Vísir - 18.09.1952, Blaðsíða 8

Vísir - 18.09.1952, Blaðsíða 8
 LÆKNAB OG LYFJABtJÐIR LJ ÓSATlMI Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið i ■m » w ]WL bifreiða er frá kl. 20,25—6,20 Læknavarðstofuna, sími 5030. Næst verður flóð í Reykjavík kl. 18,00. Vörður er í Lyfjabúðinni Iðunn, sími 7911. <t \jEBSm f UHBB l laiiwiiWN 'MMB* Fimmtudaginn 18. september 1952 Á 14. hundrað ökutækfa í árekstrum á þessu ári. 663 árekstrar höfðu verið skráðir ti dsgsins s gær. Fram til dagsins í gær, 17. sept., hafa 663 árekstur öku- tækja og umferðarslys orðið hér í Reykjavík. Ef tala þessi er tvöfölduð, eins og gera má í nær öllum tilfellum, þá eru það hvorki meira né minna en á 14. hundr að bifreiða og bifhjóla, sem lent hafa í árekstrum hér í bænum á hálfum níunda mán- uði. Þegar framangreind tala er borin saman við tilsvarandi tölur árekstra og umferðar- slysa fyrri ára verður ljóst að ástandið fer versnandi í þess- um sökum. Tala árekstra til 17. september í fyrra var 617, eða nær 100 bifreiðum færra en nú, og í hitteðfyrra urðu árekstrarnir ekki nema 579 talsins. Nú ber þess hins vegar að geta ,að skilyrði til aksturs hafa aldrei verið betri en nú, sem orsakast af hinum miklu staðviðrum í sumar og vegna þess að vegirnir hafa oftast nær verið þurrir. Hefði árekstr unum því frekar átt að fækka í stað þess að fjölga. Samkvæmt upplýsingum frá rannsókarlögreglunni eru meg inorsakir árekstranna of hrað- ur og ógætilegur akstur. Lýsir þetta sér stundum í því, að þegar bifreiðastjórarnir telja sig eiga rétt til götunnar, aka þeir áfram enda þótt fyrirsjá- anlegt sé að árekstri verði ekki afstýrt. Slíkum akstursvenjum þurfa bílsstjórarnir að hætta og gefa heldur rétt sinn eftir á umferðinni heldur en að stofna farartæki sínu, sjáfum sér og farþegunum í voða. í sambandi við árekstrana á yfirstandandi ári hafa orðið ó- venjumörg slys á fólki, enda þótt ekki hafi verið mikil brögð að dauðaslysum. Eden e heiansókn h|á .Tito í dag. London í morgun (AP). Anthony Edcn, utanríkisráð- herra Breta, kom í gærkveldi til Belgrad, höfuðborgar Júgó- slavíu, en hann hefur setið ráð gjafarþingið í Strassburg. í Júgóslavíu mun Eden dveljast um 5 daga skeið og ræða við ýmsa helztu leiðtoga Júgóslavíu. Ræddi Eden við komuna við Kardelj, utanríkis- ráðherra Júgóslavíu, en í kvöld mun hann sitja boð Tit- os marskálks. Skoðanamunur á uUarráðstefnunni. Um þessar mundir er háð í London ráðstefna baðmullar- framleiðsluþjóða. Á ráðstefnunni eru mættir fulltrúar frá Bandaríkjunum og Japan, auk Breta og nokkura annarra þjóða. Bandaríski full- trúinn Stevens, flutti ræðu í gær og lýsti þeirri skoðun sinní, að nauðsyn væri á því að auka kaup almennings á ullar- og baðmullarvörum og ráðstefnan yrði einnig að finna ráð til þess að koma í veg fyrir hina hörðu samkeppni á þessu framleiðslu- sviði. Japanski fulltrúinn hélt því fram að Japanar hlytu að keppa við aðrar þjóðir um markaði fyrir baðmullarvörur, en þeir myndu forðast óheiðar- lega samkeppni, eins og fyrir ’ væri mælt í friðarsamningun um við þá. Brezki fulltrúinn sagði að Bretar myndu ekki geta tekið þátt í neinum