshrepp, eins og til hef- ir staðið. Kvað Ágúst Hafberg því til að svara, að ekki stæði á Landleiðum í þessu efni, en hreppsnefnd Kópavogshrepps hefði látið undir höfuð leggjast að gera við vegi í hreppnum, sem ætlunin er að aka um, svo að þeir eru ekki íærir — stór- hættulegt að ýmsu leyti að aka. um þá. Hefir stjórn Land- leiða reynt að reka á eftir þessu. hvað eftir annað, en ekki bor- ið þann árangur, að hægt væri. a heðfja þessar ferir. Þegar hreppsnefnd Kópavogshrepps hefði gert sitt í þessu máli, mundi ekki standa á því að ferðir hæfust.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.