Vísir - 26.10.1953, Blaðsíða 8
I
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
WBUEWL
VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 eg gerist
áskrifendur.
Mánudaginn 26. október 1953
Radio-amatörar hér tala við
eyjadteggja á Kyrrahafi.
Stundum heyrist ágætlega til radio-
vina á Tahiti eða í Ástralíu.
Vafalaust er, aS Félag radíó-
amatöra er með óvenjulegri
samtökum á landinu, en við-
fangsefni þess fróðlegt og
heillandi.
Vísir hefur átt stutt tal við
Árna Egilsson loftskeytamann,
sem er formaður þessa félags.
í stuttu máli er þessu þannig
farið, að um allan heim eru
menn, sem hafa ánægju af að
hafa samband hver við annan
úm óraleiðir með sendi- og
móttökutækjum, sem eru allt
að 50 vött að styrkleika. Sam-
bandið er ýmist með morse-
merkjum eða tali. Með þessu
móti hafa íslenzkir „amatörar“
hafa samband við fjarlægustu
og ólíklegustu staði á hnettin-
um, og þeir eiga „rádíó-yini*‘ í
Ástralíu og um allt Kyrrahaf,
"■til dæmis á Tahiti, Fiji-eyjum,
* Guam og Wake-ey, svo að ein-
hverjir fjariægir staðir séu
nefndir.
60—80
virkir félagar hér.
I hinu íslenzka félagi eru
60—80 virkir félagar, en um
10-—15 tæki munu vera x
notkun hér. Ekki mega aðrir
starfrækja, slík tæki en þeir,
sem tekið hafa próf hjá Lands-
símanum í meðferð þeirra, og
viðskiptin eiga sér stað á sér-
stökum öldulengdum, á stutt-
bylgjum. Skilyrði til hlustunar
óg sendingar eru mjög mis-
.munandi, og nokkuð tímabila-
'bundin vegna sólbletta og ann-
arra truflana.
Víða um heim stendur félags-
.skapur radíó-amatöra með
miklum blóma, t.d. í Banda-
ríkjunum, en þar munu þeir
vera um 80 þúsund. Radíó-
amatörar um allan heim hafa
meö sér samtök, sem nefnast
'lntemational Amateur Radio
Union, en aðsetur þeirra er í
New York eins og stendur, en
formaður þeirra er kjörinn í
hinum ýmsu löndum til skiptis.
' Þá er heiminum skipt í tiltekin
svæði, t.d. hafa Evrópuþjóðir
sérstakan félagsskap, og eru ís-
lenzkir amatörai' í honura, o.
s. frv.
Deila má um, hvort hagnýtt
gagn sé af slíkum samtökum,
en alla vega æfir það menn í
meðferð og byggingu slíkra
tækja, sem oft og einatt má
smíða með tiltölulega litlum til-
kostnaði, séu menn lagtækir og
útsjónarsamir. Stundum vinna
radíó-amatörar mikið gagn,
eins og t.d. í Ameríku, þar sem
þeir hafa getað haldið uppi
sambandi milli ýmissa staða,
ei' steypiflóð eða aðrar ham-
farir hafa rofið venjulegt sam-
band.
Stjóim Félags radíóamatöra
er skipuð þessum mönnum:
Árna Egilssyni loftskeytamanni
form., Magnúsi Blöndal, Sig'urði
Firmbogasyni, Sveini Guð-
mundssyni Kristni Guðbjörns-
syni, Stefáni Þórhallssyni
og Axel Jóhannessyni.
„Musica sacra“
í frtkirkjunni.
í kvöld verða í fríkirkjunni
aðrir tónleikarnir í flokknum
„Musica sacra“.
Er það félag organleikara,
sem gengst fyrir þeim, og mun
Páll Hallgrímsson, organleik-
ari Hallgi'ímskirkju, stjórna
þessum hljómleikum, en kór
Hallgrímssóknar mun taka
þátt í þeim. Fluttur verður m.
a. sálmur eftir Pétur Gudjohn-
sen.
Hætta smokkfisk-
veiðum vestra.
Akranesbátar eru nú hættir
smokkfiskveiðum vestur á
Patreksfirði.
Höfðu átta bátar verið send-
ir þangað, til að afla þessarar
beitu, en aflinn vai'ð xnjög rýr,
eða aðeins um 100 tunnur alls,
svo að veiðunum hefir verið
hætt.
Benzíndreifmg er að færast
í eðfilegt herf í London.
9 anillj. lítra dreift í gær.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Benzínframleiðsla er að fær-
ast í eðlilegt horf í borginni.
Verkfallsmenn munu taka á-
kvörðun um það á fúndi í dag,
hvort þeir skuli hverfi tií vinnu
siunar aftur þegar, meðan sam
ið er um deiluatriðin.
