Vísir - 17.03.1954, Blaðsíða 8
VlSIR er ódýrasta blaðið og bó bað f jol-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 og
gerist áskrifendur.
Þeir sem gerast kaupendur VISIS r;tir
10. hvers máuaðar fá blaðið ókeypis ti!
mánaðamóta. — S.mi 1660.
Miðvilcudaginn 17. marz 1954
Efnahagshorfur baftna
í Júgóslavðu.
Vilja bjarga sér sjálfir.
Belgrad. A.P.
Ef horfur versna ekki frá
sjm sem nú er, gera stjórnar-
oröld landsins sér vonir um, að
þurfa ekki að 'þiggja neina
efnahagaðstoð frá öðrum þjóð-
lum, er næsta ár er liðið.
Milentije Popovics, yfirmað-
ur efnahagsnefndar stjórnar-
innar, hefir lýst yfir, að Júgó-
slavía vænti þess að verða að-
stoðar aðnjótandi í ár og næsta
ár í lengsta lagi, en eftir það
Segir Stevens
af
sér?
Mikil gremja er ríkjandi
: meðal foringja í Bandaríkjun-
um út af lítt röggsamlegri
- framkomu Stevens hermála-
ráðherra í átökum hans og
McCartjhys.
Jafnvel í aðalherstjórnarstöð
Bandaríkjanna í Washington
telja menn hæpið, að Stevens
geti verið áfram hermálaráð-
herra, þar sem allur herinn
hafi beðið álitshnekki vegna
•framkomu hans. Orðrómur er
á kreiki um, að Stevens biðjist
lausnar, en þó ekki strax, til
þess að leiða athyglina frá of
-auðunnum sigri McCarthys.
verði mestu erfiðleikarnir að
baki. Hann telur horfur á
venjulegri uppskeru í ár og
vaxandi tekjum af fyrirtækj-
um, sem mikið fé hefir verið
lagt í, til framleiðsluaukning-
ar. Eftir 1—2 ár ætti hagstæð-
ur viðskiptajöfnuður að nást,
en skuldabyrðin er mikil, vegna
lána sem tekin hafa verið í
ýmsum löndum á undangengn-
um tíma, og nema 360 millj.
dollara. Ríkisstjórin á áem
stendur í samninpum um hag-
stæðari afborganir af þessum
lánum í sumum tilfellum um
greiðslufrest.
Vesturveldin hafa veitt
Júgóslavíu efnahagsaðstoð er
nemur 250 millj. dollara, frá
1948, er Júgóslavía sagði skilið
við Kominform.
Þrátt fyrir alla erfiðleika var
Popovics bjartsýnn, er hann
ræddi horfurnar á þingi nýlega,
og taldi efnahagsástandið mjög
batnandi. Niðurstöðutölur
fjárlaganna nema 260 mlljörð-
um dinara eða sem svarar til
867 millj. dollara.
£@S!
i skák hefst í júitá-
Á aðalfundi Skáksambands
Islands sem haldinn var í gær-
kveldi var EIís Ó. Guðmunds-
son kjörinn forseti þess í stað
Ólafs Friðrikssonar, sem skor-
aðist undan endurkjöri.
Aðrir í stjórn Skáksambands
ins voru kjörnir Einar Mathie-
sen, Jóhann G. Jóhannsson,
Baldur Möller og Ólafur Frið-
riksson.
Alls voru mættir fulltrúar
frá 5 skákfélögum á þinginu.
Fjárhagur sambandsins er
þröngur og er það í nokkrum
skuldum. i
Aðalmálið á þinginu var fyr-
irhuguð landsliðskeppni og
urðu fjörugar umræður um
það. Til þess að gera nokkurum
skákmönnum kleift að taka þátt
í mótinu, sem annars ættu þess
ekki kost, var samþykkt að
keppnin skyldi ekki hefjast fyrr
en í byrjun júnímánaðar.
• Bússar hafa stofnað nýjan
skóla í Dresden til þess að
hjálfa menn í áróðri.
Aflabrögð vélbáta heldur
rýrari en undanfarið
Afli var enn misjafn í ver-
stöðvum á Suðurnesjum í gær,
svo og í Vestmannaeyjum, og á
Akranesi.
Veður var ágætt, en svo virð-
ist, sem loðnuganga spilli veið-
um, að því er fréttaritarar Vís-
is á Suðurnesjum tjáðu blaðinu
í morgun.
