Vísir - 11.08.1952, Síða 1

Vísir - 11.08.1952, Síða 1
42. árg. Mánudaginn 11. ágúst. 1952. 178. tbl„ Áætlað að sementsverð lækki um nær er sementverksmiðjan tekur til starfa Á næsta ári yerður sanddælingarskip leigt til þess að dæla skeljasandi úr Faxaflóa. Tii enáia kemur að íslenzkt sement verði útfiutningsvara. Buast má við að verð á sementi lækki um lielming þegar nýja Sementsverksmiðjan tekur lil stai-fa, eða fari úr ca. 609 kr. eins og verðlagið er nú og niður í kr. 330 hvert tonn. Eden, utanríkisráðherra Breta, var vel tekið í Berlín á dögun- um. Hér er hann að gefa drenghnokka eiginhandarundirskrift sína. Lík piltsins, sem drukknaði í Hreðavatni, fannst í gær. I gær var hatdið áfram leit- inni að Iíki piltsins, sem drukknaði í Hreðavatni um fyrri helgi, og fannst það síð- degis í gær, eftir að bending hafði verið gefin úr flugvél um hvar í vatninu leita skyldi. Það var sjúkraflugvél Slysa- varnafélagsins og Björns Páls- sonar, sem fengin var til þess að fljúga yfir vatnið, ef ske kynni að það kæmi að notum í leitinni. Með Bimi Pálssyni fór Kristján Einarsson fram- kvæmdarstjóri. Er flugvélin sveimaði yfir vatninu hafði K. E. gleraugu, sem hann hefir notað við veiði- skap, og eru þannig gerð, að sjá má með þeim niður í vatn, þótt yfirborðið sé gárað, og varð það til þess að unnt var að gefa ábendingu um hvar leita skyldi. Var svo leitað við Álftarey og fannst líkið í nánd við hana siðdegis. Rannsóknarlögreglan úr Reykjavík og björgunarsveit Gullfaxi í leigu- fiugi til Kanada Ráðgert er, að Gullfaxi fari þrjár Ieiguferðir milli Amster- dam og Montreal í þessum mánuði. Hefur Skymasterflugvél F. í. verið leigð Hollendingum til þess að flytja innflytjendur til Kanada. Fyrsta ferðin verður farin á miðvikudag, en þá verður farið héðan til Amster- dam, en þaðan um Reykjavík vestur til Montreal. Frá Rvík. til Montreal er um 12 stunda flug. Gullfáxi verður fullskip- aður farþegum í hverri ferð, eða 52 í einu. Flugferðir þessar munu ekki raska venjulegum áætlunar- ferðum Gullfaxa. frá Slysavarnafélaginu höfðu farið á vettvang. Lík piltsins var svo flutt hingað í sjúkra- bifreið. Comet-vélar í farþegaflugi. Einkaskeyti frá A.P. Comet þrýstiloftsflugvélar hefja í dag reglubundnar á- ætlunar póst- og farþegaflug- ferðir frá London til Ceylon og Indlands. Flugtíminn styttist um 13 klst. á þessari leið vegna þess, að þrýstiloftsflugvélar verða nú teknar í notkun. Fékk 50 ln. út af Dalatanga. Frá fréttaritara Vísis á Eskifirði. Á laugardag kom vélbátur- inn Björg Su. 9 með 50 tunnur síldar, sem frystar voru í frysti- húsinu hér. Báturinn veiddi síld þessa um 70 mílur norðvestur af Dala- tanga, en þar hefir mikill hluti slídarflotans haldið sig, en veitt lítið, eins og kunnugt er. Tog- arinn Egill rauði kom í byrjun sl. viku með 300 lestir af karfa og fór mest af honum í frysti- húsið, svo vinna hefir verið stöðug þar alla vikuna. Goðafoss var á Eskifirði á laugardag og lestaði fiskimjöl. Tíðarfar hefir verið ágætt undanfarið eystra, en gras- Harður árekstur. Snemma á Laugardagsmorg- uninn varð allharður bílárekst- ur á mótum Tjarnargötu og Skothúsvegar. í árekstri þessum lentu bif- reiðarnar R 347 og R 3149. Skemmdust þær báðar talsvert,. en slys urðu ekki á mönnum. v. Paulos í þjén- ustu Rússa. Einkaskeyti frá AP. — Bon í gær. Friedrich von Paulus, inarskálkur, sem Rússar tóku hönduni með 6. þýzka hernum við Stalingrad 1943, er nú kennari við foringja- skólann í Moskvu, að því er fyrrverandi þýzkur stríðs- fangi segir frá. Fangi bess, Vincent Kraupe, var nýlega Iátinn laiis, og sagðist hann hafa séð Paulus klæddan rúss- neskum einkennisbúningi, er hann skoðaði fangabúðirnar, sem Kraupe var geymdir í árið 1950. Paulus hefir ekki komið við sögu síðan 1946, er Rúss- ar leiddu hann sem vitni fyr- ir sig í Núrnberg 1946, en annars varð hann aðalmaður í „nefnd frjálsra Þjóðverja“, sém Rússar settu á laggirnar í Moskvu árið 1944. Þjóðvegir ófærir vegna flóða. Einkaskeyti frá A.P. London í morgun. Storrna og úrkomusamt hef- ur verið í Bretlandi