Vísir - 23.03.1953, Side 8
VfSIB er ódýrasta blaðið og þó það fjöl-
Þclr um gerast kaupendur VÍSIS eftir oi^apBœip | qap Hft ‘
1C. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til W W jKL breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerist
mánaðamóta. — Sími 1660. «wá ún áskrifendur.
Mánudaginn 23. marz 1953.
Naguih hótar að stökkva
Bretum úr Egyptalandi.
Fimm hershöfðingjar með samtals 25 stjörnur stinga saman nefjum. Hershöfðingjarnir voru á
ráðstefnu í París, en þeir eru (frá vinstri): John K. Cannon, Le May, Bradley, Ridgway og
Vandenberg, Þeir eru allir amerískir.
i heilsuverndarstöðínni nýju veröur hjúkr
unarspítali fyrir 55—60 sjúklinga.
Ilrtdge
Þar ver&ur barnaverndarsföð, eltirlit með
barnskafandi konum, kynsjúkdómastöð,
berkfavamastöð, slysavaróstofa, áfengis-
varnastöð o.fl.
Einkaskeyti frá A.P. —
Kairo í niorgun.
. Naguib forsætisráðherra herð
Ir nú sem fastast áróðurinn fyr-
ir því, að Bretar hverfi með
herafla sinn frá Egyptalandi.
Er Naguib á ferðalagi um
Nílardalinn og flytur þar ræð-
ur. Hann sagði í ræðu í gær, að
egypzka þjóðin krefðist þess, að
Bretar færu þegar í stað frá
Súezeiði og það skilyrðislaust,
en í annarri' ræðu, sem hann
flutti í Efri-Nilardalnum, sagði
hann, að
Bretar yrðu neyddir til þess
að fara frá Súezeiði, ef þeir
færu baðan ekki af frjálsum
vilja.
SkákþingiB hafih.
Keppeudm* 42.
Skákþing íslendinga hófst í
gær og eru þátttakendur 42
talsins. Þar af eru 12 í meistara
flokki en 10 þátttakendur í
hvorum hinna flokkanna.
í landsliðsflokki urðu aðeins
tvær skákir til lykta leiddar, í
annarri þeirra sigraði Guðjón
M. Sigurðsson Óla Valdimars-
son, en hitt varð jafnteflisskák
hjá Eggert Gilfer og Guðmundi
S. Guðmundssyni. Biðskákir
urðu hjá Friðriki Ólafssyni og
Guðm. Ágústssyni, Steingrími
Guðmundssyni og Ingi R. Jó-
hannssyni og Baldri Möller og
Sveini Kristinssyni.
f meistaraflokki vann Ingi-
mundur Guðmundsson Ágúst
Ingimundarson, Þórður Þórðar-
Þórðarson vann Hauk Sveins-
§on, Margeir Sigurjónsson vann
Jón Víglundsson, Jón Pálsson
vann Guðmund Guðmundsson,
en jafntefli varð hjá þeim
Antoni Sigurðssyni og Birgi Sig
urðssyni.
Önnur umferð verður tefld í
kvöld kl. 8 að Þórscafé- Þá tefla
saman í landsliðsflokki: Gilfer
og Friðrik, Guðm. Ágústsson
og Steingrímur, Ingi og Baldur,
Sveinn og Óli, Guðm. S. Guð-
mundsson og Guðjón M.
11 málverk
hafa selzf.
Góð aðsókn hefur verið að
listsýningu frú Grétu Björns-
son, sem opnuð var í Lista-
mannaskálanum á Iaugardag.
Um fimm hundruð manns
hafa sótt sýninguna, og í gær-
kvöldi var búið að selja ellefu
málverk, og auk þess skreyttan
bakka, gluggatjöld og dúka. —
Auk þess varð gerð pöntun á
10 m. af gluggatjöldum.
Selwin Lloyd
ráðherra er kominn til Khar-
toum í Brezk-egypzka Súdan og
ræðir þar við landstjórann og
súdanska leiðtoga fyrir hönd
brezku stjórnarinnar.
