Vísir - 13.06.1952, Síða 8

Vísir - 13.06.1952, Síða 8
LÆKNAB O G LYF JABÚÐIE Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið í Læknavarðstofuna, sími 5030. Vörður er í Laugavegsapóteki, sími 1618. ¥1 LJÓSATÍMI bifreiða og annarra ökutækja er kl. 23.25— 3,45. Næst verður flóð í Reykjavík kl. 21.10. Föstudaginn 13. júní 1952 Frækið þýzkt knattspyrnuEið kemur uudir mátiaiamöL ]>æð er bbi* íélö^escai í Iíbbiíb b*1uibcl se asa. 26. júní næstkomandi munu lcoma hingað til lands 15 þýzkir Jknattspyrnumenn frá knatt- spyrnusambandi Rínarlanda. Verður þetta án efa. stærsti og síðasti íþróttaviðburður ársins. Aðdragandi að komu knatt- spyrnumannanna er sá, að árið 1950 buðu knattspyrnufélögin Fram og Víkingur þýzkum iknattspyrnuflokki hingað til lands, og hlutu íslenzku félög- in í þess stað heimboð hjá Þjóð- verjum á síðastliðnu ári, eins og menn rekur eflaust minni í. Nú var það ósk knattspyrnu- manna og þeirra, er góðri knattspyrnu unna, að teknar yrðu upp gagnkvæmar heim- sóknir, þannig að íslenzku fé- lögin stæðu straum af kostnaði við komu þýzku knattspyrnu- mannanna, og á alveg sama hátt munu Þjóðverjar standa .straum af komu íslendinganna til Rínarlanda, en í ráði er að áslenzkir knattspyrnumenn fari utan næsta haust. Kappleikar Þjóðverjanna. Eins og áður er sagt, munu Jjýzku knattspyrnumennirnir koma hingað til Reykjavíkur 26. júní, og dveljast þeir hér til 5. júlí, er þeir halda heim á Jeið. Á því tímabili munu þeir lieyja 4 kappleiki. Fyrsti leik- urinn verður háður við Fram, •er gengst fyrir komu hinna crlendu gesta hingað. Annar leikurinn verður svo við úrval úr Val og K.R. íslandsmeistar- arnir, Akurnesingar munu leika 3. leikinn við Þjóðverjana. Að síðustu munu hinir þýzku knattspyrnumenn leika við úr- val úr Reykjavíkurfélögunum. Víkingur mun ekki leika við Þjóðverjana að þessu sinni, þar eð þeir halda til Færeyja í það mund, er Þjóðverjarnir koma hingað. Má fullyrða að þetta verða skemmtilegustu og hörðustu knattspyrnukappleikir þessa árs. Liðið, sem kemur hingað, er úrval beztu knattspyrnu - manna úr 4—5 borgum í Rín- arlöndum. Gísli Sigurbjörnsson skýrði fréttamönnum frá þessu í gær- dag, og mun blaðið skýra nánar frá tilhögun leikanna, svo og frá niðurröðun kappliðanna, áður en hinir þýzku knatt- spyrnumenn koma til landsins. Maður feSIur af húsþaki. Það slys vildi til í gær, að maður féll niður af þaki út- byggingar Hótel Borg, og meidd ist allilla. Maður þessi, Kristján Jökull Pétursson, var að vinna að við- gerð á þaki svonefnds „gyllta salar“ hótelsins, e útbygging sú liggur að Shellportinu. Féll 'Kristján Jökull niður í stein- steypt portið og mun fallið vera um þrír og hálfur metri. Kom hann niður á bakið og meiddist illa. Var hann fluttur í Lands- spítalann og kom í Ijós, að hann hafði hryggbrotnað. Líðan hans er etfir atvikum. AEexanáer á leið fii Kórem. Einkaskeyti frá AP. Tokyo í morgun. Alexander lávarður, land- varnaráðherra Bretlands og Mark Clark hershöfðingi, fóru loftleiðis í morgun frá Tokyo til Kóreu. í gær ræddi Alexander lengi við Mark Clark og helztu for- ingja hans í höfuðstöðvum hans í Tokyo. Alexander heilsaði líka upp á Hirohito keisara. Rússar eiga mesta skóg- arflæmi í heiminum. Það þekur hálfan þriðja milljarð ekra. f fyrsta skipti í 15 ár, hafa