Vísir - 05.04.1954, Blaðsíða 8

Vísir - 05.04.1954, Blaðsíða 8
VlSHt er ódýrasta blaðið og þó það fjöl- breyttasta. — Hringið í símá 1830 eg gerist áskrifendur. Þeir sem gerast kaupendur VlSIS eftir 10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypit til mánaðamóta. — Slmi 1680. Mánudagimi 5. apríl 1954. Of stórar byggingar. Frá sfMdeffsSaffismiinusn í gæ?. íslenzk tónlist flutt erlendis. Norska söngkonan Aslaug Kristensen flytur í útvarpinu í Osló norræna efnisskrá í lok apríl með söiiglögum efíir Sig- urð Þórðarson, Ðavid B'íonrad Johansen og Hallgrím Helga- san. Þann 8. maí syngur konsert - söngvarinn Walter Marthey í Munchen flokk sönglaga eftir líallgrím á kórhljómleikum í líeidenheim í Wurtemberg. í Þýzki píanóleikarinn Erwin Ilemmler í Stuttgart leikur ,.rímnadansa“ Hallgríms í út- \ arpinu í Baden-Baden og Stutt gait í næsta mánuði. Dr. Friedrich Brand lák pí- r.nósónötu nr. 2 eftir Hallgrím í útvarpinu í Bremen. Þeása són ötu leikur hann í RIAS-útvarp- inu í Berlín í miðjum júnímán- uði. Þann 5. febrúar lék Gerhard Oppert í Stokkhólmi píanósón- ötu nr. 1 eftir Hallgrím. Þá hafa lofsamlegar umsagn- ir um tónsmíðar Hallgríms birzt í blöðum og tímaritum. Firá lögregtfunni Meðal framsögumanna á um- ræðufundi Stúdeníafélags Bvík ur í gær var Lúðvig Guðmunds- son skólastjóri. Ræddi hann einkum málefni Menntaskólans og Hallgríms- kirkju. Lagði hann eindregið til, að Menntaskólinn yrði á- fram, svo sem hingað til, í gamla skólahúsinu við Lækjargötu. — Hæfileg tala nemenda þar væri nál. 200. Ætti síðan að reisa ann að skólahús austan við Hlíða- hverfið, hæfilega stórt, fyrir 200—250 nemendur. Lagði hann til, að horfið yrði frá því að byggja þar slcólahús fyrir 500 nemendur, enda óþarft. — Annars lauk L. G. miklu lof- orði á teikningu Skarphéðins Jóhannssonar arkitekts, sem hann kvað vera fagra og vand- aða, en nú væri alls ekki tíma- bært að reisa svo stórt skóla- hús. i , --r i L. G. ræddi einnig um bygg- ingu Hallgrímskirkju. Taldi hann fráleitt, að hún yrði reist skv. líkani og teikningum Guð- jóns heitins Samúelss.. Sýndi Luðvig nokkrar skuggamyndir með erindi sínu. Ein þeirra er mynd sú, sem hér fylgir. Sýnir hún Hallgrímskirkju, eins og hún nú er hugsuð. Til saman- burðar eru teiknaðar inn á myndina Rvíkur Apótek, verzl. Einarsson & Funk og Hótel Borg. Húsaröð er nokkurn veg- inn jafnlöng Hallgrímskirkj- unni. Húsin öll eru teiknuð á sama mælikvarða. Þverstrikif undir miðjum mæniás kirkj- unnar sýnir hæð turnsins á kaþólsku kirkjunni í Landa- koti. Skástrikaði reiturinn neðs' til hægri sýnir þann hluta kirkj unnar, sem nú þegar hefur ver- ið reistur og' notaður er fyrii kirkju. Er það aðeins kjallarinr undir kórnum. Guikún Á. Símoiiar á miðvikudag. Mjög goður afli hjá ifetjabátum frá Reykjavík. Afli netjabáta frá Reykjavík er nú mjög að glæðast, og fengu riargir þeirra óvenju góðan afla um helgina. Hæstu netjabátarnir héðan voru Helga með 70 lestir, Sig- rrður Pétur með 60 lestir, Sval- 1 sn frá Eskifirði með 55 lestir og Mars með 35 lestir. í gær reru r igir bátar, en í dag eru allir! á