Vísir - 06.08.1952, Síða 4
4
DAGBLAÐ
Bitctjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur Ingólfsstræti 3.
Otgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F.
IkigmSsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimxn linur).
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Ljósböi í Sundhöllinnl.
Ofeigur læknir Ófeigsson er áhugamaður um margt, svo sem
kunnugt er og hugmyndaríkur um áhugaefni sín. Um
þessar mundir er vinna að hefjast við endurbætur á Sund-
höllinni, en ætlunin mun vera að setja þak á húsið. Vili
Ófeigur læknir að húsið verði portbyggt, þannig að steypt
verði lítillega ofan á veggi þá, sem umlykja hið flata þak Sund-
hailarinnar. Myndi það kosta nauðalítið, en þakhæðin henta
vel til ljósabaða fyrir gestina. Telur læknirinn að þarna mætti
koma fyrir óbeinni útfjólublárri lýsingu, sem fólk gæti notið
undir leiðsögn, en án sérstaks útbúnaðar annars, sem vant,
er að hafa á slíkum baðstofum, í einkastofnunum. Má geta
þess að ofangreind lýsing er alsiða í Ameríku. Kostar tiltölu-
lega lítið að koma tækjum fyrir, enda eru þau notuð í öllum
stærri gistihúsum og mörgum stofnunum öðrum þar vestra.
Læknirinn telur að almenningi sé nauðsyn á Ijósböðum,
ekki sízt söltum þess hve sólar nýtur hér lítið yfir vetrarmán-
'uðina, enda fullyrðir hann að yfir 50 af hundraði barna fái
beinkröm á lágu eða háu stigi, þótt aðrir læknar dragi slíkt í
efa. Öruggasta merki þessa er þó það, að slöður koma neðst í
þrjóstkassann, sem mvakast af því, að kröm riíin láta undan
átaki þyngdarinnai, ; úr slíkri beinkröm má bæta með ljós-
böðum, án kostnaðarsams útbúnaðar. Vandalaust er að koma
hentugum uppgangi fyrir frá núverandi Ijósbaðsskýli, og myndi
slíkt ekki hafa mikinn kostnað í för með sér. Telur læknirinn
vafalaust, að ef nú verði ekki gripið til þes's ráðs að hækka
þakveggina lítilsháttar, þá inuni þakinu verði lyft síðar, til
þess að koma slíkum ljósaútbúnaði fyrir og gera Sundhöllina
þannig fullkomna „baðstofu“.
j Hugmyndin er góð og vel þess verð að henni sé gaumur
gefinn, en jafnframt ætti að brýna fyrir almenningi nauðsyn
Ijósbaða, sem hafa mikla þýðingu almennt fyrir heilsufar í
landinu. Á vetrum eru börn kvefgjörn og jafnframt eru mörg
þeirra kirtlaveik, og krankleiki mun almennt vera meira á
vetrarmánuðum en á sumrin. Með því að skipta aðsókn að
Sundhöllinni, og ætla mönnum og konum íasta sundtíma, jafn-
íramt ljósböðunum, myndi aðsóknin vafalaust örvast svo, að
stofnkostnaður við ljósböðin myndi fást fljótlega greiddur, en
stjórnendur Sundhaílarinnar, eða réttara sagt bæjarstjórn
Reykjavíkur, gæti ákveðið hvort nauðsyn væri á aukagjaldi
■vegna ljósbaðanna.
J Um notkun útfjólublárra geisla má það segja að öðru leyti,
að vestan hafs eru þeir notaðir á ólíklegustu stöðum, til þess
að hreinsa umbúðir matar og drykkjar og afstýra þannig sótt-
kveikjuhættu, sem ella gæti dreifst manna á milli. Mættum við
taka slíkt til fyrirmyndar, með því að mjög skortir á að hrein-
læti sé hér svo, sem æskilegt getur talist, auk þess sem heilsu-
gæzlu er ábótavant.
Bændaþingið.
T^ing Bændasambands Norðurlanda hefur verið haídið hér í
**- bænum undanfarna daga, en er nú að forminu til lokið.
Hinsvegar munu fulltrúar þeir frá Norðurlöndunum, sem hér
eru mættir, ferðast nokkuð um Borgarfjörð og Suðurland og
gefst þeim þá kostur á að. kynnast þeim stórfelldum fram-
kvæmdum, sem miða að aukinni ræktun. Framræsla er hér
meiri á hverju ári, en dæmi eru áður til í búnaðarsögu lands-
ins, en er allt það land verður að fullu ræktað, sem nú hefur
verið frarn ræst, verður blómlegt um að lítast í flestum héruð-
um Iandsins, sem bezt eru fallin til jarðræktar.
; Við íslendingar höfum þegar sótt mikinn fróðleik til bænda-
og alþýðuskólanna á Norðurlöndum, sem að gagni hefur komið
við ræktun landsins, glætt hjá mönnum trú á landbúnaði og
skógrækt og hrundið af stað fyrstu umbótabaráttunni í þessum
efnum. En segja má að skilyrði til ræktunar landsins skapist
þá fyrst fyrir alvöru, er vélamenningin ruddi sér til rúms.og
teknir voru upp hættir którþjóðanna við framræzlu og ræktun
jarðarínnar. Þjóðin er svo fámenn, en landið hinsvegar svo
víðáttumikið, að engin skilyrði væru hér til ræktunar, sem
heitið gæti, ef vélarnar bættu ekki upp mannfæðina.
