Vísir - 03.09.1953, Page 1
VI
41, árg.
• töíV-'
Fimmtudaginn 3. september 1953
198. tbl.
Allir togararnir sennilega
brátt á veiðum.
Ým§ verkefni fyrir hendi.
FlugvaSSargerð að hefjast í Grímsey.
Líklegt er, að allur íslenzki!
togaraflotinn verði farinn á
veiðar innan skamms, því að
serin verkefni eru nú fyrir
hendi.
Liggur nú fyrir, að reyna að
veiða nægilegt af karfa til þess
að uppfylla samningsskilyrði
við’ Rússa um karfaflök, og
munu a. m. k. 6—8 skip stunda
karfaveiðar. Þyrftu semjilega
að vera fleiri, en óvíst, að fleiri
geti stundað þær, því að nú ligg
ur einnig fyrir að afla í ís fyrir
Þýzkalandsmarkað og vegna
samninganna við Dawson, en
ekki eru skip enn farin á veiðar
þeirra vegna, en gert hefur
verið ráð fyrir fyrstu löndun í
Bretlandi í þessum mánuði.
Geir fór á karfaveiðar í gær
og Askur býr sig á karfaveiðar.
ísólfur fiskar karfa og leggur
upp á Austurlandi, en líklegt er
að Vestmannaeyjatogararnir,
sem legið hafa í höfn í allt sum-
ar, fari á karfa, því að í Vest-
mannaeyjum eru skilyrði til að
taka við karfanum og verka
hann. Siglufjarðartogarinn ann
ar fór á Grænlandsveiðar með-
an verið var að ganga frá frysti-
húsinu á Siglufirði, en líklegt
að báðir Siglufjarðartogararnir
fari á karfa. Austfirðingur er á
saltfiskveiðum, en hafði einnig
ís með og er hann væntanlegur
á mánudag með eitthvað af
karfa.
Lögreglan hiriir 4 hjálparvana
meitn á götum bæjarins.
Öllum hjálpað vegna ölvunar
og á sama sólarhringnum.
Maður deyr
af barnaveiki,
í vikunni sem leið varð vart
eins barnaveikitilfellis hér í
bænum og dró veikin sjúkling-
inn til dauða. Var fþarna um að
ræða fullorðinn mann.
Ekki hefur reynzt unnt að
rekja slóðina til smitberans,
enda erfitt í flestum tilfellum
þar eð smitberamir eru oftast
heilbrigt fóllc, sem ekki tekur
veikina.
Það er langt síðan barna-
veiki hefur stungið sér niður
hér í bænum og er þetta fyrsta
tilfellið frá því 1948. Þá voru
skráð 4 tilfelli á læknaskýrsl-
um og einn sjúklinganna dó.
Undirbúningur á endurbyggingu og
byggðarsafni í nyrzta bæ landsins.
Flugvallargerð í Grímsey er í | um milli lands og Grímseyjar
þann veginn að hefjast og er nú s.l. laugardag og að því búnu
búið að flytja jarðýtu út í eyna' tekið til óspilltra mála að setja
til þess að ryðja og jafna fyrir hana saman. í fyrradag var því
I vellinum. verki lokið og ýtan tilbúin að
I taka til starfa.
I fyrstu var ætlað að flytja
ýtuna í heilu lagi út í Grímsey
og helzt í ráði að flytja hana á
stórum pramma, sem auðvelt
yrði að lenda við eyna. En þeg-
ar til átti að taka fékkst ekkert
farartæki, sem flutt gæti ýtuna
í heilu lagi, svo horfið var að
því ráði að skrúfa hana sund-
ur og flytja hana í smá stykkj-
um. Þannig var hún flutt í póst-
bátnum sem heldur uppi ferð-
í gær og nótt varð lögregian
hér í bænum að hirða fjóra eða
fimm ofurölva memi, sem lágu
bjargarlausir á götum úti, sum
ir tneiddir.