sjó. Togararnir Hallveig, Mars og | T’arlsefni eru að landa í Rvík í dag. Yisímannaeyjar. Afíi Vestmannaeyjabáta var riöð minna móti um helgina. Hæsti báturinn fékk 2700 fiska, rnnar fékk um 2000 og sá þriðji 3 -00, en flestir aðrir voru með frá 1000—1300 fiska. Suðurnes. í Keflavík og öðrum ver- stöðvum reru engir bátar um helgina, en á laugardaginn var afli fremur góður. T. d. voru Keflavíkurbátarnir með 4—12 lestir, og flestir með frá 8—0 lestir. -— í dag eru allir bátar á sjó. Akranes. Akranesbátar reru hvorki á laugardag né sunnudag, en í dag eru þeir allir á sjó. Togarinn Jón forseti er að landa á Akranesi í dag, og er hann með 230 lestir. — Næstu daga eru væntanlegir fleiri tog arar til Akraness. © Þingkosningar eiga fram að fara í Tyrklandi, 2. maí n. k. Samkomulagsumlcitanir milli andstöðuflokka stjóm- arinnar um kosningabanda- lag fóru fyrir nokkru út um þúfur. Næstkomandi miðvikudag kl. 7.15 efnir Guðrún Á. Símonar til söngskemmtunar í Gamla Bíói,- og eru á efnisskránni 13 lög eftir íslenzka og erlenda höfunda. Þeita er fyrsta söngskemmt- unin, sem söngkonan efnir til eftir heimkomuna en hún er nýkomin frá Ítalíu, og' hefur hún hvarvetna getið sér frægð- arorð þar sem hún hefur komið fram, enda er Guðrún orðin gagnmenntuð söngkona. Á söngskránni eru lög eftir þessi tónskáld: Pál ísólfsson, Jón Þórarinsson, Þórarin Jónsson, Pergoleso, Monteverdi, Marchesi, Schubert, Brahms, Lowitz. Coates, Puccini og Gounod. unmi i í gær kepptu Akurnesingar við Færeyinga í bridge og sigr- uðu Akurnesingar. Spilað var í tveim flckkum, og unnu Akurnesingar í báðum flokkum. Uniferðarslys vaí*ð á Miðnes- heiðari-egi, skammt frá Sand- gerði í fyrrinóít. Þar ók bifreið á vegfaranda, Helga Þórðarson, Tjarnargötu 12 í Keflavík, með þeim afleið- ihgum að Helgi. meiddist tölu- verí, fór m. a. úr liði, hlaut skrámuf á ándlit og fleiri meiðsl. Hanii var fluttuf á sjúkrahús. Annað slys varð á föstudags- kvöldið í grennd við Keflavík, eða á veginum milli Keflavíkúr og NjarðVíkur. Þar ék bifreið á þrjár telpur og meiddust tvær þeirra. Þær voru fluttar til læknis. í gær varð slys í Fossvogi móts við Kiíkjugarðinn er tveir menn, stjórnandi og far- þegi bifhjóls, duttu af hjólinu. Annar niannanna hlaut höfuð- högg og misti meðvitund, en var þó ekki taliim alvarlega meiddur. Hinn slapp ómeiddur. í gær fannst jeppabíll illa til reika og mikið skemmdur fyrir utan veginn í Hvassahrauni. Bíllinn var mannlaus þegar að honum var komið og lögreglan fann hann. Var óttast að slys hefði átt sér stað þama. en í gærkveldi upplýstist að svo hefði ekki verið. Árekstrar. Á laugardagimi var mikið um árekstra hér í bænum, en ekki alvarlegir. Á tímabilinu frá klukkan 1 e. h. og til kl. 8 síðdegis lentu 14 bifreiðar í árekstrum. í einum þeirra ók bifreiðarstjóri á mannlausa bif- reið á Grettisgötunni, en hrað- aði sér síðan burt án þess að skipta sér frekar af skemmdum eða tilkynna atburðinn. Hins- vegar náðist skrásetningar- merki bifreiðarinnar sem olli árekstrinum og var málið af- hent lögreglunni til meðferðar. Á laugardagskvöldið