Vísir - 13.03.1954, Qupperneq 1
44. árg.
Laugardapina 13. marz 1954.
60. tbl.
Olíuskip SÍS hlauí nafni
„Litlafell.“
>*
fifieimaitöfn fsess ver5ur ?,isaflör5uir.“
Olíuflutningaskip Sambands
íslenzkra samvinnufélaga, sem
kom til landsins í gær, hefur
hlotið nafnið „Litlafell“, en það
var afhent S.f.S. skömmu fyrir
hádegi í dag. Heimahöfn skips-
ins verður ísafjörður.
Skipið er keypt í SvíþjóS og
hét „Maud Reuter“. —- Var því
siglt hingað af sænskri áhöfn og
undir sænskum fána, en í morg
un var Sambandinu formlega
afhent skipið og því gefið ís-
lenzkt nafn. Um leið var sænski
fáninn dreginn niður, en ís-
lenzki fáninn dreginn að hún á
skipinu.
Skipið er 817 þungalestir, og
er ætlað til olíuflutninga með
ströndum fram. — Þá má geta
þess, að það er mjög hentugt til
lýsisflutninga, og hafa nákvæm
lega sams konar skip verið tek
in á leigu, þegar um útflutn-
ing lýsis hefur verið að ræða,
og má gera ráð fyrir, að „Litla-
fell“ sigli út nokkrar ferðir á
ári með lýsi.
Skipstjóri á ,,Litlafelli“ er
Bernharð Pálsson, sem áður var
fyrsti stýrimaður á „Arnar-
felli“. Skipið mun sennilega
fara til Isafjarðar á næstunni,
en þar er heimahöfn þess, eins
og áður getur, og hefur sam-
bandið nú staðsett skip sín í
öllum landsfjórðungunum.
Nægt fé téi sittíii
nýs Laxfoss
fengið.
Þannig var umhorfs í Kaupmannahöfn um daginn, er menn risu úr rekkju til vinnu sinnar.
Reiðhjólin voru 1 næsta óvenjulegum búningi eftir nóttina.
Eldur á Þórsgotu
19 í morgun.
Um klukkan 9 í morgun kom
upp eldur í húsinu Þórsgata 19,
og var mikill reykur og eldur í
risi hússins, þegar slökkviliðið
kom á staðinn.
Hús þetta eru þrjár hæðir og
ris, og eru íbúðir niðri á hæð-
unum og tókst að verja þær
fyrir eldinum, en lítilsháttar
skemmdir urðu af vatni í íbúð
á efstu hæðinni. Uppi í risinu,
þar sem eldurinn kom upp, er
engin íbúð, heldur þurkloft og
geymslur. Voru þar m. a. gam-
all legubekkur, bækur og fleira
dót og brann það allt. saman.
Hins vegar tókst slökkviliðinu
að verjast því að eldurinn kæm
ist í súðina, en hún sviðnaði
nokkuð. Þá komst dálítill eid-
ur í gólfið, en brátt tókst að
slökkva hann.
Ekki er vitað með hvaða
hætti kviknaði þarna í, en geta
má þess, að rafmagnsinntakið
í húsinu er í kvistherbergi í
risinu, þar sem eldurinn var.
í gærdag var slökkviliðið tví-
vegis kvatt út. í fyrra sinnið
um kl. 2 að bragga á Kópavogs-
hálsi, en þar var eldur í ýmsu
dóti, sem geymt var í bragg-
anum. Skemmdir urðu litlar.
Hitt skiptið var slökkviliðið
kvatt að olíuhreinsunarstöðinni
í Sætúni 4. Þar urðu engar
skemmdir.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Vísir hefur fengið frá
hr. Gísla Jónssyni alþingis-
manni, hefur nú borizt hing-
að seinasta tilboðið, sem beð-
ið var eftir, um smíði skips
í stað Laxfoss. Hafa borizt
nokkur tilboð.
Nýtt hlutafé að upphæð 2
millj. kr., er tryggt og þar
að auki loforð um lán til 4
ára, er skipið er fullsmíðað.
Fæst það í erlendum banka
og nemur 60% af byggingar-
kostnaði skipsins.
Hluthafafundur verður
lialdinn bráðlega og fram-
komin tilboð athuguð og á-
kvarðanir teknar.
Eins og nú standa sakir
benda allar líkur til, að ráð-
ist verði í smíði nýs skips í
stað Laxfoss á þessu ári.
fifiandknattleikur:
Tvenn jafnteflf í gær.
Á handknattleiksmótinu í
gær urðu báðir leikirnir jafn-
tefli.
Leikurinn milli Í.R. og Ár-
manns fór þannig að þau settu
sín 12 mörkin hvort, en K.R.
og Víkingur 21:21.
Úrslitaleikirnir verða á
morgun og bítast þá Ármann
og Fram um sigurinn, en þau
eru nú jöfn að stigum.
Evrópsáttiifálini
staðfestur
í Belgíu.
Efri deild belgiska þjóðþings-
ins hefur staðfest Evrópusátt-
málann, sem fulltrúadeildin var
búin að staðfesta.
I Frumvarpið var afgreitt sem
í lög með 125:40 atkvæðum og
! bíða lögin nú undirritunar
Baudoin konungs. — Vegna
' skuldbindinga, sem Belgir taka
á sig, samkvæmt sáttmálanum,
er þörf stjórnlagabreytingar og
nýrra þingkosningaa, sem fram
eiga að fara í næstu mánuði.
Eisenhower Bandaríkjafor-
seti hefur lýst ánægju sinni y.f-
ir, að hann mundi verða til
öryggis friðinum í álfunni.