Fyrstu tvö tilfellin urðu um
svipað leyti, nokkru fyrir há-
degið í gærmorgun. í öðru til-
fellinu hafði ölvaður maður
dottið á Klapparstígnum og lá
þar særður á hnakka. Flutti lög
reglan hann í Landspítalann og
iét gera að meiðslum hans, en
að því búnu var hann fluttur
heim til sín. í hinu tilfelUnu
hafði lögreglunni borizt íil-
kynning um drukkinn mann, er
lá hreyfingarlaus og sem dauð-
ur væri á Stýrimannastíg. Lög-
reglan sótti hann einnig og
flutti heim.
Laust fyrir miðnætti í nótt
var lögreglunni tilkynnt um
hjálparvana mann liggjandi á
Öldugötu. Þegar lögreglan kom
á staðinn var maðurinn mátt-
laus sökum ofurölvunar og gat
ekki sagt til nafns síns. Var
óttast að eitthvað kynni að vera
að manninum og læknir til
kvaddur, en hann sagði að ölv-
un væri eini sjúkleikinn sem að
honum gengi. Tók lögreglan
hann þá í vörzlu sína.
Fjórða tilfellið skeði á 2. tím-
Framhald á 7. síðu.
Umferðaviti á mótum
Laugavegs og Snorra-
brautar.
Þessa dagana er verið að setja
upp nýjan umferðarvita á
gatnamótum Laugavegs og
Snorrabrautar, en það er það
umferðarhornið í bænum, er
talið var nauðsynlegast að
koma upp umferðarvita.
Hefur þetta mál lengi verið
á döfinni, enda átti bærinn ým-
islegt efni í vitann frá þeim
tíma er götuvitunum var komið
upp hér í miðbænum á sínum
tíma. Verður því um sama kerfi
að ræða og er á gomlu umferð-
arvitunum.
Búið er að koma beltum fyr-
ir í göturnar og má vænta þess
að umferðarvitinn verði tekinn
í notkun einhvern næstu daga.
Allir muna ameríska hermanliinn George Jörgensen, sem lét
breyta sér í konu og vakti heimsathygli ekki alls fyrir löngu.
Fyrir nokkru fréttist um franska stúlku, er átti ekki aðra ósk
heitari en að verða karlmaður og mega vinna sem bílaviðgerðar-
maður. Læknar í París breyttu henni í karlmann, og eru mynd-
irnar hér að ofan af stúlku og pilti.
Somarbústabur bronnur
við Gunnarshólma.
I gær var slökkviliðið kvatt
að sumarbústað uppi við Gunn-
arshólma.
Þegar liðið kom á vettvang,
var húsið alelda og brann að
mestu, svo að telja má að sum-
arbústaðurinn hafi gereyðilagzt.
Enginn var í húsinu og er
sýnilegt, að þar hefur ekki verið
búið í sumar. Ekki vissi slökkvi
liðið, hver er eigandi þessa sum
arbústaðar og óvíst er með öllu,
Tivað valdið hefur íkveikjunni.
Það er dáfallegt ástandið hfá
„vinstri samsteypunni66 í Eyjum.
B hjjá hœnumn /« aöeins smá-
fft'oSðslur öðrw #f wv'jju. wrhiull tjfirvuftuntii
Svo mikil fjármálaóreiða rík-
ir nú hjá meirihluta bæjar-
stjórnar Yestmannaeyjakaup-
staðar, að verkamenn, sem
vinna hjá bænum, hafa undan-
farið ekki fengið vinnulaun sín
greidd að fullu, heldur aðeins
„smágreiðslur öðru hverju“.
Var þetta ástand orðið verka-
mönnum svo óbærilegt, að fyr-
ir fáum dögum gerði stjórn
Verkalýðsfélags Vestmanna-
eyja samþykkt, þar sem kraf-
izt er, að útborganir fari fram
regulega, eins og samningar
mæla fyrir uní, og segir m. a.
