Vísir - 15.02.1952, Blaðsíða 4

Vísir - 15.02.1952, Blaðsíða 4
4 VI S 1 K Föstudaginn 15. febrúar 1952 DAGBL&Ð Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofur Ingólfsstræti 3. Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimm línur). Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. JarBsetnlng Bretakomiitgs. Idag flytja Bretar konung sinn til hinstu.hvíldar og er þjóðar- sorg í .landinu og raunar brezka heimsveldinu öllu. Bretar hafa ávallt konunghollir verið, jafnvel þótt stundum hafi kast- ast í kekki milli konungsvaldsins og þjóðarinnar. Engin þjóð þjóna'ði konungum sínum betur um langan aldur og engir kunna toetur konung sinn og konungdóminn að meta. Bretar eru menn siðavandir og vanafastir. Aldagamlar erfðavenjur ráða ríkjum með þjóðinni og þeim verður að fylgja, hvað sem í skerst eða á idynur. Þjóðin vill líta upp til konungs síns og tigna hann, sem ámynd brezks þjóðareðlis. j Georg konungur VI. settist óvænt að völdum, en skaut sér hvorki þá né síðar undan skyldum sínum, sem konungurinn rækti af einstakri samvizkusemi, þrautseigju og hugprýði til dauðadags. Talið er að konungur hafi verið í eðli sínu frekar hlédrægur maður, og víst er um það, að hljóðara var um hann en ýmsa konunga aðra, sem Bretum hafa. stjórnað. Hmsvegar var ljóst að konungur var elskaður og virtur af þjóð sinni, sem sýndi honum þráfaldlega traust sitt og virðingu í verki, — ekki sízt í sjúkdómi þeim, sem konungur átti við að stríða. Georg. konungi VI. féll það þunga hlutskipti í skaut að ráða ríkjum á tímum ógurlegustu styrjaldar, sem yfir heiminn hefur dunið. í eitt ár stóð brezka þjóðin ein gegn ofurefli, hugdjörf, seig og þolinmóð. Erfiði, blóð og tár var henni boðað af for- sætisráðherra landsins, sem einnig nú skipar þánn virðingar- sess, en þær byrðar allar tók þjóðin á sig án þess að mögla. Aldrei hefur brezkt þjóðareðli birzt heiminum skýrar, enda sannaðist að þá átti „Bretland eina sál“. Borgir voru. lagðar 1 rústir í loftárásum, öll venjuleg lífsþægindi hurfu úr sögunni, öryggisleysi ógnaði öllu og öllum, en konungur dvaldi í höll sinni og heimsótti jafnvel vígvellina og gaf með því þjóðinni foi’dæmi, sem gildi hafði og almenningur dáði. Vitað var þó að konungur var sízt óhultari en aðrir fyrir háskasemdum styrjald- arinnar, enda virtist svo, sem á stundum væri að honum sótt sérstaklega. í öllum þessum þjáningum brást konungurinn aldrei skyldum sínum, og fyrir það naut hann verðskuldaðra vinsælda. Bretar hafa um aldir haft sérstöku hlutverki að gegna í heíminum, og á þeirra herðum hvílir að verulegu leyti menn- ing hins vestræna heims. Þeir kunna í senn að stjórna og láta stjórnast. Heimurinn vottar þeim í dag virðingu sína, er Georg VI. konungi, þeirra er fylgt til hins hinstu hvíldar. Ný „röntgentæki". Ej®iS&(ré$ts-ff m&fgkjjfivikigs*: Tony vaknar til lífsins, efíir Harald Á. .Sigurðsson. Höfundur leikrits , þessa er Reykvíkingum að góðu kunnur, sem leikari og „revyu-höfund- ur“, auk þess, sem hann er þjóðkunnur sem gamansamur rithöfundur, — en af slíkri manngerð eigum við of fáa góða. Þurfti því ekki að draga í efa, að ofangreint leikrit hefði margt gott til brunns að béra, sem leikhússgestir myndu hafa ánægju af. Leikritið er vissu- lega samið í léttum tón og af óiíkindum, .sem ættu .engan að særa, en ekki verður það skilið á annan veg en þann, að á bak við leynist nokkur- ádeila, vegna misfellna í mannlífinu, léttúðar og lausungar. Kímnin ber þó allt ofurliði, eins og liöfundur- inn ætlast til og leikhússgestir njóta gleði og hláturs í hæfi- legum mæli. Leikrit þetta er liðlega sam- ið, samtölin létt og leikandi, þannig að auðsætt er að höf- undurinn kann samræðulist. í leiknum er jafn stígandi og endir hans eðlilegur, en þó að nokkru leyti óvæntur, svo sem margt annað í leikritinu. Heildardómur . um Leikritið byggist á.