Vísir - 04.02.1954, Side 8
VfSIB er ódýrasta bJaðið og bó það fjöi-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 og
gerist áskrifendur.
qm«p /M iiMP f pimwSi
WISIIE
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fó blaðið ókeypis ti?
mánaðamóta. — Sími 1660.
Fimmtudaginn 4. febrúar 1954
Sumarauki á Gullfossi.
Fat*|»eguiu ætladui* rneiri fími til
landferða en í fvrra.
Eimskipafélag íslands efnir'
til nýrrar Miðjarðarhafsferðar
i næsta mánuði og sendir Gull-
foss þangað sem í fyrra, en þá
var fyrsta Miðjarðarliafsferðin,
sem félagið efndi til, farin þang'
oð, og heppnaðist hún með á-
.gætum.
Eins og þá er unnt að sam-
eina það, að ferðin geti orðið
öllum þátttakendum til ánægju
Og landi og þjóð til gagns, bví
að skipið flytur saltfiskfarm íil
Ítalíu í ferðinni og vörur heim,
og er þó ótalið það gagn og
álitsauki, sem er að því, að svo
frítt skip sem Gullfoss og vask-
).eg áhöfn þess kynni landið út
um heim.
E. P. Briem fulltrúi Eimskipa
íélagsins og forstöðumaður
Orlofs, Ásbj. Magnússon, sem
sér um ferðirnar í landi, ræddu
við blaðamenn í gær um hina
fyrirhuguðu ferð, og þar voru
•einnig mættir menn, sem voru
fararþátttakendur í fyrra.
Viðkomustaðir í hinni fyrir-
huguðu ferð verða Algier (Al-
geirs-borg), Napoli, Genua,
3>fizza, Barcelona, Cartagena,
Cissabon. Eins og menn muna
gekkst Karlakór Reykjavíkur
fyrir ferðinni í fyrra með Eim-
skipafélaginu og Orlof, og varð
að sjálfsögðu að taka tillit til
þess við alla skipulagningu, að
kórinn átti að syngja á ýmsum
stöðum, og var það ekki alltaf
eins heppilegt og æskilegt hefði
verið með tilliti til farþeganna,
en nú er hægt að skipuleggja
íerðina þannig, að meiri tími
en þá verður til athafna á hver j
um stað. Farþegar verða 165,
en voru 203 í fyrra, svo að
rýmra verður á skipinu.
Sérstök athygli er vakin á,
að í þessari ferð verður hjónum
veittur 10% afsláttur. Má ætla,
að þessi afsláttur geri mörgum
hjónum kleift að fara í svona
íerðalag, og er gert ráð fyrir
að ferðalagið muni kosta ein
hjón rúmlega 14 þús. kr., en
hér er um mánaðarferðalag að
ræða.
Þegar hafa yfir 70 manns
pantað far, en fyrirspurnir og
pantanir berast daglega, og má
vænta þess, að Gullfoss fari
fullskipaður í ferðina.
Rafstraumw
verður kenu
ai bana.
— Átakanlegt slys varð hér T
fyrrakvöld, er kona varð fyrir
rafstraumi í rúmi sínu og hlaut
hana.
Konan, frú Þyri Björnsdóttir,
Flókagötu 69, mun hafa verið
að svæfa barn, sem húr. átti.
Barnið lá í stálrimiarúmi, en
á veggnum fyrir ofan hjór.a-
cúmið var raflampi. Útbúnaður
lampans og raftaug var í óiagi
•og mun hafa dottið niður í rúm
ið. En við það að taka upp
lampann og um leið að koma
við rimlarúmið, sem var fast
upp við miðstöðvarofn, hefur
konan fengið í sig svo sterkan
rafstraum, að hún hiauí bana
af.
Fleira fólk en konan og barn-
ið var ekki í íbúðinni, þegar
slysið viidi til, en systir hinnar
iátnu, sem býr á hæðinni fyrir
ofan, heyrði bamið gráta og fór
þá niður til þess að athugá
hverju þetta sætti. Var frú Þyri
þá örend.
Nýstárleg barna-
skemmtun Víkings.
Knattspyrnufélagið Víkingur
efnir til barnaskenuntunar með
nýstárlegu sniði * Austurbæjar-
bíó á sunnudag kl. 1,15.
Alls verða þarna 10 skemmti-
atriði, og munu börn undir 14
ára aldrei sjá um sex þeirra —•
leika á hljóðfæri, píanó og
harmoniku, syngja og lesa upp.
