Vísir - 06.08.1952, Side 2
22
Hitt og þetta
Lana Turner kom einu sinni
í veitingastofu í Hollywood, og
Lar inn Kálsinn festi, sem iítil
flugvélarmynd var fest við.
Einhver gestanna hafði orð á
því, að flugvélamyndin væri
f alleg og |>á varð öðrum að orði:
„Hún stenzt þó ekki saman-
burð við flugvöllinn.“
•
Karlar í skozkum smábæ
höfðu fyrir sið að sitja á torginu
og einu sinni þóttust þeir hafá
fundið upp á smellnum leik. Ef
drengur gekk framhjá buðu
þeir honum að velja á milii
pennys og sex pence, og hlóu
mikið, því að drengirnir völdu
alltaf pennyið, af því að sá
peningur var stærri.
Maður nokkur, sem sá þetta
nokkrum sinnum, spurði loks
einn drengjanna hvers vegna
hann væri svo heimskur að
velja þann pening, sem væri
xninna virði.
„Ég er alls ekki heimskur'i,
svaraði drengurinn. „Ég veit
bara, að ef ég vel sex pensin,
hætta þeir þessu strax.“
•
Það var í litlu matsöluhúsi,
og gesturinn var búinn með
kjötréttinn. Þjónninn gekk til
hans og spurði:
„Hvernig fannst herranum
buffið?“
„Það var mátulega meyrt.
Viljið þér koma þakklæti mínu
áleiðis?“
„Til matsveinsins?"
„Nei, til knapans.“
•
Umboðsmaður tryggingafé-
lagsins var eiginlega undrandi
yfir þvi, hvað kaupsýslumað-
urinn var fús til að tryggja alla
skapaða hluti. Hann tryggði yf-
irleitt hvern hlut í skrifstofun-
um, nema stóra klukku, sem
var í „almenningnum.“ Hana
vildi hann ekki tryggja.
„Hún hlýtur að vera mikils
virði“, sagði umboðsmaðurinn.
„Já, hún er mjög dýrmæt.“
„Þá munduð þér verða fyrir
miklu tjóni, ef henni væri stol-
ið.“
„Það er engin hætta á því.
Starfsfólkið hefir ekki af henni
augun allan daginn“, sagði
kaupsýslumaðurinn.
>»»•«•••••
Clm Mmi Va?....
Úr Vísi þann 6. ágúst 1922:
Skip dregið á flot.
Símskeyti hefur borizt til
skrifstofu A. V. Tulinius frá
björgunarskipinu Geir, og segir
þar, að Geir hafi náð á flot
enska botnvörpungnum Lark
II., sem strandaði fyrir eitthvað
tíu dögum austur á söndum. —
Sú var tíðin, að hvert skip þótti
algerlega tapað, sem strandaði
þar á söndunum, en nú hefur
Geir náð þar á flot tveim skip-
um, — að ógleymdri „Agnes“,
sem þýzku botnvörpungarnir
höfðu á brott með sér í sumár.
Á batavegi
og úr allri hættu eru stúlkur
þær, sem meiddust í bifreiðar-
slysinu um daginn. — ekki var
það rétt, sem sagt var fyrir
helgina, að einn farþeganna í
bifreiðinni hefði staðið utan á
henni. Hann sat í sæti sínu,
þegar slysið varð.
V í S I R
Miðvikudaginn 6. ágúst 1352
BÆJAR
^rettir
Miðvikudagur,
6. ágúst, — 219. dagur ársins.
Rafmagnstakmörkun
verður sem hér segir á morg-
un: Frá kl. 10.45—12.15 2.
hluti.
Spyrjið
ávalt um innlenda framleiðslu
fyrst og kaupið hana að öðru
jöfnu.
Umsjónarmannsstaðan
við Langholtsskólann í Reykja-
vík er laus til umsóknar. Skrif-
legar umsóknir sendist fyrir 15.
ágúst n. k. til skrifstofu
fræðslufulltrúa, Hafnarstræti
20, en þar eru gefnar nánari
upplýsingar.
Sundhöll Reykjavíkur
er lokuð um þessar mundir
vegna viðgerða.
Útvarpið í kvöld:
20.30 Útvarpssagan: „Gras-
grónar götur“, frásögukaflar
eftir Knut Hamsun; IX. —
þáttalok (Helgi Hjörvar). 21.00
íslenzk tónlist: Lög eftir Svein-
björn Sveinbjörnsson (plötur).
21.25 Frá Austurlandi: Samtal
við Friðrik Stefánsson bónda á
Hóli í Fljótsdal (tekin á stál-
þráð þar eystra). 21.45 Tón-
leikar (plötur). 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. 22.10 Dans- og
dægurlög (plötur).
„Stefnir“,
tímarit Sjálfstæðismanna, 2.
hefti þessa árs, er nýkominn út.