Káðstjórnarríkin gefið út *kýrslu um hina gífurlegu stærð skóga í Sovétríkjunum, að því er segir í austur-þýzka jblaðinu „Austur-Evrópa“. Þar í landi eru 2.500,000,000 ekrur þaktar skógi, og eru þær upplýsingar hafðar eftir rúss- :neska ráðherranum V. Kolda- nov. Heildareign Rússa á timbri er um það bil 59.000.000.000 teningsmetrar, eða meira en 'helmingi meira en timbureign Bandaríkjanna, Kanada, Sví- þjóðar og Finnlands samanlagt. Upplýsingar um skógaeign Rússa og birgðir þeirra af timbri eru mjög athyglisverðar, •eins og nú standa sakir, vegna þess að nýlega tilkynntu ráða- mennirnir í Moskvu, að þeir hefðu í hyggja að auka útflutn- dng á timbri til landanna í Vestur-Evrópu, ef núverandi verzlunarhöftum væri aflétt. — Um það bil 60% eða 1.500- 000.000 ekrur (ekra er ca 0.4 hektar) eru þaktar fullvöxn- um trjám, sem eru hentug í bjálka. Um 78% af þessum trjám eru lerkiviður, birki og aðrir góðviðir. Staðreynd, sem Koldanov sýnd fram á, er, að 55% af fullvöxnum trjám í rússneskum skógum eru meira en aldar- gömul það er áð segja orðin of gömul, en á sama tíma eru aðeins 14% af trjám 40 ára gömul. Þar sem alls ekkert skógarhögg er stundað í mörg- um stórskógum RússlamL, er það augljóst, að mikill hluii af skógum landsins fer forgörðum, þar sem gömul tré deyja, falla, þjást af sjúkdómum af völdum skordýra eða verða skógareld- um að bráð. Alexander, landvarnaráðherra Breta, sem nú er á leið til Kóreu til þess að kynna sér ástandið þar. Alexander var í gær í Tokyo og géklc á fund Japans- keisara. (jón H. Guð- mundsson ritstjérL Jón H. Guðmundsson rit- stjóri lézt í gær eftir langa legu í sjúkrahúsi. Jón var maður á bezta aldri, 45 ára og var banamein hans hjartabilun. Jón hafði haft.rit- stjórn vikublaðsins „Vikunnar“ um langt skeið á hendi, en auk þess var hann kunnur fyrir önn ur ritstörf, ekki sízt smásögur sínar, og hafa komið út eftir hann margar bækur. Þessa ágæta manns verður síðar getið hér í blaðinu. 3000 fangar voru fluttir til á Koje-ey í morgun, án þess að til árekstra kæmi. Bændaförin hefst í dag. Bændur úr Vestur-Húna- vatnssýslu leggja af stað í kynn isföt til Shðurlands í dag. Þátttakendur verða 70. Fyrsta daginn verður ekið suður yfir heiði og um Borgar- fjarðarhérað og m. a. komið við á Hvanneyri og síðan skoðuð Andakílsárvirkjunin, ekið um Þingvöll til Laugarvatns og gist þar. Þaðán verður farið næsta dag til Skálholts, Geys- is og Gullfoss og dreifa bænd- ur sér þar næst um Hreppana og gista hjá ýmsum bændum þar. Þar næst verður farið um Sámsstaði og Múlakot til Vík- <jr og svo allt til Kirkjubæjar- klausturs. — í bakaleiðinni verður komið við í Gunnars- holti, Mjólkurbúi Flóamanna og víðar, og þaðan til Reykjavík- ur. Hinn 18. verður lagt af stað norður með viðkomu í Reyk- holti. Leonida Beflon t«»32 síS'siÍBnfgvess'i. Laugardaginn 7. þ.m. hélt ítalski tenór-söngvarinn Leon- ida Bellon hljómleika hér í Nýja Bíó með undirleik Fritz Weisshappel. Er hér á ferðinni stór-glæsilegur söngvari og hreinræktaður ítali með öll einkenni ítalska skólans, enda minnist eg ekki að hafa heyrt jafn-lausa og óþvingaða radd- beitingu hér um slóðir a.m.k. Þetta er voldugur hetju-ténór, en getur þó verið undur þýður og blæfagur, þar sem hann vill það við hafa, einkum þó á hæsta og lægsta