Auk þess koma þeir fram
Sigfús Halldórsson og Baldur
Georgs með Konna. Þá koma
fram „tveir Jónar“, sem sýna
skoptöfra. Á skemmtuninni
munu áhorfendur eiga að láta
í ljós með iófataki, hvert barn-
anna eigi að fá verðlaun fyrir
beztu frammistöðu.
Aðgöngumiðaverði er mjög í
hóf stillt, aðeins 8 kr., og verða
miðar seldir í Ritfangaverzlun
ísafoldar, Bankastræti, til helg-
Menn farast á
Fleiri vilja fara
en fá.
Unnið er að undirbúninsfi að
skógræktarför til Noregs * vor.
Munu fara héðan um 50 manns
og koma álíka margir frá Nor-
egi hingað.
Vísir hefur spurt skógrækt-
arstjóra, Hákon Bjarnason, um
þessar fyrirætlanir. Kvaö
hann Norðmenn hafa átt frum-
kvæði að þvi, að farnar yrðu
gagnkvæmar ferðir í vor, svo
að fullyrða mætti, að ekki
myndi standa á Norðmönnum,
en beðið er svars frá þeim, og
verða endanlegar áicvarðanir
teknar, er það berst. Skógrækt-
arstjóri kvað mikinn áhuga
ríkjandi fyrir þessum ferðum,
bæði vegna skógræktarinnar og
tækifærinu sem gefst til kynn-
ingar á landi og þjóð.
Skógræktarfélögunum hefur
verið gefinn kostur á þátttöku
og hafa þegar gefið sig fram
fleiri en hægt er að taka með.
Tvær svona ferðir hafa áður
verið farnar, hin síðari í hitt
eð fyrra, og mikil ánægja
ríkjandi yfir þeim í bæði
skiptin, jafnt meðal Norðmanna
sem íslendinga.
Góður áranpr í frjálsíþrótta-
mótí Ármaflns í gærkveídi.
iÞáittaka í rrtétinu var ágæt.
Frjálsíþróttamót Ármanns,
innanhúss, sem var einn liður
í afmælishátíðaliöldum félags-
ins, var haldið í íþróttahúsi
KR í gærkvöldi.
Sex vikna trúarleg hátíða-
höld standa nú yfir í Allabad
í Indlandi og þar um slóðir.
Eru þar m. a. forseti lands-
ins og forsætisráðherra Ind-
lands, en alls eru þarna 4 millj-
ónir manna saman komnar.
Þarna koma menn saman til
þess að lauga sig í hinu helga
Gangesfljóti. Var þar þröng svo
mikil og troðningur í gær, að
um 300 manns létu lífið, en fóik
meiddist í hundraða tali.
Maðinr fellur s ilöncfis
og drukknar.
Það slys vildi til á mánudag-
inn, að maðúr drukknaði í
Blöndu.
Var þetta roskinn maður,
Halldór Björnsson að nafni, og
var hann starfsmaður í vöru-
geymsluhúsi Kaupfélags Hún-
vetninga.
Engir sjónarvottar voru að
slysinu, en Halldórs var sakn-
að strax þennan sama dag, og
var hafinn leit að honum, en
lík hans fannst á þriðjudaginn.
Er talið líklegt að maðurinn hafi
fallið í ána út af bakkanum að
norðanverðu, skammt frá
Blöndubrú.
Sjónvarpsleikkonan Maria
Riva (dóttir Marlene Diet-
rich) á að leika móti Sir
Cedric Hardwicke í „The
Burning Glass“, sem leika
á í marz n. k. við Broad-
way.
ísland, Noregur og Dan-
mörk voru meðal þeirra,
sem ekki vildu fallast á til-
lögu Nehrus um að kveðja
saman allsherjarþingið 9.
febrúar út af Kóreu. —
Svíþjóð var með tillögunni.
5300 hafa verib
með í tunglferð.
Barnaleikrit Þjóðleikhússins,
„Ferðin til tunglsins“, hefur
orðið framúrskarandi vinsælt
hjá börnunum, og raunar ekk-
ert síður hjá fullorðnu fólki.
Það verð aðgöngumiða, sem
ákveðið var að sýningunum á
„Ferðinni til tunglsins“, var að
sjálfsögðu miðað við það, að
gestirnir yrðu svo til eingöngu
börn. En nú hefur komið í ljós,
að fullorðnir hafa engu síður
ánægju af þessari leiksýningu,
og hefur því verið ákveðið að
selja séi'staka miða fyrir full-
orðna fyrir venjulegan aðgangs
eyri.
