Vísir - 06.03.1953, Qupperneq 8
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
lt. hvers mánaðar fá blaðiS ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
&
WISIH.
Föstudaginn 6. marz 1953
VÍSQt er ódýrasta blaðið og þó það fjöl-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerist
áskrifendur.
Vaxandi áhugi yngri kynslóð-
arinnar fyrir öliu íslenzku.
Bætí við Vaidimar Iljöriisíioii.
ráðherra, seaia hér er isítaddiar.
Valdimar Björnsson, f-jár- þess að .íslenzkan gæti lifað í
inálaráðherra Minnesota-fylkis,
kom hingað í gær til stuttr-
ar dvalar, eða þar til á þriðju-
dag, að sérstakri beiðni Stass-
ens, yfirmanns hinnar gagn-
kvæmu öryggisstofnunar.
Hlutverk Valdimar? er að
kynna sér ýmsar stórfram-
kvæmdir, sem hér er unnio að
með stuðningi stofnunadnnar
(virkjanir við Sog og Laxá,
áburðarverksmiðjuna o. fl.),
þar sem nú líður að lokum
Marshallaðstoðarinnar.
Valdimar lagði áherzlu á, að
sér hefði ekki verið fengið í
hendur neitt vald í þessum
málum, en það bæri vitni um
áhuga Stassens fyrir íslandi og
vinarhug, að hann léti sérstak-
lega kynna sér þessi mál, en
■ Valdimar væri persónulega
kunnugur Stassen, og varð
þess vegna fyrir valinu. — Ekki
gerði Valdimar ráð fyrir að
ferðast neitt um landið vegna
erindisrekstur síns — hér væru
þeir menn, sem hann þyrfti að
ræða við og viðdvölin yrði
skömm.
Valdimar Björnsson sat þing
Þjóðræknisfélags íslendinga,
sem starfar með lífi og fjöri,
en rétt væri að gera sér grein
fyrir, að nú væru að verða mik-
il þáttaskipti hjá Vestur-ís-
lendingum. Yngri kynslóðin
myndi ekki geta haldið tryggð
við íslenzka tungu, þrátt fyrir
það starf, sem unnið væri til
Vesturheimi, m. a. með stofnun
kennarastóls í íslenzkum fræð-
um, en því starfi gegndi ágætur
maður, Finnbogi Guðmundsson, |
Finnbogasonar, sem ætti mjög j
vaxandi vinsældum að fagna. i
Hins vegar væri það mikið j
fagnaðarefni, að 'meðal ungu ■
kynslóðarinnar væri vaxandi á- 1
hugi fyrir íslandi og íslenzkri
memnngu og menningarlegri
samvinnu, sem ætti að geta orð-
ið íslendingum og fólki af ís-
lenzku bergi brotið vestra, að
gagni og ánægju. Þessari stefnu
væri til dæmis mjög haldið
fram til dæmis Icelandic Can-
adian Club, en það er ágætt rit.
Ritstjóri þess er Hólmfríður
Daníelsson, kona prýðilega rit-
fær.
slysa-
Mikið starf
kvenna á
Slglufirðl.
Kvennadeild SVFÍ á Siglu-
firði átti 20 ára afmæli í gær, 5.
marz.
Félagskonur hafa ekki Iegið
á liði sínu í björgunarmálefn-
um. Þær hafa m. a. unnið ötul-
lega að söfnun til byggingar
björgunarskútu Norðlendinga
og lagt fram 106 þús. krónur.
Þá hafa þær látið byggja skip-
brotsmannaskýli að Látrum
við Eyjafjörð, og lagt fram
fjórðung kostnaðar vegna björg
unarskýlis í Héðinsfirði. Þá hef
ur deildin gefið 10 þús. krónur
í björgunarflugvélasjóð SVFÍ,
20 þús. krónur til sundlaugar
á Siglufirði og kostað öryggis-
síma að Reyðará á Siglunesi o.
fl.
Alls hefur deildin safnað
rúml. 200 þús. kr. til slysa-
varna, en á s.l. ári nam eigna-
aukning hennar rúml. 17 þús.
kr. Þessar konur eiga nú sæti
Nýr formaður Náftúru-
lækningafél. Rvíkur.
