Vísir - 23.03.1953, Blaðsíða 4

Vísir - 23.03.1953, Blaðsíða 4
V.Í.S.IR ; S WSSI3R. ÐAGBLAÐ , Ritstjóri: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur Ingólfsstræti 3. . Útgefandi: BLABAÚTGÁFAN VÍSffi BLF. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimm línur). Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. Hættuleg vanræksla. TVTÚ er unnið að því af fremstu megni, að auka afurðasöluna ’ til landa í Austur-Evrópu, og sérstaklega reynf að auka sölu þangað af frystum fiski. í þessu sambandi er reynt að kaupa sem mest af vörum frá þessum löndum, því öll verzla þau á jafnvirðis- eða vöruskiptagrundvelli. Því meira sem við kaupum frá þeim, því meira ættum við að geta selt þeim. f bænum gengur nú orðrómur um það, að eitt af þessum löndum hafi sent alvarlega kvörtun út af sendingu af freð- fiski, sem þangað var seld. Blaðið hefur ekki getað aflað sér nánari upplýsingar um orðróm þenna en fengið þó staðfest, að hann sé á rökiim byggður, Er talið að hér sé um að rseða togarafisk, sem frystur var úti á landi og sætti ekki þein i ströngu matsmeðferð, sem til er ætlast. Þar af leiðandi hafi gæði fisksins ekki svarað til þeirrar kröfu sem gerð er um ís- lenzkan freðfisk. Hér er um alvarlegt mál að ræða. Á erlendum mörkuðum heimtum við venjulega hærra verð fyrir fisk en aðrar þjóðir vegna þess að íslenzki fiskurinn er talinn betri vara. Yfir 90% af útflutningi okkar er fiskur og fiskafurðir. Við eigum þvi alla afkomu okkar undir því að fiskurinn sé góð vara, sem aðrar þjóðir vilja kaupa. Til þess að tryggja gæði þessarar vöru hafa verið settar strangar reglur um mat og fjöldi matsmanna launaðir af ríkinu til þess að sjá um að reglunum sé hlýtt. Hvernig getur það þá komið fyrir, að skemmd vara fer út úr .landinu í gegnum hendur þessara manna? Hér liljóta að vera veikir hlekkir í keðjunni. Eftirlitið með fiskmatinu hlýtur að vera ófullkomið. Alvarleg vanræksla getur varla átt sér stað nema því aðeins að hið opinbera eftir- lit sé ekki eins vakandi sem skyldi. Matsmennirnir eru fyrst og fremst starfsmenn ríkisins þegar þeir sinna matsstörfum sínum og þeir mega ekki jafnframt hafa hagsmuna að gæta í matinu fyrir sig eða aðra. Opinbert mat sem ekki er hægt að treysta er verra en ekkert mat. Þeir sem ábyrg'ð bera a slíku verða að svara í þessu efni. í þessu sambandi er ástæða til að gefa því alvarlega gaum hvort nógu skýrar og strangar reglur hafa berið settar um ifrystingu fisks úr togurum. Allir vita að fiskur þarf að komast nýr í frystingu til að verða .góður og geymast vel. Bátafiskur- inn kemur nýr til lands og þess vegna hefur hann verið fyrsta flokks vara. Allt öðru máli er að gegna með togarafiskinn nema skipin hafi haft mjög skamma útivist. Þes,s vegna verður frysting á togarafiski jafnan mjög varhugaverð nema settar séu skýrar reglur og beitt sé ströngu eftirliti um mat á þeim fogarafiski, sem settur er í frystingu. Vanræksla í matinu er hættuleg fyrir þjóðina og ekki verður hjá því komist að þeir sem bera ábyrgð á slíkri van- Tækslu verði tafarlaust látnir víkja úr starfinu. Pólitískur samsöngur. ’ A llir vita, a'ð Framsókn hefur lengi litið Alþýðuflokkinn hýru auga og ekki dregið dul á, að samvinna milli þeirra