Vísir - 14.03.1952, Blaðsíða 2
s
ViSIR
Föstudaginn 14. marz 1952
Hitt og þefta':
Ung og glæsileg kona vitjaði
táugalæknis í y^^iræðum'Sin-
um. „Hvað á e’g að gera?“ sagði
hún við lækninn. „Maðurinn
minn fullyrðir að eg sé geðbil-
uð.“ '
„Hvaða ástæðu hefir hann til
að segja það?“
„Hann segir það af því að
mér þykja svo góðar pönnu-
kökur.“
„Það er ekkert undarlegt við
það. Skyldi hann ekki hafa
lausa skrúfu sjálfur?“
„Jæja, svo það segið þér líka
læknir? En hvað mér létti við
að heyra þetta. Og ef þér kom-
íð heim til þess að athuga
manninn minn, þá skal eg sýna
yður allar pönnukökurnar
mínar. Eg á fulla skápa áf
pönnukökum!"
„Sonur minn. Þú mátt reiða
þig á að eg flengi þig af því að
eg clska þig.“
„Það vildi eg pabbi, að eg
væri nógu stór til að endur-
gjalda ást þína.“
Mannrán þykja skammarleg,
en hafa þó alltaf tíðkazt. Áður
fyrr var þó aðallega setið um
karlmenn tii þess að flytja þá
nauðuga viljuga til starfa á
skipum, sem voru liðfá. Um
árið 1870 var einn slíkur mann-
ræningi starfandi í San Fran-
cisko. Var hann mikilvirkur
og hafði illræmda drykkjukrá
niður við höfn. Var hún byggð
svo að sjór flæddi undir hana.
Talið er, að á þeim tíma er krá
hans var starfandi, hafi þarna
verið rænt um 10.000 manns.
Voru menn ginntir þangað,
helit í þá áfengi og jafnvel
svefnlyfjum, eða þeir barðir
niður. Var þeim síðan, ósjálf-
bjarga, rennt niður um lúku-
gat á gólfi kránnar og ofan í
bát, sem þar var til taks. Gest-
gjafinn, sem stundaði þessa
þokkalegu atvinnu, var kallað-
ur Shanghai Kelly.
Karl kveikti í húsi sínu og
6agðist hafa brennt það, af þvi
að honum geðjaðist ekki að ná-
grannanum.
Cim Aíhhí Oar..:
Um þetta leyti fyrir 25 árum
mátti m. a. lesa þetta í Vísi:
Innbrotsþjófnaður.
í nótt var brotizt inn á þrem
stöðum hér í bænum: í íshús
Nordals við Kalofnsvég, í Sölu-
turninn, skammt frá, og í
Hjálpræðishershúsið. Talsverðu
mun hafa verið stolið úr sölu-
turninum, en engu er sagt, að
þjófarnir hafa náð í íshúsinu.
Nánara er eigi að frétta af
þessu, er blaðið fór til prent-
unar, en að sjálfsögðu hefir
lögreglan málið til rannsókn-
ar.
Eldur kviknaði
í morgun í herbergi inn af
búð Kr. Einarsson & Björns-
son í húsi Jóns Þorlákssonar.
Slökkviliðið kom og kæfði eld-
inn á svipstundu. Kviknað hafði
í hálmi eða öðrum umbúðum,
ekki er kunnugt með hverjum
hætti það varð. Skemmdir urðu
nokkrar á varningi. Sjálft hús-
ið er allt úr steini og eldtraust.
BÆJAR fr.m
-trt-
Föstudagur,
14. marz, — 74. dagur ársins.
Ungbarnavernd Líknar,
Templarasundi 3, er opin
þriðjud. kl. 3.15—4 e. h. og
fimmtud. kl. 1.30—2.30 e. h. —
Ennfremur verður opið á
föstudögum kl. 3.15—4 e. h..
Er þá ætlast til að þau börn
komi, sem hafa kíghósta eða
eru kvefuð.
Hvöt,
Sjálfstæðiskvennafélagið, held-
ur 15 ára afmælisfagnað sinn
mánudaginn 17. þ. m. í Sjálf-
stæðishúsinu kl. 7 e. h. stund-
víslega. Frekari upplýsingar
fást um þetta hjá frú Jacobsen,
sími 1116, Dýrleifi Jónsdóttur,
Freyjugötu 44, sími 4755, enn-
fremur Maríu Maack, Þing-
holtsstræti 25, sími 4015.
Utvarpið í kvöld:
20.30 Kvöldvaka: a) síra
Sigurður Einarsson flytur
minningar um Ólaf í Hvallátr-
um. b) Eggert Stefánsson syng-
ur lög eftir Sigvalda Kaldalóns
(plötur). c) Upplestur (Vil-
| hjálmur S. Vilhjálmsson rit-
j höfundur). d) Gils Guðmunds-
son ritstjóri les frásöguþátt: „Á
j útskagamiðum“ eftir Þorstein
Matthíasson skólastjóra. 22.00
Fréttir og veðurfregnir. — 22.10
i Passíusálmur (29). 22.20 Tón-
leikar (plötur).
