Vísir - 29.07.1953, Blaðsíða 8

Vísir - 29.07.1953, Blaðsíða 8
Þeir sem gerast kaupeadur VÍSIS eftir 10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. VISIR VÍSIR er ódýrasta blaðað og þó það fjöl- breyttasta. — Hringið í sima 1660 og gerist áskrifendur. Miðvikudaghm 29. júlí 1953. Kommúnistar við sama heygarðsliornið: Saka hermenn Sþ. þegar um 80 brot á reglum um lok bardaga. Lögðu J»ó ekki fram neinar sann- anir á þessu. Rhee heldaa* ræðo. — Dnlles fer til Kóreu. Einkaskeyti frá AP. Tokyo í morgun. Syngman Rhee forseti Suð- nr-Kóreu flutti útvarpsræðu í nótt, og gerði grein fyrir af- stöðu sinni og stjórnar sinnar til vopnahléssamninganna. Hann kvaðst ekki hafa séð sér annað fært en verða við óskum Eisenhowers um að gera ekkert, til að hindra fram- kvæmd vopnahlésins, en hann hefði gert það í þeirri von, að á fyrirhugaðri stjórnmála- ráðstefnu yrði unnt að koma því til leiðar, að fjandmenn irnir færu úr Kóreu með allan herafla, en ef það tæk- ist ekki myndu Suður-Kór- ea og Bandaríkin halda á- fram baráttu sinni fyrir sameiningu landsins. Rhee þakkaði öllum, sem veitt hafa Suður-Kóreu stuðn- ing. — Ræða hans vekur mikla athygli, enda er hún flutt í sama mund og Dulles tilkynnir 1 Washington, að hann ætli flug- leiðis til Seoul næstkomandi sunnudag — og tveir öldunga- deildarþingmenn úr hvorum flokki með honum — og verði rætt við Syngman Rhee og stjórn hans um eftirfarandi: 1. Stefnu Bandaríkjamanna og Suður-Kóreumanna á fyrirhugaðri stjórnmála- ráðstefnu. 2. Efnahagslega aðstoð Bandaríkjamanna við S.- Kóreu. 3. Öryggissáttmála tveggja ofannefndra ríkja. Rhee sagði í ræðu sinni í nótt, að hann hefði vissu fyrir því, að öryggissáttmálinn yrði stað- festur á þjóðþingi Bandaríkj- anna. Ásakanir eru strax byrjaðar. Eftirlitsnefndin með fram- kvæmd vopnahlésins kom sam- an á fund í Panmunjom í morg- un og stóð hann 1 klst. og 20 mínútur. Kommúnistar sökuðu hermenn SÞ. um brot á regl- unum um stöðvun vopnavið- skipta. Liðsforingjar SÞ., sem sæti eiga í nefndinni, segja að engar sannanir hafi verið lagð- ar fram fyrir þessum staðhæf- ingum, en að sjálfsögðu yrði rannsókn látin fram fara. 800 MIG-vélum grandað. í tilkynningu yfirstjórnar flughers Bandaríkjanna í Japan segir, að í Kóreustyrjöldinni hafi um 800 MIG-15 orustu- flugvélar verið skotnar niður fyrir kommúnistum, en þetta eru sem kunnugt er þrýstilofts- flugvélar af rússneskri gerð. Bandaríkjamenn misstu hins vegar aðeins 58 Sabre þrýsti- lofts-orustuflugvélar, og misstu kommúnistar þannig um 14 MIG-flugvélar móti liverri einni Sabreflugvél. Dulles staðfesti í gær, að Bandaríkin hefði fallist á það með Syngman Rhee, að Banda- ríkjafulltrúarnir hættu þátt- töku í stjórnmálaráðstefnunni íyrirhuguðu, ef augljóst væri orðið, að kommúnistar notuðu ráðstefnuna til áróðurs og blekk ingastarfsemi. Dulles sagði, er hann svaraði fyrirspurn eins blaðamannsins, að hann væri þeirrar skoðunar, að nægilegt atkvæðamagn myndi fást í Öryggisráðinu til þess að fella tillögu, ef fram kæmi, um að hið Icommúnist- iska Kína fengi sæti á vett /angi Sameinuðu þjóðanna. Notkuii vikurs til einangrunar fer jafnt og þétt í vöxL Hásin, mmii Sameinadir verklakair reisa á Keflavíkurflugvelli, erii einangruð aneð vikri. Þessi mynd er að vísu tekin í Danmörku — á