Vísir - 26.01.1952, Page 4
V í S I R
Laugardaginn 26. .janúa? 1952
DAGBLAÐ
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur Ingólfsstræti 3.
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimm línur).
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Syndir vanrækslunnar.
Er þjóðin fékk sjálfstæði og æðsta valdið fluttist inn í landið,
féllu úr gildi ákvæði stjórnarskrárinnar varðandi réttindi
og skyldur konungs, en sambærileg ákvæði voru þá samþykkt
varðandi starfssvið forsetans. Að þessu sinni skal sú lagasetning
elcki rædd að efni né formi, enda henni víst í upphafi ætlað
skammvinnt gildi. En þótt viðhorf löggjafans væri slíkt á þeim
tíma hefur stjórnarskrármálið verið lagt í handraðann, þannig
að sýnilega dregst ný lagasetning í því efni enn um einn áratug.
Við fráfall forseta íslands, herra Sveins Björnssonar, kemur þó
annmarki í ljós á lagasetningu þessari og felst hann í ráðstöfun
f or setavaldsins.
í núgildandi stjórnskipunarlögum er ekki gert ráð fyrir vara-
forséta, ef forsetinn skyldi forfallast um lengri eða skemmri
tíma, yrði óstarfhæfur eða félli frá. Gripið var til þess ráðs að
deila forsetavaldinu milli þriggja valdamanna, forseta Sam-
einaðs Alþingis, forsætisráðherra íslands og forseta Hæstaréttar,
Ef forseti S. Þ. félli jafn skyndilega frá eftir þingslitin og raunin
sannaði í gær að því er varðaði forseta landsins, og ef þingið
yrði þá þegar ekki kallað saman til funda, myndu tveir menn
væntanlega fara með forsetavaldið, þar til nýr forseti S.Þ.
hefði verið kosinn. Ef til ágreinings drægi milli þessara tveggja
manna, eru engin ákvæði til lausnar slíkri deilu og þannig mætti
lengi rekja afleiðingar af skiptingu forsetavaldsins, eins og Ai-
þingi hefur um hnútana búid.
Þótt allt séu það menn ágætir og virðulegir, sem íara með
forsetavaldið þrískipt, er á því töluverður eðlismunur og er
forsetinn er sérstaklega kosinn til þess starfs. Aðalstarf forsetans
er móttaka og fyrirgreiðsla erlendra stórhöfðingja og annarra
virðulegra gesta, en gera má einmitt ráð fyrir því, að þessi þáttur
forsetastarfans verði alltímafrekur næstu vikurnar, þótt engu
verði um það spáð með vissu. En þeir þrir menn, sem veljast
í allar þær þrjár virðingarstöður, sem að ofan eru nefndar, eru
kosnir eða skipaðir í þær, alveg án tillits til „repesentationar“
forsetans. Skiptir þáð miklu máli hvernig að erlendum gestum
er búið og hversu við þeim tekið, enda verður þjóðin dæmd eftir
þeirri hámenningu, sem þar þrífst.
Fullvíst er það að allir þeir ágætu menn, sem nú fara
með forsetavaldið, koma fram út á við með fullum virðu-
leik, svo að þjóðinni verður sómi að, en það réttlætir ekki slíkt
meyðarákvæði, sem Alþingi setti á sinni tíð um þrískiptingu
fofsetavaldsins,; Hirðuleysið um skipun og afgréiðslu nýrrar
stjórnlagaákvæða, ekki sízt að því er forsetavaldið varðar, er
með engu móti verjanlegt. Þótt stjórnmálaflokkarnir hafi þvælt
lítillega um stjórnaskrármálið og gert í því efni misjafnlega
loðnar samþykktir, er vissulega kominn tími til að það mál
.verði tekið alvarlega og fái viðeigandi afgreiðslu.
ForsœtisráðHerra, :
„Islendingar minnast mikilhæfs,
góðviljaðs og hugljúfs forseta."
Þingið. og þjóðin.
TTefði Alþingi búið svo um forsetavaldið, að við yrði unað til
**-■*• langframa, væri ekki um það að sakast þótt nokkur dráttur
yrði á afgreiðslu stjórnskipunarlaganna, enda skal það vel
vanda, sem lengi á að standa. Sá er eðlismunur stjórriskipunar-
laga og annarrar lagasetningar, að öll þjóðskipanin og allt öryggi
þegnanna veltur á því að stjórnskipunarlögum verður ekki breytt
með einfaldri samþykkt einhvers þingmeirihluta, heldur verði
að í'júfa þing og efna til nýrra kosninga. Loks er það nýkosna
þing hefur samþykkt breytinguna, hún fengið undirritun forseta
og verið birt á tilhlýðilegan hátt, þá öðlast hún lagagildi. Slíkur
umbúnaður tryggir lýðræðið í landinu og réttindi þegnanna, unz
breytingar verða á gjörðar með lýðræðislegum hætti.
