Vísir - 23.05.1952, Side 2
■ ■ V 1 S I B
Föstudaginn 23. maí 1952
BÆJAR
Grímsstaiaholt
Leiðin er ekki lengri en í
Sveinsbúö
Fálkagötu 2
þegar þér þurfið að setja
smáauglýsingu í Vísi. —
Þær hrífa jafnan —
smáauglýsingarnar
í Vísi.
Nýir tómafar
Föstudagur, 23. maí, — 141.
dagur ársins.
Gangleri,
tímarit Guðspekifélagsins, 1.
hefti 26. árgangs, hefir Vísi
borizt. f ritinu, sem er mikið
að vöxtum, eru margar fróð-
legar greinar um guðspekileg
efni, kvæði og þýtt efni. Grét-
ar Fells: Trúin á guð og trúin
á manninn, Guðspeki, Ávarp
tívans, Jakob Kristinsson: Guð-
ir í útlegð (þýdd grein), Eirík-
ur Sigurðsson: Hvað er Guð-
speki? (þýdd grein).
Aðalfundur
Skógræktarfél. Reykjavíkur
var haldinn fimmtudaginn 15.
þ. m'. Skýrði Einar Sæmunds-
son frá starfsemi félagsins, en
höfuðverkefni þess á sl. ári var
rekstur skóggræðslustöðvar-
innar í Fossvogi og umsjón með
skóggræðslunni í Heiðmörk.
Starfsemi Fossvogsstöðvarinn-
ar er í hröðum vexti og voru
67 þús plöntur afhentar úr stöð-
inni á sl. ári. Um 55 teg. trjá-
plantna eru nú í uppeldi þar,
sumar frá hinum fjarlægustu
löndum, svo sem Eldlandi og
Alaska. Um 40 félög hafa feng-
ið land til skógræktar í Heið-
mörk.
Akranes.
Janúar—marz hefti tímarits-
ins Akranes er nýkomið út,
fjölbreytt að efni og vandað að
frágangi. Meðal annars má
nefna ísland á leiðum loftsins,
eftir Örn Ó. Johnsson forstjóra.
Hitaveita á Akranesi í sam-
bandi við rekstur sementsverk-
smiðjunnar eftir Halldór Hall-
dórsson, Við arineldinn eftir
Ingersoll, Sveinn Björnsson,
forseti íslands, eftir Ólaf B.
Björnsson, Drengurinn, sem
velt var upp úr hveiti, eftir
Ólaf B. Björnssoh, Á íslerid-
ingaslóðum á Jótlandi, eftir
Ólaf Gunnarssón frá Vík í
Lóni, Bóndasonurinn og barón-
essan, eftir Matthías Þórðar-
son frá Móum. Fjöldi mynda
prýðir ritið.
Áheit
á Strandarkirkju afh. Vísi:
í. K. 150 kr. H. G. 50. L. J. 10.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.30 Útvarpssagan:
„Básavík", söguþættir eftir
Helga Hjörvar; V. (Höf. les).
— 21.00 Tónleikar: Orgelnem-
endur úr söngskóla Þjóðkirkj-
unnar leika, og söngnemendur
skólastjórans, Sigurðar Birkis,
syngja. — 21.40 íþróttaþáttur.
(Sigurður Sigurðsson). —
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
— 22.10 „Leynifundur í Bag-
dad“, saga eftir Agöthu
Christie. (Hersteinn Pálsson
ritstjóri) IX. 22.30 Tónleikar
(plötur) til kl 23.
Sláttur
er nú hafinn í Reykjavík. Er
Jakob Thorarensen rithöfund-
ur búinn að slá túnblett sinn
við Ljósvallagötu 10.
Slökkviliðið
var í dag árdegis kvatt að Soga-
mýrarbletti 57. Hafði kviknað
þar í lítilsháttar út frá bilaðri
snúru í handlampa, í hænsna-
búi, skammt frá Bústaðavegs-
húsunum. Var strax slökkt og
urðu engar skemmdir.
Stjórn Stangaveiðifélags
Reykjavíkur
óskar að minna meðlimi félags-
ins á kastkennslu á Árbæjar-
stíflunum í kvöld kl. 8—10.
Ferðafélag íslands
fer upp í Heiðmörk, á morguh
til að gróðursetja plöntur í
landi félagsins. Lagt af stað
kl. 2 frá Austurvelli. Félags-
menn eru beðnir að fjölmenna
sem sjálfboðaliðar.