baðströnd — en hún hefði víst alveg eins getað verið tekin hér suður í Naut- hólsvík, því að þar hefur verið niannmargt að undanförnu. K.R. hefir fengið 70 stig á Meistaramótinu. Akranesbátar með reytingsveiði í nétt. Akranesbátar fengu reytings- veiði í nótt, að 'því er fréttarit- ari Vísis á Akranesi tjáði blað- inu í morgun. Fengu flestir bátarnir 30—70 tunnur og voru að veiðum á Jökuldjúpi. I>ar var stafalogn 'Og hagstætt veður. Drangajökull lá við bryggju ■á Akranesi í morgun og var að ’lesta freðfisk, sem fara á til Rússlands og Póllands. I gær fór fram annar hluti Meistaramóts Reykjavíkur og standa þá leikar svo, að K.R. hefur flest stig. Hafði K.R. fengið 70 st., Ár- mann 59, Í.R. 45 og UMFR 2 stig. Urslit í einstökum greinum urðu þessi: 460 m: 1. Guðm. Lárus- son, (Á) 51,4. 2. Þórir Þorsteins son(Á) 51,5. 3. Ingi Þorsteins- son (KR) 51,7. 4. Hreiðar Jóns- son '52,1. 1500 m: 1. Sig. Guðnason (ÍR) 4 mín. 3,0 sek. 2. Kristján Jóhannss. (ÍR) 4 m. 4,4 sek. 3. Svavar Markússon (KR) 4 mín. 10,4 sek. 4. Eiríkur Haraldsson (Á) 4 mín. 32,4 sek. 110 m grindahlaup: 1. Ingi Þorsteinsson (KR) 15,7 sek. 2. Pétur Rögnvaldsson (KR) 16,4 sek. . Rúnar Bjarnason (ÍR) 17,00 sek. 4. Valdimar Örnólfs- son (ÍR) 21,5 sek. Stangarstökk: 1. Torfi Bryn- geirsson(KR) 4,00 m. 2. Bjarni Linnet (KR) 3.50 m. 3. Baldvin Árnason (ÍR) 3,00 m. 4. Daníel Haldórsson (ÍR) 2,70 m. Sleggjukast: 1. Þórður B. Sigurðsson (KR) 48,02, sem er' nýtt íslandsmet. 2. Páll Guð- ^mundsson (KR) 46,92. 3. Sig- ! urjón Ingasson (Á) 44,92. 4. Vilhj. Guðmundss. (KR) 39,50. j Þrístökk: 1. Kári Sólmundar- son (KR) 13,03. 2. Torfi Bryn- i geirsson (KR) 13,02. 3. Daníel : Halldórsson (ÍR) 12,82. 4. Helgi Björnsson (KR) 12,82. 100 m: 1. Guðmundur Lárus- son (Á) 11,4 sek. 2, Þórir Þor- steinsson (Á) 11,7 sek. 3. Vil- hjálmur Ólafsson (ÍR) 11,8 sek. 4. Guðm. Guðjónsson (KR) 11,9 sek. Kringlukast: 1. Hallgr. Jóns-' son (Á) 44,50. 2. Fr. Guðmunds son (KR) 43,22. 3. Þorsteinn Alfreðsson (Á) 39,23. 4. Guðm. ‘ Hermannsson (KR) 39,18. | Annað kvöld fer fram síðasti hluti mótsins. I Vikufélagið h.f. steypir nú plötur og hoisteina ur um 3000 Iestum vikurs árlega. Notkun á vikurplötum tii ein- angrunar er stöðugt vaxandi. k Hefur Vísir átt stutt viðtal við Jón Loftsson, framkvæmd- arstjóra Vikurfélagsins h.f., og .spurt hann um vikurvinnsluna í sumar o. fl. „Vikurfélagið h.f.“, sagði Jón Loftsson, „hefur í vor og súmar, eins og undangengin ár, starfrækt vikurnámurnar við rætur Snæfellsjökuls, en þær eru rúma 6. km. norður og upp af Ai-narstapa. Við notum leysingarvatnið á vorin og sumrin til þess að fleyta vikrinum niður á láglendið. Er honum fleytt um lækjarfar- vegi og rennur á kafla. Á leið- inni er vikurinn malaður — hann flýtur gegnum mÖlunar- valsa, sem hreyfill knýr, ag fer svo vikurinn í geysi stóra „trekt“, og er steypt úr henm á bílana, sem notaðir eru til þess að aka vikrinum niður að höfninni. Þar eru svo birgðirn- ar geymdar, þar til skip kemur til vikurtöku. Verktækni svipuð og á sanddæluskipinu. { Útskipun vikursins fer þann- I ig fram, að vatn er látið fara ’ með hann gegnum gúmmíslöng jur, en á þilfari er útbúnaður j til þess að vikurinn renni í ■ lestirnar, en vatnið útbyrðis af þilfari. Er svo vikurinn fluttur til Reykjavíkur. Einnig vikur