því, hvort menn sjá ytra. borðið eitt, eða hitt, sem á bak ,við býr, og má þar hver dæma sem vill. Brynjólfur Jóhannesson le-ik- ur Brand uppfinningamann af mikiili list og skemmtilegheit- um. Hann er að vísu :ekki með öllum mjalla, en er ekki verri fyrir það en um margt betri. Brynjólfur ber hita og þunga dagsins, meðan hann er á svið- inu, en Alfreð Andr.ésson þess á milli,. sem s.ppur hans Tony, — einstæður gervimaður. Hlutverkið er þó þess eðlis, að Alfreð hefði getað á betra kosið, en hann gerir því góð skil, ekki sízt eftir að ,,whiskyið“ hefir hrært steinhjarta hans og liðk- að málmlimi hans hóflega, þar til ástin liðkar allar legur og kveikir líf í dauðum búki, sem aldrei deyr meðan vara- hlutir eru til. Kristjana Breiðfjörð leikur frú Oks, dálítið viðvaningslega í fyrstu, en hún sækir sig er á líður og gerir, flesta hluti vel að lokum. Hlutverk hennar er ekki vandalaust og krefst til- þrifa, sénv tæpast eru á byrjenda færi. Kristjana Breiðfj.örð mun vera sviðvön og hafa hlotið æfingu í Hafnarfirði, enda má fullyrða að hlutverk sitt hafi hún leyst svo vel af hendi, að af henni megi nokkurs vænta í framtíðinni. Hún sómir sér einnig vel á sviðinu. Þorfinn Oks, mann hennar, leikur Steindór Hjörleifsson, látlaust og laglega. Þetta er heldur ekki vandalaust hlutverk, en Stein- dór gerir. því gó.ð skil. Soffía Karlsdóttir leikur Þóru þjón- ustustúlku og ýkir töluvert, jafnvel stundum til lýta, — en hlutverk hennai’ er þannig frá höfundarins hálfu, að vel kann að vera til þess ætlast. Jón Leós og Árni Tryggvason fara báðir vel með smáhlutverk og gætir. meiri tilbrigða í , leik Árna, sem er prýði.lega eipfald- ur garðyrkjumaður og sannur í allri gerð á leiksviðinu. Leiktj öld, vpru áf.erðarfalleg, máluð af Magnúsi Pálssyni, og leikstjórn góð af hálfu Brynj- ólfs Jóhannessonar. Vissulega hefur oft verið feitara „á stykk- inu“ hjá Leikfélagi Reykjayík- ur, en margt er sér til gamans gert og gleðina kunna leikhúss- gestir nú orðið að meta. Höfundi og leikendum var vel fagnað í leikslok. K. G. NYJA EFNALAUGIN Höfðatúni 2 og Laugavegl 20B 7264 VéfstjérS á Sdfossi i Oddur Jónsson, 1. vélstjóri á Selfossi, andaðist um borð í skipi sínu í fyrradag, cr það var á leið hingað til lands. Oddur hafði lcennt lasleika á leiðinni, og í fyrrakvöld and- aðist hann í svefni. Selfoss kom við á Seyðisfirði í fyrrinótt, þar sem læknisskoðun fór fram. Skipið flytur líkið hing- að til Reykjavíkui’. Oddur heitinn var 58 ára að aldri, og lætur eftir sig ekkju, Guðmundu Guðjónsdóttuf, uppkomin börn og fósturson. er miðstöð verðbréfaviðskipt- anna. — Sími 1710. MARGTASAMA STAÐ Pappírspokagerðin h.f. Vitastíg 3. Allslc. pappírspokar Barnaspítalasjóðs Hringsins eru afgreidd í Hannyrða- verzl. Refill, Aðalstræti 12, (áður verzl. Aug. Svendsen), í Bókabúð Austurbæjar, Laugav. 34, Holts-Apoteki, Langholtsvegi 84, Verzl. Álfabrekku við Suðurlands- braut og Þorsteinsbúð, Snorrabraut 61. Krabbamein er talin algengasta dánarorsök hér á landi nú oi’ðið, en eitt vopnið gegn þeim viðsjárverða kvilla eru geislalækningar. Þrátt fyi’ir það að 200 menn deyi árlega úr þessum sjúkdómi, hefur furðu lítið verið að því gert að vara við honum og vernda menn gegn honum. Fyrir fáum árUm var Krabbameinsfélagið stofnað fyrir forgöngu lækna og annarra áhugamanna. í gær afhenti það Landspítalanum að gjöf full- komnustu geislalækningatæki til frjálsra afnota, og hefur þar stórt skref verið stigið til öryggis og farsældar, — til þess að fyrirbyggja og lækna. Eitthvert fyrsta