Á aðalfundi Náttúrulækn-
ingafélags Reykjavíltur í gæi -
lcveldi skoraðist Björn L. Jóns-
son veðurfræðingur eindregið
undan endurkosningu og var
Böðvar Pétursson kjörinn for-
maour í hans stað.
Meðstjórnendur voru kjömir
Steinunn Magnúsdóttir, Hjört-
ur Hansson, Ingólfur Sveinsson
og' Marteinn Skaftfells.
Félagar voru um s. 1. áramót
919 talsins, þar af 85 ævifé-
lagar.
Á fundinum flutti Gretar
Fells erindi um þrjá danska
yoga, er hann hafði kynnzt í
utanför sinni s.l. sumar.
Baldvin Halldórsson og Herdís Þorvaldsdóttir í „Stefnumóilnu“,
sem verður sýnt að nýju í Þjóðleikhúsinu annað kvöld. Sýningar
hafa legið niðri vegna leiksýningar á „Rekkjunni“, víðsvegar
um landið, en Gunnar fer með veigamikil hlutverk í báðum
sjónleikunum. — Úr þessu fer sýningum að fækka, vegna
fyrirhugaðrar brottfarar Gunnars Eyjólfssonar til Vesturheims.
Samvinna um jöklamælingar hér-
lendis og í fleiri norðlægum löndum.
Upphafsmaðurinn
er dr. Hans Ahl-
manns.
Rannsóknir
ákveðnar í Alaska
og Aíoregi.
í athugun er að taka upp
samvinnu á rannsóknagrund-
velli í því augnamiði að sam-
ræma jöklamælingar og athug-
anir í ýmsum löndum á norður-
hveli jarðar, þ. á m. á íslandi.
Samvinna þessi er fyrst og
fremst miðuð við það að sams-
lconar rannsókna- og mælinga-
aðferðir verði notaðar í öllum
löndunum. En rannsóknarefnið
er í því fólgið hve mikið jöklar
Engum skrið-
dreka óhætt.
Bretar framleiða
öfluga byssu.
Einkaskeyti frá Al*. ---
London í morgun.
Brezkar vopnasmiðjur eru nú
byrjaðar framleiðslu léltrar fall
byssu, sem getur eyðilagt hvaða
skriðdreka sem vera skal.
Öflugasti skriðdreki, sem vit-
að er um, er rússneskur og
nefndur Josef Stalin III. Heíur
hann sést í Kóreu, þótt ekki sé
farið að nota hann þar enn.
enda ekki verið um neinar slík-
í stjórn deildarinnar: Eiríksínaj ar bernaðaraðgerðir að ræða
Ásgrímsdóttir fornl., Hulda þar síðustu mánuði. Þessi skrið-
Steinsdóttir féhirðir, Guðlaug
Þorgilsdóttir ritari, Guðrún
Rögnvaldsdóttir varaform., og
meðstjórnendur þær Ólöf Jóns-
dóttir, Anna Jóna Ingólfsdóttir
og Herdís Guðmundsdóttir.
dreki er búinn stálplötum, sem
eru 14 sentimetra þykkar.
Hlaupvídd þessarar nýju
byssu, sem fyrst og fremst er
ætluð gegn skriðdrekum, er y fir
160 mm.
á tilteknum svæðum í hverju
landi rýrna eða aukast.
Dr. Ahlmann
upphafsmaður.
Það er sænski prófessorinn
og jarðfræðmgurinn dr. Ahl-
mann, sem mun vera upphafs-
maður að þessari samvinnu. En
í Norður-Svíþjóð er jöklasvæði
á svokölluðum Kebnekaise, þar
sem haldið hefur verið uppi
jöklarannsóknum um nokkur
undanfarin ár, undir forystu
próf. Ahlmanns.
I fyrrasumar var prófessor
Ahlmann boðið í fyrirlestraferð
til Bandaríkjanna, en í þeirri
för brá hann sér til Alaska, en
lagði að því búnu tillögur fyrir
Bandaríkjastjórn að hún léti
rannsaka ákveðið jöklasvæði í
Alaska, er lyti sömu rannsókn-
araðferðum og notaðar hafa
verið á Kebnekaise-svæðinu í
Sviþjóð. Og jafnframt lagði
próf. Ahlmann til að rannsókn-
irnar og mælingarnar stæðu a.
m. k. yfir í tíu ár. Bandaríkja-
stjórn féllst þegar á þessar til-
lögur og hefur heitið fjárfram-
lögum til rannsóknanna.
