Vísir - 17.09.1953, Blaðsíða 8

Vísir - 17.09.1953, Blaðsíða 8
Þeir lem gerast kaajpeodur VfSJS efiior 10. hvers mánaðar fá blaðiS ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1600. VIBIR Fimmtudaginn 17. september 1953 VfSIR er ódýrasta blaðið og þó J»a3 £j«l- breyttasta. — Hringið i sima 1660 og gertet áskrifendur. Heknilislausír drykkjumenn so& úti eia í skúmaskotuiu. Aðbnð þeirra engu Ibetri en nti- gangshros«a, segir formaðnr Áfengisvarnanefndar Rvikur. „Við ísiendingar höfum sett okkur sérstök lög um dýra- verndun, þar sem refsingar og sektir liggja við illri meðferð dýranna, en á hinn bóginn höf- am við látið það viðgangast, að drykkhneigðir, ólánssamir þjóð íélagsborgarar, sem hvergi ðiga höfði sínu að að halla, verði að hýrast í skúmaskotum eða á víðavangi, eða í fangahúsi“. Á þessa leið fórust Oscari Clausen, formanni Áfengis- varnanefndar Reykjavíkur orð, er Vísir átti við hann stutt við- ial í morgun, en tilefni þess var bréf, sem Áfengisvarnanefndin xitaði bæjaryfirvöldunum í sumar, þar sem skorað var á jþau að koma á fót næturhæli iyrir drykkjumenn. Mál þetta er nú í athugun bjá borgarlækni og lögreglu- ítjóra, en Gunnar Thoroddsen borgarstjóri hefur tekið vel í að finna lausn á þessu vanda- máli. í fyrrnefndu bréfi er farið xram á, að komið verði á fót næturhæli (Asyl) fyrir drykkju menn, sem hvergi eiga inni, heldur liggja undir beru lofti á sumrum en í alls konar skúmaskotum á vetrum. Þetta fólk á oftast nær ekki heima í fangageymslu lögreglunnar undir lögreglustöðinni, með því •að hún er einkum til þess ætl- uð að geyma drukkna menn, sem ekki geta verið á almanna færi sökum uppivöðslusemi eða eru háskalegir sér og öðrum. í hinu fyrirhugaða nætur- iiæli er gert ráð fyrir, að hinir ólánssömu mexm geti fengið búsnæði yfir nóttina, fengið bar þrifabað og auk þess heitt kaffi eða te og brauð, annað- hvort ókeypis eða við vægu •verði. án hefur fjallað um áfengis- varnamál og er þessu manna kunnugastur, bendir á, að fyrir hafi komið, að drykkjumenn hafi orðið úti í bænum eða næsta nágrenni hans hin síðari ár, einmitt vegna þess, að þeir áttu sér engan sama stað, eins og gert er ráð fyrir í fyrrnefndu bréfi áfengisvarnanefndar. Friðsamir menn, en umkomu lausir, sem drykkjufýsnin hef- ur leikið gi'átt, eiga nú engan samastað, og sýnist sjáfsagt, að þjóðfélagið láti málið til sín taka. Að ýmsu leyti eru þeir verr settir en útigangshross, segir Oscar Clausen, en eitt- hvað verður að gera í máJinu, og þess vegna var fyrrnefnt bréf skrifað. Orykkjumenn hafa urðið úti. ^ Oscar Clausen, sem um mörg Undanfarið hefur staðið yfir hin árlega flugsýning í Farn- borough í Englandi. — Þessi mynd er þaðan og sýnir De Havilland 110, sem var sérstaklega smíðuð fyrir brezka flug- herinn. Er myndin tekin aftan við vélina. Hagstæður vöntskipta- jöfnuður. Vöruskiptajöfnuður í ágúst varð hagstæður um 12 millj. og 325 þús. kr. Hinsvegar var óhagstæður viðskiptajöfnuður á tímabilinu frá ársbyrjun til ágústloka 217.6 millj. kr., en á sama tíma í fyrra 252 millj. kr. og var því 34.4 millj. kr. lægri en þá. Útflutningurinn í ágúst nam 75.3 millj. kr. það af er þessu ári, en innflutningurinn 63.0 millj. kr., mism. 12.3 millj. — Til samanburðar má geta þess, að útflutningurinn í ágúst í fyrra nam 60.1 millj., og inn- flutningurinn 60.3, mismunur —í—211 þúsund. Ef teknir eru mánuðirnir jan.—ágúst nam útflutningur- inn í ár 385.6 millj. kr., en inn- flutningurinn 603.2, og fyrra á sama tíma : útfl. 348.8 og innfl. 