Vísir - 09.12.1953, Blaðsíða 8
%. '
Þeir itm gerast kaupendur VfSlS eftír
1®. hvers mánaðar fá blaðiS ókeypl* tíl
mánaðamóta. — Sími 1660.
3öl- i
VÍSÖ5 er ódýrasta blaðiS og þó það f|öl
breyttasta. — Hringið í síma 1600 og gerist ]
áskrifendur.
Miðvikudaginn 9. desember 1953
Langholtssöfnuður markar nýja
stefnu í kitkjubyggmgarmáluni.
Eisenhower
Viftbygging tii messuhaifls og fundas'iialda
reist á næsta ári — liirlkjan síðar reist
í gömluni stíl. -
Safnaðarfundur Langlioits- . gerð kirkjunnar og var heitið á
safnaðar var haldinn s. 1. sunnu- I safnaðarfólk og aðra að leggja
dagskvöld í íþróttahúsinu a
Hálogalandi og var rætt um
kirkjubyggingarmálið. Lýsti
fundurinn sig eindregið fylgj-
andi hugmynd safnarnefndar
um gerð og skipulag.
Eins og þegar hefur verið
getið í blaðinu hefur sérstök
fjáröflunarnefnd verið starf-
andi og hefur hún auk safnaðar-
nefndar unnið að undirbúningi
málsins. Varð sú skoðun, sem
safnaðarfundurinn aðhyltist, að
málinu lið.
Framh. af 1. síðu.
frahi mikilvægar upplýsingar
um þróunina í kjarnorkumál-
unum. Kvað hann 42 spreng-
ingar hafa verið gerðar í til-
raunaskyni í Eandaríkjunum,
og kjarnorkusprengjur, sem
,nú væri framleiddar, væru 25
sirtnum aflmeiri en fyrsta kjarn
Er ákveðið að hefjast handa orkusprengjan. Birgðir kjarn-
um viðbygginguna strax á næsta
ári og ljúka við hana, ef unnt
verður. Er eftir aðeins árs starf
fyrir hendi helmingur þess fjár,
sem þarf til að koma henni upp,
og safnaðarmenn fullvissir um,
að takast muni að afla þess, sem
til viðbótar þarf. í viðbygging-
unni verður lofthæð eigi meiri
en nauðsynlegt er og í öllu mið-
að við, að kostnaður verði við-
hafa annað skipulag og gerð en ráðanlegur. Þegar hún er kom-
tíðkast hefur.
Eins og kunnugt er haía
menn aðallega farið tvær leiðir,
þegar um kirkjubyggingar er
að ræða. í fyrsta lagi er hið
gamla hefðbundna form, þar
sem kirkjan er eitt skip, í öðru
lagi eru svo seinni tíma hug-
myndir þar sem bæði er um
kirkju og félagsheimili að ræða.
í Langholtssöfnuði hefur það
orðið ofan á, að reyna að sam-
•eina þetta tvennt með öðrum
hætti en gert hefur verið áður.
Hugmyndin er að skapa skilyrði
til víðtæks safnaðar- og félags-
starfs, en kirkjan sjálf verði
með síntim sérstaka helgiblæ og
ekki notuð til annars en kirkju-
legra athafna.
Er þess vegna gert ráð fyrir
viðbyggingu, sem auðveldlega
mætti tengja við kirkju-
foygginguna sjálfa, og opnast
inn í hana, og höfð opin á stór-
hátíðum og við sérstök tæki-
færi, er fjöhnenni sækir kirkju.
Viðbyggingin á að rúma um
200 manns í sæti og er ætlunin
að nota hana til messuhalds
fyrst um sinn. Þarna fær að
sjálfsögðu inni öll félagsstarf-
semi innan safnaðarins, og
vegna samkomuhússörðugleik-
anna í hverfinu, er ekkert á
móti þvi, að þarna fái inni
önnur starfsemi, sem ekki brýt-
ur í bág við kirkjulega starf-
semi, og mundi því viðbygging-
In bæta úr brýnni þörf að öðru
ieyti.