Af Sandgerðisbátum var norð
anbáturinn „Pétur Jónsson“
hæstur, en hann fékk 17 lestir.
.Afli var annars mjög misjafn,
en flestir munu hafa aflað
heldur illa, eða 4—6 lestir á
bát.
Ekki var búið að vigta upp
úr öllum Keflavíkurbátum í
morgun, er Vísir átti tal við
fréttaritara sinn. Af þeim, sem
vitað var um, var „Gylfi“ frá
Rauðuvík hæstur með I6V2 lest,
en þó er búizt við að „Dux“ frá
Reykjavík, sem gerður er út
frá Keflavík, verði hæstur.
Aðrir bátar munu hafa haft
minna. Yfirleitt virðist afli
Keflavíkurbáta hafa verið held
ur góður, en þó mjög misjafn.
Frá Vestmannaeyjum er það
helzt í fiskifréttum, að afli var
yfirleitt misjjafn og tregur. Þar
eru allir bátar teknir að stunda
nejaveiðar. ,,Gullborg“ var enn
aflahæst, hafði 3600 fiska. Sá
bátur leggur upp í Hraðfrysti-
stöðinni og er hæstur bátanna,
sém leggja þar upp. Næstur
batanna munu hafa haft 1700
Akureyrarferðum
og 1200 fiska, en aðrir minna.
Þar var ágætt veður í morgun,
og allir bátar á sjó.
Afli Akranesbátanna var
mjög misjafn í gær — afburða
góður hjá sumum, en mjög rýr
hjá nokkrum.
Hæsti bá' urinn fékk 23 tonn
og er það bezti afli sem fengizt
hefur frá því byrjað var með
línu. Það var Bjarni Jóhannes-
son, sem var með þennan afla.
arnir ekki nema 3 tonn. Alls
var afli 17 báta 170 tonn.
Samkvæmt upplýsingum er
Vísi fékk í morgun var afli bát-
anna, sem lögðu línur sínar þar
sem loðnan hefur enn ekki
gengið allt frá 14—23 tonn, en
þeir bátar, sem áttu lóðir sín-
ar þar sem loðnan hefur gengið
yfir fengu ekki nema 3—8 tonn.
í dag er togarinn Bjarni Ól-
afsson að landa rúmlega 200
tonnum, og á morgun er Akur-
ey væntanleg til Akraness.
Togararnir Elliðaey og Júní
komu til Hafnarfjarðar í nótt,
og var verið að byrja að landa
úr þeim í morgun.
Afli Grindavíkurbáta var
hinsvegar heldur betri en í
fyrrgreindum verstöðvum. Af
línubátum var ,,Vonin“ frá
Grenivík hæst með 12% lest.
Af netjabátum var „Vörður“
frá Grenivík hæstur með 23
lestir. Meðalafli var annars
um 10 lestir.
Áætlunarferðum Norðurleiða
h.f. til Norðurlandsins verður
Ihér eftir fjölgað úr einni ferð
á viku í tvær.
Farið verður alla þriðjudaga
og föstudaga frá Reykjavík til
Akureyrar, en miðvikudaga og
laugardaga frá Akureyri og
suður.
I gær komust áætlunarbíl-
arnir alla leið norður og komu
laust eftir kl. 12 á miðnætti til
Akureyrar. Vegir voru víða
holóttir og færi þungt, en í dag
er ráðgert að verstu kaflarnir
verði heflaðir og þvi búizt við,
að bílarnir muni verða mun
fljótari suður. Má jafnvel gera
ráð fyrir, að þeir verði komnir
hingað um 9-leytið í kvöld.
Farþegar norður í gær voru
tæplega 30 talsins, en allmikill
póstur.
Það er nú mjög í tízku í Ameríku að klæða drengi í svonefnda
„geimfarsbúninga“, eins og sýndir eru hér á myndinni, en
þetta eru venjuleg hlífðar- og utanyfirföt, en efnið er vatns-
helt poplin- eða velonefni, og eru drengirnir mjög hrifnir a£
þessum klæðnaði.
Þrjár ósjálfbjarga mann-
eskjur hirtar af götunni.
Drengir ráðsisf á hjólbatrða«
Slökkviliðfð kallað út
þrisvar í gær.