600.8 millj. kr. Frá árinu 1946 hefir iðnað- arframleiðsla Breta aukizt yfir 20%. F ramhaldsskólakennarar ræJa áhuga- og hagsmunamái sín. í ráfti aft stofna sérstakan utanfararsjóé kennara. Þing Landssambands fram- , erindi um kennslumál og stöðu haldsskóla kennara verður sett: kennara í Bandaríkjunum. n. k. föstudagsmorgun kl. 10 í Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Innan vébanda sambandsins eru kennarar hinna ýrnsu fram- haldsskóla, aðallega unglinga-, gagnfræða- og héraðsskóla, sem eru langfjölmennastir. Ér talið að nú séu starfandi hér 25 ung- lirLgaskólar, 6 miðskólar, 8 hér- aðsgagnfræðaskólar, 15 gagn- fræðaskólar, 12 húsmæðraskól- ar og 16 iðnskólar. Flestir iðn- skólanna em þó enn í deigl- unni og í-aunverulega aðeins Iðnskólinn í Reykjavík sem búinn er að fá fast form. Auk þessa eru svo ýmsir sérskólar svo sem Verzlunarskólinn, Kennaraskólihn o. fl. Hús- mæðraskólakennarar hafa til þessa staðið utan samtakanna en munu nú bætast í hópinn. Landssamband framhalds- skólakennara var stofnað 17. Hverfur til eig- HHiuHins síns. I'rii NeLean (Vnd Sviss. London (AP). — Brezk kona, frú McLean, hvarf í gær frá heimili sínu í Genf, ásamt þremur börnum sínum. Maður hennar, sem var starfsmaður í brezka utanríkis- ráðuneytinu, hvarf með dul- arfullum hætti vorið 1951, og samstarfsmaður hans að nafni Burgess. Var talið, að þeir hefðu flúið austur fyrir járn- tjald. Frú McLean tjáði móður ,sinni, að hún ætlaði í heimsókn til vina í Montreux, sem er í Hálendisieiftaiigw vísindamanna gekk aft óskiim. Leiðangur vísindamanna þeirra, sem fór inn á hálendi íslands í s. 1. viku, kom til Reykjavíkur í fyrrakvöld. Höfuðtilgangur fararinnar var, svo sem Vísir hefur áður skýrt frá, segulmælingar, þyngdarmælingar og jarðhita- rannsóknir (í Vonarskarði). Voru það þeir próf. Trausti Einarsson, Þorbjörn Sigurgeirs- son og Baldur Líndál sem önn,- uðust þessar rannsóknir. I för með þeim voru m a. tveir Frakkar sem voru að at- huga aðstæður og undirbúa leiðangur franskra vísinda- manna inn á hálendið að sumri. Kynntust þeir hálend- inu ágætlega í för þessari og aðstæðum öllum og íétu vel yfir. Vísir átti í morgun tal viðl próf. Trausta Einarsson og sagði hann, að ferðin hafi í öllu gengið að óskum. Farið var norður Kjöl, en siðan sveitir til Bárðardals að haldið var suður á Sprengisand. Farið var til Gæsavatna, í Vonarskarð, Illugaver yfir KöldukvísL og Tugná og síðan sem- leið lá hingað til Reykjavíkur. Veður fengu þeir ágætt, nema dags- stund í Vonarskarði s. l. láug- ardag, en þá gerði allmikla rigningu. Annars var veður- blíða mikil og stundum hitar eins og þeir verða mestir. á sumardegi. Allar mælingar. athuganir. og rannsóknir fóru fram ■ sam- kvæmt áætlun. og fyllilega það. Um árangur þessara rannsókna verður þó ekkert fullyrt að svm stöddu. Guðmundur Jónasson var bílstjóri í leiðangrinum. júní 1948 og er því aðeins 5. ,, , ára gamalt. Stefna og starf þess! f^kurra tuga kdometra Jjar er aðallega tvíþætt. í fyrsta 72 mál tekin á dagskrá allsherjarþings Sþ. Hollendingar vii|a láia endurskoða sáiimálann. Einkaskeyti frá AP. N. York í morgun. Almennar umræður hef jast á allsherjarþingi Sameinuðu þjóð anna í dag og er John Foster Dulles fyrstur á mælendaskrá. Segja fréttaritarar, að hann muni koma víða við. Dagskrárnefnd þingsins sam þykkti í gær, að taka 72 mál á dagskrá ,en ályktun nefndar- innar um þetta verður að leggj ast fyrir allsherjarþingið til samþykktar. Meðal þessara mála eru Kórea og Marokkó. Rússar og fylgifiskar þeirra andmæltu nokkrum tillögum, en fengu engu um þokað í nefndinni, og var einnig sam- -þykkt að taka þær á dagskrá. Ein þeirra