Helgi Þorláksson kennari,
sem Vísir talaði við um þetta
mál, sagði að safnaðarfólk hefði
mikinn áhuga fyrir því. að
kirkjan yrði reist í gömlum
Tdrkjustíl og með helgiblæ, þar
sem það væri mikilvægt fyrir
starfsemina og þau áhrif, sem
menn verða fyrir í kirkjum.
Hugmyndin væri, að þegar
bæði 'húsin væru notuð, sæi
presturinn yfir söfnuðinn í þeim
báðum, og úr þeim sæist jafn-
vel allur kirkjukórinn.
Eins og fyTr var getið lýsti
safnaðarfundurinn sig eindreg-
ið fylgjandi hugmyndinni um
Utanríkbráðherra á
fundi í Párís.
Dr. Kristinn Guðmundsson,
utanríkisráðherra, fór í morg-
un flugleiðis til Parísar, þar
sem hann mun sitja fyrir ís-
lands hönd ráðherrafundi Ev-
rópuráðsins og Atlantshafs-
bandalagsins, er standa y-fir frá
11.—17. desember.
<Frá utanríkisráðun., 8.. des.).
in upp skapast þegar skilyrði
til fjölbreyttara starfs.
Tvær tillögur, auk framan-
nefndrar ályktunar, voru sam-
þykktar, önnur um að sóknar-
gjöld verði hækkuð, af brýnni
nausyn, en í hinni var skorað á
Alþingi að samþykkja frv. til
laga um
sem liggur fyrir þinginu.
prkuvopna Bandaríkjanna færu
hraðvaxandi, en Bandaríkin
ættu ekki ein slík vopn, held-
ur og Kanadamenn, Bretar og
Rússar. Hann kvað eina flug-
sveit geta flutt á einum degi
hvert sem væri sprengjur, sem
gætu valdið meiri eyðileggingu
en allar sprengjur, sem Þjóð-
vérjar vörpuðu á England í
leifturstyrjöldinni.
Eisenhower kvað Bandarík-
in jafnan hafa verið fús til
samvinnu um kjarnorkumélin
og skoraði á Rússa að taka sömu
afstöðu. Bar hann fram tillóg-
ur, sem miðuðu að því að ein-
skorða kjarnorkuna við frið-
samlega notkun, þjóðunum til
-1 aukinnar velsældar og hags-
kirkjubyggingarsjóð bóta. Vildi hann koma á fót
kjarnorkustofnun SÞ.
Eisenhower kvaðst vera
reiðubúinn að bera fram nauð-
synleg'a löggjöf á þingi Banda-
ríkjanna til framdráttar til-
,lögum sínum. Hann ságði og',
að ef kjarnorkuárás væri gerð
á Bandaríkin, myndu þau
bregða við skjótt og enga misk-
unn sýna þeim, er að slíkri árás
stæðu.
Bretastjórn var
ekki vítt.
Brezka þingið ræddi atburð-
ina í Brezku Guiönu í fyrradag.
Við atkvæðagreiðslu um til-
lögu jafnaðarmanna, þar sem
vítt var að stjórnarskrá lands-
ins væri felld úr gildi, sigraði
stjómin með 304 atkvæðum
gegn 271 eða 33 atkvæða meiri-
hluta. Frjálslyndir gTeiddu at-
kvæði með stjórninni. Einn
jafnaðarmaður lýsti yfir því, að
hann mundi sitja hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
Blöð í Hew York
koma út aftur.
Verkfallið í New York, sem
leiddi til bess, að fréttablöðin
þar stöðvuðust, er nú til lykta
leitt.
Sáttasemjari, skipaður af
hinu opinbera, bar fram miðl-
unartillögu, sem báðir aðilar
féllust á. Verkfallsmenn fengu
pokkrar kjarabætur.
norska Sögð í §er&.
Stýriniannaverkfailinu í
Noregi liefur verið afiýst fyrir
atbeina ríkisstjórnarinnar.
Féllust aðilar á að leggja
málið í g'erð. Verður gerðar-
dómur skipaður 3 mönnum,
einum frá stýrimönnum, ein-
um frá útgerðarmönnum og
hinurn þriðja frá ríkisstjórninni.