Er sýnt var að Alþingi myndi ekki sinna afgreiðslu nýrrar
stjórnarskrár í bráð, töldu ýmsir þeir, sem utan þingsins standa,
að ástæða væri til að vekja áhuga alþjóðar fyrir málinu, þannig
að það yrði rætt, skilningur almennings glæddur á eðli stjórn-
•skijpunarlaga, bornar fram nýjungar, sem hentugar geta taíist
og því næst.svo um hnútana búið að „friðsamleg bylting“ yrði
ekki fraunkKænid á einu þingi, án þess að þjóðin yrði þar
; kvðdd til ráða. Þingflokkarnir hafa sýnt misjafnan skilning á
slíkri þörf, en almenningur þeim mun meiri: áhuga. Um stjóm-
.skipunarlögin verða átökin háð næsta.áratugmn, en það getur ■
, haft 'ófyrirsjSaiiiegar' afljeiðongar í -irmanrikismálum. -Vonandi
i, ber þtjóSm giftu til. að sameinast um niðurstóður. og endanlega
aígreiðsiu jaijómarskráxinnar, en mikið vatn vprður tií ,-sjávar
runnið; • áður- en það'TOál verður^afgi'eit/t -endanlega.
Forsætisráðherra flutti þjóð-
inni harmafregnina um lát for-
setans í hádegisútvarpi í gær,
og fórust orð á þessa leið:
Góðir íslendingar!
Ég flyt íslenzku þjóðinni
sorgarfregn.
Forseti íslands, herra Sveinn
Björnsson, andaðist í Reykjavík
klukkan hálf fjögur í nótt.
Forsetinn hafði fyrir skömmu
gengið undir uppskurð erlendis
og virtist á góðum batavegi,
en að vonum máttfarinn eftir
mikla og hættulega aðgerð.
Þegar ég átti tal við forsetan
í fyrradag, glaðan og hressan
í anda, grunaði mig sízt, að sá
fundur yrði okkar síðasti, enda
lét hann í ljós von um, að þreyt-
an mundi hverfa með vori og
hækkandi sól, svo að hann gæti
þá tekið til starfa fyrir land
sitt og þjóð með endurnýjuðum
kroftum.
íslenzka þjóðin mun jafnan
minnast hins mikilhæfa, góð'
viljaða og hugljúfa forseta síns
með virðingu og þökk og meta
að verðleikum störf hans í þágu
lands og lýðs bæði meðan hann
mótaði og markaði stöðu hins
íslenzka þjóðhöfðingja sem
fyrsti forseti hins ísleenzka
lýðveldis.
í dag sýnir þjóðin samúð sina
með því að störf í skrifstofum
og verzlunum bæði hjá ein-
staklingum og ríkisfyrirtækjum
eru felld niður frá hádegi og
hverskonar samkomum aflýst
og skólum lokað.
Hugur vor beinist sérstaklega
í dag til forsetafrúarinnar,
Georgíu Björnsson, og barna
og annara vandamanna forseta-
hjónanna með hluttekningar-
kveðjum.
Vér íslendingar munum ávalt
minnast hins fyrsta forseta ís-
lenzka lýðveldisins, herra
Sveins Björnssonar, með miklu
þakklæti og óblandinni vhð-
ingu. Guð blessi hann og alla
ástvini hans.
iVirðuleg minningarathöfn í
útvarpinu í gærkveldi.
Lík forseta flutt úr sjúkro-
Itúsi heim að Bessastöðum
8 gær.
sagt frá því, að hans hefði ver-
ið minnzt á fundi norska Stór-
þingsins í gær og í danska út-
varpinu. Fyrr um daginp
höfðu fulltrúar erlendra ríkja
gengið á fund utanríkismála-
ráðherra og vottað honum sam-
úð við fráfall forsetans. Sam-
úðarkveðjur höfðu einnig bor-
izt frá McGaw hershöfðingja,
yfirmanni varnarliðsins og
Elkins ofursta, yfirmanni flug-
liðsins á Keflavíkurflugvelli.
Loks var þess getið í útvarp-
inu, að Halvard Lange, utan-
ríkismálaráðherra Norðmanna
hefði sent samúðarkveðju. Þá
hefir Ole Björn Kraft, utanrík-
isráðherra Dana, sent samúð-
arkveðjur þjóðar sinnar.
Síðdegis í gær var lík for-
setans flutt heim að Bessastöð-
um. í líkfylgdinni voru forseta
frú Georgía Björnson, börn
hennar og tengdabörn, sem
hér eru stödd, handhafar for-
setavalds, Alþingisforsetar,
ríkisstjórn, biskup, sendiherra
Norðmanna f.h. erlendra full-
tra, læknar forsetans, lögreglu
stjóri og sýslumaður Gull-
bringu- og Kjósarsýslu. Lög-
reglumenn báru kistuna úr
sjúkrahúsinu og stóðu heiðurs-
vörð úti fyrir. Þá báru lög-
reglumenn kistuna í viðliafn-
arsal Bessastaða, en að lokum
gengu embættismenn fyrir for-
setafrúna og vottuðu henni
hluttekningu sína.'