Slökkviliðið var ’þrívegis
lcvatt út í gær.
Laust fyrii' kl. 2 var það kall-
að að húsi inn við Sundlauga-
veg, en þar hafði kviknað út
frá olíukyndingu. Búið var að
slökkva eldinn þegar slökkvi-
liðið kom, og urðu skemmdir
litlar.
Klukkutíma síðar var
slökkviliðið kvatt að Grettis-
götu 22,. en þar var allmikill
eldur og reykur í kjallara húss-
ins. Hafði kviknað í rusli í
þvottaherbergi út frá þvotta-
pottinum, og urðu nokkrar
skemmdir á þiljum og loftum.
Loks var slökkviliðið í gær-
kvöldi kvatt á Skólavörðustíg
45, en þar var eldur í skrif-
stofuherbergi á annarri hæð
hússins, en skemmdir urðu
litlar.
f fyrrakvöld var eldur í í-usli
í portinu við Varðarhúsið, en
slökkviliðið kæfði hann fljótt.
í gær var lögreglunni til-
kynnt um þrjár manneskjur, tvo
karla og eina konu, sem lægju
ósjálfbjarga á götum úti.
Þetta var þó sitt á hvorum stað
i bænuin og voru karlarnir of-
urölvi, en konan liafði fcngið að-
svif.
Fyrsta tilfellið átti sér stað i
Tryggvagötu við Eimskipafélags-
húsið. Var það um eittleytið i
gærdag að vegfarendur urðu var-
ir manns sem lá ósjálfbjargá í
götunni og gerðn þeir lögregl-
unni aðvart. Sótti hún munninn
og flutti Iiann heim til hans.
Laust fyrir miðnæti i nótt
barst svo lögreglunni tilkynning
um, að kona lægi á Háteigsvegin-
um og virtist ósjálfbjarga. Lög-
reglan fór á vettvang og hjálp-
aði konunni. Hafði hún fengið
krampaaðsvif og dottið þarna
niður.
Uni svipað leyti var lögreglunni
svo enn tilkynnt um mann, sem
lægi á gangstéttinni, skammt of-
Ársþlngi inrekenda
a í
í dag kl. 5—7 verður
fundur á ársþingi Félugs ís-
lenzkra iðnrekenda.
Þar verða m. a. til umræðu
tillögur varðandi skattamál,
innflutningsmál, sýningarmál
o. fl.
Á morgun kl. 4—6 e.h. sitja
fulltrúar ársþingsins boð iðn-
aðarmálaráðherra, Ingólfs
Jónssonar.
Þinginu lýkur á laugardag-
inn og verða'' þá rædd tolla-
mál.
an við Söluturninn við Hverfis-
götu. Þarna var um drukkinn
mann að ræða, sem ekki liafði'
komizt i aðra eða hlýrri hvilu.
Lögreglan tók manninn í vörzht
sína.
Prakkarastrik.
í gærkveldi, eftir að dimma
tók, gerðu nokkurir drengir í
Austurbænum sér leik að þvi að
hleypa vindi úr hjólbörðúm bif-
reiða, sem stóðu á götum úti.
En það sást til drengjanna að
þessum leik og var lögreglunni
gert aðvart. Náði hún í nokkra
þeirra, áminnti þá og flutti heim
lil foreldra þeirra. L
Góður afli, og mikil
yinna á Eskifirði.
Frá fréttaritara Yísis.
Eskifirði, í gær.
Síðastliðinn hálfan mánuð
hafa fjórir bátar, er leggja
al'Ia sinn hér á 3and, aflað mjög
vel.
Þá hefir og togarinn Aust-
firðingur lagt hér á land á
þessu tímabili á annað hundr-
að tonn af fiski. Hefir hrað-
frystihús Eskifjai'ðar keypfc
fiskinn ýmist til frystingar,
herzlu eða sáltunar. Hafa upp
undir hundrað manns haft
atvinnu í hraðfrystihúsinu svo
að segja daglega á þessu tíma-
bili. Fiskúrgangur er fluttur
hingað frá Djúpavogi til
vinnslu í fiskimjölsverksmiðj-
unni hér. Vélbáturinn Víðir
kom af veiðum í morgun með
32 tonn af fiski.
Veðurblíða hefir verið hér
undanfarna daga og snjóa hefir.
leyst.