Ritið flytur frásögn um herra
Ásgeir Ásgeirssoh, forseta ís-
lands, svo og mynd af honum,
en auk þess er þar að finna Við-
sjá eftir Magnús Jónsson alþm.
frá Mel, Innlend stjórnmál,
eftir Sig. Bjarnason alþm., en
þeir eru jafnframt ritstjórar
Stefnis. Þá ritar Baldur Jóns-
son cand. mag. um íslenzk
handrit í dönskum söfnum, en
Einar Mathiesen ritar um frum-
kvöðla stórútgerðar í Hafnar-
firði. Loks flytur ritið ýmislegt
UwMyáta Hf. 1683
Lárétt: 1 hver, 6 vinnur, 8
ending, 9 rothögg, 10 svefn, 12
bein, 13 ending, 14 dýramál, 15
blóm, 16 meiddur.
Lóðrétt: 1 frost, 2 rymur, 3
ben, 4, það (enska), 5 væta, 7
bilar, 11 mælir, 12 straumui
14 fleti, 15 gu§.
Lausn á krossgótu nr. 1682:
Lárótt: 1 Baldur, 6 Jótar, 8
ás, 9 ká, 10 Góa, 12 Pan, 13
um, 14 MA, 15 las, 16 kassar.
Lóðrétt: 1 Bergur, 2 Ijáa, 3
dós, 4 út, 5 raka, 7 rándýr, 11
óm. 12 pass, 14 mas, 15 la.
efni annað, til fróðleiks og
skemmtunar.
E/s Persier.
Rangminni var það, að e/s
Persier, hefði sokkið hér inni
á Sundum, svo sem frá var
skýrt í blaðinu í gær. Skipið
var flutt upp í Kleppsfjöru, en
misseig þar og brotnaði. Við
það var gert hér til bráðabirgða
en skipið síðan dregið til er-
lendrar hafnar til frekari við-
gerðar. Eru lesendur beðnir
velvirðingar á þessu.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína ungfrú Theodóra
Sveinsdóttir, Bústaðaveg 75 og
Kristinni Tryggvason c/o
Nathan & Olsen h.f.
Togararnir.
Geir, sem að undanförnu
hefir lagt upp á Patreksfirði,
kom í fyrradag, og var landað
úr honum í gær um 133 lest-
um. Kom hann hingað vegna
þess, að hann komst ekki að
vestra, en þar var verið að
landa úr b.v. Ólafi Jóhannes-
syni. — Hér í Reykjavík er
verið að landa úr Neptúnusi,
sem kom af saltfiskveiðum við
Grænland.
Lestrarfélag kvenna
Reykjavikur
hefur flutt bókasafn sitt frá
Laugaveg 39 á Grundarstíg 10.
Verður safnið opið til útlána
hvern mánudag kl. 4—6 og 8—
9, næstu tvo mánuðina, en í
október næstk. hefst hin Venju-
lega vetrarstarfsemi félagsins.
M.s. Katla
fór á þriðjudagskvöld frá Ála-
börg áleiðis til fslands.
Frjáls verzlun,
5.—6. hefti þessa árs, er ný-
komin út, læsileg að vanda. Á
kápusíðu er falleg mynd frá
Vaglaskógi, sem Páll Jónsson
hefir tekið. Aí efni ritsins að
þessu sinni má nefna fróðlega
frásögn Oscars Clausens um
Höltersbræður, ennfremur
grein Ingvars N. Pálssonar um
lífeyrissjóð verzlunarmanna,
grein um Orlof, fyrstu alþjóð-
legu ferðaskriístofu landsins,
fréttir og margt fleira til fróð-
leiks og ánægju. Margarmynd-
ir prýða ritið, sem er vel úr
garði gert.
EGGERT .CIÁESSEN
GÚSTAF A, feVEINSSON
hœstaréttartögmenn
Templarasundi 5,
(Þórshamar)
AUýkenar lögtræðistörf.
Fasteignasala.
Qsetan fylgir tré
SIGURÞOR, 4.
Margar gerðir íxriniggjanát,
Sildaraflinn aðeins brot af
afiamagninu í fyrra.
Sáralítil veiði sl. viku.
Fyrir helgina, eða á miðnætti
á laugardag 2. ágúst, var síld- j
araflinn Norðanlands orðinn'
alls 28.142 tunnur í salt, 26302'
mál í bræðslu, 5432 tunnur
frystar og 3702 mál af ufsa.
Er afli þessi aðeins hluti
aflamagnsins í fyrra og minni
afli, en fengist hefur í mörg
undanfarin ár, þótt þau hafi
flest verið hrein aflaleysisár.
Vikuna 27. júlí til 2. ágústs
mátti heita aflalaust, en veður
var einnig óhagstætt. Saltaðar
voru í vikunni 2435 tn. og tæp-
ar 7 þús. turinur fóru í bræðslu.
Fer hér á eftir listi yfir þau
skip, sem höfðu aflað 500 mál
eða meira á síldarvertíðinni
fyrir norðan:
Botnvöruskip:
Jörundur Akureyri 1601
Tryggvi gamli Reykjavík 625
Þórólfur Reykjavík 988
Mótorskip:
Akraborg Akureyri 2299
Ásbjörn ísafirði 651
Ásgeir Réykjavík 563
Bjarni Dalvík 558
Björgvin Keflavík 905
Björn Jónsson Reykjavík 628
Dagný Siglufirði 498 og 1830
Einar Halfdáns Bolungavík 956
Einar Ólafs. Hafnarf. 503 og 77
Einar Þveræingur Ólafsf. 591
Fagriklettur Hafnarfirði 1048
Fanney Reykjavík 800
FIosi Bolungavík 1182 :
Garðar Rauðuvík 519 j
Grundfirðingur Grafarnesi 719
Guðm. Þorlákur Rvík 1350 {
Gullfaxi Neskaupstað 557
Gylfi Rauðuvík 863
Hagbarður Húsavík 671!
