Vísir - 16.09.1952, Blaðsíða 1

Vísir - 16.09.1952, Blaðsíða 1
42. árg. Þriðjudaginn 16. september 1952 209. tbl. séð öia Jóhannesson frá þvi hann hvarL En leitin að honum hefir engan áranpr barið. Leitað var að Ólafi Jóhann- ®ssyni, Hlíðarvegi 23, Kópa- vogi, í gær, en án þess áð leit- in bæri nokkurn árangur. Eftir að Vísir kom út í gær méð mynd af Ólafi hafa nokkr ir menn gefið sig fram, sem telja sig hafa séð hann. Kveð- ast þeir ekki þekkja hann per- sónulega, og geta því ekki full- yrt, að um einn og sama mann sé að ræða. Einn þeirra, sem taldi sig þekkja Ólaf af mynd, var bif- reiðarstjóri á bifreiðastöð einni hér í bænum. Hann kvað mann, sepi*íiktist Ólafi mjög, Jhafa komið til sín um 12 leyt- ið á laugardag og beðið sig að aka honum inn fyrir bæ. Hins "vegar taldi maðurinn sig hafá lítil fjárráð og yrði bílstjórinri því að sleppa sér út þegar hann væri búinn að aka fyrir þá fjárhæð, sem hann hefði á sér. Var ekið inn Miklubraut og á móts við Sjónarhól fór mað- nrinn úr bílnum og hélt síðan gangandi austur veginn, en ibílstjórinn snéri við. Bílstjór- inn sagði, að maðurinn hefði tekið inn meðöl, áður en hann fór úr bílnum. Þá taldi strætisvagnsbílstjóri .sig hafa séð Ólaf, um fimm- leytið á laugardaginn niðiu- á Lækjartorgi. Kvaðst bílstjór- inn hafa skip.t fyrir hann pen- ingum til þess að hann kæni- ist inn í Vogahverfi. Þriðji maðurinn kom til við- tals við lögregluna í gærmorg un og kvaðst hafa kvöldið áð- ur verið í bifreið upp við Rjúpnahæð og séð þá mann á gangi ofarlega við Breið- holtsveg og stefna á Vatns- endastöðina. Var þá tekið að skyggja og maðurinn sást ekki nógu greinilega, til þess að full kennsl yrði borin á hann, en maður sá, sem var þarna í bif- reiðinni, sagðist hafa fengið eftirþanka af því, að e. t. v. hafi Ólafur verið þarna á ferð. Þessi frásögri mannsins varð til þess ag lögreglumenn fóru í bifreið og óku alla afskekkta vegi á þessum slóðum og at huguðu einnig mannlausa sum arbústaði í grenndinni. Voru 'þeir framundir myrkur að( leita, en án þess að verða nokk urs varir. Leitað verður í dag svo fremi að einhverjar nýjar upp lýsingar berist um ferðir Ól- afs. Er fólk vinsamlegast beð- ið að láta lögreglunni í té all- ar þær upplýsingar, sem það getur, um ferðir Ólafs á laug- ardaginn og síðar. ■Snjókoma fyr- ir norðan og vestan. f morgun brá til hvassrar norðanáttar um allt land og er spáð norðan hvassviðri eða stormi liér sunnanlands. Klukkan 9 í morgun var einnig hvöss norðan átt fyrir norðan og vestan, og snjókoma víða. Á Vestfjörðum komst hit inn niður í 1 stig, þar sem var kaldast. Búist er við dálítilli snjókomu á Vestfjörðum og sums staðar fyrir Norðurlandi í dag. Loftsóknin í fullum gangi. Einkaskeyti frá AP. Tokyo í morgun. Sprengjuárásum er lialdið áfram á samgöngumiðstöðvar, orkuver og birgðastöðvar kommúnista í Norður-Kóreu. í gær voru skotnar niður fyrir kommúnistum 9 orustu- flugvélar af MIG-gerð, en alls hafa verið skotnar niður í þessum mánuði 42 flugvélar af þessari gerð. í morgun var gerð mik- il árás á stóra birgðastöð í suðvesturbluta Pyongyang. Gerðu hana flugvirki frá Japan og Okinawa, án þess vart yrði skothríðar úr loftvarnabyssmn eða or- ustuflugvéla kommúnista. Hrefigyf hfólar á konu. í gær varð umferðarslys á mótum Laugavegs og Smiðju- stígs. Slysið vildi til um hálffimm leytið í gær og orsakaðist með þeim hætti að drengur á reið- hjóli ók á fótgangandi konu. Konan féll á götuna og hand- leggsbrotnaði á vinstri fram- handlegg. Hún var flutt í Landsspítalann til aðgerðar, en að því búnu var hún flutt heim til sín. I fyrrinótt var bifreiðinni R-5605 stolið héðan úr bænum en hún fannst í gærmorgun suður í. Hafnarfirði og var þá óskemmd. Svertiiigjarnir Þegar rándýrunum eru gefin meðöl til bess að hreinsa þau, geng- ur ekki svo lítið á, einsog myndin sýnir. Það er verið að gefa jagúar í dýragarði í Þýzkalandi meðal. Flotadeild A-bandaiagsins ® /r Á 3ja hundrað þusund manna lið tekur þátt í æfingunuim. Rússar og Kínverjar sam- mála eftir Moskvufundinn! Rússar fara ékki frá Port Artlaiar. I Moskvu og Peking hefur verið birt sameiginleg yfirlýs- ing ráðstjórnarinnar rússnesku og kommúnistastjórnarinnar kínversku um árangur sam- komulagsumleitananna, sem fram hafa farið í Moskvu að undanförnu. Þær hafa staðið nokkra hríð og var Chou En-lai aðalfull- trúi kommúnista. í hinni sam- eiginlegu yfirlýsingu segir, að algert samkomulag hafi orðíð og samhugur ríkt um að efla samvinnuna milli þjóðanna, á sviði stjórnmála, menningar- mála, öryggis, verzlunar og efnahagsmála. Verkefni fulltrúanna var m. a. endurskoðun samninganna frá 1950 og varð samkomulag um, að framkvæmd skyldi þeg ar á þessu ári afhending járn- brautarinnar, er afhenda skyldi að ári, samkvæmt samn ingunum frá 1950, og að Rússar verði áfram í flotahöfninni Port Arthur samkvæmt beiðni kín- versku kommúnistastjórn- arinnar, — þar til friðar- samningar hafa verið gerð- ir við Japan, en samkvæmt samkomulaginu frá 1950 höfðu Rússar undir- gengist að afhenda Port Arth- ur eigi síðar en 1952. Mun Rússum ekki um, að láta Port Arthur af hendi meðan ástandið er jafn ískyggi legt í Austur-Asíu og nú, enn barist í Kóreu, og bandarískur her í Japan. Margir hafa dreg- ið og draga í efa, að Rússar muni nokkurn tíma láta Port Arthur af hendi. Dómsmálaráðuneytið liefur fyrir nokkuru fyrirskipað máis höfðun gegn, blökkumönnun- um þremur, er beittu hnífum í viðureign við íslendinga íyr ir skemmstu. Atburður þessi átti sér stað suður í Tivoli um verzlunarT mannahelgina í sumar og heí- ur Vísir áður skýrt frá honr um. Tveir svertingjanna hafa verið í gæzluvarðhaldi síðan en einn þeirra hefur legið í sjúkrahúsi og liggur enn. Málið hefur verið sent saka- dómaraembættinu til dóms- álagningar og er það í vörn sem stendur. Brezk herskip heimsækja Spán. Brezk flotadeild lcom til Bar- celona á Spáni í gær. Er þetta fyrsta opinbera flotaheimsókn Breta þar síðan fyrir borgarastyrjöldiná. — í flotadeild þessari er flugvéla- skipið Glorv og 3 tundurspill- ar. Einkaskeyti frá AP. . Flotadeildin, sem er á leið til Norður-Noregs, var í gær- kvöldi komin 180 mílur norð- ur fyrir Hjaltland á leið sinni til Norður-Noregs. Sjógangur var og stormur, vindhraði 65 km. á klst. í gær mætti flotadeildin lest birgðaskipa, sem lét úr höfn á undan flotadeildinni með vist- ir og olíuforða. Yfir 200.000 hermenn frá 6 þjóðum taka þátt í heræfing- unum á brezka hernámshlut- anum austan Ruhr, milli Rínar og Weser, og eru þær -hinar mestu sem nokkurn tíma hafa verið haldnar á hernámstím- anum. Fluglið, sem hefur 800 flugvélar til umráða, tekur þátt í æfingunum. í fyrstu ræðum sínum á kosningaferðalaginu um mið- vesturfylkin hefur Eisenhower einkanlega gert grein fyrir grundvallarskoðunum sínum í helztu málum. í einni ræðunni minntist hann á Kóreustyrjöldina og sagði, að Bandaríkjastjórn hefði lagt út í hana fálmandi, án nokkurrar skipulegrar á- ætlunar. Fréttaritarar, sem ferðast með Eisenhower, síma að mik- ill mannfjöldi hafi verið sam- an kominn, hvarvetna þar senx lestin nam staðar. Lágt fiskverð í Aberdeen. Jón Þorláksson seldi nokk- urn hluta afla síns í Aberdeen í gær, 1200 kit, fyrir aðeins 900 pund. Þetta er mjög léleg sala, eða um % úr stpd. á kit, en tiL samanburðar má geta þess, að söluverð á kit fyrri hluta þessa árs er íslenzku togarnir siglda með afla sinn til Bretlands 2% til 3 % stpd. á kit. Hins er svo og að geta, að afli J.Þ. var ekki veiddur fyrir Bretlandsmarkað og mun hafa verið mestmegnis karfi. Það mun hafa verið um % hluti aflans, sem. J.Þ. seldi,. en hitt selur hann í Cuxhaveix á , miðvikudag. — Það var samkvæmt ósk Þjóðverja, að J.Þ. og Agli var snúið aftur, en horfurnar hafa sennilega skán- að aftur, þar sem sala á afgangi afla J.Þ. fer fram í Þýzkalandj.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.