Vísir - 25.11.1952, Blaðsíða 1

Vísir - 25.11.1952, Blaðsíða 1
42. árg. Þriðjudaginn 25. nóvember 1952 271. tbI, Mamnsákw&ir á V «tnstjjiikii : Hann nærávissum svæðum niður fyrir sjávarmál lóti Eyþérsson flutti snerldBegt srindi ysn 'l • ' i gær. 50 farþegar slasast, er Maure- tanía fær á sig þrjá hnúta. Þeir brutu glugga á efstu þilguna. London (AP). — Fimmtíu farþegar slösuðust á hafskipinu Mauretania í síðustu viku, er skipið lenti í stormi og stórsjó undan Nova Scotia. Var skipið á leið vestur um haf, þegar það lenti í veðrinu, en forðaðist þó stormmiðjuna með því að breyta um stefnu. Var veðurhæð mest 130 km. á klukkustund, og sjór svo mik- ill ,að skipsmönnum taldist, að öldurnar mundu hafa verið 50 fet á hæð. vestan hafs, og sagðist þeim svo frá, að þetta hefði verið því líkast, að landskjálfti hefði dunið yfir. Skipið hefði allt í einu kastazt ofsalega til, hvað eftir annað, og þegar sjór féll inn um gluggana á efstu þiljum, urðu margir farþeganna svo skelkaðir, að þeir settu á sig björgunarbelti, og tóku þau ekki af sér, fyrr en veðrið var um garð gengið. Á fjölmennum fundi Náttúru fræðifélagsins, sem haldinn var í Háskólanum í gærkveldi, skýrði Jón Eyþórsson veður- fræðingur frá rannsóknum og niðurstöðum fransk-íslenzka V atna jökuísleiðangur sins. Þessar rannsóknir voru að ýmsu leyti hinar merkilegustu, M. a. sýndi ræðumaður og út- skýrði uppdrátt er hann hafði teiknað eftir mælingum leið- angursmanna af landinu und- ir jöklinum. Af uppdrættinum varð það ljóst að landið undir jöklinum er á ýmsum stöðum ekki eins hátt og menn hafa ætlað til þessa. Á norðaustan- verðu landsvæði þessu er jökul kúfur 40—600 metra þykkur. Annars staðar nær jökullinn niður fyrir sjávarmál, er það einkum á honum sunnanverð- um svo sem á Skeiðarár- og Breiðamerkurjökli. í ræðu sinni gerði Jón enn fremur grein fyrir breytingum þeim, sem orðið hefðu á jöklin- um á ýmsum tímum, allt frá því á járnöld og eftir því sem fræðimenn hafa getið sér til um. Á fundinum sýndu Árni Stef- ánsson og Guðm. Einarsson frá Miðdal skemmtilegar kvik- myndir frá Vatnajökli. Var kvikmynd Árna tekin í fransk- íslenzka leiðangrinum en kvik- mynd Guðmundar frá Skeiðar- árhlaupinu síðasta og ummerkj um þeim sem við það urðu í Grímsvötnum, en þá lækkaði yfirborð Grímsvatna um ca. 70 Báturinn tafðist vegna stórsjós. V.b. Ásdís frá Drangsnesi, sem auglýst var eftir í útvarp- inu í fyrrakvöld, kom til Ing- ólfsfjarðar heilu og höldnu um kl. 10 um kvöldiS. Þetta er 14 lesta vélbátur og reri hann kl. 3 á laugardag, en þar sem hann hafði verið talsvert lengur í róðrinum en venja er, og verið gat, að um vélbilun væri að ræða eða eitt- hvað annað að, þótti rétt að lýsa eftir bátnum. Eru þarna hættulegár slóðir, ef' eitthvað ber út af. Ekki hafði komið til neinn- ar bilunar, en báturinn hafði misst mikið af veiðarfærum, þar sem sjör var mikill, þótt eigi væri mjög. hvásst, og hafði hann tafist af þeim sökum. metra og- djúpar sprungur eða, geilar mynduðust í suðvestur- horn þeirra. f fundarlok þakkaði dr. Sig- urður Þórarinsson Jóni Ey- þórssyni merkilegt starf í þágu jöklarannsóknanna og sömu- leiðis færði hann sýnendum kvikmyndanna þakkir fyrir þeirra starf. Bankarán á Cornwall. í bæ nokkrum í Cornwall gerðist sá atburður nýlega að vopnaður maður réðst inn í banka og náði allmiklu fé. Vatt hann sér að gjaldkera- með skammbyssu í hendi og- neyddi hann til að láta af hendi allmikið fé, sem hann stakk í!' leðurtösku. — Gjaldkerinn gat: lýst manninum nákvæmlega og leitar nú lögreglan að honum. Flotasýning við krýninguna. London (AP). — Elísabet II. drottning hefur fallist á, að mikil flotasýning og könnun fari fram undan Spithead, í sambandi við krýningu hennar að ári. Georg VI. faðir hennar fram- kvæmdi könnun þar, í sam- bandi við