sviðinu. Mið- sviðið virðist dekkra og ekki jafn tært, en vera má að mikil hitasvækja, sem var í húsinu, hafi átt nokkurn þátt í því. Um lagræna túlkun var eg ekki ávallt samdóma smekk söngvarans, og virtist mér hann hafa nolckra tilhneigingu til lausleiks við ritháttinn á köfl- um, en raunar var hér eingöngu um Operu-aríur að ræða, og maðurinn mun fyrst og fremst vera óperusöngvari. En forvitni hefði tnér verið á, að heyra hann túlka ljóðræn viðfangs- efni, því að röddin er bæði stórbrotin og fögur, sem að ofan greinir. — Undirleikur Weisshappels var með miklum ágætum, og bárust báðum lista- mönnunum blómvendir. Hús- fyllir var, og raunar rúmlega það, og undirtektir áheyrenda mjög innilegar, enda varð söngvarinn að syngja nokkur aukalög. Þakka eg Tónlistarfélagi Akureyrar fyrir að fá þennan snilling hingað, því að hér var um stóran tónlistarviðburð að ræða fyrir Akureyri. Akureyri, 9. júní 1952. Björgvin Guðmundsson. í Persíu hefir verið bannað að láta dansmeyjar skemmta gestum næturklúbba. Mýtt gistihús í Borgar- nesi tekið ■ notkun. S.l. sunnudag var tekin í notkun efri hæð gistihússins sem er í smíðum í Borgarnesi. Er það með ráðin nokkur bót á hinum miklu erfiðleikum, sem verið hafa á því að greiða fyrir ferðamönnum, síðan er gisti- húsið brann. Á hæð þeirri, sem nú hefir verið tekin í notkun, er lítill salur, sem notaður verður sem samkomu- og borðsalur, og gestaherbergi. Hæðin var vígð með fermingarveizlu. Á neðstu hæð gistihússins verða skrif- stofur, veitingasalur mikill o. fl. Alllangt mun eiga í land, að veitingahúsið verði fullgert. vegna ýmissa erfiðleika, en bót í máli, að mikilvægum áfanga hefir verið náð. Sýsla, bæjar- félag og ýmsar stofnanir og einstaklingar standa að hinu nýja gistihúsi. Gistihússstjóri er Ingólfur Pétursson. Unnið er áfram að byggingu sundlaugar vestan skrúðgarðs- ins í Skallagrímsdal. Verður hún rúmlega 12 metrar á lengd. Búið er að steypa botninn. Framkvæmdir eru nýlega hafnar við byggingu Barna - skóla Mýrarsýslu við Stafholts- veggjalaug. Eldborgin mun fara á síld- veiðar í sumar, en tryggt mun, að skip verður í förúm í sumar milli Borgarness og Reykja-’ víkur, er hún hættir þeim ferðum. Gróður er sama og enginn. Var kominn vel á veg fyrir norðanveðrið, en þá hljóp kyrkingur í allt, og nýgræð- ingur króknaði. í þíðunni að undanförnu fór heldur að lifna yfir en allur gróður bæði á tún um og ýtjörð er sára lítill. — Gunnar Myrdal Frh. af 1. síðu. eitthvað alvarlegt fyrir erum við jafnan kvaddir til ráða, t.d. vorum það við sem sömdum um loftbrúna til Berlínar árið 1949.“ Rétt í þessu flaug flugval yfir sendiherrabústaðinn. „Er mikið um flug hér?“ spyr Myr- dal. „Aj.lt að því þriðji hluti ís- lenzku þjóðarinnar flýgur ár hvert.“ Prófessorinn leit hálfundr- andi upp til fugla himinsins og farþegaflugvélar frá Flugfélagi íslands, sem var um það bil að lenda á Reykjavíkurflugvelli. Jafnvel forstjóri efnahags- nefndar Sameinuðu þjóðanna áttar sig ekki á því, að gamla ævintýralandið hans er orðið land tækni og mikilla framfara. Prófessor Gunnar Myrdal heldur fyrirlestur í Háskólanum á mánudagskvöldið. Eins og kunnugt er, er hann einn af lærðustu mönnum Evrópu, svo að mörgum mun leika hugur á að hlusta á hann.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.