í samþykktinni, að „aumt væri
viðskiptalíf í þessum bæ. ef
alls staðar væri sami háttuc um
launagreiðslur og því miður er
hjá bæjarfélaginu.“
Varð þetta til þess, að Sjálf-
stæðismenn, sem eru í minni-
hluta í bæjarstjórn, flúttu ti'-
lögu um að bæjarstjórn fyrir-
skipaði bæjarstjóra að standa
í skilum með greiðslu á verka-
mannalaunum. Var tillagan
samþykkt með 8 atkvæðum.
Þykir það nokkrum tíðindum
sæta, að bæjarstjórnarmeiri-
hhiti, sem sjálfur telur sig fyrst
og fremst fulltrúa verkamanna,
skuli þurfa að fyrirskipa bæjar-
stjóra sínum að standa við gerða
samninga við verkamenn.
Blaðið „Fvlkir“ í Vstmanna-
eyjum greindi frá þessu nýver-
ið, og segir þar frá því, að al-
mennur fundur í Verkalýðsfé-
lagi Vestm.eyja hafi veitt stjórn
inni og trúnaðarmannaráði
heimiltl til vinnustöðvunar, ef
úrbætur fengjust ekki innan
tilskilins tíma. Getur því svo
farið, að vinna hjá Vestmanna-
eyjakaupstað leggist niður
vegna þessarar furðulegu fjár-
málaóreiðu.
Um samgöngubót þá, sem
flugvöllur í Grímsey skapar
eyjarskeggjum, er óþarft að fjöl
yrða hér, enda hefur ýtarlega
verið rætt um það efni áður
hér í blaðinu.
Hálf eyjan
norðan heimsskautsbaugs.
Á eitt atriði skal þó aðeins
drepið hér í þessu sambandi
og það er að lenda í Grímsey,
með útlenda ferðamenn. Svo
sem kunnugt er liggur heims-
skautsbaugur um eyna þvera og
norðurhluti eyjarinnar telst því
norðan baugsins. Nú er það
mjög eftirsóknarvert fyrir út-
lendinga að hafa komið norður
fyrir heimsskautsbaug og því til'
valið að fljúga með þá tii
Grímseyjar í þessu skyni. Auk
þess er mai'gt fagurra náttúru-
fyrirbæra og sérkennilegra að
sjá í Grímsey, svo að það út af
fyrir sig nægir til þess að
laða ferðamannastraum þang-
að.
Nýlega hafa tveir menn
bundizt samtökum um það að
safna fé til þess að endurbyggja
nyrzta bæ eyjarinnar, Bása, er
örugglega liggur norðan heims-
skautsbaugs og jafnframt er,
nyrsti bær á íslandi. Bærinn er
að vísu kominn í eyði, en hug-
mynd tvímenninganna er að
byggja bæinn upp í gömlum
stíl og koma þar upp byggðar-
safni og afla fornra gripa,
sem við koma sögu eyjarinnar
eða atvinnulífi, svo sem fugla-
tekju, bjargsigi, fiskiveiðum o.
fl. Mennirnir sem að þessu
standa eru þeir Kristján Egg-
ertsson fyrrum oddviti í Gríms-
ey og hefur hann þegar gefið
þúsund krónur í þessu skyni,
og Árni Bjarnarson bóksali á
Akureyri, sem manna mest
hefur barizt fyrir flugvallar-
gerð í Grímsey. Munu þeir báð-
ir veita móttku gjafafé til end-
urbyggingar Bása og sömuleiðis
hefur Vísir lofað að veita fé
móttöku í þessu skyni.
Þrjár GrænbndsferSir
fí fyrirhugaðar.
Flugfélag íslands mun á
næstunni fara í þrjár ferðir til
Meistaravíkur á Grænlandi til
þess að sækja þangað fólk.
Það era leiðangursfarar dr.
Lauga Koch, aðallega danskir
og svissneskir vísindamenn sem
farnir eru að hugsa til heim-
ferðar, en Flugfélagið flutti þá
til Grænlands snemma í sumar.
Flugfélagið mun senda Doug-
lasvélar eftir mönnunum og var
ætlað að fyrsta flugvéiin færi
í dag ef veður leyfði.