Vísir - 26.03.1954, Síða 1
44. árg.
70-tfcl.
Fösíudaginn 26. merz 1954.
nu en i
Áburðarpantanir bænda eru ;
nú allmiklu meiri í ár, en und-
anfarin ár, svo að búast má við
í:ð innflutningur áburðar verði
iitlu minni nú en í fyrra íþrátt
íyrir framleiðslu Áburðarverk-
smiðjunnar.
Samkvæmt upplýsingum, er
Vísir hefir fengið hjá áburðar-
sölu ríkisins, hafa bændur þó
mikið spurt eftir íslenzka á -1
burðinum og langar til þess að
reyna hann jafnhliða þeim er-
lenda. En þar sem nokkur ó-
vissa er um, hversu mikil afköst
verksmiðjunnar verða fram á
vorið má gera ráð fyrir því, að
flytja verði inn nálega eins
mikinn útlendan áburð og í
fyrra, þar eð pantanir eru
líka meiri nú en þá. í fyrra
voru fluttar inn um 3500 smál.
af hreinu köfnunarefni, en vart
er hægt að gera ráð fyrir, að
áburðarverksmiðjan verði bú-
in að framleiða meira en 1500
smál. af hreinu köfnunarefni í
vor jafnvel þót framleiðslan
gángi eftir fyllstu áætlun.
,SIálfsfssðI4‘ Aaisftas'-Pýzitalaííds
hátíftlega tBkynnt.
Skíðaferð
yfir Kjöl.
Ferðafélag Islands efnir til
fyrstu ferðar sinnar á þessu ári
á sunnudaginn kemur.
Er þar um að ræða skíða-
ferð yfir Kjöl hinn syðri. Ekið
verður upp að Fossá í Kjós en
síðan gengið yfir Kjöl og nið-
ur í Þingvallasveit. Sækir bíll
svo skíafólkið að Kárastöðum
á sunnudagskvöld.
Skíðafæri er talið gott þar
efra og fólki gefst því ágætt
tækifæri til þess að taka fram
skíði sín eftir snjólítinn vetur
og njóta útivistar í fögru fjall-
lendi.
Ferðin hefst kl. 9 á sunnu-
dagsmorgni frá Austurvelli.
Deflt um varnar-
stöðvar á Krít.
Togstreita er sögð vera milli
Breta og Bandaríkjamanna um
yfirráð flota- og flugstöðva á
eynni Krít.
Bandaríkjamenn hafa, sem
kunnugt er, flota- og flugstöð á
eynni Krít í Miðjarðarhafi og
hafa þeir unnið að því af kappi
og með nokkurri leyrid, að efla
þessar stöðvar sem mest, að því
er hermt er í bandarísku viku-
riti. Er þetta talið mikilvægt
til þess að geta hindrað not
Rússa af sundunum, ef til ó-
friðar kæmi. En á Miðjarðar-
hafi hefir Nato tvo flotastjórn-
endur, Thomas S. Combs
flotaforingja. yfirmann banda-
rísku flotadeildarinnar og
Mountbatten lávarð, yfirmann
Miðjarðarhafsfota Breta. — en
hvor um sig leggur að sögn
kapp á, að fá stjórn bækistöðv-
anna í sínar hendur.
Dolly Hermannsson og ein hinna efnilegu sundmeyia úr R.K,
'ísú lögreglueini
Brotinn upp peningaskápur
í kexverksmiðjunni Frón.
r'£ð stórsiysi er stréetisvayn
ák á bamaragn oy konu_-
í gærdag munaði minnstu að
stórslys yrði á gatnamótum
Njarðargötu og Skólavörðu-
stígs, er strætisvagn ók á
barnavagn.
Barnavagninn valt við á-
reksturinn, en barnið, sem í
honum var, sakaði ekki. Hins-
vegar meiddist móðir barnsins,
en hún ók vagninum. nokktið
og hruflaðist m. a. á fæti.
Tvö innbrot.
Tö innbrot voru framin í
nótt. Annað þeirra var t Kex-
verksmiðjuna Frón viö Skúla-
götu. Þar var brotinn upp
peningaskápur og einhverju
stolið af peningum, en ekki var
talið að um háar fjárhæðir
væri að ræða.
Hitt innbrotið var framið í
Pappírspokagerðina viö Vita-
stíg, en þar sást ekki að neinu
hafi verið stolið.
