Vísir - 12.02.1954, Page 8
VÍSIR er ódýrasta blaðíð og ]>ó það fjöl-
■ry; i
breyttasta. — Ilringið > síma 1660 og
gerist áskrifendur.
Föstudaginn 12. febrúar 1954.
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta.
Sími 1660.
€5©á3*íaaai2Ís2
Þá hcfst geíraunin, scm boðuð hefur verið, og eins og j
menn mun renna grirn í, þegar þeir sjá myndina, sem þessuj
fylgir, verður reyn.t á þekkingu manna aði því er leiklist J
og leikara snertir. Til þess að geíraunin verði ekki ofj
erfið
og okki Síeídur cf létt — hefur engin mynd veriðj
í valin úr leikritum, sem sýnd Iiafa verið fyrir 1950
ijj helslur engin úr Seikriíum síðustu tveggja leikára.
eg;
keppittit
1. MYND.
Myndin sýnir
Þrenn verðlaun verða veitt, en svari fleiri en þrír rétt
að öllu leyti, verður hluíkesti að ráða.
VERÐLAUNIN ERU ÞESSI:
1. Ritsafn Jóns Trauta, 2. Linnschiff hringbökunarofn,
3. Ársáskrift á Vísi.
Geymið myndirnar, þar til getrauninni er lokið, er
birtur verðrur seðill fyrir svör við öllum myndunum.
Vélbátur sekkur á Faxaflóa.
Líiitiweiðai'i sigldi á hann.
Um miðjan dag í gær og í
fsjörtu veðri varð árekstur
tveggja skipa á Faxaflóa, um
36 sjómílur frá Reykjavík, með
þeirn afleiðingum, að annað skip
ið sökk á skammri stundu. j
Skipið sem sökk var Gissur,
hvíti, sem var að koma úr róðri
og var á leið til Borgarness, en
þaðan er skipið gert út á yfir-
standandi vertíð. Hitt skipið
var Rifsnes, héðan úr Reykja-
vík, og var það að leggja af
stað í veiðiför.
Bæði skipin voru á fullri ferð
rétt áður en áreksturinn varð,
en þegar skipstjórinn á Rifs-
nesinu sá hvað verða vildi, setti
hann á fulla ferð aftur á bak,
en allt kom fyrir ekki, skipin
rákust saman og stefni Rifs-
nessins gekk allt að 4 fetum inn
í stjórnborðshlið Gissurar hvíta.
Gissur hvíti sökk á skammri
stundu, en allri áhöfn, 12
: manns, varð bjargað. Komust 7
þeirra milli skipanna áður en
' Gissur hvíti sökk, en hinir 5
• fóru í sjóinn. Náðust fjórir
. þeirra því sem næst strax, en
skipverji á Rifsnesinu synti með
línu til þess fimmta og fékk
bjargað honum á þann hátt.
Rifsnesið kom með mennina
’ hingað til Reykjavíkur í gær-
■ kvöldi og munu sjópróf fara
fram í málinu, sennilega í dag.
Skipstjóri á Gissuri hvíta var
Bjarni Gíslason, en Gísli Gunn- 1
arsson er skipstjóri á Rifsnes- j
inu. Var Gísli sjálfur við stýrið, I
þegar áreksturinn varð, en'
Bjarni mun hafa verið niðri og
háseti í hans stað við stjórn-
völinn.
ban>EUKskeoi«3iitun
Fjölbreytía barnaskemmtun
(heldur Glímufélagið Ármann í
! Austurbæjarbíó næstkomandi
j sunnudag ld. 1.10, er þetta síð-
asti liður 65 ára afmælishátíða-
; halda félagsins.
Fara þarna fram fimleika-
j sýningar, þjóðdansa, Akro-
. batiksýning; danssýningar,
I ráúnnhörputríó Ingþórs Har-
aldssonar leikur, Anny Ólafs-
j dóttir syngur, kvikmynd af
j íþróttum verður sýnd, Sigfús
j Halldórsson leikur lögin sín og
, gert er ráð fyrir að börnin taki
I undir. Þess skal getið að öll
börnin sem koma þarna fram
og skemmta eru úr félaginu og
hafa þau öll vakið mjög mikla
j athygli á hinum glæsilegu sýn-
ingum félagsins nú að undan-
! förnu. Kynnir á skemmtuninni
verður Sigfús Halldórsson. Sjá
1 nánar augl. hér í blaðinu í dag.