nú um helgina. Við strendur landsins var 80 km. vindhraði á klst. í gær. f mörgum héruðum rigndi meira fyrstu 9 daga ágústs en vanalega í öllum þessum mánuði. í Yorkshire og víðar urðu þjóðvegir ófærir í gær af völd- um flóða. Yfir 1000 farþegar itieð Chusan. Skemmtiferðaskipið Chusan kom hingað í morgun og lagð- ist fyrir akkerum á ytri höfn- ina. Er þetta mikið hafskip, um 30 þúsund lestir að stærð. Með skipinu eru 1008 farþegar, flestir brezkir. Hingað kom skipið frá Noregi, en fer aftur á miðnætti til Englands. Um 700'—800 ferþegar þess óku út úr bænum í morgun í góða veðrinu lil þess að skoða landið, en flestir munu hafa lagt leið sína til Þingvalla og lengra austur. Geir H. Zoega annast fyrirgreiðslu skipsins meðan á dvölinni stendur hér. Þá verðum við líka sam- keppnisfærir við aðrar þjóðir lun verðlag á sementi og það er engan veginn útilokað að það verði í framtíðinni einn liður í útflutningsverzlun okk- ar. — Samkvæmt upplýsingum sem Vísir fékk hjá dr. Jóni Vestdal, formanni verksmiðjustjórnar- innar, eru byrjunarfram- kvæmdir í sambandi við vænt- anlega Sementsverksmiðju fyr- ir nokkru hafnar á Akranesi. Hófst vinna þar þann 26. júlí s.l. og eru þessar byrjun- Þjó&háfíðin í Eyjum F.Í. flntti 2000 manns fram og aftur. Alls voru farnar 40 ferðir frá Flugfélagi ísalnds til Vest- mannaeyja í sambandi við þjóð- hátíð Eyjaskeggja. Mun láta nærri, að F.f. hafi flutt um 2000 manns fram og aftur vegna hátíðarinnar, en fólk tók að streyma til Eyja á þriðjudaginn var, en þá voru farnar fjórar ferðir. Á mið- vikudag voru ferðirnar 6, 8 á fimmtudag, 14 á föstudag, og 8 á laugardag. í gær streymdi fólk í bæinn aftur og fór FÍ. 15 ferðir með um 400 manns, en í dag verða farnar a. m. k. 10 ferðir. Hátíðin sjálf þótti takast á- gætlega, en um eða yfir 3000 manns munu hafa komið á há- tíðasvæðið í Herjólfsdal. Ræður fluttu Torfi Jóhannsson bæjar- fógeti og Baldur Johnsen lækn- ir, en meðal fjölbreyttra skemmtiatriða var bjargsig við Fiskhellnanef. Sigmenn voru þeir Sigurður Jóelsson, Hún- bogi Þorkelsson og Jónas Sig- urðsson frá Skuld. Sá síðast- nefndi varð fyrir því slysi að hælbrotna í vaðnum, er hann lenti illa á steinnybbu. Dryltkjuskapur var lítill, að því er fréttaritari Vísis tjáði blaðinu, og ekki kom til rysk- inga eða annarra leiðinda. Veð- ur var hið fegursta og almenn ánægja með skemmtunina. arframkvæmdir fyrst og fremst fólgnar í því að gera varnar- garð framan við geymslusvæði þar sem ætlað er að geyma skeljasand. Verksmiðjunni er nauðsynlegt að .geta geymt a. m.k. ársbirgðir af skeljasandi, því ekki er ráðlegt að telja öruggt að hægt verði að dæla sandinum upp úr Faxaflóa nema að sumarlagi. Ársbirgðir af skcljasandi. Árleg þörf verksmiðjunnar fyi'ir skeljasand, miðað við framleiðslu á 80 þúsund tonn- um af sementi, er um 100 þús- und tonn. Geymslusvæði fyrir svo mik- ið .magn þarf því að vera stórt, enda er svæðið á Akranesi tæp- ir 2 ha. að flatarmáli. Tak- markast það að norðan og austan af um 8 metra háum leirbökkum framan við svo- kallaða Jaðarbraut. En sjávar- megin er verið að byggja varnargarð, sem jafnframt á að vei’ða vegur frá höfninni og verksmiðjunni út úr bænum. Hægt verður að hafa sand- binginn allt að 10 metra þykk- an og kemst þá fyrir á geymslu- svæðinu nægilegt sandmagn t.il árasframleiðslu verksmiðjunn- ar, jafnvel þótt hún verði tvö- földuð að stærð. — Er og allt skipulag á lóðinni miðað við það að hægt sé að bæta við annarri jafnstórri vélasam- stæðu. Ástæðan til þess að ráðist var í þessar framkvæmdir öðrum fi’emur er sú, að í ráði er að leigja hingað til lands á næsta vori sanddælingarskip til þess að dæla skeljasandi úr Faxaflóa. Framh. aí 6. síðu. i j Opinber fyrirlestur í Háskólanum. Seán McBride, fyrrverandí utanríkismálaráðherra íra, flytur opinberan fyrirlcstur í Háskólanum kl. 6.15 í kvöld. McBride, sem um langt ára- bil hefir staðið framarlega í sjálfstæðisbaráttu íra, mun mæla á enska tungu, og fjalla um þróunina í írskum stjórn- málum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.