Árás á bílstjóra.
í gærkveldi var lögreglunni
tilkynnt að ölvaður maður
hefði ráðist á bifreiðarstjóra
inni á Langholtsvegi og var hún
beðin að koma þangað til þess
að skakka leikinn.
En bílstjórinn tók hraustlega
á móti árásarmanninum, hafði
hann undir og hélt honum þar
til lögreglan kom og hirti hinn
ölóða óróasegg. Hann var flutt-
ur í fangageymsluna.
Grunsamlegir menn á ferð.
í nótt sást til mannaferða á
götu einni hér í bænum, og
þóttu mennirnir býsna grun-
samlegir þar sem þeir voru
með kuldaúlpur undir nend-
inni, en kuldaúlpuþjófnaðir
hafa verið mjög tíðir hér í
vetur, og allir menn meir og
minna' grunsamlegir sem sést
hafa með slíkan fatnað í fórum
sínum.
Lögreglan fór að sjáifsögöu
af stað og elti hina grunsam-
Iegu menn. Enn þegar þeir
náðust kom í ljós að þarna
voru heiðursmenn á ferð sem
í engu máttu vamm sitt vita
og aldrei höfðu stolið tíeyring
hvað þá kuldaúlpu. Hins vegar
hafði þeim orðið heitt á göng-
unni í góðviðrinu og fanð þess-
vegna úr úlpunum.
„Dó“ á götunni.
í nótt fannst liggjandi mað-
ur og ósjálfbjarga innarlega á
Hverfisgötunni. Lögreglan taldi
rétt að leita læknisaðstoðar,
en hann taldi manninn aðeins
vera ofurölva og annað væri
ekki að honum. Lögreglan tók
manninn til hjúkrunar.
Framh. á 8. síðu.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Með samþykkt hernámsstjóra
Vesturveldanna á stjórnarskrár
breytingunni í Vestur-Þýzka-
landi er farinn meðalvegur, til
þess að þóknast svo sem frekast
er unnt á þessu stigi, bæði
Bonnstjórninni og frönsku
stjórninni.
Samþykktin er því skiiyrði
bundin, að endurhervæðingin,
sem stjórnarskrárbreytingin
heimilar, komi ekki til fram-
kvæmda fyrr en um leið og Ev-
rópusáttmálinn og aðeins inn-
an vébanda hans.
Um tíma leit út fyrir, að
Frakkar myndu halda algerlega
að sér hendinni jafnvel með
skilyrðisbundna samþykkt, en
þessi leið gerir allt auðveldara
fyrir frönsku stjórninni í þessu
máli, þar sem hún getur nú sagt,
er þingið tekur upp staðfestingu
Evrópusáttmálans, að engin end
urhervæðing Þýzkalands verði
leyfð fyrr en um leið og sátt-
málinn kemur til framkvæmda
— og aðeins innan vébanda
hans, svo að girt verði fyrir að
stofnaður verði þýzkur þjóðar-
her, og Þýzkaland alvopnist af
nýju, en það óttast Frakkai
mest, minnugir harma sinna úr
tveimur heimsstyrjöldum. Tal-
ið er, að vestur-þýzka stjórnin
muni eftir atvikum una vel
hinni skilyrðisbundnu sam-
þykkt hernámsstjóranna, þar
sem hún hefur ekki boðað nein
hervæðingaráform, nema á
grundvelli Evrópusáttmálans.
Hið sjálfstæða
Austur-Þýzkaland!
Ráðstjórnin rússneska lét til-
kynna hátíðlega í gærkvöldi í
Moskvu og Berlín fullt sjálf-
stæði Austur-Þýzkalands, sem
Togarateiðar við Nýfundnaland
áhæftusamar, en vegna, lítils fiskframboðs
vikum saman senda Bretar fogara þángað.
í Fishing News var fyrir
skömmu rætt um togaraveiðar
Breta við Nýfundaland. Hull-
togarinn Lancella hafði þegar
komið 'þaðan með góða veiði og
fleiri voru famir þangað.
Sagði blaðið að þetta gerðist
um það leyti, sem togarar að
veiðum við Noreg hefðu tafizt
1—2 sólarhringa vegna veðurs
og ástandið, að því er fisk-
girgðir snert-i, verið með versta
móti vikum saman.