Sigiingar hófust aftur í gær,
en þar se.m útgerðarmenn höfðu
sagt sjómönnum upp samning-
um munu öll skip sem stöðvuð-
ust ekki tilbúin að hefja sigl-
ingár aftur fyrr en eftir viku.
Wng Sþ samþykkir HHögu
Islaitds ifm
ármanit fær fnlikomin Olympíu-
fimleikatækiy fyrstu feérlendls.
Þs5 eru gamlir fimleikamenn félagsins, sena
minnast félags síns á 65 ára afmæli þess.
Fyrir skemmstu minntust
gamiir fimleikamenn Armanns
félags síns á myndarlegan hétt,
í tilefni þess, að þann 15. þ. m.
verður það 65 ára.
Er hér um að ræða gjöf, full-
komin íþróttatæki, notuð vio
fimleikakeppni, tvíslá, svifrá,
hringir og bogahestur. Tæki
þessi eru nauðsynleg við al-
þjóðlega keppni í fimleikum, t,.
d. Ólympíukeppni, en hafa ekki
verið til öll hér á landi fyrr, að
því er Vísir veit bezt. í því sam
bandi má g'eta þess, að þeg'ar
finnski Ólympíu-fimleika-
flokkurinn var hér á ferðinni
um árið, varð hann að hafa
meðferðis bogahestinn til þess
að geta sýnt æfingar þær, sem
heyra til hinum viðurkenndu,
ólympisku fimleika-listum.
Áhöld þessi eru smíðuð í
Þvzkalandi. hiá fyrirtæki því
í Vestur-Þýzkalandi, sem jafn-
an hefur séð þýzkum Ólympíu-
flokkum fyrir slíkum tækjum,
og eru þau að sjálfsögðu hir.
vönduðustu. Æfingar með þess-
um tækjum eru þegar byrjað-
ar, og mikill áhugi ríkjandi í
félaginu. Munu nú um 60—70
manns stunda fimleika með
tækjum þessum. Sá heitir Vig-
fús Guðbrandsson, sem annast
fimleikakennslu með þeim. en
hann. hefur m. a. dvalið í Finn-
landi, sem er eitt af öndvegis-
löndum fimleikanna, til þess að
læra þar hinar vandasömu fim-
leikalistir. Hinn fimleikakenn-
ari Ármanns er Hannes Ingi-
bergsson.
Hinum nýju tækjum heíur
verið komið fyrir í íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar við Lind-
argötu.
AHiance Francalse
starfar af kappi.
Alliance Francaise Siélt aðal-
fund sinn s. 1. laugardag.
Forseti félagsins, Pétur
Gunnarsson flutti skýrslu unx
starfið, en það stendur með
miklum blóma, og' var aðsókn
að fundum á 3. hundrað manns
að meðaltali. Bókasafn félags-
ins er vandað, um 2000 bindi.
Um sextíu manns tóku þátt
í frönskunámskeiðum félagsins,
en sendikennari er nú ungfrú
Delahaya í stað hins fyrra, E.
Schydlowskys. Níu stúdentar
hlutu verðlaun félagsins fyrir
góða frönskukunnáttu. — Stjórn
Alliance Francaise skipa nú:
P. Þ. J. Gunnarsson, forseti, og
meðstjórnendur Björn L. Jóns-
son, Magnús G. Jónsson, Magn-
ús Jochumsson og' Sigurlaug
Bjarnadóttir.
Öll slrl5l málsins sknlti rannsökuft frekara.
í síðustu skýrslu sinni lagði
þjóðréttarnefnd Sameinuðu
þjóðanna til, að allsherjarþing-
ið samþykkti meginreglur um,
að landgrunnsbotninn sem
slíkur skyldi tilheyra hverju
ríki einnig utan landhelgi og
að fiskveiðar á úthafinu utan
landhelgi skyldu háðar þeim
ráðstöfunum, sem alþjóðastofn-
un á vegum S.Þ. ákvæði.
Þegar málið kom fyrir 6.
nefnd (laganefnd) S.Þ. lagði
sendinefnd íslands fram svo-
hljóðandi tillögu:
„Fjórða allsherjarþing S.Þ.
