Vísir - 20.06.1952, Síða 1

Vísir - 20.06.1952, Síða 1
42. árg. Föstudaginn 20. júní 1952 236. tbl. Sænskri bridgesveit boðið hingað í sumar. Bæjarkeppíii iiiilli Bvíkur og Stokkhóluss. Vb. SÞugný neg Sssnséss Seiim síltSms': Bridgefélag Reykjavíknr hef- ir boðið hingað til lands sænskri 1 úrvals bridgesveit og er hún væntanleg síðari hluta sum- arsins. Fyrirkomulag keppni við sveit þessa verður með þeim hætti að fyrst verður bæja- keppni milli Reykjavíkur j; Stokkhólmsborgar. Síðan kepp- ir sænska sveitin við ýmsar beztu sveitir hér í Reykjavík og einnig er tvímenningskeppni fyrirhuguð í sambandi við komu hennar hingað. Upp úr næstu helgi efnir Bridgefélag Reykjavíkur til almennar tvímenningskeppni í bridge og verður úrslit þeirrar keppni látin ráða hverjir keppa við Svíana í sumar, að bæja- keppninni lokinni. í þessari tvímenningskeppni, sem nú er að hefjast, er öllum heimil þátttaka og skulu þeir þá tilkynna þátttöku sína hið fyrsta í síma 6006, 6557, 5089 og 7038. Svíar eru taldir afbragðs góð- ir spilamenn og á undanförnum Evrópukeppnum hafa þei' reynzt í fremstu röð og þess skemmst að minnast að 1950 tók sænsk sveit, ásamt tvéimur íslendingum þátt í heimsmeist- arakeppni þeirri, sem þá var háð í Bermuda. Urðu þeir þar aðrir í röðinni. Reykvískir spilamenn vænta. sér mikils af komu hinnar< sænsku sveitar hingað til lands í sumar og að margt megi af henni læra. -----1--—. Þjóiverjar uriu hlutskarpastir. Fyrir nokkru unnnu Þjóð- vérjar fyrsta sigur sinn í kapp- akstri eftir að stríðinu lauk. Voru tveir Mercedes-Benz-’ bílar fyrstir í 24 klst. kapp- akstrinum, sem árlega fer fram í Le Mans í N.-Frakklandi, en þá er ekið þindarlaust 24 klst. á 13 km. langri hringbraut. Meðalhraði fyrsta bílsins var 155 km. á klst. Þriðji bíllinn — ensk-amerískur Nash-Healey — var 200 km. á eftir þeim þýzka, þegar þeir komu í mark. -----*---- Ýmist í ötía eða eyra. Sidney. (A.P.). — Eftir margra mánaða þurrka, sem hafa eyðilagt gróður á miklu flæmi víða um landið, hefir nú brugðið til rigninga á þessum hjara Ástralíu. Á fyrsta sólar- hring úrkomunnar rigndi 300 mm. og hafa margir orðið að flýja heimili sín. Fram vann Víking — 1:0. 7 leikur íslandsmótsins var leikinn í gærkveldi. Lauk honum með sigri Fram yfir Víking, með einu marki gegn engu. Markið var sett á seinustu mínútu fyrri hálfleiks. Leiksins verður getið nánar hér í blaðinu á morgun. ------...... . Akranes tapaði fyrir Lilleström. Lilleström vann Akranes í gær með 5:2. Leikurinn var lengi vel jafn, en undir lokin fekk Lilleström yfirhöndina, og lauk leiknum með 5:2. Vörn Akurnesinga mun hafa staðið sig vel, og þó sérstaklega markvörður. Brezklr mámamenn óánægðir. Unnið ai endurbótum á vinnslutækjum. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Bretar eru stöðugt að koma jnámurekstri sínum í betra horf. Er m a. verið að koma fyrir nútíma vinnutækjum í fjöl- mörgum námum, og stöðugt er verið að leita að nýjum námum og er vinnsla hafin í allmörgum nýjum námum. Talsverðrar óánægju gætir nu meðal kolanámumanna í Bretlandi, þrátt fyrir bættan hag að ýmsu leyti. Hafa skozkir kolanámumenn t. d. farið fram á 30% kauphækkun, og kröfur um hækkað kaup hafa komið fram í Englandi, og komið til verkfalla af þeim sökum, en í óþökk stjórnar námumanna- sambandsins, sem vill fara samningaleið í lengstu lög. Ennfremur gætir stöðugt óá- nægju yfir því meðal námu- manna, að allmargir ítalskir námumenn eru starfandi í Bretlandi. Ýmsar orsakir valda því, að afköst í námunum eru minni en æskilegt væri, t. d. varð kostn- aður í fyrra af fjarveru námu- manna, sem heima dvöldust vegna gigtveiki að eins, 15 milj. stpd. Hér sézt Max Conrad, meðan hann hafði viðdvöl á Keflavíkur- fhigvelli á þriðjudag og miðvikudag. Hann mun nú vera kominn til Noregs, en samanlagður flugtími hans frá heimili hans í Minneapolis var 26 klst. Conrad setti nýlega flugmet vestan hafs, er hann flaug frá Los Angeles í Kaliforniu — 2461 