væri, hið eina og sanna hjálpræði fyrir „frjálslynda umbótamenn“ i .landinu. Hinsvegar hrýtur Framsóknarmaddömunni stundum tár af hvarmi þegar hún ræðir um það klökkum rómi hversu erfiðlega þessum ástvinum gengur að ná saman. En því hafa valdið grimm örlog. Vegna fátæktar og umkomuleysis hefur þeim ekki enn tekist að reisa bú. ! En nú hefur vaknað ný von hjá Framsókn síðan hinn „frjál§lyndi umbótamaður“, Hannibal, gerðist foringi Alþýðu- flokksins, Hefur dregið svo saman með þeim að haldinn er pólitískur samsöngur á degi hverjum. Hinn „frjálslyndi um- ,bótamaður“ syngur að sjálfsögðu efri röddina. Fyrir nokkrum dögum var þetta viðkvæðið hjá Framsókn: „----þess vegna óska framsóknarmenn síður en svo eftir því að Alþýðuflokkur- inn bíði ósigur. Þvert á móti er það von hans að báðum þessum ílokkum takist að vinna fylgi af íhaldinu og kommúnistum í næstu kosningum. Það skapar mestar vonir um batnandi stjópnarhætti“. Hver sem lifir á slíkri von, deyr fastandi. Mánudaginn 23. marz 1953. anHH Við vitum ekki hver tunga spánskra hellisbúa var fyrir 25 öldum, en veg'gmyndirnar, er þeir gerðu, tala máli, sem við skiljum. Þannig hefur myndin varðveilt minn- ingar, sagt s.ögu, — leiigi vel eins og listamaðurinn s-kynj- aði hana cg túlkaði, — á hjallarvegg í Knossos, ker í Babylon, kirkju í Róm, en seinna, — eftir að ljósmynda- vélin vax-ð til — geymt atburðinn sjáifan, eins og hann endurspeglaðist á filmúnni. Allt frá 1842, er Illustrated London News, — eitt fyi-sta mynskreytta vikublaðið — vai’ð til hefur fiötur fréttamynd:u'innar verið vaxandi, sókn hennar samfelld til sigxa. Langt er nú síðan að frétta- ljósmyndai-inn og blaðamaðurinn urðu starfsbræður. Þeir hafa klifið santan hæstu tinda, sigið niður í djúp hafsins, verið þar sem eyðing lífs var áköfust eða gróður þess mest- ur, þar sem sagan varð til hverju sinni, og eins og þeir skilja hana og túlka með penna cg Ijósmyndavél, — þannig mun hún varðveitast framtíðinni. Hvor þátturinn verður endingarbetri vitum við ekki, en ef það skyldi nú verða eitthvað eitt, á bláði eða í bók, er síðari kynslóðir vildu varðveita íil mittja um atburði ái*sins 1953, — t. d. eftir 25 aldir? — væri fráleitt að láta sér til hugar konta að það yrði fréttaljósmynd? Finnajjöröur á Langanesi. Vetrarnótt. Tunglskin. Maður stendur i flœðarmálinu yfir hafurtaski sínu: Báturinn, sem flutti hann til lanás, er horfinn í djúp íshafsins, og á sveitabœnum, sem er í ná- að húsfreyjan á bœnum risi úr rekkju og’kveíkti undir katlin- um, en þá mun hann ganga heim og bjóða góðan dag, þvi að hann cétlar ekki að reyna að dyljast, enda er hann ekki útlendur flugumaður í óvina- landi, heldur íslendingur, sem munda, munu allir sofa, ekkert fyrir illar tilviljanir drógst inn er til að rjúfa kalda kyrrð hinn- I i stórveldastyrjöld, og varð að ar norðlenzku vetrarncetur nema fe.ro, heim með þessum hcetii hjartsláttur mannsins, þar sem i eða eiga á hcettu að komast hann stendur þarna, nýstiginn eldrei framar heim. Þess vegna úr djúpi ishafsins, — einn í tunglsljósi á strönd FinnafjarO- ar. Fyrst var þögnin óhugncmleg. situr framandlegur maður á tunglskinsbjartri vetrarnótt úti i , Finnafirði, og bíður þess að morgunglóðin á arni íslenzks