Á sunnudaginn hefst sveita-
keppni meistaraflokks í bridge
hér í Reykjavík og verður þá
keppt um Reykjavíkurmeistara
tiíilinn.
Tólf sveitir taka þátt í keppn-
inni, sjö, sem fyrir voru í meist-
araflokki auk fimm efstu sveita
úr nýafstaðinni sveitakeppni 1.
flokks.
Sveitirnar sjö, sem fyrir voru,
eru sveit Harðar Þórðarsonar,
og er hann núverandi Reykja-
víkurmeistari, sveit Gunngeirs
Péturssonar, Ásbjarnar Jóns-
sonar, Einars B. Guðmundsson-
ar, Einars Guðjohnsens, Ragn-
ars Jóhannessonar o gsveit Ró-
bei’ts Sigmundssonar. En þær
fimm sveitir, sem færðust úr
1. flokki upp í meistaraflokks,
keppnina eru sveitir þeirra
nafna Ólafs inarssonar og Ól-
afs Þorsteinssonar, sveit Stef-
áns J. Guðjohnsen, sveit Her-
manns Jónssonar og sveit Hilm-
ars Ólafssonar.
Keppnin hefst í Skátaheim-
ilinu kl. 1.30 e. h. á sunnudag-
inn, en sfðan verður spilað þar
alla sunnudaga og mánudags-
kvöld, þar til keppninni lýkur.
Keppninni verður þannig
háttað, að einn keppir við alla
og allir við einn og verða um-
ferðirnar því 11 talsins. Verði
efstu sveitirnar jafnar að stig-
um keppa þær enn, þar til úr-
slit fást.
Auk þess sem keppt er um
Reykjavíkurmeistaratilitinn er
einnig keppt um farandbikar,
sem stigahæsta sveitin blýtur.
Einn var dæmd
ur hstþjófur.
Víðkunnugt vikurit í
Bandaríkjunum gerir lítið úr
sawrileiksgildi fregna um, að
fangarnir bandarísku 21 tals-
ins, sem neituðu að Ihverfa
heim séu eiturnautnamenn og
2—3 kynvillingar.
Á einn hefir þó sannazt föls-
un á herskjölum og að hann
hefði verið dæmdur fyrir bíl-
þjófnað og fleira, en minntist
ekki á það, er hann útfyllti
æviferilsskýrslu, þegar hann
gekk í herinn.
Ölvun við akstur.
í gær tók lögreglan fastan
mann sem var ölvaður við akst-
ur bifreiðar.
PP
ÞaS kom maðtir ©§ sétt! mig."
Rabbað við Önnu Lísu og Pétur,
er leika í „Ferðinni til tung!sins“.
Aðsókn að barvr-Ieikriti Þjóð- Mér þykir gaman að því öllu.“
leikhússins, „Ferðin íil tungls-
ins“ rriá Iieita dæmalaus, að því
er Vísi er tjáð í miðasölu Þjóð-
Ieikhússins.
I í gær var selt á tvær sýning-
: ar, sem verða á sunnudaginn,
I og stóð margföld röð gegnum
ganga leikhússins og lang't út
á götu, enda seldust miðarnir
upp á svipstundu, að heita má.
Símanúmer miðasölunnar,
! 8-2345, er svo umsetið, að það
þarf alveg sérstaka þolinmæði
til þess að sitja við símann og
freista þess að komast að. Þetta
sýnir, að þetta nýstárlega barna
leikrit Bassewitz, sem Simon
Edwardsen kom með hingað,
hefur náð svo föstum tökum á
hinum yngstu borgurum þessa
bæjar, og raunar fullorðnum
líka, að búast má við, að leik-
ritið verði árlegur viðburður
viðburður hér, elrki síður en í
Svíþjóð og víðar.
í gær var 11. sýning leikrits-
ins, en uppselt er á næstu þrjár
sýningar, sem verða á laugar-
dag og sunnudag. Með sýning-
^ unni í gær, hafa á 8. þús. manns
séð leikritið, en t-r sýningarnar
um helgina eru un garð gengn-
ar eru áhorfendur orðnir á 10.
þús.
