Vísir - 08.03.1954, Side 7

Vísir - 08.03.1954, Side 7
•Mánudaginn 8. marz -1954. VlSIR Shell ryður enaa hrautina Sjrir betri ®g odjrari akstur ADDITIVE isr orku IireyfíIsíms I.C.A. kemiir í veg lyrir glóskrkveikju og hinárar skammhlaup i kerfum. — HreyfiMnn vinnur fivá jafnar við öl! akstursskilyrði. Allt of rnikið eldsneyti og orka fara forgörðum sökum kolefnisútfellinga í hreyflinum. Útfellingarnar orsaka glóðarkveikju í brunaholinu og skammhlaup í kertum og draga þannig úr eðlilegri orkunýtni hreyfilsins. — Nú hefur tekist að ráða bót á þessum vandkvæðum. „Shell“-benzín með I.C.A. (Ignition Control Additive) breyth: efnasamsetningu útfellinganna þannig, að þsér mynda ekki glóð, jafnvel mjög hátt hitastig, og valda ekki skammhlaupi í kertum. „Shell“-benzín með I.C.A. tryggir þannig, að hreyfillinn vinnur jafnt og eðb - lega við öll akstursskilyrði. Eldsneytið nýtist því betur, og hreyfillinn fær hluta af upphaflegri orku sinni að nýju. „Shell“-benzín með I.C.A. er þrautreyr.t við hin erfiðustu skilyrði. Tilraunir á rannsóknarstofum og milljóna kílómetra reynsluakstur, bifreiða af öiium gerðum, sýna að hið endurbæít benzín hefur áður óþekkta yfirburði fram yfir annað benzín með sömu oktan-tölu. Eðlileg kveikja Ótímabær kveikja I.C.A. kemur í veg fyrir hin skaölegu áhrif glóðarkveikju Glóðarkveikja orsakast af því, að rauðglóandi kol- efnisagnir í brunaholinu kveikja í eldsneytishleðslunni, áður en neisti kveikikertisins gerir það. — Þessi of fljóta íkveikja vinnur á móti þjappslagi bullunnar og afleiðingin verður orkutap, óþarfa benzíneyðsla og skemmdir á ýmsum hlutum hreyfilsins. I.C.A. breytir efnasamsetningu útfellinganna, og kemur þannig í veg fyrir glóðarmyndun í þeim. Öll hætta á glóðarkveikju er því útilokuð. I.C.A. hindrar skammhlaup í kertum. Þér verðið fljótlega varir við, ef eitt kerti bilar, en þér verðið ekki varir við, ef eitt eða fleiri kerti kveikja óreglulega. Þetta á sér þó í rauninni oft stað í hreyflinum, er eitt eða fleiri kerti „leiða út“ vegna útfellinga, er safnast á ein- angrun þeirra. I.C.A. dregur úr leiðsluhæfni út- fellinganna og hindrar því skammhlaup af þeim sökum. . Árangurinn verður betri orku- og benzínnýtni í bifreið yðar. Árangurinn kemur í Ijós eftir tvær áfyUingar. í. fýrsta skipti, sem þér takið „Shell“-benzín með I.C.A., eru ennþá eftii-st'öðvar af hinu gámla benzíni í geyminum. Það er því ekki fyrr en eftir tvær áfyllingar að þér í rauninni verðið varir við, hverju hið endurbætta „Shell“-benzín með I.C.A. fær áorkað. — Eftir það, munið þér finna, að hreyfillinn skilar meiri orku og gengúr þýðar en hann hefur hþkkrú sinni;gert síðan harm vai- nýr. Þar eð pðlileg kveikja og réttur bruni eru skilyrði fyrir fullri orkunýtni, munið þér fljótlega komast að raun um, að notkun „Shell“-benzín með I.C.A. er leiðin til hagkvæmari aksturs. — Þrátt fyrir auidn gæði er verði8 óbreytt — AUHIIM ORKA - JAFNARI GANGUR - LENGRI ENDING . 11 n iVVWWW'AWV-^WWVVtfVVSn^VVVWWWWVWSSmaftWMWiaaWMMMMiW

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.