Sú stefna hefur rutt sér hér nokkuð til rúms að stofnuð séu
nýbýli á nokkrum dagsláttum, sem ekki geta. skapað mönn-
úm skilyrði til að lifa mannsæmandi lífi. Stórbúskapur einn,
þar sem vélar koma að fullu gagni, getur átt hér framtíð, en
þar getur verið um að ræða einkarekstur eða samyrkjubúskap,
eftir því sem henta þykir. Kotbúskapur leiðir til áþjánar og
örbirgðar, sem getur I framkvæmdinni verið öllu verra en
þrælahald.
V í S I B
Miðvikudaginn 6. ágúst 1952
Fréttabw'éf i*r Múnaþingi:
Hretviðri gerði öðru
hverju tii júníloka.
Héraðshæli í undri'búningl á Blönduósi.
Blönduósi, 31. 7. ’52.
Vorið var eitt hið kaldasta
sem komið hefur síðan 1920.
Norðanhret með fannkomu
til fjalla komu öðru hverju
fram til júníloka. Næturfrost
voru oft þann tíma, svo gróðri
fór ekki fram. Tún voru víða
stórskemmd af kali, sérstaklega
nýræktir. Mikill snjór hélst til
fjalla fram um miðjan júlí. Af
þeim sökum ráku menn ekki
fénað á afrétt sem venjulega,
j enda gróðurlaust í fjöllum, þar
til hlýðnaði nú fyrir hálfum
mánuði.
Sláttur byrjaði ekki almennt
fyrr en 18,20. júlí. Er grasvöxt-
ur lítill eins og áður getur. Þó
hafa óskemmd tún sprottið vel
síðan hlýnaði um miðjan mán-
uðinn. Á flæðiengjum verður
grasvöxtur í meðallagi.
Síðan veður hlýnaði héftir
verið óþurrkasamt, en bændur
hafa flestir votheysgryfjur, og
raunar einnig súgþurrkun, svo
votviðrin hafa ekki spillt að
ráði hirðingu töðunnar. Telja
má aflalaust við Húnaflóa. Þrh
smáir vélbátar hafa róið til
fiskjar frá Höfðakaupstað, en
aflað lítið og sótt þvi á djúp-
mið. Veldu.r þetta atvinnuleysi
og erfiðri afkomu fólks í kaup-
túninu. Er þetta mesta afla-
leysis ár er komið hefur um
tuttugu ára skeið.
Byggingarframkvæmdir eru
allmiklar í héraðinu, og öllú
meiri en s.l. ár. í sveitum er
mest byggt af gripahúsum og
heygeymslum. Á nokkrum bæj-
um eru íbúðarhús einni^ í smíð-
um.
í undirbúningi er bygging hér
aðshælis á Blönduósi. Er búist
við að framkvæmdir geti hafist
fyrir miðjan ágúst n.k. (Ekki
rétt að foyrjað sé að byggja eins
og stóð í Tímanum nýl.). Er
ákveðið að , byggja kjallara
hússins í ár. Er fjárfesting á
þessu ári við það bundin. —
Grunnflötur hússins verður 535
fermetrar. Verður það kjallari
og þrjár hæðir — fjögur gólf..
Fyrst í stað verða útbúnar
sjúkrastofur og íbúðir fyrir 30
vistmenn — sjúklinga og
gamalmenni. En seinna má
bæta við fleiri íbúðum á efstu
hæð hússins. í annari álmu
hússins verður læknisbústaður.
' Á Blönduósi eru sex íbúðar-
hús í smíðum. — Unnið er
að byggingu rafstöðvarhúss
skammt frá Blönduósi viðgömlu
stöðina hjá Landanesi. Verða
settar nýjar vélar í stöðina er
íramleiða um 500 kw. eða nær
tvöföld orkuaukning.
Stgr. Davíðsson.
-----«
Mréf:
Fyrsti cricketleikurinn
(Sjá Vísi 28. 7. ’52).
Nokkur ár fyrir síðustu alda-
mót og eftir komu hingað til
Reykjavíkur á hverju sumri
tveir Englendingar og verzluðu
hér nokkra mánuði — lengst af
í húsi því, er síðar varð Her-
kastalinn. — Menn þessir, á-
samt Mr. Ferguson, prentara,
áttu mikinn þátt í að farið var
að leika knattspyrnu hér — er
þá hét fótboltaleikur. — Þeir
komu einnig hingað með það
sem með þurti til þess að leika
„cricket“ og voru oft að leikum
á Melunum, á sömu slóðum og
fyrsti knattspyrnuvöllur var..
Einnig man sá sem þetta ritar,
ekki betur en að Ólafur Rósin-
kranz, fimleikakennari Latínu-
skólans, hafi byrjað að æfa
þann leik, þó ekki yrði það til
frambúðar. Leikurinn er því að
nokkru kunnugur þó langt sé
um liðið.