Verkfallsmenn héldu tvo
fundi x gær, annan í Vestur-,
hinn í Austur-London. — Á
fundinum í Vestur-Lor.don var
samþykkt með naumum meiri-
hluta, að hverfa aftur til vinnu,
til að greiða fyrir viðræðum
um deiluati’iðin. Á fundi í
Austur-London var hins vegar
•samþykkt ályktun, þar sem
| sett voru skilyrði, er fyrirfram
i yrði að ganga að. Horfurnar
I eru því taldar lítið breyttar.
] Á sameiginlegum fjöldafundi
verkfallsmanna í dag í V,- og
A.-London mun verða gengið
til atkvæða um hvað gera skuh.
4000 hermenn bættust á laug
ardagskvöld og aðfaranótt
sunnudags í tölu þeirra þús-
unda hei’manna, sem byi’jaðar
voru að starfa að flutningum
og di’eifingu á benzíni, og var
dreift um 9 milljón litrum 1
London í gær. Var svo komið
í gæi’kveldi, að hvergi gat að
líta raðir bifreiða við benzín-
stöðvar og afgreiðslan fai'in að
nálgast það, sem hún var fyrir
verkfallið.
Fi*í» háskólahátíðinni:
3 af hverjwn 5 stúdentum er
hefja nám, Ijúka ekki prófi.
Breytingar á námstilhögun væníanlcgar.
Flest blöð Frakklands og víðar
í Evrópu hafa birt myndina
hér að ofan upp á síðkastið. —
Hún er af telpunni Agnes
Crzelczak sem varð yngsta
móðir Frakklamfs í sumar, er
hún ól 11 marka dóttur, er hún
var sjálf 12 ára og 10 máixaða
gömul. Anunan er 34 ára og
hin .yngsta i Frakklandi. Fað
irinn var 16 ára unglingur.
Vígsla Sóivangs
É
I gær var vígt í Hafnari'irði
ellihéimilið Sólvangur, sem
stendur á Hörðúvöllum.
Hefur byggin'gifi' verið all-
lengi í smíðum; en hefur nú
verið tekin -í notkun, en þar
er heilsugæzludeild, auk þess
sem þar er rúm fyi'ir 60 vist-
merin.
Vígslan í gær fór fratn í við-
urvist margra gesta, svo sem
forseta íslands og frúár hans.
heilbrigðismálaráðherra, Ing-
ólfs Jónsonar o. fl. Var þeim
boðið að skoða bygginguna, en
síðan var sétzt að kaffidrykkju.
Flutti þá formaður byggingar-
nefndar, Guðmundur Gissur-
arson, ræðu og rakti sögu by gg
ingarmálsins, en síðan fór
fram guðsþjónusta, þar sem sr.
Garðar Þorsteinsson predikaði. j
Helgi Hannesson bæjarfógeti J
flutti þá ræðu, síðan talaði Ing}
ólfur Jónsson ráðherra, og [
færði Hafnfirðingum hamingju'
óskir, og loks tóku einnig til
máls og fluttu kveðjur þeir sr.
Sigurbjörn Á Gíslason og sr.
Kristinn Stefánsson.
Yfir 750 stúdentar eru nú
innritaðir í Háskólann, en sé
f(“ir meðtaldir, sem eru við
náni erlendis, mun láta nærri,
að 1000 íslenzkir stúdentar sé
við nám.
Háskólahátíðin fór fram
fyrsta vetrardag, eins og venja
er, og var þar marg't manna
samankomið. Meðal gesta var
forseti íslands, herra Ásgeir
Ásgirsson. Rektor háskólans,
Alexander Jóhannesson, minnt
ist í upphafi ræðu sinnar Árna
Pálssonar prófessors og Sigur-
geirs Sigurðssonar biskups og
heiðruðu viðstaddir þá með því
að rísa úr sætum.
Þá gat rektor þéss, sem nefnt
er hér að framan um fjölda
stúdenta, en auk þess gaf hann
mjög merkilegar upplýsingar
um það, hversu margir stúd-
entar lykju námi, er hæfu það.
Mun láta nærri, að þrír af
hverjum fimm , stúdentum
heltist úr lestinni á fyrstu þrem’
árum námsins, svo að' einungis
um 40% ganga undir burtfar-
arpróf. Þessar athuganir urðu
m. a. til þess, að hásólaráð
æskti heimildar í lögum á s.li
ári til að skylda stúdenta til að
sækja tíma, en frv. til laga um
þetta hefði mætt mikilli mót-
spyrnu stúdenta og varð ekki
að lögum. Væri það þó hagur
stúdenta og þeirra, er stæðu
undir námskostnaði þeirra, að
þeir hefðu slíkt aðhald. Væru
t. d. gerðar strangar kröfur í
þessum efnum í erlendum há-
skólum, og slíkt ætti einnig að
vera hér. Væri nú til athugun-
ar að hafa próf tíðari en verið
hefur, e. t. v. á hverju vori, og
mætti vænta einhverra breyt-
inga í þessum efnum.
Próf. Ólafur Lárusson flutti'
erindi um skaðabætur, én að
endingu ávarpaði rektor ný-
stúdenta.