HrcAAgáta hk 1623
Stúlka
14—16 ára óskast í
sumar. — Uppl. stofa
nr. 2 Hvítabandinu milli
kl. 3—4.
Kristjana Hafstein
andaðist 22. b.m.
Sigurður Jónsson.
Hitt og þetta
Ritstjóri að ensku blaði fékk
teitt sinn svohljóðandi bréf frá
Skota:
Ef þér haldið áfram að birta
Jjessar sögur um nízku og á-
girnd Skota, þá steinhætti eg
-að fá blaðið yðar lánað hjá ná-
jgranna mínum.
í Suður-Noregi í fámennu
sveitaþorpi var einu sinni gam-
all hringjari, sem var annálað-
nr fyrir það hvað hann var úr-
illur á morgnana. Entist geð-
vonzan honum oft langt fram
á daginn.
Einn jóladagsmorgun var
ÆÖfnuður þorpsins kominn í
kirkju, sem oftar. Þar sat göm-
ul kona og virðuleg yzt á bekk
•og langaði hana mjög til að láta
í ljós að hún væri í jóla-skapi
og ætlaði sér að bjóða hringj-
aranum gleðileg jól. Þegar
liann kom inn eftir ganginum
milli stólanna sagði hún ljúf-
mannlega:
— Gleðileg jól, Tobías!
Hringjarinn snarstansar, lít-
ur á hana ónotalega og segir:
— Eg hefi engan tíma til þess
að svara kerlingum.
Lögregluþjónninn: Þér hafið
<enga bjöllu á hjólinu yðar. —
Hvernig haldið þér að þér getið
vakið athygli fótgangandi
manna?
Stúlka á hjóli: — Jæja — get
eg það ekki — eg er þó á stutt-
buxum!
Tveir menn, tóku tal saman á
bekk í skemmtigarði.
— Eruð þér kvæntur? spyr
annar allt í einu.
— Já, eg kvongaðist í fyrra-
dag, svarar hinn, og bætti síðan
við: — En þetta bláa auga Hafði
<eg fyrir.
CiHU AÍMí úa?....
í dálkinum Hitt og þetta í
Vísi fyrir 25 árum segir svo:
Höfðingleg gjöf.
Auðmaðurinn Edmond de
Rothschild barón hefir nýlega
gefið 300 þúsund sterlingspund
(fullar sex milljónir króna) til
þess að koma á fót vísindastofn-
un í
um að
efnafræði
sagt, að engin
heimi hafi áður átt yfir
miklu fé að ráða, og vænta vís-
indamenn mikils af gjöf þess-
ari.
Séð í gegnum þoku.
Brezkum vísindamanni J. L.
Baird í London hefir tekizt að
finna ósýnilega geisla, sem gera
hluti sýnilega í þoku, hversu
svört sem hún er. Enn hefir
hann aðeins gert tilraunir í þá
átt á tilraunastofu Sinni, en
þær hafa gefist svo, að vísinda-
menn, sem séð hafa, láta mikið
af þeim. Búist er við að bráð-
lega verði gerðar tilraunir úti
á hafi, og ef þær gefast vel, sem
vænst er, þá mun uppfinning
þessi verða sjómönnum og
flugmönnum til ómetanlegs
gagns.
Lárétt: 1 Heyhraukur. 3 verri
staðurinn, 5 yngri (útl.), 6 ráð-
herra, 7 á flík, 8 á skipi, 10 : -
mæli, 12 manna, 14 spii íá í
smiðju, 17 félag, 18 bolta.
Lóðrétt: 1 Gluggi, 2 3vti 3
ógnun, 4 gluggar, 6 . .liveiu 9
fiskafæðan, 11 auðuga, i". for-
feðra, 16 ósamstæðir.
Lausn á krossgátu nr. 1822:-
Lárétt: HÍP, 3 bál, 5 OK. 6
hæ, 7 mát, 8 tá, 10 sull. 12 arg,
14 róa, 15 arf, 17 nr. 18 trosna.
Lóðrétt: 1 Hósta, 2 ÍK. 3 bæt-
ur, 4 lallar, 6 hás, 9 árar. 11
ióna, 13 gró, 16 FS.
Skip S.I.S.
Hvassafell er í Rvk. Arnar-
fell er á Akureyri. Jökulfell
losar og lestar fyrir norðaust-
urlandi.
Vestmannaeyjar.