(1949) fól þjóðrétíarnefnd S.Þ.
að rannsaka samtímis reglur
um úthafið og landhelgi. Með
því að úrlausnarefnin varðandi
úthafíð, landhelgi, aðllggjandi
hafsvæði, landgrunnið og sjó-
inn fyrir ofan það eru nátengd
frá lagalegu og landfræðilegu
sjónarmiði, ályktar allsherjar-
þingið að taka ekki til með-
ferðar neitt einstakt atriði varð-
andi reglur um úthafið og land-
helgi, fyrr en þjóðréttarnefndin
hefur rannsakað öll atriði máls-
ins og lagt niðurstöður sínar
fyrir allsherjarþingið.“ ,
Tillaga íslenzku sendinefnd-
arinnar var samþykkt í 6. nefnd
(laganefnd) með 19 atkvæðum
gegn 14, en 18 sátu hjá og' 9
voru fjarverandí.
Hlaut tillagan síðan sam-
þykki á allsherjarþinginu í gær
með 31 atkvæði gegn'8, en 11
sátu hjá og 10 voru fja-verandi.
— Réykjavík, 8. des: 1953.- —
(Fréttatilkynning , frá ■ ríkis-
stjórninni).'
Aukin smjör-
neyzla í landinu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Framleiðsluráði Landbúnaðar-
ins hefur gengið verulega á
smjörbirgðimar í landinu und-
anfarna tvo mánuði.
Þann 1. október í haust voru
smjörbirgðir í landinu skráðar
320 smálestir, en 1. des. s. 1.
voru þær komnar niður í 251
smálestir. Hafa smjörbirgðirnár
því minnkað um nær 70 tonn á
þessum tveimur mánuðum.
Sala mjólkurafurða hefur
verið mjög mikil í haust og
miklu minna á boðstólum af
skyri en þörf var fyrir. Var
reynt að fá skyr norðan úr
landi eftir því sem við var kom-
ið, en dugði þó engan veginn
til þegax eftirspurnin var mest
hér syðra. Nú er þó komið nóg
af öllum mjólkui'afurðum á
markaðinn.
Ostbirgðir í landinu eru svip-
aðar nú og voru í fyrrahaúst.
Lanlel enn á Bemuda.
Fulltrúarnir á Bermudaráð-
stefnmmi eru nú farnir beim-
leiðis, eða á förum, nema Laniel.
Eisenhower, sem átti stytzt að
fara, flaug til New York, og Bi-
dault lagði af stað heimleiðis
í gær, en Churchiil og Eden
leggja af stað í fyrramálið. ‘—
Verður þá Laniel einn eftír, en
.röntgenmyndir voru teknar í
gær a£ lungimum í lionum, og
er nú beðið eftir að sjá hvað
j-þær. leiða í Ijós.
Afgreiðslunúmer
í verzlunum.
Neytendasamtök Reykjavík-
ur hafa ákveðið að veita þeium
verzlunuxn viðurkenningu, sem
sérstaklega skara fram úr um
verðmerkingar og annað, sem
verða má til að flýta fyrir og
auðvelda bæði afgreiðslu og
vöruval.
Er mikil nauðsyn á úrbótum
í þessu efni hér í bæ, ekki sízt
fyrir jólaösina. T. d. myndu af-
greiðslunúmer, sem fólk tæki,
um leið og það kæmi í búðina,
draga úr troðningi og trvggja
réttláta afgreiðsluröð.
Fólk er beðið að hafa sam-
band við skrifstofu Neytenda-
samtakanna, í s.íma 82722, og
gefa henni upplýsingar um
verzlanir, sem gætu átt viður-
kenningu skilið.
Féll á tröppum
og slasaitsL
I nótt slasaðist maður við
að falla niður tröppur á húsi
einu hér í bænum.
Var maðurinn fluttur á
Landsspítalann og kom þá í
ljós að hann hafði farið úr
vinstri axlarlið. Auk þess hlaut
hann stóran skurð á enni. A3
aðgerð lokinni á sjúkrahúsinu
var maðurinn fluttur heim til
aðstandenda sinna,
Strákapör,
í gær var kært yíir því til
lögreglunnar að drengur hafi
varpað púðursprengju inn í
vefnaðarvöruverzlun eina hér
j í bænum. Drengsins var leitað
en hann fannst ekki.