Átta sýningar hafa þegar ver-
ið á þessu vinsæla barnaleik-
riti og hafa um 5300 manns
þegar séð það.
Ekkert virðist vera að draga
úr aðsókn, því að miðar að 9.
sýningu, sem er á laugardag,
seldust á svipstundu.
Leikritið „Piltur og stúlka“
hefur nú verið sýnt 19 sinnum
og alltaf fyrir fullu húsi, og upp
selt er á næstu tvær sýningar.
í janúarmánuði hafði leik-
húsið fleiri sýningar en til þessa
hafa verið í nokkrum mánuði
eða 31 sýningu. Rúmlega 3 8
þúsund gestir komu á þær sýn-
ingar.
Þátttaka í mótinu var yfir-
leitt ágæt, t. d. voru 15 kepp-
endur í þrístökkinu.
Úrslit í einstökum greinum
var sem hér segir:
Kúluvarp:
1. Gunnar Huseby KR, 15.30 m.
2. Skúli Thorarensen Umí.
Keflav. 13.78 m„ 3. Guðm. Her
mannsson, KR 13.73 m.
Langstökk án atrennu:
1. Guðjón Ólafsson KR, 3.10 m„
2. Skúli Thorarensen, Umf. K.
3.07, 3. Daníel Halldórsson, Í.R.,
ÍR, 3.06 m.
Hástökk án atrennu:
1. Guðm. Lárusson, Á, 1.40 m„
2. Hörður Haraldsson, Á, 1.40
m„ 3. Garðar Arason, Umf. K„
1.40 m.
Kúluvarp drengja:
1. Aðalsteinn Kristinsson, Á,
12.52 m„ 2. Björn Jóhannsson,
Umf. K., 11.72 m.
Þrístökk án atrennu:
1. Daníel Halldórsson, ÍR, 9.43
m„ 2. Vilhjálmur Ólafsson, ÍR,
9.32 m„ 3. Svavar Helgason,
KR, 9.22 m.
í tilefni afmælisins hefur Ár-
mann haft gluggasýningu þessa
dagana í sýningarglugga Mál-
arans í Bankastræti. Eru þar
birtar ýmsar myndir úr sögu
félagsins svo og af verðlauna-
gripum, sem Ármann hefur hlot
ið á undanförnum árum. Loks
er þar útlitsmynd af væntan-
legu félagsheimili Ármanns,
sem byggt verður við íþrótta-
svæði þess og byrjað verður á
í vor.
Stúika flýr undan maimi, en
örmagnast á hlaupunum.
í nótt var lögreglunni til-
kynnt um það frá húsi einu hér
í bænum, að ung stúlka lægi
lireyfingarlaus í sundi milli
tveggja húsa. :
Við athugun kom í ]jós, að
V.-Þjóðverjar leggja hönd á plóginn við að koma lagi á heilbrigðismál i S.-Kóreu. Hafa þei
sent sveit RK-manna þangað í þeim tiigangi. Myndin er tekin, þegar sveitin. lagði af stað flug-
leiðis austur.
þarna var um unga stúlku að
ræða, sem hafði örmagnazt á
hlaupum undan manni, sem
hafði elt hana.
Var stúlkan á leið heim til
sín í nótt, þegar hún varð þess
vör, að henni var veitt eftirför
af ókunnugum manni. Varð
hún hrædd og tók til fótanna,,
en örmagnaðist áður en hún.
komst heim, enda mun stúlkan
líka hafa verið dálítið lasin. —
Hún var flutt heim til sín og
jafnaði sig þá fljótt. — En mað-
urinn, sem veitti stúlkunni eft-
irför, var allur á bak og burt,
þegar lögreglan kom á stað-
inn.
Árás í veitingahúsi.
í gærkvöldi kom maður nokk
ur í lögregluvarðstofuna og
| kærði yfir því að rétt áður, er
1 hann var staddur í veitinga-
| húsi einu hér í bænum, hafi
; einn gestanna ráðist að sér ó-
; vörum. Maðurinn komst und-
an og kærði árásina til lögregl-
unnar, Þekkti hann mann og
gat sagt lögregluþjónunum til
um hann. Þeir fóru á staðinn.
og fundu árásarmanninn, sem.
var í senn áberandi ölvaður og
mjög æstur í skapi. Var hann
handtekir.n og settur í fanga-
geymslu.