Voru hér ekki hermenn, er biöu \ sveitabœjar veröi honum tákn til þess að taka hann höndum,' Pess OJO hann megi láta álaga- og myndu þá ekki þeir, sem haminn falla, — aö heim sé fylgdust með ferðum hans utan aftur kominn íslenzkur ferða- strandarinnar, lyfta hinu svarta lángur, —- œvintýramaðurinn flykki, er flutti hann frá Noregi, Pétur Thomsen. upp á yfirborð hafsins, og-senda h^num þaðan þá kveðju, er ^ Jens Pétur Thomsén er fædd- síðust veitist þeim, er lifandi ur í Reykjavík 19. júní 1910. má aldrei falla í óvinahendur? Hann ber nafn móðurafa síns, En það er ekkert að heyra er iengst var við verzlunarstörf eða sjá. Þess vegna sezt majB.ur- í Búðardal, en faðir Péturs var inn á. sæbarínn stein í flcnðar- Friðrik Halldórsson prentari. málinu, ráöinn í að bíða þess, Móðir hans er Elín Thomsen. Pétur Thomp- sen áð koma frá Ijósmynda tölcu í neðan- jarðargöngum Sogsvirkjun- arinnar. Pétur hóf nám í Verzlunar- skólanum, en hvarf síðar frá því vegna þess að honum bauðst góð atvinna við verzlunarstörf hér í bænum árið 1928, og vann hann síðan að þeim til ársins 1936, en þá sigldi hann til Ðanmerkur og vann þar fyrst í skrifstofu, en varð síðar eftir- litsmaður í speglagerð. Sumarið 1939 fór hann tii Þýzkalands og gerðist eftirlits- maður hjá fyrirtæki nokkru, sem fékkst við framleiðslu hitunar- og loftræstingartækja. Árið 1940 fór hann á ljós- myndaskóla í Stettin, og lauk þar námi tveim árum síðar. Eftir það vann hann að ljós- myndagerð á vegum þýzka hersins og ílakkaði víða þeirra erinda, komst m. a. alla leið austur í Ukrainu. Síðar var þess beiðzt, að hann gengi í þjónustu þýzku njósnar- starfseminnar, og færi á veg- um hennar til íslands, og taldi Pétur að sér væri ófært að neita því. Var hann nú þjálf- aður til þessa starfa og sendur; með kafbáti til íslands. Hann náði strax sambandi við ör- yggisþjónustu setuliðsins hér, afhenti öll tæki sín og kvaðst engu vilja leyna um fyrri störf og leysti þannig vandann. Árið 1947 hóf Pétur ljós- myndagerð í Reykjavík, og mun hann vera fyrstur íslendinga til þess að gera töku fréttamynda að aðalatvinnugrein. . Hann er kvæntur og býr við Blómvalla- götu 10-A hér í bæ. Viltu segja mér eitthvað um tildrög Islandsferðar þinnar á stríðsárunum? Velkomið. Eg hafði, af ýms- um ástæðum, dregizt svo ná- lægt hinni þýzku hernaðarvél, að þegar þess að óskað, að eg færi til íslands, þá vissi eg nógu mikið til þess að vera sann- færður um, að það væri hættu- legra að neita þeirri för en játa. Mér var þó alltaf Ijóst, að þetta feröalag var vitleysa tóm, enda alltaf ráðinn í að gera aldrei neitt það, er reikna mætti mér síðar til ávirðingar. Þess vegna hringdi eg strax daginn eftir- að eg kom að Langanesi, tii sýslumannsins á Húsavík, skýrði honum frá ferðum mín- um, og bað hann að tilkynna hernaðaryfirvöldunum komu mína. Sýslumanni mun í fyrstu hafa þótt þetta samtal nokkuð óvenjulegt, en trúði mér þó, og lét að vilja mínum. Hvernig reyndust Bretarnir þcr? Ágætlega. Betra varð ekki á kosið. Þeir sannfærðust fljót- lega um, að eg ætlaði engu að leyna, og reyndust mér vel, bæði þann tíma, sem eg dvaldi beinlínis á þeirra vegtim, og ... Framh. á 6. síðu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.