mílu á 24 klst. 54 mín. í einum áfanga. Fyrra metið fyrir samskonar flugvél var 2160 mílur á 29 klst. ráttukjarkur kommúnista á Malakkaskasa bilar. Forsprakkar þeirra gefast upp unvörpum. Einkaskeyti frá A.P. — London í morgun. Sir Gerald Templer, landstjóri Breta á Malakkaskaga, sem dvelt í London þessa dagana, til viðræðna við stjórnarvöld landsins, telur líkur benda til, að baráttukjarkur kommúnist sé tekinn að bila. Æ fleiri forsprakkar þeirra gefast upp og upp á síðkastið hafa að meðaltali 93 uppreist- armenn verið felldir á mánuði. Jafnframt hefir dregið úr mann tjóni í hersveitunum, sem berj- ast við þá, eða um 30%, en manntjón meðal almennings hefir minnkað um 18%. Árangurinn má þakka að verulegu leyti auknu samstarfi við almenning, sem verður æ fúsari til þess að láta yfirvöld- unum í té upplýsingar, sem að gagni mega koma. Templer kvað um mikla framför að ræða á öðrum svið- Nýr hershöfðingi í Keflavík. í morgun kom til Keflavíkur Ralph O. Brownfield, hershöfð- ingi, sem tekur við af E. J. Mc- Gaw hershöfðmgja, er hann fer af landi brott síðar í dag. < Brownfield hershöfðingi hef- ir til skamms tíma verið aðstoð- ar-yfirmaður flugvalla í skrif- stofu varaformanns foringja- ráðs flughersins í Washington. um, en efnahagshorfur ríkjanna á Malakkaskaga væru miður góðar vegna lækkandi verðs á gúmmíi, sem er aðalframleiðsla landsins. Yrði að koma í veg fyrir, að verri efnahagsafkoma spillti árangrinum af því, sem þegar hefir áunnist. ---—♦----- Vikju ekki fresta umræðum. Einkaskeyti frá A. P. — London í morgun. í neðri málstofu brezka þingsins var rætt í alla nótt frumvarp til fjárhagslaga (finance bill), sem tengt er fjárlögunum og hafði ríkis- stjórnin aðeins 7 atkvæða meirihluta við eina atkvæða- greiðsluna, en það er naumasti meirihluti, sem hún hefir haft við atkvæðagreiðslu til þessa. Að lokinni þessari atkvæða- greiðslu báru jafnaðarmenn fram tillögu um að fresta um- ræðum, en hún var felld með 14 atkv, meidhluta. Bæði nýir og gamEii4 fara senniiega á þær veilar. ftbrðanbátar komast Jefnvei út í saæsfu viku. Viðgerð fer nú fram í slippn- um á botnvörpungnum Þórólfi, en í ráði mun, að hann verði gerður út á síld. Tveir aðrir gömlu togaranna, Skallagrímur og Tryggvi gamli, hafa einnig verið í slipp, að undanförnu, og verða gerðir út á síld. Heyrst hefir og, að einbverjir nýsköpunartogaranna kunni að verða gerðir út á síld, en fulln- aðarákvarðanir munu ekki enn hafa verið teknar í því efni. Þó má fullvíst telja, að Egill Skallagrímsson og Siglufjarðar- togararnir Elliði og Hafliði verði gerðir út á síld. Ennfremur eru líkur fyrir, að hér við bættist einir fimm ný- sköpunartogarar, ef hagkvæm- ir samningar nást um kaup og kjör við sjómenn. Karfaveiðar. Togararnir, sem eru á karfa - veiðum, hafa aflað vel seinustu daga. í Reykjavík er verið að landa úr Karlsefni, sem kom með fullfermi, og frétst hefir, að Júlí úr Hafnarfirði, sem fór aftur á veiðar 13. þ.m., sé vænt- anlegur inn á mánudag, eða eftir um viku för. Hann hefir aflað ágætlega. Bjarnarey er á leið til Vestmannaeyja með fullfermi af karfa eftir 5 daga. Jón forseti kom til Aberdeen í gær og leggur þar saltfisk á land en togarinn var á veiðum við Bjarnarey sem kunnugt er. Togarinn kemur hingað frá Aberdeen. Vélbátaflotinn. Þá mun *og kominn nokkur hreyfing á að senda vélbáta- flotann á veiðar, og nyrðra er farið að búa báta svo að þeir munu geta farið út í næstu viku. Hér eru menn einnig að byrja síldveiðaundirbúninginn. Leita síldar. Samkv. upplýsingum frétta- ritara blaðsins á Siglufirði höfðu engar aflafréttir borizt frá Særúnu, sem fór með síldar- nót í fyrrakvöld. Annar bátur, Dagný, er farinn í síldarleit. Kalt veður er fyrir norðan og snjóaði ofan í tún á Siglufirði í nótt. Ekki er búist við að nein síld veiðist fyrr en eftir a.m.k. einn hlýjan dag. Öll fyrsta síld- in fer í beitu, eins og venja hefir verið.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.