Vísir - 06.02.1952, Blaðsíða 1

Vísir - 06.02.1952, Blaðsíða 1
42. órg. Miðvikudaginn 6. febrúar 1952 29. tbl. Vinsæll þjóðhöfðingi. Georg konungur hefir náð feikna vinsældum með þjóð sinni, enda hefir ríkisstjórn hans verið með þeim hætti, er bezt þjykir með þjóð, sem að- hyllist þingbundna konungs- stjórn. Á hinum þungbæru styrj- aldarárum dvaldi hann með þegnum sínum í London, og er viðbrugðið hugprýði hans og þeirra konungshjóna í hörm- ungum þeim, er yfir dundu í loftárásum Þjóðverja á borg- ina veturinn 1940—41 og vorið Georg VI. B Hann fékk hægt andlát í svefni snemma í morgun. ÆHsabet ríhisatffi hraömr sér h-einu frá Kemtga* Tilkynnt var frá Sandringham kl. 10,45 í morgun (9.45 eftir ísl. tíma), að Hans Hátign Georg VI. konungur væri látinn. Konungur tók á sig náðir í gærkvöldi á venjulegum tíma og bar andlát hans að undir rnorgun. Fékk konungur hægt andlát í svefni. Andláts konungs var ekki getið í venjulegri fréttasend- ingu frá London kl. 10, en nokkrum mínútum eftir að fréttasendingunni lauk, var til- kynningin birt í útvarpinu, og konungsfjölskyldunni vottuð dýpsta samúð útvarpsins. Hófst því næst útvarp á sorgarlögum. Elisabet rikisarfi mun nú halda heimleiðis vegna andláts konungsins, föður síns. Er hún enn í Kenya, ásamt manni sín- um, hertoganum af Edinborg, í opinberri heimsókn, og var ráðgert, að þau héldu áfram ferð sinni þaðan á morgun, til Ceylon, Ástralíu og Nýja Sjá- lands. Var rúmlega 56 ára gamall. Georg VI. Bretakonungur var fæddur árið 1895, og hét fullu nafni Albert Frederic Art- hur George, næstelzti sonur Georgs V.og Mary ekkjudrottn- ingar, sem enn lifir í hárri elli. Hann fæddist í York Cottage, Sandringham, 14. desember ár- ið 1895, og var því rúmlega 56 ára, er hann lézt. Með því, að hann var ekki elztur bræðra sinna, var ekki gert ráð fyrir því, að hann tæki við konung- dómi, en það varð þó, er Ját- varður VIII., bróðir hans, nú- verandi hertogi af Windsor, af- salaði sér völdum í desember 1936. Georg konungur hlaut sjó- liðsforingjamenntun og stund- aði m. a. nárn við Konunglega sjóliðsforingjaskólann í Dart- mouth (Royal Naval College), en var síðan í siglingum með ýmsum skipum brezka flotans. M. a. tók hann þátt í Jótlands- orustunni sem undir-sjóliðsfor- ingi. Eftir styrjöldina stundaði hann nám við Trinity College 1 Cambridge, en ári síðar var hann gerður að hertoga af York. Árið 1923 gekk hann að eiga lafði Elizabeth Bowes-Lyon, konu af skozkum aðalsættum, en hún lifir mann sinn. Þau eiga tvær dætur, eins og al- kunna er, Elizabeth Alexandra Mary, fædda 21. ap'ríl árið 1926, sem nú tekur við ríkjum eftir föður sinn, og Margaret Röse, sem er fædd árið 1930. onuhgur látinn Mynd þessi var tekin af hinum látna kon- ungi og Elisabctu | drottningu, er þau áttu || silfurbrúðkaup 1948. Myndin er tekin í Buckinghamhöll. — Georg Bretakonungur. 1941. Reyndi konungur eftir mætti að taka þátt í kjörum þegna sinna,þeim til hughreyst- ingar og uppörvunar. Georg VI. Bretakonungur hafði flesta þá kosti til að bera, er þykja prýða mann í hans stöðu. Hann var prúðmenni, stilltur, raungóður og ráðholl- ur, og því syrgir öll brezka þjóðin hann í dag, svo og brezka samveldið allt. Utanríkisráðherra sendir samúðarskeyti. Bjarni Benediktsson utan- ríkisráðherra sendi í morgun Eden utanríkisráðherra Breta, samúðarskeyti í tilefni af and- láti Georgs VI. Bretakonungs fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Banaslys í morgun. í morgun varð það hörmu- lega slys á Reykjavíkurflug- velli, að maður beið bana er sprenging varð í olíuflutn- ingabíl frá Esso. Voru tveir menn við bifreiðina, er sprengingin varð og beið annar mannanna strax bana, en hinn var fluttur slasaður á spítala. Þegar blaðið fór í prentun var ekkert nánar vitað um slys þteta. 