Ekknasjóður íslands.
Söfnunardagur verður á
morgun við kirkjudyr hvar-
vetna. Hugsjónin með stofnun
sjóðsins erf_ að bágstaddar
ekkjur geti átt’ þar stuðnings
von, er sjóðurinn eflist.
osningar í Rússlandi á morgun.
Malenkov ræðir
frið, öryggi og
aukin viðskipti.
Stefnan þó óbreytt,
seg{a brezk blöð.
í Ráðstjómarríkjunum fara
fram kosningar á morgun til
Æðsia ráðsins. — Malenkov
forsætisráffiherra flutti loka-
kosningaræðuna í gærkvöldi.
Hann lýsti yfir því, eins og
fyrr Stalin fyrirrennari han*,
að öll heimsvandamál mætti
leysa með friðsamlegu móti.
Ilann kvað allar þjóðir æskja
friðar og ráðstjórnin hef'ði frið
að markmiði.
Ný heimsstyrjöld mundi leiða
til hruns menningarinnar og
það væri fjarstæða, að þjóðirn-
ar yrðu að vígbúast af kappi
eða horfast í augu við hættuna
á heimsstyrjöld. Fullkomnu ör-
yggi væri hægt að ná, ef sam-
komulag næðist á grundvelli
tillagna ráðstjórnarinnar ör-
yggissáttmála fyrir alla Evrópu.
Samtímis því, er hún legði
fram raunhæfar tillögur í því
efni vildi hún auka viðskipti og
bæta sambúð landanna í austri
og vestri. Fagnaði hann breyttri
stefnu Breta, er vildu nú auka
slík viðskipti..
í tilefni af ræðu Malenkovs
er vakin athygli á því, að með
henni sé ætlað að hafa áhrif
víðar en í Ráðstjórnarríkjunum.
Hún sé stíluð upp á það, að út
um álfuna og víðar fari menn
að líta æ meira á valdhafana í
Kreml sem friðarins menn.
f blöðunum er einnig vikið
að því, hvað til grundvallar
liggi, að þeir vilja meiri við-
skipti við þjóðirnar í vestri.
Eitt blaðanna bendir á eftir-
fárandi:
1) Rússar vilja umfram allt
fá afnumið bann við útflutn-
ingi hráefna og varnings, sem
þeir gætu flutt inn til enihverra
hernaðarlegra nota.
2) Þetta virðist sanna, að
hömlur í þessum efnum hafi
komið ónotalega við Rússa og
fylgiþjóðir þeirra.
3) Jafnframt telji Rússar
sig geta unnið það á, að til vax-
andi ágreinings komi um þessi
mál milli Breta og Bandaríkja-
manna.
í blöðunum er og vikið að því,
að Malenkov hafi gengið fram
hjá tillögum þeim, sem Eden
bar fram fyrir hönd Vestur-
veldanna, er hann var að gylla
tillögur sínar og Molotovs.
240 dsgblöi Svía hafa saatals
3,5 milij. eintaka upplag.
Hafði aukizi um milljón sl. 10 ái*.
St.hólmi. — I Svíbjóð eru nú
gefin út 240 dagblöð, og var
samanlagður eintakafjöldi á
síðasta ári 3,5 milljónir á dag.
Hafði eintakafjöldinn vaxið
um milljón og vel það á siðustu
10 árum, og var það miklu
örari fjölgun en áður, því að
frá 1912—42 jókst heildarupp-
I lagið ekki nema um 700,000
eintök. Hefur endurskoðunar-
I skrifstofa blaðanna gert þessar
athuganir nýverið.
I >
| A síðustu þrem árum hefur
aukningin hinsvegar verið
frekar lítil, eða nam árin 1952
og 1953 aðeins 70,900 á virkum
dögum og 58.600 á helgum
dögum og meira en 80 af hundr
aði kemur á dagblöð stórborg-
anna. Meðalupplagið, netto,
fyrra hluta síðasta árs var
3,568,600 á virkum dögum og
2,145,100 á sunnudögum. í
þessari tölu eru að sjálfsögðu
innifaldar tölur blaðanna í
þrem stærstu borgunum,
Stokkhólmi, Gautaborg og
Má]may, en þar voru upplög
blaðanna 1,740,300 eintök á
virkum dögum og 2,026,700 á
sunnudögum.
Blöð, sem eru íhaldssöm að
því er stjórnmálin snertir,
prentuðu færri eintök á hinu
athugaða tímabili, svo að hlut-
fall þeirra af heildarupplaginu
féll úr 27,3 af hundraði í 22,8
Upplag frjálslyndra blaða
jókst hinsvegar úr 46 í 49,6 af
hundraði, og blöð sósíaldemo-
krata hækkuðu einnig, eða úr
15.5 í 16,8 af hundraði. Hlutur
kommúnista minnkaði úr 1,6 í
1.5 af hundraði.
Margrét Jónaséóttir j
prólastsekkja.
Frú Margrét Jónasdóttir,
prestsekkja frá Stað í Stein-
grímsfirði létzt að lieimili sínu
Hringbraut 47 hér í bæ í gær.
Frú Margrét var fædd að
Staðarhrauni 16. desember
1867 og var því komin hátt á
níræðisaldur. Hún giftist síra
Guðlaugi Guðmundssyni pró-
fasti að Staó. Áttu þau mörg
börn, þ. á m. Jónas heitinn.
skáld, Kristján hæstaréttarlög-
mann o. fl.
Frú Margrét var einstök
gæðakona, virt og metin af
þeim sem til hennar þekktu.
0