Cricketleikur, ásamt Rugby-
knattspyrnu er þjóðaríþrótt
Englendinga, og hafa þessir
leikar sjálfsagt mótað skapgerð
þeirra meira en flest annað, —
þ.e.a.s. ró þeirra og festu. —
Mikla leikni þarf til að kasta
cricketbolta, svo vel sé, enda
var lengi vel keppt í cricket-
boltakasti, sem sjálfstæðri
íþrótt á leikmótum, einnig hér-
lendis. Man eg ekki betur en að
Sigurjón Pétursson, verk-
smiðjueigandi, hafi orðið fyrsti
Islandsmeistari í þessari íþrótt
og mun ekki hafa verið „sleg-
inn út“.
Bystander.
------*—----
Námaslys af völdum
jarðhrærisiga.
Höfðaborg (AP). — Land-
skjálfti orsakaði námaslys í
grennd við Johanesburg í vik-
unni.
Hrundi gangur í gullnámu af
völdum hræringanna og lokuð-
ust átján náma menn inni. Átta
hefir verið bjargað, sjö lík graf-
in upp, en þriggja er enn sakn-
að.
Landskjálti þessi var einn
mesti, sem fundizt hefir um
langt skeið í S.-Afríku, og léku
byggingar í Johanesburg á
reiðiskjálfi.
BERGMÁL
Góðviðrishelgi.
Það var sannarlega mikið
fagnaðarefni fyrir Reykvíkinga
og aðra Sunnlendinga, að veð-
urguðirnir voru okkur hliðholl-
ir um verzlunarmannahelgina.
Má heita að blíðskaparveður
hafi verið allt frá föstudegi og
fram til þessa dags, og helzt
góða veðrið vonandi áfram.
Hefir þetta orðið til þess að
fjöldi Reykvíkinga kemur sól-
brúnn og hraustlegur útlits úr
fríinu, en mikill fjöldi manna
fór úr bænum þessa daga. Fjöl-
margar ferðir voru farnar á
vegum ferðafélaganna, sem
venjulega skipuleggja ferðir
um helgar. Var margt um
manninn á öllum skemmtunum
og mótum í nálægum sýslum.
Flest fólk mun hafa leitað upp
í Borgarf jörð, en þar voru helg-
arskemíntánir að Hreðavatni,
Snorrahátíð í Reykholti o. s.
frv.
Slæm hegðan.
Það getur þó ekki verið á-
tölulaust hvernig íslenzkur
æskulýður getur á stundum
hegðað sér, er hann er búinn að
hrista borgarrykið af fótum sér
og kemur upp í sveit. Það er
hreint eins og öll siðmenning,
sú litla sem fyrir hendi. var,
fjúki af sumum æskumönnum
og verða þeir sjálfum sér og
öðrum til skapraunar. í gær
var nokkuð greint frá því
hvernig æskufólkið hegðaði sér
að Hreðavatni, og því miður
mun reykvísk æska hafa átt
þar mesta sökina á skemmdum
og slæmri hegðan.. Ýmisleg
dæmi hafa verið sögð um skríl-
menninguna, t. d. það, að öl-
óður Menntaskólapiltur kastaði
steinhnullung í framrúðu á bíl,
er kom akandi á talsverðri ferð
eftir þjóðveginum hjá Hreða-
vatni. Munaði minnstu að stór-
slys yrði, eh bæði gátu glerbrot
skorið farþega og eins gat svo
farið að ökumaður missti stjórn
á bifreiðinni. Að þessu sinni
varð tjónið ekki annað, en brot-
in framrúða, sem var allt nóg.
Nauðsyn á lögreglu.
Mér finnst að skylda ætti
veitingahúseigendur á þessum
fjölsóttu stöðum að ráða lög-
regluþjóna til þess að halda
uppi aga og reglu. Er ekkert
vafamál, að væri lögregla á
' staðnum myndi margt- ung-
mennið reyna að halda sér í
, skefjum af ótta við að verða
tekið í geymslu, og verða með
því af aliri frekari skemmtun.
I'lest þetta æskuíólk, ær, verst
lætur á samkomum utan bæj-
arins er auðvitað undir áhrif-
um áfengis, en það virðist flýja
bæinn til þess að geta fengið sér
ærlega neðan í því með þeim
afleiðingum, að það skemmir
skemmtunina bæði fyrir sjálfu
sér og öðrum.'
Forðast staðina.
Þannig er það víða á sam-
komum um helgar, að venjulegt
siðað ferðafólk, sem er að ferð-
ast um landið reynir að sæta
lagi, að þurfa ekki að koma að
kvöldi til um helgar á suma
þessara staða, þar sem mest
gengur æfinlega á. Það verður
þó að taka það fram hér, að
víða fara skeiftmtisamkomur
prýðilega fram eins og t. d. í
Reykholti um helgina. — kr.
Gáta dagsins.
Nr. 207:
Einn er hringur stunda stór,
staddur í glettu vindi,
með lilýrum tólf til ferða fór,
fyrr en nolckur myndi.
Svar við gátu nr. 206:
Legill.