ráð- stöfunutó, sem skertu þátt þeirra í baðmullarviðskiptum, vegna þess hve veigamikill þáttur þessi viðskipti væru í hagkerfi þjóðarínnar. Portúgal fær fjármagn til að nýta nýlendur sínar. Bandaríkin ætla að hlaupa undir baggá. Eitt helzta áhugamál Banda-yfir meginlandið, til þess að ríkjastjórnar um þessar mundir cr að hjálpa Portúgalsmönnum til þess að nýta sem bezt auð- lindir nýlendna þeirra í Afríku. í Portúgal eru nú 8,5 mill- j ónir íbúa, og er það í rauninni 3,5 millj. manna fleiri en land- ið getur brauðfætt, eins og allt cr í pottinn búið, en þótt Salazar l'.afi tekizt að koma lagi á fjár- málin heima fyrir, er þjóðin svo fátæk, að hún getur ekki t aðið undir kostnaðinum af nauðsynlegum undirbúnings- f.amkvæmdum. Og nýlendur Pcrtúgala eru ekkert smáræði, því að þeir eru 3ja stærsta ný- Ivnduveldi heims — aðeins I'retar og Frakkar ráða yfir rieira landflæmi i öðrum ] i úmsálfum. Bandaríkjamenn hafa þegar 'J á tið nokkurt fé af hendi rakna, í n rtotað verður til þess að ] 'isa vatnsaflastoðvar, stofna á- vbitur, bæta bústofn lands- i :mna, auka námagröft og Jendurbæta járnbrautina þvert Margt fallegt að sjá á dönsku sýningunni. Bslenzku teppin í Þjóðminjasafninu eru dýrgrlplr segir frú Wandel. Frú Bodil Begtrup, sendi- herra Bána liér, opnaði í gær dönsku heimilisiðnaðarsýning- una í Þjóðminjasafnsbygging- unni, að viðstöddum f orseta- hjónunum, fulltrúum erlendra ríkja og öðrum gestum. Próf. Matthías Þórðarson, formaður Sambands ísl heim- ilisiðnaðarfélaga, flutti ræðu og fagnaði því, að sýningu þessari hefði verið komið upp hér, enda gæti hún orðið til þess að glæða áhuga manna hér fyrir heimilisiðnaði. Þa tengja Angola á vesturströnd- inni við Mozambique á austur- ströndinni enn betur en nú. íbúar þessarra tveggja ný- lendna eru nú um það bil 9 milljónir talsins, og er þar átt við svertingja, en hvítir menn eru aðeins 250,000. Landkostir eru hinsvegar svo miklir, að menn ætla, að þar mætti fram- Ieiða matvæli, er myndu nægja j miklum hluta íbúa Vestur- Evrópu. Sum héruð nýlendn- j anna eru mjög hentug til land- náms fyrir hvíta menn, því að loftslag er þar þægilegt og úr- komur nægar til þess að tryggja margar uppskerur á ári. Er t. d. verið að stofna til landnáms í Limpopo-dal í Mozambique, þar sem 9500 fjölskyldur fá jarðnæði — 18 ha. hver til beit- ar og ræktunar. Portúgalsmenn gera sér von- ir um, að nýlendur þessar geti orðið hið bezta forðabúr á skömmum tíma — fyrir tilstilli Bandaríkjanna. Ástæðulaust að óttast sundrung. Strassburg (AP.). — Spaak flutti aðalræðuna á fundi ráð- gjafarnefndarinnar í Strassburg í gær. Ræddi hann um ótta þann, er komið hafði fram hjá nokkr- um fulltrúum um stjórnmála- amvinnu Schumanríkjanna. — Schumanríkin eru þau ríki, sem standa að tillögum Schumans, um kola- og stálsamsteypu. Hafði því verið haldið fram, að það myndi veikja mátt Evrópu- ráðsins, ef Schumanþjóðirnar, V.