VÍSIR.
j Nýir kaupendur blaðsins fá
það ókeypis til mánaðamóta.
i Vísir er ódýrasta dagblaðið,
sem hér er gefið út. — Gerist
áskrifendur. — Ilringið í síma
1660.
„Litli Kláus og Stóri Kláus“.
í dag frumsýnir Þjóðleik-
húsið barnaleikritið „Litli Klá-
us og Stóri Kláus“, sem gert er
eftir samnefndri sögu H. C.
Andersens. — Leikarar eru:
Arndís Björnsdóttir, Gestur
KnMqáta hk 1272
Pálsson, Hildur Kalman, Jón
Aðils, Róbert Arnfinnsson,
Valdimar Helgason, Bessi
Bjarnason, Margrét Guðmunds-
dóttir, Steinunn Bjarnadóttir,
Lúðvík Hjaltason og Sofíía
Karlsdóttir, sem syngur nokkr-
ar vísur. — Hildur Kalman er
leikstjóri. — Leikhúsið vandar
mjög til þessarar sýningar fyr-
ir yngstu leikhúsgestina, sem
ljóst mun meðal annars af leik-
endaskránni. — Næsta sýning
verður næstk. sunnudag.
Leiðrétting.
í gær var sagt í frétt í Vísi,
að minnsta aðsókn að Sund-
höllinni hefði verið 99 þús.
manns, en það rétta er, að fæst
kom 121.555 þús. manns, sem
er minnsta aðsókn að höllinni.
Þetta var árið 1949, en það ár
var Sundhöllin lokuð rúmlega
4 mánuði. Annars ber og að
gæta, að ekki má taka stríðs-
árin til samanburðar við önnur
ár, því að á þeim sóttu Sund-
höllina yfir 100 þús. hermenn.
Læknablaðið,
5. tbl. 36. árgangs hefir Vísi
borizt. Blaðið er gefið út af
Læknafélagi Reykjavíkur. í
þessu tölublaði ritsins er efni
þetta: Heilaritun, eftir clr.
Helga Tómasson, dánarminning
um Valdimar Erlendsson lækni,
eftir Bjarna Oddson. Um að-
alfund félagsins, úr erlendum
læknaritum o. fl.
Aðalfundur
og framhaldsstofnfundur Fiski-
matssveinadeildar Sambands
matreiðslu- og' framreiðslu-
manna var haldinn 6. þ. m. í
Sjálfstæðishúsinu. í deildina
er nú skráðir 62 meðlimir, en
deildin var stofnuð 19. febr. s. 1.
Fiskimatsveinadeildin var
aðili að hinu nýja samningi um
kaup og kjör á togurum.
Á fundinum var rætt um
hagsmuni togaramatsveina, og
ríkti mikill áhugi fyrir þessum
nýju samtökum þessara manna.
jíao t
Skáklausn:
1. Hd8—a8 Kb7Xa8,
2. Kh7—c7 (c8) a7—a6
3. Hc6Xa6 mát.
(a5),
Slökkviliðið
var í gærkveldi gabbað ofan í
Austurstræti, en brotinn hafði
verið brunaboði á húsinu nr. 4,
en enginn eldur neins staðar.
Skýringar:
Lárétt: 1 íbúð, 6 rafveita, 7
lindi, 8 hvíld, 10 fv. ritstjóri,
11 kaffitegund, 12 ís, 14 verk-
færi, 15 í sjó, 17 skelina.
Lóðrétt: 1 skar, 2 oft í vasa,
3 franskt fljót, 4 mánuður, 5
landnema, 8 áköf, 9 spil, 10
prófessor, 12 útl. samtakanafn,
13 neyttu, 16 viðskiptamál.
Lausn á krossgátu nr. 1571.
Lárétt: 1 Kolbrún, 6 il, 7 OO,
8 ilsig, 10 av, 11 ÍBR, 12 ofar,
14 Ra, 15 rós, 17 ostur.
Lóðrétt: 1 Kit, 2 ÓL, 3 bol,
4 rosi, 5 negrar, 8 ívar, 9 ÍBR,
10 af, 12 Ok, 13 rót, 16 SU.
Sigurgeir Sigurjónssaa
hœstaréttarlögmaður,
Skrifstofutími 10—12 og 1—5.
Aðalstr. 8. Sími 1043 og 80950.
Skip Eimskip.