er frá Hollending- um komin um skipun nefndar, er fjalli um endurskoðun á sátt mála Sameinuðu þjóðanna. — Gladwyn Jebb, fulltrúi Breta, kvaðst ekki skilja andspyrnu Rússa, því að ekki ætti að saka þótt þessi mál væri athuguð. Rússar lýstu sig einnig andvíga tillögu frá Hammarskjöld fi'am kvæmdastj. SÞ. varðandi þýzka ítalska og japanska fanga, sem talið er, að Rússar hafi ekki skilað. Fulltrúi Suður-Afríku vé- fengir rétt Sameinuðu þjóðanna til þess að ræða framkomna ril- lögu varðandi indverska þjóð- ernisminnihlutann í S.-Afriku og Frakkar munu véfengja — að líkindum — rétt SÞ. til þess að fjalla um Marokkómálið. lagi að gæta hagsmuna fram- haldsskólakennara um laun og starfskjÖr og í öðru lagi að stuðla að bættri menntun kenn- ara og betri starfsskilyrðum, svo að framhaldsmenntun ung- linga þróist jafnan eðlilega í sem beztu samræmi við þarfir þjóðfélagsins. Mörg mál bíða þingsins sem varða stéttina og starfsskilyrði hennar. Meðal annars verður þar lögð fram tillaga um utan- fararsjóð fyrir framhaldsskóla- kennara. Meginrökin fyrir því að þessi tillaga kemur fram eru fólgin í því, að kennararnir hafa rétt til eins árs orlofs eftir .10 ára störf, og er það orlof fyrst og fremst miðað við það. að kennararnir fari utan til frekari menntunar og til þess að kynna sér stefnur og strauma í kennslumálum annarra þjóða. Reynslan hefur hinsvegar orðið sú, að sárafáir kennarar hafa getað siglt, og orsökin jafnan verið fjárskortur. Með framan- greindri sjóðsstofnun verður reynt að bæta úr þessu að nokkru og létta undir með kennurunum með greiðslu far- areyris. Á þinginu mun Guðmundur Þorláksson magister m. a. flytja | mílur. lægð, enr sagði ekki írá nöfn- um þessara vina eða heimilis- fangi. Þegar konan kom ekki aftur með börnin, gerði móðir- in lögreglunni aðvart. Brezkir lögregluforingjar, sem hafa haft til meðferðar mál McLeans og Burgess, komu í gær til Sviss, og starfa með lögregl- unni þar. Lögregla nágranna- landanna hefur verið beðin að grennslast eftir ferðum frú McLean. Seinustu fregnir herma, að bifreið frú McLeans hafi fund- izt á bifreiðaverkstæði í Laus- anne, 23 km. frá Montreux, en enn er allt á huldu um hvar frú in er og börn hennar. teknir í iandhelgi. Varðskipið Þór tók tvo belg- iska togara í landhelgi við Ing- ólfshöfða í gær. Kom varðskipið með togarana til Vestmannaeyja, þar sem mál þeirra mun hafa verið tekið fyrir í morgun. Annar togarinn var að veið- um 1,6 sjómílur innan fiskveiði takmarkanna, og hinn 0,8 sjó- Einstæður tón- listarviðburður, Þýzki ljóðalagasöngvarÍBum Dietrich Fischer-Dieskau hélt söngskemmtun á vegum Tón- listarfélagsins í Austurbæjar- bíói í gærkveldi. Hljómleika hans má telja frábæi'a og allt að því ein- stæðan listáviðburð hér í bæn- um. Rödd söngvaríuis er í senn mikil og mjúk og blæbrigðarík svo af ber, og túlkun á verk- efninu að sama skapi g'óð. A hljómleikaskránni var aðeins eitt verk, „Vetrarferðin" eftir Schubert og voru söngvarinn og undirleikari hans, Árni Krist- jánsson píanóleikari, ákaffc hylltir í lok hljómleikanna. Var söngvarinn meira að segja hylltur með ferföidu húrra- hrópi og' er það næsta fátítt að menn láti slíka hrifningu í ljós á hljómleikum. Dietrich Ficher-Dieskatt efnir til annaiTar söngskemmt- unar á vegum Tónlistarfélags- ins og syngur þá eingöngu lög þýzkra tónsnillinga við ljóð eftir Goethe. en tónskáldin eru Beethoven, Schubert og Hugo Wolf. f Kóreu féllu alls 749 brezkir hermenn, 2556 særðust, 209 týndust og eru taldir af og 937 voru teknir til fanga.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.