Söngur og, hljóðfæi'asláttur
var milli ræðnaiina.
Sýndu kjamorku-
fallbyssur.
London (AP). — f Mainz,
Vestur-Þýzkalandi, sýndu
Bandaríkjamenn fyrir hélgina
6 fallbyssul', scm skjóta má af
kjarnorkukúlum.
Tvær aflmiklar dráttarvélar
geta dregið slíkar fallbyssur
um rnishæðótt landslag með
allmiklum hraða. Fallbyssurnar
draga 30 km.
Þeir minnast
Ei Alcimein.
Síðastl. föstudag var 11.
minningardagur Breta um or-
ustuna við E1 Alamein.
Viðstaddir voru Eden og
hershöfðingjarnir Montgomery
(sigurvegarinn frá Alamein) og
Grúnther. Churchill er vanur
að sitja hófið, en var svo önnum
kafinn, að hann gat ekki, setið
það nú.
Þrír knattspynuiielkir
í gær.
Hraðkeppnimót í knatt-
spyrnu hófst hér á íþróttavell-
inum í gær og fóru þá fram
þrír leikir.
Sex lið taka þátt í mótinu
frá fjórum félögum. Er sitt
liðið frá hvoru félaganna, K.R.
og Þrótti, en Valur og Fram
senda hvort um sig 2 lið til
keppninnar, bæði í meistara-
og 1. flokki.
Mótið hófst kl. 1.30 e. h. í
gær og stóð fram í myrkur. —
)Tyrst kepptu K.R. og Þróttur,
,er lauk með sigri þess fyrr-
nefnda, 1:0. Þar næst kepptu
meistaraflokkslið Fram og Vals
og lyktaði með jafntefli, 3:3,
eftir framlengdan leik. Verða
þau að keppa aftur. Síðasti
leikurinn var milli 1. flokksiíða
sömu félaga og þar sigraði
Valur með 3 mörkum gegn 2.
Var komið myrkur þegar þeim
leik lauk.
Hraðkeppnismótið heldur á-
fram á sunnudaginn kemur.
Bækur
Isafold
Bókaverzlun ísafoldar í Aust
urstræti hefur nú aukið húsa-
kynni sín til stórra muna frá
^því sem áður var.
Er þama um rösklega helm-
úngs stækkun að ræða og ræð-
ur verzlunin því nú yfir meirí
húsakynnum en nokkur önn-
ur bókaverzlun í bænum og
þar með einnig stærsta bóka-
verzlun landsins.
. í tilefni af þessu sendi ísa~
íoldarprentsmiðja h.f. frá sér
þ nýjar bækur, sem koma á
fnarkaðinn í dag. Þessar bækur
eru Ritsafn Gröndals 4. bindi,
Rauðskinna síra Jóns Thorar-
ensen 1. og 2. hefti III bindis.
Er Suðurnesjaannáll frá árinu
1000 og fram til 1800 í þessum
heftum. Þriðja bókin er niðja- .
tal Staðarbræðra og Skarðs-
systra eftir Óskar Einarsson
lækni, fjórða bókin Tvennar
rímur eftir Símon alaskáld «g
sú fimmta stór skáldsaga
„Máttur lífs og moldar“ eftir
Guðmund Friðfinnsson bónda
að gilsá í Skagafirði.
Ágreiningur á fyrsta fundi.
Rætf um Kóreufundinn í
Psnmunjom í ntorgtm.
Einkaskeyti frá AP.
Tokyo í morgun.
Fundur var haldinn í Pan-
munjom í morgun til undirbún-
ings fyrirhugaðri stjórnmála-
ráðstefnu. — Ágreiningur kom
strax upp um dagskráratriði.
Arthur Dean fulltrúi Banda-
ríkjastjórnar sagði eftir fund-
inn, að hann væri þó „enn þeirr
ar skoðunar, að stjórnmálaráð-
stefna yrði haldin“.
Sambandsliðsforingjar komu
fyrst sarnan til þess að ræða
fyrirkomulagsatriði, en því
næst var haldinn fundur. sem
fitóð 7 5 mxn. Kommúnistar hófu
þegar máls á því, að hlutlaus
ríki, einkum Asíuriki, ^ættu að
fá aðgang að furidinum, en
Dean vildi að tekið yrði fyrir
hvar ráðstefnan skyldi haldin
og hvenær hefjast. Benti hann
á, að gert hefði verið ráð fyrir,
að hún hæfist eigi síðar en 23.
nóvember, og þyrfti hún und-
irbúning, sem nokkurn tíma
tæki, og vænti hann þess, að
hún gæti hafist eigi síðar en
1. des., eins og Bandaríkja-
stjórn hefði látið í Ijós.
Eftir fundinn sagði Dean, að
um annað hefði hann ekki um-
1 þoð til að semja en hvenær
j ráðstefnan skyldi haldin og
i hvar, og vænti hann þess að
■ tímanum yrði ekki eytt í karp
| um röð á málaskrá eða það,
1 sem hann gæti ekki samið um.