-Þýzkaland, Frakkland og Beneluxlöndin, gerðu með sér sérstök samtök. Spaak kvaðst undrast þenna ótta, og telja hann ástæðulausan, benti hann á að Eden, utanríkisráðherra Englands, hefði tekið í sama streng, og Bretar myndu eiga samstarf við Schumanlöndin að nokkru leyti varðandi kol- og stálframleiðslu, þótt þau vildu ekki binda sig alveg. Herinn tekuir við völduim i Eibanon. Beirut í morgun — AP. Forseti Libanons hefur lagt niður völd og herforingjar tek- ið við völdunum. í fréttum frá Beirut í morgun segir, að hér sé ekki um vopn- aða uppreist að ræða, heldur hafi forsetinn verið knúður til þess að segja af sér vegna óánægju með stjórn hans. Hafði hann lofað ýmsum umbótum í stjórnarfari, en látið undir höfuð leggjast að framkvæma þær. Mun herinn fara með stjórn Libanons þangað til fulltrúadeild þingsins kemur saman og ákveður öðru vísi. Blökkumenn dæmdir í S.-Afríku. Einkaskeyti frá AP. London í morgun. Scxtán blökkumenn voru í gær dæmdir í Suður-Afríku fyrir brot á kynþáttalöggjöf- inni. Höfðu menn þessir brotið það af sér að sitja á bekkjum eða vera í biðsölum, sem ein- gongu voru ætlaðir hvítum mönnum. Fengu hinir brotlegu sektardóm og fangelsi til vara, og óskuðu allir að sitja af sér 1 sektina. tók til máls frú Gerite Wandel, -formaður Danska heimilisiðn- aðarfélagsins og skýrði frá störfum þess og áhugamálum, en að síðustu lýsti frú Bodil Begtrup yfir því, að sýningin væri formlega opnuð. Vísir hefur áður greint frá sýningunni og því, sem þar er markvert, en það er fjölda margt. Vafalaust verður sýn- ingin fjölsótt, ekki sízt af kvenþjóðinni. í gærkvöldi hafði svo frú Bodil Begtrup sendiherra Dana, móttöku til heiðurs frú Gertie Vandel, en hún skýrði frá starf- semi danska heimilisiðnaða.re- lagsins í um það bil aldarfjórö- ung. Um félagið má segja, að „mjór er mikils vísir“, því að það fpr hægt af stað, en hefur aukizt og margfaldast síðan. Frú Vandel kvaðst einnig hata mikla ánægju af að koma hing- að, og um sýningarsalinn haíöi hún þau orð, að hún hefði að- eins séð einn sýningarsal, sem væri betri. Enn fremur sagði frú Vandel, að mörg þau teppi, sem hún hefði séð í eigu Þjóðminjasafns- ins, væru hreinir dýrgripir, því aS þau væru eins og persnesk teppi, svo vönduð og falleg væru þau. Dr. Matthías Þórðarson og frú Arnheiður Jónsdóttir þökk- uðu frú Vandel komuna, og létu í ljós þá ósk, að heimsókn henn- ar yrði til þess að íslenzkur heimilisiðnaður tæki skjótum framförum á næstunni. Drukkin stúlka lendir í árekstri. í nótt varð umferðarmerki, sem stóð á gatnamótum Njáls- götu og Rauðarárstígs, fyrir þeirri óheppni að bifreið var ekið á það. Lögreglan kom á staðinn, og handsamaði ökuþórinn, sem reyndist vera stúlka og var hún undir áhrifum áfengis. Hana hafði ekkert sakað við áreksturinn, en hins vegar lét umferðarmerkið þeim mun meira á sjá. Málið er í rannsókn. Atriði úr leikritfnu „Vér morðingjar“. Einar 1». Einar.-.:, ísli Ilalldórsson og Erna Sigurleifsdóttir. (sjá leikdóm á 4 ðu) Mikið af rjúpu í haust. Kunnugir menn telja, að mikið muni verða um rjúpu í haust. Maður nokkur, sem hefur verið á ferð bæði um Borgar- fjörð og Miðfjörð seint í sumar, segist hafa orðið var við fjölda rjúpna, en auk þess sá hann þær víða, en í fyrra varð hann til dæmis lítið var við þær I Borgarfirði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.