rákust. bifreiðar saman á gatnamótum. Hverfisgötu og Ingólfsstrætis og við rannsókn koni í Ijós að annar bifreiðarstjórinn hefði verið undir áhrifum áfengis. Tva lík finriást. Tvö lík fundust á Álftanesi um helgina. Annað þeirra var af litla drengnum sem týndist frá Hiiði þann 5. febrúar s. 1. og síðan mikil leit gerð að honum. Um miðjan dag í gær fann Gunnar Ingvason á Hliðsnesi líkið í fjörunni í ósnum gegnt Hliði. Hitt líkið fannst á laugardag- inn við Hrauntanga í Gálga- hrauni. Fannst það þar í fjör- unni og var af karlmanni. Hef- ur lögreglan nú fengið upplýst af hvaða manni lík þetta er. Þjófnaðir. Lögreglan hefur handsamað þrjá drengi á aldrinum 12—13 ára sem brutust inn í geymslu- skála á Kirkjusandi og stálu þaðan skotum og einhverju fleiru.. í gær var vasaþjófur tekinn fastur í Austurbæjarbíói. Hafði hann stolið veski úr káp'uvasa stúlku, en það upplýstist á staðnum hver þjófurinn var og var hann afhentur lögreglunni. Þarna var um 12 ára dreng að ræða. í nótt var maður handtekinn sem var staðinn að því að reyna að brjótast inn í bíl. Hann var ölvaður. „flslenzkar æviskrár“ með afhorgunum. Bóknieimtafélagið hefir falið Bókaverzlun ísafoldarprent- smiðju að selja hið mikla rit Páls E. Ólasonar „fslenzkar æviskrár“ með afborgunarskil- máium. Stjórn Hins ísl. bókmenntafé- lag og foi-stjóri ísafoldar köll- uðu blaðamenn til fundar við sig í gær í tilefni af þessu. Dr. Matthías Þórðai-son, for- maður félagsins, bauð gesti vel- komna og tjáði þeim tilgang þessa fundar. Kvað hann Hið ísl. bókmennafélag hafa gert samning við Bókaverzl. ísa- foldar um dxeifingu á íslenzk- um æviskrám eftir Pál Eggert Ólason. Eru það 5 bindi og þar skráð nöfn, afrek og ættir um 7 þús. íslendinga fram til árs- ins 1940. í 5. bindi eru leiðrétt- ingar og viðbætir skrifað af sr. Jóni Guðnasyni, skjalaverði. Félagar í Hinu isl. bókmennta- félagi fá verk þetta með sér- stökum vildarkjörum eða 25% afslætti. Bókaverzl. Isafoldar hefir tekið að sér dreifingu á ritinu, til þess að sem flestir fróðleiks- fúsir íslendingar, sem ekki eru í Hinu ísl. bókmenntafélagi eigi kost á því að eignast þetta merkilega rit. Öll bindin kosta óbundin 460 kr.r en í rexin- bandi 497k r. og 630 kr. í skinn- bandi með gyllingu og er hægt að fá þau með afborgunum, 50 kr. á mánuði. Eftir að dr. Matthías hafði lokið máli sínu tók próf. Alex- ander Jóhannesson og Einar Arnórsson og fleiri til máls og fræddu blaðamenn um ýmsilegt varðandi ættfræði og ættfræð- inga. Töldu þeir íslendinga vera manna ættfróðasta að Ar- öbum einum undanskildum. Síðastur talaði Gunnar Ein- arsson, forstjóri, og skýrði frá, að Bókaverzl. ísafoldar hefði tekið upp þann sið að gefa bók- elskum mönnum kost á að kaupa ýms merk heildarverk með afborgunum. Togarínn Marz með fullfermi. Togarinn Mars kom til Rvík- ur um helgina og er hann með j fullfermi. j Er það mjög óvenjulegt, að togarar komi inn með fullfermi um þessar mundir, og hefur það ekki átt sér stað um langt skeið, enda hefur afli togaranna ver- ið mjög tregur fram að þessu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.