..........
Lögreglufréttir.
í vikunni sem leið var stolið
úr vara-rafmagnsstöð Reykja-
víkurflugvallar tveimur litlum
rafmótorum, Va eða úr hest-
afli. Enn fremur var stolið það-
an 2 olíurörum úr eir, Vz tommu
að utanmáli.
í s.l. viku var einnig stolið
um 150 netakúlum, flestum ó-
utanum hnýttum, úr geymslu,
ofarlega á Grandagarði. Ef ein-
hverjir kynnu að hafa orðið var
ir við eitthvað af þýfi. þessu
eru þeir vinsamlegast beðnir að
tilkynna rannsóknarlögreglunni
það. —
Bíl stolið.
í fyri’inótt var bílnum R. 13,
rauðum Buick, stolið úr opnum
bílskúr á Þingholtsstræti 34 hér
í bænum. Bíllinn fannst í gær-
kveldi um áttaleytið suður í
Hafnarfirði og stóð þá bak við
bifreiðaverkstæði við Norður-
braut. Bíllinn var óskemmdur.
Rannsóknarlögreglan óskar upp
lýsinga um ferðir bilsins í fyrri
nótt eða gær ef einhverjir hefðu
séð til hans.
Badminton mótinu
lauk í gær.
Innanfélagsmóti T.B.R. í bad-
minton Iauk í gær. Úrslit urðu
þessi:
Meistaraflokkur:
í tvíliðakeppni kvenna sigr-
uðu Júlíana Isebarn og Berg-
Ijót Wathne. í einliðakeppni
kvenna sigraði Júlíana ísebai’n.
f tvenndarkeppni báru þau
Unnur Briem og Wagner Wal-
born sigur úr býtum. í tvíliða-
keppni karla sigruðu Wagner
Walborn og Einar Jónsson, en
sigui’vegari í einliðaleik karla
varð Wagner Walborn.
1. flokkur:
í tvíliðakeppni karla sigraði
Davíð Thorsteinsson og Árni
Ferdinandsson, í tvenndar-
keppni sigruðu Sigríður Guð-
mundsdóttir og Pétur Nikulás-
son, en í einliðaleik karla varð
Kjartan Magnússon hlutskarp-
astur.
... é
Pólskt skip kom í lok síðustu
viku til Khafnar til þess að
sækja MIG-flugvélina, sem var
á Borgundarhólmi fyrir
skemmstu.
11 sveitir í
tvendarkeppni.
Tvenndarkeppni Bridgefé-
Iagsins hófst í gær og taka 11
sveitir þátt í henni.
Spilaðar verða 11 umferðir
og fara tvær umferðir fram í
hvert sinn,
f 1. umferð fóru leikar þann-
ig, að Jóna Rútsdóttir vann
Laufeyju Þorgeirsdóttir, Ásta
Flygenring vann Sigurbjörgu
Ásbjörnsdóttur, Ingibjörg Þor-
steinsdóttir vann Huldu Krist-
jánsdóttur, Laufey Arnalds
vann Guði’íði Guðmundsdóttur
og Rósa Þoi’steinsdóttir vann
Elínu Jónsdóttur. Sveit Louisu
Þórðai’son sat yfir.
í 2. umferð gerðu þær Laufey
Ai’nalds og Elín jafntefli, Ingi-
björg vann Guðríði, Sigurbjörg
vann Huldu, Jóna og Ásta
gerðu jafntefli, Louisa vann
Laufeyju Þorgeirsdóttur. Sveit
Rósu sat yfir.
Þriðja og fjórða umferð verða
spilaðar í kvöld.
Handknattlefksmótíi.
Handknattleikskeppnin að
Hálogalandi í gær var að mörgu
leyti tvísýn og spennandi.