20 þtis. hús i desember. í desember síðastliðnum voru fullgerð 15,300 ný íveruhús i Bretlandi eða 1500 fleiri en í október og nóvember og yfir 8000 fleiri en í desember 1950. MjóHkurbúðar- þjófar fundnir. Komizt hefur upp um tvo 15 ára pilta, sem stolið höfðu pen- ingum úr mjólkurbúð einni hér í bænum. Höfðu þeir margsinnis stol- ið úr sömu búðinni, mest 160 kr. í eitt og sama skipti. . Notuðu piltarnir tækifærið þegar stúlkurnar brugðu sér inn í bakherbergi til að orna sér. Báðir piltarnir hafa játað á sig þjófnaðina. • © Olium sekum verður Biegnt. Innanríkisráðherra Egypta- lands hefir tilkynnt, að fram- kvæmd sé Ieynileg rannsókn út af óeirðunum í Kairo á dögun- um. — Ráðherran kvað öllum, sem sekir reyndust verða hegnt. — Hann staðfesti, að menn hefðu verið teknir höndum í hundraða tali, og margir væru sakaðir um íkveikjur og roorð. Tveir unglingspiltar hand- teknir fyrir árás og rán. Hotuðu og rændu sjómann með óvenju hrotfaiegtHim hætti. Óvenju fólskulegar ofbeldis- árásir voru gerðar á tvo sjó- menn í fyrrinótt og þeir rotað- ir og rændir. í vitorði með þessum þokka- piltum voru stúlkur, en rann- sóknarlögreglan hefir málið til meðferðar og tekst vonandi að upplýsa það til hlítar. . Annar maðurinn, sem fyrir árásunum varð, heitir Óli Anton Þórarinsson. Tveir menn rotuðu hann í Kolasundi og rændu um 270 krónum. Tvær stúlkur munu hafa verið í slag- togi með þeim. Hinn maðui'inn heitir Einar Björnsson togara- sjómaður. Hann var rændur með alveg óvenju hrottalegum hætti, með því að hann mun hafa verið rotaður, er sparkað var í höfuð honum, er hann hafði haft annan árásarmanninn undir. Þetta var þó ekki látið nægja, heldur var sparkað í hann þar, sem hann lá. Einar var rændur um rúmar 400 krón ur. Einhverjar stúlkur munu og hafa verið í vitorði með ó- þokkum þessum. Rannsóknarlögreglan er nú í þann veginn að upplýsa bæði þessi mál. í gær handtók hún tvo menn og setti í gæzluvarð- hald, er hún hafði grunaða um að vera valda að a. m. k. ann- arri árásinni. í morgun var annar þessara manná, Kristján Friðriksson til heimilis í Höfðaborg 32 og fæddur 1935 tekinn til yfir- heyrzlu. Játaði hahn að hafa, ásamt félaga sínum, Lýði Kristni Jónssyni að. hafa ráð- ist {■. Eiriar Björnsson á gatna- mótum Skothúsvegar og Lauf-> ásvegs í fyrrinótt. Atburður þessi skeði milli kl. 2 og 3 um nóttina og rændu þeir félagar Einar öllu lauslegu sem hann. bar á sér, misþyrmdu honum á hrottalegan hátt og tættu ut- an of honum regnkápu þannig að hún er með öllu ónýt. Báðir þessir piltar eru þekkt- ir af lögreglunni fyrir ýmis- konar afbrot, en einkum þó Lýður. Með þeim voru 3 stúlkur, er ránið var framið í fyrrinótt og hafa þær játað að vera sjónar- vottar að atburðinum. Þá telur Kristján sig enn- fremur hafa verið viðstaddan. er árásin var gerð á hinrr manninn í fyrrinótt, Anton Þórarinsson að nafni, og er rannsóknarlögreglan nú að upplýsa það mál. Enai óvíst iim framboð T rnmans. Trumann forseti hefir nú leyft, að nafn lians verði á lista yfir forsetaefni í undirbúnings- kosningunum í New Hamp- shire. Þar með er þó engin vissa fyrir, að Truman tilkynni, að hann géfi kost á sér, og segja fréttaritarar í Washington, að almennt sé álitið, að ef hann geri það ekki muni hann benda á Stevenson ríkisstjóra í Illinois sem forsetaefni demokrata í sinn stað.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.