krýningu hans. Lögreglufréttir: f nótt var framið innbrot í- verzlunina Kron á Nesvegi. Þaðan var stolið sem næst 150 pökkum af vindlingum og' smávegis af sælgæti. Spjöll, sem þjófurinn hafði valdið, voru helzt þau, að hann hafði brot- ið rúðu í hurð. í gærkveldi tóku bifreiða- eftirlitsmenn 15 ára gamlan pilt við akstur, en hann var réttindalaus. Nokkru fyrir kl. 6 í gær síð- degis varð 11 ára drengur fyrir strætisvagni, er hann sveigði til hægri að gangstétt á torginu, en strætisvagninn kom niður Bankastræti. Drengurinn varð fyrir öðru framhjólinu. og festist undir því, er vagninn nam staðar. — Drengurinn, Guðmundur Her- vinsson, Skipasundi 1, mjaðm- argrindar-brotnaði og meiddist á öðrum fæti um öklann. Haim missti ekki meðvitund og var fluttur í sjúkrahús. Haustveðrin geta verið mikii víðar en hér norður frá. — Myndin hér að ofan sýnir, hvernig hafnargarðar við Hook van Holland voru út- leiknir nýlega eftir storm. Gufuskipið til hægri á myndinni strandaði í veðr- inu. Elztu misíingasjúkh'ng- arntr yfir sjötugt. Frá fréttaritara Vísis. Höfn í Hornafirði. Mialingafaraldurinn, sem hér hefur genglð, er nú að f jara út. Margt manna tók veikina og á öllum aldri, þeir elztu yfir sjötugt. Lagðist hún misþungt á menn, en lítið verið um al- varleg eftirköst. Mikill kverkabólgu- og kvef- sóttarfaraldur er hér nú eins og víðar. ■.. Sex Eyjabátar íróðrum. . Vestmannaeyjabátar eru' nú byrjaðir róðra og fyrir síðustu helgi voru sex bátar farnir á veiðar. Hafa bátar þessir róið með mest 15 stampa linu og hafa fengið allt upp í 2 tonn í róðri sem teljast verða góður afli. Báðir Eyjatogararnir komu nýlega inn með sæmilegan karfaafla og var gert að hon- um í landi. í vikunni sem leið lestuðu þrjú skip fisk og fiskafurðir til útfluínings. Yfirleitt er mikið atvinnulif og blómlegt í Vestmannaeyjum, því að þeir sem ekki vinna að framleiðslustörfum eru þá í byggingavinnu eða öðru slíku. Einmunatíð hefur verið í Vestmarmaeyjum í haust og blóm voru farin að springa þar út í görðum í vikunni sem leið. Þegar minnst vonum varði, fékk skipið skyndilega á sig þrjá „hnúta“, sem voru svo miklir, að þeir brutu glugga á efsta þilfari, og komst þar tals- verður sjór í skipið. Um 880 far þegar voru með skipinu í þess- ari férð, og slösuðust um 50 þeirra, en fæstir þá mikið. — Nokkrir rifbeinsbrotnuðu, þeg- ar þeir köstuðust endanna á milli í reyksal skipsins, en hús- gögn þar brotnuðu í spón, og var sagt, að engu hefði verið líkara en spellvirkjar hefðu gengið þar berserksgang. Blaðamenn áttu tal við far- þegana, þegar skipið tók land Fyrsti sáttafundur verður bráðlega. Eins og áður hefur verlð get- ið hér í blaðinu varð það að samkomulagi að leggja vinnu- deiluna í hendur sáttasemjara, Torfa Hjartarsonar tollstjóra. Vísir átti tal við hann árdegis í dag og spurðist fyrir um hvenær fyrsti sáttafundur yrði haldinn og kvað sáttasemjari ekki hafa boðað aðila á fund enn. Það mun þó verða gert mjög bráðlega. Stjérnin í írak lætur undan. Einkaskeyti frá AP. Bagdad f morgun. Mahoud hershöfðingi, hinn nýi forsætisráðherra í Irak, hefur boðað, að herlögum verði bráðlega aflétt, ef menn gæti stillingar og fari að lögum. — Þingkosningar munu fara fram í einu lagi, að kröfu and- stæðinga fyrrverandi stjórnar, en ekki í tvennu lagi, eins og hún hafði ákveðið. Hann hef- ur og boðað ýmsar umbætur á sviði félagsmála, aukin réttindi til æðra náms, og mjög aukin framlög til hersins. — Ekki hef ur komið til frekari óeirða, -----« .... Sæmdur heiðurs- fylkingarorðu. Með tilskipun Frakklands- forseta dagsettri þann 5. þ. m., hefur Hermann Jónasson, land búnaðar- og samgöngúmála- ráðherra, fyrrverandi forsætis- ráðherra, verið sæmdur kom- mandörgráðu frönsku heiðurs- fylkingarinnar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.