Fram til 8. maí voru gæftir
góðar og afli netjabáta sæmi-
legur en þó mjög misjafn, en.
frá 8.—15. maí hafa gæftir
verið stirðar, einnig hefir afli
netjabátanna tregazt mjög. Þá
hefir afli dragnótabáta og tog-
báta verið með minna- móti.
Veiðarfæratjóri af völdum tog-
ara varð töluvert mikið hjá
netjabátum fyrstu dagana £
mánuðinum. Flestir bátar eru
nú hættir veiðum og er vertíð-
arfólk margt farið eða á för-
um.
Atvinnuhorfur eru slæmar
framundan, þar sem aðallega
er um að ræða fiskþurrkun,,
en hún er nú mest framkvæmd
í þurrkhúsum, þar sem flest-
öll stakkstæði hafa verið lögð
niður.
M.s. Katla
M.s. Katla fór s.l. fimmtu-
dag frá Mobile (U.S.A.) áleið-
is til Antwerpen.
Allt á samai I
§tað
Tökum upp næstu daga fjöl-
breytt úrval af varahlutum í
flestar tegundir bifreiða svo
sem:
Bremsuborða.
Viftureimar
Spindilbolta
Fjaðraboltar
Stýrisenda
Mótorventla
Ventilgorma
Ventilstýringar
Mótorlegur
- Stimpla
Stimpilhringi (Ranco) ■
Vatnsdælur
Kerti 14, 10 og 18 m/m
Rúðuþurrkur
Benzíndælur
Kúlu- og rúllulegur
Þéttikant á hurðir og
Kistulok
Met-lite (kjarnorkukítti)
Fjaðrir og fjaðrablöð
Rafgeyma
Jeppahjólbarða og margt,
margt fleira.
Sendum gegn póstkröfu
hvert á land sem er. — Hjá
okkur er mest úrval, beztar
vörur og lægst verð. —
Allt á sama stað. —
##./. EgiU
\ri Shjú /jrmoit
Veðrið á nokknim stöSum.
Hæð yfir Bretlandseyjum, en
grunn lægð við NA-Grænland.
Horfur: SV gola, súld öðru
hverju.
Veðrið kl. 9 í morgun: Rvík
SSV 3, +7, Sandur SV 4, +6,
Stykkishólmur V 3, +6, Hval-
látur VSV 4, Galtarviti V 7,
Hornbjargsviti SV 3, —)—6, Kjör
vogur V 8, +5, Blönduós SSV
4, +7, Hraun á Skaga SSV 5,
+7, Siglunes SV 6, +7, Akur-
eyri S 4, -)-9, Vestmannaeyjar
A 1, +8, Þingvellir SA 2, +6,
ReykjanesViti SSV 2, -)-9,
Keflavíkurvöllur SSA 5.
Hafnarfjörður.
í Hafnarfirði var róið al-
mennt fram til 10. maí; 7 bát-
ar veiddu í net en 14 bátar á
línu. Gæftir voru góðar, en
afli rýr á þessu tímabili, bæði
hjá línu- og netjabátum. —
Nokkrir þessara báta skiptu
yfir í togveiði í byrjun mánað-
arins og var afli þeirra sæmi-
legur. Beita varð næg alla
vertíðina, enda veiddist mikið
af loðnu á vetrinum nálægt
Keflavik. Var henni beitt bæði
nýrri og frystri. Þessi vertíð
í Hafnarfirði er talin einhver
sú lélegasta í lengri tíma, sér-
staklega hvað viðvíkur línu-
bátunum, en hinsvegar er afli
netjabátanna mun betri'og má
teljast allsæmilegur.
Aflinn hefir mest verið
frystur og saltaður, en þó hef-
ir einnig nokkuð verið hert.
Enn er ekki vitað nákvæmlega
um aflabrogð einstakra báta,
né róðrafjölda, né heldur
heildar-aflamagn.
K.F.U.K. VINDÁSHLlÐ
Hlíðarkvöldvaka
1 kvöld kl. 8V2 e.h. efnir
Sumarstarf K.F.U.M. til
kvöldvöku í húsi K.F.U.M.
& K. til ágóða fyrir sumar-
starf félagsins í Vindáshlið.
Fjölbreytt dagskrá, m.a.:
Einsöngur, kvennakór,
upplestur, píanóleikur,
o. fl. Einnig verður selt
kaffi.
Komið, drekkið Hlíðar-
kaffi! — Styrkið sumar-
starfið! — Alíir velknmnir.
Mesjkvúkingar —
Æfnfn firöingar
Er stödd í bænum
nokkra daga hjá Selbúð
2. —
Ingibjörg Ingvars.