Norðmenn
mæla líka.
Nú hafa Norðmenn ákveðið
að hefja tilsvarandi mælingar
og um jafnlangt árabil á á-
kveðnu jöklasvæði hjá sér.
Ennþá er ekki ákveðið hvað ís-
lendingar gera, en prófessor
Ahlmann hefur farið þess á
leit að við tækjum þátt í sam-
vinnu þessari til þess að meiri
og viðtækari, raunhæfur árang-
ur fengist af rannsóknunum í
heild.
Hefir rannsóknarráði ríkis-
ins verið skrifað um þetta mál
og er það þar sem stendur til
athugunar.
Happörættl S.Í.B.S.
Stærstu vinnlngarnir
dreifast um fandið.
í gær var dregið í Vöru-
happdrætti S.Í.B.S. og kom
hæsti vinningurinn, 50 þúsund
krónur, á miða nr. 41342.
Var miðinn seldur í umboð-
inu í Austurstræti 9. Krónur
10 þús. komu á nr. 29108 og
49326, 5 þúsund krónur á nr.
21671, 25217, 29950 og 34611.
Miði, sem hlaut 5 þús. kr. vinn-
ing var seldur í umboði á Vopna
firði, annar i Vogum á Vatns-
leysuströnd og þriðji hjá Kaup-
félagi Húnvetninga, Blönduósi.
Aðrir stórir vinningar komu á
miða selda í umboðum í Reykja
vík.
Ný bók - Rondo.
Komin er á markaðinn ný
bók, „Rondo, leikrit í 4 þátt-
um t frjálsu formi“, eftir Stein-
gerði Guðmundsdóttur leik-
konu.
Steingerður er sem kunnugt
er dóttir Guðmundar heitins
Guðmundssonar skálds. Er
þetta fyrsta bók hennar. Leik-
ritið er 137 bls. Forsíðuteikn-
ing er gerð af Jóhannesi S.
Kjarval. Frágangur bókarinnar
er i öllu vandaður. — Útg. er
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Lögreglufréttír.
Elztí fanginn
Skothrið í bænum.
Lögregluvarðstofunni bárust
tilkynningar frá tveimur aðil-
um í nótt og morgun varðandi
skothríð er þeir höfðu heyrt.
Fyrri tilkynningin barst í
nótt kl. 2 og kváðust íbúar
húss eins hér í bænum þá rétt
áður hafa heyrt hljóð er líktist
skothvellum. Ekki gat fólkið
þó gert sér grein fyrir hvaðan
hvetlir þessir komu né í hvaða
fjarlægð þeir voru.
í morgun hringdi svo maður
nokkur á lögreglustöðina og
taldi sig hafa heyrt skothríð í
nótt, er hann hélt að hefði verið
Öskjuhlíðinni eða þar í grennd.
Skemmti sér á gamalsaldri.
Sá viðburður var skráður í
sögu lögreglunnar um sl. helgi
að 78 ára gömul heimasæta
hafði verið fangelsuð fyrir ölv-
un. og ærsli og geymd nætur-
langt í vörzlu lögreglunnar.
Mun þetta vera elzta mann-
eskja sem lögreglan hefur tekið
í vörzlu sína fyrir ölvun. Hefir
kona þessi ekki komið við sögu
lögreglunnar áður, en um helg-
ina brá hún sér á veitingastað
og afleiðingarnar urðu þær sem
að framan greinir.
Árekstrar.
í gærkveldi og fram eftir
nóttu var mikil hálka á götum
bæjarins, en ekki var vitað í
morgun að það hafi valdið
slysum. Nokkrir bifreiðaárekst-
ar urðu samt í gærkveldi og
nótt, en ekki getið mikilla
skemmda né meiðsla á fólki.
Átthagafélag
Kjósveria heldur skemmti-
fund í Skátaheimilinu kl. 8.30
í kvöld. Margt til skemmtunar.
Nefndin.
Rússi lendir á
Borgundarhólmi.
Pólskur flugmaður lenti MIG-
15 orrustuflugvél á Borgundar-
hólmi í gær og leitaði hælis
hjá Dönum sem pólitiskur flótta
maður.
Þetta er í fyrsta skipti, seiu
þjóð í A-bandalaginu kemst yf-
i.r alveg óskemmda flugvél af
þessari gerð.