mark Krabbameinsfélagsins var að ákveða kaup á tækjum þessum og beita sér jafnframt fyrir fjársöfnun meðal þjóðarinnar. Tækin kostuðu um 250 þús. kr., sem þótt hefði mikið fé fyrir á árum, en á tiltölulega skömmum tíma safnaðist fé þetta að fullu. Naut félagið jafnframt opinberrar fyrirgreiðslu, svo sem maklegt var. Hefur Landspítalinn nú ýfir tvennum geislalækningatækjum að ráða og er í því falið nllmikið öryggi. Óneitanlega vekur það nokkra furðu, að svo skuli að helztu sjúkrahúsum þjóðarinnar búið, að þau fái ekki notið fullkomn- ustu lækningatækja, nema því aðeins að almenn samskot komi til. Góður hugur almennings er lofsverður, en skilningur af hálfu þess opinbera væri þó öllu öruggari, enda af sameiginlegum sjóði þjóðarinnar tekið, er fé er varið til öryggismálanna. Margs þarf búið við og í mörg horn er að líta, en xmdirstaða allrar velgengi er sómasamlegt heilsufar þegnanna, og fyrir það er miklu fórnandi. Krabbameinsfélagið hefur. unnið þarft verk og gott með fjársöfnun sinni og forgöngu tækjakaupanna að öðru leyti, — «n ekki er nema hálfnað haf heim til sælujarðar. Sjúkrahús og xannsóknarstofur þarf að búa fullkomnustu vísindatækjum. Heyrst hefur að slík tæki hafi verið hingað gefin, en hafi aldrei verið tekin í notkun, þar sem.þau vpru bundin við nafn ákveð- ins vísindamanns, sem nú starfar erlendis. Til þess eru víti að yarast þau. Leikhú.sgestur, sem er mér að góðu kunnur frá fornu fari, kom að máli við mig fyrir nokkrum dögum og bað mig um að koma á fram- færi ábendingu fyrir sig til bæj- ar- eða annara máttarvalda um að betur sé rutt snjó og klaka af Hverfisgötunni fyrir framan Þjóðleikhúsið., Þegar snjóaði sem mest um mánaðamótin, myndaðist —■ eðlilega — mikill hryggur á götunni meðfram gangstéttinni, og hefir ekkert verið hróflað við honum. Þetta hefir valdið miklum erfiðleik- um, þegar fólk hefir verið að koma úr eða fara í leikhúsið,. og er í rauninni til skammar, að ófært skuli að „musteri ís- lenzkrar tungu“. Eg geri ráð fyrir, að lesendur mínir muni eftir þeirri fregn, sem birtist í blöð- unum í síðgsta mánuði, að inn yrði bráðlega flutt frá Banda- ríkjunum ný tegund málningar, sem er einkar handhæg vegna þess, að „leikmenn" geta mál- að úr henni og fengið eins góða áferð og um þaulæfða fagmenn væri að ræða. Menn ruku upp til handa og fóta, þegar þeir fréttu þetta, og vildu.allir kaupa slíka málningu, því að sparnað- urinn er mikill við að nota hana. Tímanna tákn má þetta víst kallast, því að nú reyna allir að spara sem mest þeir mega en fyrir fáum árum horfðu menn ekki í pen- inginn og voru ekki að „súta“ það, þótt talsvert dýrt. væri að notast við aðkeypt vinnuafl. Nú er öldin önnur, og má það jtil sanns vegar færa, sem Egill Vilhjálmsson, en hann hefir flutt þessa undramálningu inn, sagði v'ið einn kollega minn á dögunum, að það væri eins og að bjóða mönnum gull að láta þá vita, að slík, mál.ning væri fáanleg. Sjómannablaðið Víkingur segir frá því að þessu sinni, ,að sjómönnum. hafi ekki verið boðið að eiga fulltrúa meðal þeirra raanna, sem báru kistu forsetans, herra Sveins Björná- sonar, milli Alþingishúss og kirkju við útförina 2. þ. m. Þykir stjórn Farmanna- og fiskimannasamb. þetta illa farið og segir Víkingur, að hún hafi mótmælt þessu, enda mundi þetta ekki hafa verið í anda hins látna forvígismanns. Eg er þar á sama máli, en eg lít einnig svo á, að ónauðsyhlegt sé að „klaga“ þannig og óvið- eigandi. Hér hefir verið úm •yfirsjón að ræða, óviljandi, sem öllum aðilum þykir vafalaust leiðinlegt að átti sér stað. Gáta dagsins. Nr. 52: Hvaða hæjarnafn nefnir sig sjálft? Svar við gátu nr. 51: Lykill.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.