Biaðið segir, að togaraveiðar
við Nýfundaland séu oftast
áhættusamar, skipseigandinn
verði jafnan að taka til alvar-
legrar athugunar hve langt sé
á þessi mið, viku sigling hvora
leið, samfara miklum útgerð-
arkostnaði. Mikið tap kunni að
verð, ef heppnin sé ekki með.
Þannig hafi orðið mikið tap á
ferðum þriggja Grimsbytogara
þangað í maí 1953, enda hafi
sjálft hefði riú algert frjálsræði
til ákvarðana inn á við og út á
við, og þar með tiLsamninga við
önnur ríki og einnig við
Vestur-Þýzkalands. En böggull
fylgdi skammrifi. Rússar boð-
uðu jafnframt, að þeir hefðu
herllð áfram í lándinu af ör-
yggisástæðum.
Dulles, utanríkisráðh. Banda-
ríkjanna sagði um þetta í gær-
kvöldi, að þetta gerði augljósa
þá staðreynd, að vald komni-
únistastjórnarinnar í A.-Þ.
myndi hrynja til grunna á svip-
stundu, ef hún nyti ekki stuðn-
ings hervalds Rússa.
Fólkið myndi rísa upp á auga
bragði, ef rússneska herliðið
væri kvatt burtu og steypa
kommúnistum af stóli.
í vestrænum blöðum er al-
mennt litið svo á, að hér sé
um að ræða nýtt áróðurs-her-
bragð, sem engan villi — vestan.
járntjalds.
Dómar í Frankfurt.
í Frankfurt við Oder í Aust-
ur-Þýzkalandi hafa verið kveðn
ir upp fangelsisdómar yfir 5
mönnum fyrir mótþróa gegn
stjórnarvöldunum og árásum á
lögregluna. Fékk einn 15 ára
fangelsisdóm, en hinir vægari
dóma. Þessi frétt, samfara stór-
fréttinni um sjálfstæðið, segir
í brezku blaði, er vísbending
um hið raunverulega ástand í
Austur-Þýzkalandi.
verið nóg þá á markaðnum af
fiski, veiddum á miðum út af
íslandi, og eftirspurn eftir
fiski, veiddum á djúpmiðum,
mjög lítil. — Hinsvegar, segir
blaðið, eins og ástatt er um
framboð á fiski í brezkum
höfnum nú (febr.) mundi vera
um gott verð að ræða á farmi
hvaða togara sem væri, er
hefði sæmilegan afla.
I fyrra fóru þýzkir togarar í
furðu vel heppnaðar veiðiferðir
til Nýfundalandsmiða, og nefn-
ir blaðið þar togarann Ntirn-
berg — og hafi þessi góði ár-
angur leitt til þess, að brezkir
togarar sigldu í kjölfar hinna
þýzku. „Þjóðverjarnir voru,
að þvi er mönnum hefir skilizt,
Bretum til leiðbeiningar um
að finna beztu miðin, en þýzku
togararnir komu þegar fram-
! boð var lítið, en hinir brezku
voru ekki eins heppnir.“
ísbrjótarnir kostuöu
Norðmenn 60 þús. kr.
á sóiarhring.
Frá því er skýrt í norskum
blöðum, að meðan ísalögin voru
sem mest á Oslóarfirði á dög-
unum, hafi fjórir ísbrjótar ver-
ið þar að störfum. og hafi þeir
kostað norska ríkið 60 þúsund
krónur á sólarhring.
Var hér um að ræða einn
norskan ísbrjót. einn sænskan
og tvo danska. Þá er þess getið
að til viðbótar kostnaðinum við
að halda ísbrjótunum úti, komi
svo hinn óbeini kostnaður, það
er að segja tap þeirra skipa,
sem frusu inni.
Sprengjuarásir í
Indókína.
Franski flugherinn í Indó-
kína hélt í gær áfram hörðum
loftárásum á Dienebienfu.
Ekki hafa enn rætzt spárnar
um að uppreistarmenn muni
byrja nýja sóknarlotu þá og þeg
ar. Vafalaust er, að sóknará-
form uppreistarmanna hafa
truflazt vegna sprengjuárás-
anna, en seinast í fyrrakvöld
var talið víst, að uppreistar-
menn myndu gera nýja tilrauri
til þess að taka bæinn herskildi.