Vísir - 30.01.1954, Side 5

Vísir - 30.01.1954, Side 5
Láugardágirin 30. janúar 1954. VfSIR a Þjóðkikhúsið: Æðikolluriitii. Lelkrit í 3 þáttum eftir Ludvig Hoiberg. — leikstjóri: Lárus Pálsson. Það er vel viðeigandi, að Þjóðleikhúsið minnist 200 ára ártíðar Ludvigs Holbergs, eins og gert er víðar á-£forðurlönd- um um ‘þessar mundir. Holberg hefur haft ærin á- lirif á íslenzka leikritun, en þó einkum í bernsku hennar, á 18. öld, og var það eðlilegt, því að hann starfaði öll sín mann- dómsár í Kaupmannahöfn, og þangað lágu leiðir íslendinga um þær mundir, og bæði fyrr og' síðar. Áhrifa hans hefur einnig gætt á leikstarfsemi hér á landi, því að mörg leikrita hans hafa verið þýdd og leikin hérlendis, og í þeim efnum hafa skólapiltar (Menntaskóla- nemendur) oftast verið að-; standendur. Hér er ekki ástæða eða rúm til þess að fara út í nákvæma sálgreiningu á leikritum Hol- J bergs eða áhrif hans á íslenzka leiklist og leikritagerð. Þéir,; sem vilja nokkuð fræðast um þau efni, eiga greiðan aðgang að tveim greinum, er um þau fjalla og birtast í leikskrá Þjóð- J leikhússins eftir þá Jakob Benediktsson, magister, sem1 hefur gert þýðinguna á Æði- kollinum, er valinn var til sýn- ingar vegna ártíðarinnar, og Sigurð Grímsson lögfræðing. Holberg er fyrst og fremst að hugsa um að skemmta á- horfendum, en hann skopast líka að persónum þeim í kring- um sig, sem hann bregður upp mynd af leikritum sínum og það er oft bezta gagnrýnin. f Æðikollinum hendir hann gam- an að manninum, sem er svo önnum kafinn við allskonar út- réttingar, að hann kemur engu í verk, því að annríki hans er aðeins hugarburður. Slíkir menn eru líka til á vorum dög- um, og samborgararnir kíma að þeim og tilburðum þeirra. Vielgeschrei (Æðikollinn) leikur Haraldur Björnsson, og gerir það með ágætum, og þreytan og vonleysið skína úr öllum hreyfingum hans, er líður á leikinn, og liann héfur verið meinlega gabbaður. Bryndís Pétursdóttir leikur dóttur hans, Leonoru, lítið hlut- verk, en fer laglega með það, en það gerir ekki miklar kröf- ur. Magðalónu, ráðskonu Viel- geschrei, leikur Emilía Jónas- dóttir, og tekst mjög vel, enda heppilega valið í það hlutverk. Er þá komið að Pernillu, þjónustustúlkunni, sem er pottur og panna í ráðabruggi því, sem leikurinn snýst mjög um og fer íler-.is Þorvaldsdóttir prýðiJega með það hlutverk. Hún er létt og liíandi, hæfilega hrekkjótt og frökk. Baldvin Halldórsson leikur Lenóarð, biðil Leonóru, hlut- verk, sem er í minna lagi, og' er ekki mjög kröfuhart. Tekst Baldvin vel, einkum er á líður. Kúrik Haraldsson leikur Krókaref, hrekkjalóm, og tekst ágætlega, þegar hrekkirnir byrja, á köflum svo, að hann er þá beztur þeirra, sem þarna koma fram. Kakari Æðikollsins áð verki. Frá vinstri: Gestur Pálsson, Har- aldur BjíÖrrisson, Ævar Kvaran (rakarinn) og ÉJémenz Jónssön, Valur Gíslason og Róbert Arnfinnsson . leika feðgana Eirík Maðsson og Pétur Eiríks- son, sem eru nokkurskonar Búrfellsfeðgar, og eru í ágætum gerfum. Skrifara Æðikollsins leika Guðmundur Pálsson, Jón L. Halldórsson, Helgi Skúlason og Þorgrímur Einarsson, og voru hinir skemmtilegustu, einkum Helgi, sem virðist mjög efni- legur, og er meðal nemenda í leikskóla Þjóðleikhússins. Önnur minni háttar hlutverk hafa á hendi: Guðrún Steplien- sen (Anna eldabuska), Jón Aðils (Leónarð, bróðir Vielges- chrei), Gestur Pálsson (bóndi og Korfits), Klemens Jónsson (skraddari og notarius) og Ævar Kvaran (rakari), og falla ; þau vel inn í lieildarsvipinn, en í Ævar er skemmtilegastur. Lárus Pálsson liafði leik-! stjórn á hendi og hefur liann leyst sitt hlutverk af hendi með sóma, svo og' þýðandinn j Jakob Benediktsson. H. P. Samitingur undir- ritaður. I gær var undirritaður sanin- ingur milli Verzlunarmannafé- lags Reykjavíkur og atvinnu- rekenda. Samningur þessi er breyting á gildandi kaup- og lcjarasamn- 1 ingi þessara aðila, sem aldrei var sagt upp, en viðræður voru i þó teknar upp til þess að breyta ýmsum atriðum hans. Helztu breytingar eru þær, að nú greið ist nætur- og helgidagavinna með 100% álagi frá þvl þrem tímum eftir löglegan lokunar- tíma og fram til kl. 9 að morgni, en þeir, sem byrja vinnu fyrr en kl. 9 að morgni skulu þeim mun fyrr fá greitt eftir-, næt- ur- og helgidagavinnukaup. — Þá hafa laun afgreiðslukvenna verið ákveðin kr. 1300 í grumi- laun eftir 36 mánaða vinnu. Félagar VR skulu hafa forgangs vinnu. Af hálfu VR tólcu þessir menti þátt í samningaviðræðunum: Ingvar Pálsson, sem var for- maður nefndarinnar, Gunn- iaugur J. Briern, Guðm. Jóns- son. Gyða Halldórsdóttir, Ein- ar Elíasson, Jónas Gunnarssoii og Björgolfur Sigurðsson. Af hálfu smásöluverzlana voru þessir menn: Þorbjörn Jó- hannesson og Lárus Pétursson. F. h. Vérzlunarráðs íslands: ís- leifur Jónsson og Guðm. Árna- son, og f. h. 'KRON ísleifur Hognason og Hallgrímur $ig- tr'y.ggsson. J Æðikollurinn (Haraldur Björnss.) og Pernilla (Herdís Þorv.). Farouk vili prúíts, London (AP). — Þær fiegn- ir berast frá Kairo, að Farouk muni nú fallast á að veita konu sinni, Narrimau, skilnað. Þverneitaði hann fyrst að fallast á skilnað, en nú sam- þykkir hann þá ráðstöfun, ef Narriman lækkar lífeyriskröf- ur sínar. Hún vill fá næstum 5000 pund á mánuði. Ljúffengt og hressandi Einn kaldan Coke íil að bera útblaðið til kaupenda í SOGAMÝRI .t' D-ágblaðið Vísit. .4 ' i . ‘' , WVWVWWVVÍV ík verður si kl. 6 « S|4»i I«li «í «3 *a 8«

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.