í méistaraflokki kvenna sigr-
aði Valur íþróttabandalag
Akraness naumlega með 1
marki gegn engu, en Fram og
K. R. gerðu jafntefli 2:2.
í III. fl. karla fóru leikar
þannig, að í. R. vann K. R. 5:3,
Ármann vann Víking 9:1 og
Valur vann Þrótt 7:6.
í I. fl. karla sigraði Ármann
Val 7:6 og K. R. sigraði Fram
með 9 mörkum gegn 2.
Heilsuverndarstöðin nýja við
Barónsstíg verður stórhýsi
mikið og miðar byggingu henn-
ar vel áfram. Ráðgert er að hún
geti tekið til starfa á næsta ári.
Aðalbyggingin er þegar full-
reist, sömuleiðis álman með-
fram Barónsstíg, en hins vegar
er sú álman sem liggur með-
fram Egilsgötu ekki fullreist
ennþá.
í þessari byggingu á aðal
heilsuverndarstarfsemi bæjar-
ins að fara fram og er húsið
byggt þannig að hver starfs-
I grein heilsuvemdarinnar geti
verið alveg aðgreind og með
eigin inngangi svo þær þurfi
ekki að verða fyrir truflunum
hvor af annarri.
Barnaverndarstöðin.
í álmunni meðfram Baróns-
stíg er gert ráð fyrir að barna-
verndarstöðin verði til húsa svo
og eftirlit með barnshafandi
konum, en það fer nú fram á
fæðingardeild Landspítalans. f
enda álmunnar verður kyn-
sjúkdómalækni ríkisins ætlað
húsrými fyrir starfsemi sína.
í álmunni meðfram Egilsgötu
verður starfsemi berklavarna-
stöðvarinnar og fær berkla-
varnastöðin einnig til urnráða
1. hæð aðalbyggmgarinnar. í
sambandi við þessa starfsemi
verður komið fyrir röntgen-
tækjum þeim, sem notuð eru til
hóp- og heildarskoðana á íbú-
um taæjarins.
Sl.vsavarðstofan.
Á neðstu hæð aðalbyggingar-
innar verður slysavarðstofan og
er ætlast til að hún verði starf-
rækt allan sólarhringinn, svo
hægt sé að leita þangað jafnt
að nóttu sem degi ef slys ber
að höndum.
Á fyrstu hæð mið- eða aðal-
byggingarinnar verður auk
berklavarnastarfseminnar að
líkindum áfengisvamastöð o. fl.
Ákvéðið hefur verið að á
annarri og þriðju hæð hússins
verði fyrst um sinn starfrækt
sem sjúkrahús fyrir hjúkrunar-
sjúklinga. Þama er um að ræða
sjúklinga sem flytja má frá
sjúkrahúsum eftir nákvæmar
rannsóknir eða meiri háttar að-
gerðir, en sýnt þykir að þurfi á
framhaldandi hjúkrun í lengri
tíma. Er búist við að í þessu
húsrúmi megi vista 55—60
sjúklinga.
Kostar 10—12 millj.
Þessi ákvörðun er þó aðeins
gerð til bráðabirgða, því þetta
húsiými er ætlað ýmsum öðr-
um greinum heilsuverndar-
starfseminnar, sem ekki hafa
enn vei’ið teknar upp nema að
litlu leyti. En vegna skorts á
sjúkarrúmum þótti brýnni
nauðsyn að taka þarna inn
hjúkrunarsjúklinga fyrst um
sinn.
Kostnaður við byggingu
heilsuverndarstöðvarinnar er
áætlaður 10—12 milljónir
króna.
♦
London (AP). — Tító, sem
nú er á heimleið, hefur sent
kveðju- og þakkaskeyti til
Elisabetur II. drottningar og
Churchiils.
Lætui hann í ljós mikið þakk
læti yfir móttökunum og á-
rangi’inum af viðræðunum.
Hvaða barn er faílegast ?
Ég greiði atkvæði með mynd nr....
NAFN: .................................
HEIMILISFANG: .........................
Seðlinum sé skilað fyrir kl. 6 síðdegis n.k. miðvikudag.