Haukur I. Ólafsfirði 1398
Heimaskagi Akranesi 576
Ingvar Guðjónsson Akur. 1559
Jón Guðmundsson Keflavík 905
Jón Finnsson Garði 769'
Keilir Akranesi 67T
Marz Reykjavík 522
Muninn II. Sandgerði 609
Nanna Reykjavík 745
Njörður Akureyri 875
Páll Pálsson Hnífsdal 846
Pétur Jónsson Húsavík 885
Rifsnes Reykjavík 745
Smári Hnífsdal 559
Smári Húsavík 1041
Snæfell Akureyri 1456
Stígandi Ólafsfirði 935
Súlan Akureyri 841
Sæfari Keflavík 549
Særún Siglufirði 545'
Víðir Akranesi 504
Viðir Garði 534
Von Grenivík 722
Vörður Grenivík 900
Ægir Grindavík 811
Fleiri en einn
ir.
Fyrir skemmstu var frá því
skýrt í blöðum bæjarins að ráð-
inn hefði verið hjá fyrirtæki
í bænum hatíagerðarmaður, er
væri eini fagmaðurinn, lærður
hér á landi. Vísi hefur verið
bent á, að þetta sér ekki alls
kostar rétt.
Svo er mál með vexti, að
Ragnhildur Runólfsdóttir, sem
rekur Karlmannahattabúðina í
Hafnarstræti 18, hefur unnið að
hattaviðgerðum í 30 ár, en iðn-
ina lærði hún í Kaupmannahöfn
hjá norskum hattagerðarmanni,
Rasmussen Tengesdal að nafni.
Tíðindamaður Vísis hefur átt
þess kost að kynna sér hand-
brögð Ragnhildar við hattavið-
gerðir, og er ljóst, að vel og
vandlega er unnið. Vinnur allt í
höndunum, og leggur áherzlu á,
að varast beri að eyðileggja
flókann í hattinum í hi’einsun.
Hún skiptir og um hattbönd og
svitabönd á höttunum ef þess
er óskað, og hefur vinna henn-
ar líkað mjög vel. Verði er
mjög stillt í lióf.
Er þossa g'etið hér, ekki til
þess að draga kunnáttu eða
hæfni annarra, sem að hatta-
viðgerðum vinna, í efa, heldur
til þess að léiðrétta þá missögn,
að ekki sé nema einn fagmaður
hér í þessari grein.
íslenzki ráð-
herrann féll.
Eins og menn rekur minni til
fóru fram kösningar til fylkis-
þingsins í British Columbia
þann 12. júní síðastliðinn, hlut-
fallskosningar voru um hönd
hafðar og aðeins forgangsat-
kvæði talin á kosningadaginn;
kom þá brátt í ljós, að Liberal-
flokkurinn undir forustu Byron
Johnson forsætisráðherra, hafði
svo að segja verið þurrkaður út
af jörðunni: framhaldstalning
hófst þann 2. þ.m. og skipting
atkvæða á hina ýmsu frambjóð-
endur, er leiddi afdráttarlaust í
ljós hrun gömlu flokkanna; enn
er talningu eigi fulllokið, en v.íst
talið, að C.C.F.-flókkurinn nái
mestum þingstyrk og næst hon-
um gangi sá flokkur, er kennir
sig við Social Credit. Byron
Johnson beið persónulegan ó-
sigur í kjördæmí sínu Nety;
Westminster.
Ósigur Mr. Johnson’s yarpar
engum skugga á persónuleika
hans, því hann er eftir sem áður
viðurkenndur viðsýnn hæfi-
leikamaður; ströng sjálfsgagn-
rýni varð honum að falli; hann
var faðir sjúkratrygginganna í
fy.Ikinu, en sannfærðist um að
þær bæri sig ekki fjárhagslega
nema því aðeins, að einstakling-
ar .er sjúkrahússvistar þörfnuð-
ust greiddu að minnsta kost.i
$35.00 til að byrja með og þetta
gerði hann að stefnuskráratriði;
hinir flokkarnir lofuðu gulli og
grænum skógum og á það agn
beit mikill meiri hluti kjósenda.
Leiðtogi íhaldsmanna, Mr..
Anscomb, féll einnig í val; að
því er síðast fréttist hafa Liber-
alar unnið sex þingsæti, en
íhaldsmenn tvö.
Mr. Johnson hefur lýst yfir
því, að hann mæli með því, að
þeim flokknum, sem liðsterk-
astur verður á þingi, verði falin
st j órnarmy ndun.
(tJr Lögberg).
Garöasíræti 2 — Síxni 7299.