Brúarfoss kom til Antwerp-
en sl. miðvikudag; fer þaðan
til Hull og Reykjavíkur. Detti-
foss fór frá Reykjavík 7. marz
áleiðis til New York. Goðafoss
er í Rvk.; fer væntanlega héð-
an til ísafjarðar, Siglufjarðar,
Akureyrar og Húsavíkur. Gull-
foss kom í gærmorgun til Kaup-
mannahafnar frá Leith. Lagar-
foss kom til New York 1. marz;
fór þaðan í gær aftur áleiðis
til Rvk. Reykjafoss fór í gær-
kvöldi til Antwerpen og Ham-
borgar-. Selfoss fór í gærkvöldi
frá Bremen til Rotterdam.
Tröllafoss fór frá New York
11. þ. m. til Davisville og Rvk.
Pólstjarnan lestar í Hull 13.—
15. þ. m. til Rvk.
Skip S.I.S.
Hvassafell losar fyrir Norð-
url^mdi. Arnarfell fór frá Rvk.
11. þ. m. áleiðis til Álaborgar.
Jökulfell er í New York.
Veður á nokkrum stöðum.
Suðvestur af íslandi er víð-
áttumikil en nærri kyrrstæð
lægð. Veðurhorfur fyrir Suð-
vesturland, Faxaflóa og miðin:
S og SA gola, sums staðar lítils
háttar rigning eða súld.
Veðrið kl. 8 í morgun: Rvík
SV 1, +6, Sandur SV 3, +6,
Stykkishólmur Á 2, -(-5, Hval-
látur SSA 3, Galtarviti S »1,
Hornbjargsviti logn, +4, Kjör-
vogur logn, —(—2, Blönduós logn,
-|-2, Hraun á Skaga logn, frost-
laust, Siglunes logn, Þingvellir
logn, —(-3, Reykjanesviti logn,
—|—5, Keflavíkurvöllur SV 2, -j-4.
Reykjavíkurbátar.
| Landróðrabátar voru á sjó
í gær og var afli með afbrigð-
um lélegur hjá þeim öllum. —
.Einar Þveræingur 670 kg.,
’Græðir 2480 kg., Svanur 1610
jkg., Dagur 3380 kg., Hagbarður
4780 kg. og Steinunn gamla
‘5400 kg.
Guðmundur Þorlákur, sem er
útilegubátur með línu, kom
seint í gærkveldi með 35 lestir
eftir 4 lagnir og er það ágætur
afli.
Dagur hefir farið í 31 róður
og er samanlagður afli bátsins
116.615 kg. Er það mun lægra
en í fyrra. Hagbarður hefir
fengið um 178 lestir í 43 róðr-
l
lautt flauel
rilffiað
ÞORSTEINSBÚÐ
Sími 81945.
um og Svanur 165 lestir, eftir
svipaðan róðrafjölda.
Sldpaútgerðin.
Hekla fór frá Reykjavík í
gærkveldi vestur um land í
hringferð. Skjaldbreið fer frá
Reykjavík í dag til Austfjarða.
Ármann fer frá Reyjavík í dag
til Vestmannaeyja.
Klofningur í demokrata-
flokknum.
Gera má ráð fyrir, að demó-
kratar í suðurfylkjum Banda-
ríkjanna bjóði fram sérstakt
forstaefni við kosningarnar í
haust.
Eins og menn rekur minni
til, vildu demókratar í nokkr-
um fylkjum ekki styðja Tru-
man í kosningunum, sem fram
fóru 1948 vegna stefnu hans í
mannréttindamálum. Nú hafa
demókratar í Mississippi sam-
þykkt, að þeir séu ekki bundn-
ir af ákvörðun flokksfundar,
sem haldinn verður í sumar.
tfefir starfað
hér í 10 ár.
Ragnar Stefánsson ofursti og
sambandsforingi hjá McGaw
herforingja, yfirmanni varaliðs
Bandaríkjanna hér á landi,
hefir í þessari viku verið alls
10 ár starfandi hér á landi.
Ragnar er öllum af góðu
kunnur, en hann er af íslenzku
bergi brotinn, fæddur á Seyð-
isfirði 13. marz 1909, sonur
hjónanna Jóns Stefánssonar og
konu hans Sólveigar Jónsdótt-
ur. Ragnar er kvæntur ís-
lenzkri konu, Maríu Svein-
björnsdóttur frá ísafirði. Ragn-
ar er búsettur í Hafnarfirði á-
: samt konu sinni og þrem börn-
um..
PLASTtfi
EFNI
120 cm. breitt, kr. 12,50
pr, meter.
JLi i/ p rp a a /
Stúlka
óskast í vist á gott heimili.
Uppl. á Sólvallagötu 68 II.
hæð kl. 4—6 í dag og á
morgun.
Köflóttir
dömu§|iort-
sokkar
komið aftur.
(tDúqjimipm
Laugaveg 26.
MriwlBSi lS|önastlóllir
andaðist í nótt að heimili okkar, Blönduhlið 29.
Ásta M. Guðlaugsdóttir,
Björgvin K. Grímsson.