Dagskrá útvarpsins í gær-
kveldi var helguð minningu
herra Sveins Björnssonar, en
að öðru leyti féll útvarp niður,
að fráteknum veðurfregnum,
sem útvarpað var síðar um
kvöldið.
Hófst útvarp kl. 8 með því,
að leikið var Largo eftir Hánd-
el, en síðan fluttu tveir harid-
hafar forsetavalds, utanríkis-
ráðliérra og fyrrverandi for-
saétisráðherrar stuttar ræður,
þar sém þeir minntust hins
látria forseta. Þessir menn tóku
tókú til máls: Jón Pálmason,
forseti Sameinaðs Alþingis, Jón
Ásbjörnsson, t forseti Hsesta-
réttar, Bjarni Benediktsson ut-
anríkismálaráðherra, Ásgeir
Ásgeirsson, dr. Björn Þófðar-
son, Hermann Jónasson og
Stefán Jóharin Stefánsson, fyrr
verandi forsætisráðherrar.
Allir minntust þeir á virðú-
legan hátt hins látna forseta og
drengskaparmanns, en að lok-
um var flutt klassísk tónlist, en
útvarpi síðan hætt. Áður höfðu
þulur greint frá ræðuíforsæt-
isráðherra, er hann ílutti þjóð-
inrii harmafregnina, ennfrem-
ur sagt frá tilkynningu lækna
forsetans um andlát hans, og
Íþrótfainóiifim
frestað.
Samkvæmt tilmælum íþrótta-
sambands íslands hefir bæði
Skautamóti Reykjavíkur og
Stefánsmótinu verið aflýst.
Skautamót Reykjavíkur átti
annars að fara fram í dag og á
morgun og var búið að undir-
búa skautabrautina á Tjörninni.
Stefánsmótið átti að fara
fram í Hamrahlíð í Mosfells-
sveit á morgun og voru 84
skíðamenn og konur búin að til-
kynna þátttöku sína í mótinu.
GUÐLAUGUR EINARSSON
M álflutningsskrifstofa
Laugavegi 24. Sími 7711 og 6573.
+ BERGMAL >
Sveinn Björnsson forseti
er látinn. Þessi fregn barst
um alian bæ í gærmorgun, og
menn setti hljóða. Fyrsti for-
seti hins íslenzka lýðveldis
var ekki lerigur meðal vor.
Með honum er genginn mest-
ur virðingarmaður þjóðar-
innar, en um leið hefir þjóðiri
misst einn ástsælasta son
sinn, mikilsmetinn forustu-
mann og brautryðjanda.
Það var vitað, að forsetinn
hafði átt við vanheilsu að stríða
um langt skeið, en þó mun
fæsta hafa grunað, að æviskeið
Jians væri senn á enda i-unnlð.
Fregnin snart .menn djúpt. og
sárt; ekki aðeins vegna þess, áð
æðsti maður þjóðariimar væri
látinn, og -að nú væaá' apið og'
ófyllt skarð fyrir skildi, -heldur
einnig vegna þéss, að maður
skynjaði, að sannur íslending-
ur, drengskaparmaður, órofa
tengdur örlögum þjóðarinnar,
væri fallinn í valinn. Fánarnir,
sem hvarvetna blöktu um bæ-
inn í gær, á landi og á skipun-
um á höfninni, fluttu sorgar-
boðskapinn og túlkuðu harm
þjóðarinnar á sinn þögla en
áhrifaríka hátt.
*
Það má vafalaust með
sanni segja, að vel hafi til
tekizt um skipan hins æðsta
embættis á íslandi við stofn-
un lýðveldisins, og af öllum
eða flestum mun Sveinn
Björnsson hafa verið talinn
skipa sess sinn svo sem bezt
• verSur á kosið. bm; þetta
varð ekki dcilt.
■' *. < . : '• Vá
i Giftusaæolégn # þótti forustaN
Sveins Björnssonar á, hinni
fyrstu göngu hins íslenzka lýð-
veldis, enda mikið í húfi, að svo
yrði. Því er það, við fráfáll
hans, að menn vona og vænta
þess, að sá, sem við tekur, þeg-
ar þar að kemur, verði maður,
sem menn geta borið svipaðan
hug til og þess manns, sem við
nú syrgjum. — Nú stendur hin
íslenzka þjóð samhuga í sorg-
inni við börur hins látna forseta.
Vér sendum fjölskyldu hans og
ástvinum samúðarkveðjur vor-
ar og hluttekningu, en harmur
þeirra er um leið hai'mur vor.;
ThS : :
Gáta dagsins.
Nafn mitt hólft er við afl
í smioju og hálft -ókrókóttur
vegur. Hvað heiti ég?
Svar við síðustu gátu: Pádl.