Tíðindamaður Vísis og ljós-
myndari brugðu sér í gær í Þjóð
leikhúsið til þess að hitta sem
snöggvast að máli þau Önnu-
Lísu og Pétur, aðalpersónur
leikritsins. Gestirnir komu að
búningsherbergjum þeirra rétt
áður en sýning skyldi hefjast.
Þau voru bæði komin í ,,bún-
inga“ sína, náttfötin, því að ’eik
urinn hefst á því, er þau eru
að fara í háttinn.
„Hvað heitir þú, Anna-Lísa,
borgaralegu nafni?“ spyrjum
við.
„Bjarndís Ásgeirsdóttir,“ seg
ir þessi unga og viðfelldna leik-
kona. (Hún er ekki feimin, en
hún er heldur ekki framhleyp-
in, og leikstarfsemi hennar lief-
ur sýnilega ekki stigið nrnni
til höfuðs).
Svo fáum við að vita, að for-
eldrar hennar heita Sigríður
Bjarnadóttir og Ásgeir Þor-
björnsson, Suðurlandsbraut 11.
Bjarndís er 13 ára, og gengur
í 1. bekk B í GagnfræðaskóJa
Austurbæjar.
„Hefur þú leikið áður?“
„Aldrei áður, nema einu sinni'
í útvarp með Þorsteini Ö. og
Hildi í fyrravetur. Það var voða
gaman.“
„Af hverju þykir þér mest
gaman í þessu leikriti?"
„Eg veit það eiginlega ekki.
„Hvernig stóð á því, að þu.
fékkst að leika í ,,Ferðinni“?“
„Það kom maður og sótti
mig.“
Svo þökkum við Önnu-Lísu,
og snúum okkur að ,,bróður“
hennar, Pétri, alias Andrési Ind
riðasyni, sem er röskur 12 ára
piltur úr 12-ára bekk Austur-
bæjarskólans.
„Hvar átt þú heima, Pétury
eða Andrés?“ spyrjum við.
„Eg á heima á MiklulDraut
86.“
„Hvernig stóð á því, að þú.
fórst að leika í ,,Ferðinni“?“
,,Eg var í drengjakór Frí-
kirkjunnar, og svo átti að vera
barnaópera í fyrra, sem hét
„Svarti sótarinn“, og þar átti
ég að vera með. Svo varð ekkert
úr þessu, en ég var prófaður
niðri í Þjóðleikhúsi, og fékk að
leika Pétur.“
„Hvað vilt þú helzt verða?“
„Mig langar mest til að verða
leikari.“
„Varstu nokkuð taugaóstyrk-
ur í fyrsta sinn á sviðinu?“
„Svolítið. Annars finnst mér
hann Bessi skrítnastur í leik-
ritinu“ (hann leikur Aldinbor-
ann).
Foreldrar Andrésar eru Jóna
Kristófersdóttir og Indriði Jó-
hannsson á Miklubraut 86.
Nú er tilkynnt í hátalara, að
leilcarar eigi að koma niður á
svið, og við kveðjum hina ungu
leikara.
Maður bráðkvadd-
ur á götu.
f gærkveldi, um sjöleytið,
varð maður bráðkvaddur á götu
hér í Reykjavík.
Maður þessi, Páll B. Jónsson,.
Þingholtsstræti 27, var á gangi
í Austurstræti þegar hann fékk
allt í einu aðsvif og hneig nið-
ur. Komst hann ekki til með-
vitundar aftur og lézt skömmu:
síðar.
Bróðir Páls, Böðvar, varð
einnig bráðkvaddur hér í bæ
fyrir fáum dögum.
Drengur týnist.
Tekið var áð óttast um 5 ára
gamlán dreng, sem hvarf heim-
anað frá sér, frá Freyjugötu hér
í bæ í gærdag. Hafði hann far-
ið að heiman um þrjúleytið, ert
þegar hann var enn ókominn
um kvöldverðarleytið var tekið
að óttast um hann og m. a. lýst
eftir honum í Ríkisútvarpinu.
Skömmu síðar fannst snáðinn
niður á Lækjartorgi.
Myndin er tekin í búningsherbergum þeirra Péturs og Önnu Lísu. Til vinstri sést tvöföld
mynd Péturs í speglinum (Andrésar Indriða sonar) og á sama hátt er myndin tekin af
Önnu Lísu (Bjarndísi) til hægri.