úr Þjórsárdal og Flóa. Við notum einnig vikur eða vikursalla til blöndunar, eftir því, sem reynslan hefur kennt okkur. Við sækjum nokkuð af sallavikri í Þjórsárdal og dálítið að Ragnheiðarstöðum í Flóa, en þeim vikri mun Þjórsá hafa skolað þangað einhvern tíma í fyrndinni. um. Og það, sem seinast er að frétta af aukinni vikurnotkun, er það, að „blokkirnar“, sem Sameinaðir verktakar hafa tek- ið að sér að byggja í Keflavík fyrir Bandaríkjaherinn, eru einangruð með vikurplötum, útveggir að innan og millivegg- ir einnig hlaðnir úr þeim. Hol- steinninn er úr 3 gerðum og út- veggir hlaðnir úr þeim. Er- lendis eru holsteinar notaðir í loft og fáum við brátt tækifæri til að framleiða þá. 25,000 kvaðratmetrar. Hver plata er Y\ úr kvaðrat- metra og eru þá 100,000 plötur 25,000 kvaðratmetrar. — Þetta er afg'reitt til Sameinaðra verktaka á þessu sumri. Vikurinn ekki fluttur ’ út sem stendur. Vikurinn er ekki útflutnings- vara sem steiidur, vegna þess að skilyrðin eru ekki hentug til þess, að flytja hann út með hagnaði. En nokkrir skipsfarm- ar fóru fyrir nokkrum árum og reyndist vikurinn hið bezta. Gæðin eru fyrsta flokks, en aðrar ástæður valda útflutn- ingurinn hefur lengið niðri undangengin ár. — Innanlands hefur notkun vik- urs til einangrunar farið sívax- andi ár frá ári. — Eg vil að síðustu taka fram, að eg tel Sameinaða verktaka eiga allan heiður skilið fyrir, að nota ís- lenzkt byggingarenfi sem allra mest. Það eru 5 þriggja hæða blokkir, sem í sumar verða ein- angraðar með vikri á Kefla- víkurflugvelli“. Hið berzt einangumarefni — aukin notkun. Vikurinn er hið bezta ein- angrunarefni, eins og reynslan hefur sannað og æ fleiri hafa sannfærst um. Við framleiðum holsteina og plötur til einangr- unar úr vikrinum úr um það bil 3000 smálestum árlega. 100,000 plötur til Keflavíkur. Um allt land eru nú hús, sem einangruð eru með vikurplöt- j Adenauer kanslari hefur j stungið upp á, að A.-bandalags- ríkin geri griðajáttmála við Ráðstjórnarríkin þegar samtök- in eru komin á traustan grund- v-öll og sameinað Þýzkaland 1 komið í þau. Tafi var vart lif faugað. Uppskurður var gerður á Taft öldungadeUdarþingmanni fyrir nokkru og hefur honum vart verið líf hugað undangeng in dægur. Fregnir í morgun hermdu, að líðan hans væri eitttvað betri. Læknar voru í óvissu um mein það, er þjáði Taft, er uppskurð- urinn var gerður. Dýrar reykingar. Canberra (AP). — Óttast er, að deila um reykingaleyfi verka manna kunni að valda vinnu- deilum á næstunni. Það kom nýlega fyrir í Bris- bane, að 600 hafnarverkamenn voru sendir heim, þar sem þeir tóku sér of langar reykinga- hvíldir, sem orðnar eru hefð. Vilja verkamenn ekki sleppa hvíldum þessum, er þeir nefna „smokos“, og heimta meiri tíma til þeirra. Norskt herskip hér í höfmnni. Norskur tundurspillir, KNM „Narvik“, er væntanlegur hing- að í dag. Herskip þetta hefur verið á tveggja mánaða ferðalagi í æfingaskyni, en mn borð eru m. a. nemendur af sjóliðsfor- ingjaskólanum norska. Skipherra á „Narvik“ er C. O. Herlofsen, en hann hefur verið sæmdur ýmsum heiðurs- merkjum Norðmanna, m. a. Krigskorset með tveim sverð- um, St. Ólafsorðunni með eik- argrein fyrir vasklega frammi- stöðu í styrjöldinni og Krigs- medaljen með stjörnu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.