Vísir - 11.06.1954, Blaðsíða 8
ylSIR er édýrasta blaðiS og þó það fjöl-
breyttasta. — HringiS í sJma 1660 og
gerist áskrifendur.
r* >
WX8K3R
Þeto sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis tll
mánaðamóta. — Sími 1660.
Föstudaginn 11. júní 1954
Laraels-stjórnin riðar.
Ef tið vill kosrtÍBigar9 ef
sljórn hans fetlur.
T
Einkaslteyti frá AP.
París í morgun.
Horfurnar eru þær, að Lani-
elstjórninni sé mjög hætt við
falli, er til atkvæðagreiðslunn-
ar kemur um traustsyfirlýsing-
una á morgun, en þó kunni
hann að halda velli með sár-
fárra atkvæða mun.
Þingið felldi í gær með 314
gegn 269 atkvæðum tillögu
hans, að traustsyfirlýsingin
kæmi til atkvæða á undan öðr-
um tillögum, sem fela í sér
vantraust, og þá yrðu sjálf
fallnar, en þar fyrir.er ekki
víst, að eins fari á morgun.
Margir eru hikandi.
Margir eru enn hikandi, en
yfirleitt hefur þó andspyrnan
harðnað, einkanlega meðal
hörðustu andstæðinga Evrópu-
sáttmálans, sem hafa hlífst við
að ganga í berhögg við Laniel
vegna Genfarráðstefnunnar,
meðan von var um samkomu
lag. Nú eru menn að missa alla
trú á það, og telja, að það muni
ekki breyta eins miklu og fyrir
mánuði, ef stjórnin félli. Auk
þess treysti menn Elý yfirhers-
höfðingja, sem nú sé tekinn við
í Indókína, og vænti að honum
auðnist að halda í horfinu,
meðan ný stjórn yrði mynduð.
Kæður Molotovs
og Chou En-lais.
hafa haft áhrif í París, að á-
liti Times í London, eins og ætl-
un þeirra var. Kom fram mikil
óbilgirni af þeirra hálfu sem
fyrr hefur verið getið, þegar er
Molotov hafði haft það fram, að
ræða málið fyrir opnum tjöld-
um, og var augljóst mark
þeirra að hafa áhrif í Frakk-
landiþar sem hver höndin er
Kvfkuar í flugvél
Það óhapp vildi til um kl. 2
síðd. í gær á Keflavíkurflug
velli, að eldur kom upp í stórri,
fjögurra hreyfla flugvél, er hún
bjóst til brottferðar út á flug-
braut.
Slysið vildi til með þeim
hætti, að einn hreyfillinn rakst
á vararafstöð, sem notuð er við
ræsingu hreyfla. Kviknaði í
hleðslutæki, en þaðan hljóp á
svipstundu eldur í vinstri
væng vélarinnar. Greiðlega
tókst að koma farþegunum út,
en þeir voru 64, en slökkvilið
valarins sýndi mikið snarræði
og slökkti fljótlega. Skemmdir
urðu verulegar á vélinni.
upp á móti annarri og almenn-
ingur þreyttur á margra ára
styrjöld.
Nýjar kosningar.
Falli Laniel er talið hugsan-
legt, að hann snúi sér til for-
setans og með skírskotum til
heimildarákvæða í stjórnar-
skránni fari fram á þingrof og
nýjar kosningar, en boði hann
slíkt fyrir atkvæðagreiðsluna,
kann það að gera menn hikandi
og deigari við að snúast gegn
Laniel einsogsakir standa.
Miklar bygginga-
framkvæmdir
á Akureyri.
Akureyri í gær.
Miklar byggingaframkvæmd
ir eru á Akureyri í vor, og er
þar bæði um stórhýsi að ræða,
sem stofnanir eða hið opinbera
byggir svo og íbúðarhús sem
einstaklingar byggja.
Af stórbyggingum má m. a.
nefna heimavistarhús Mennta-
skóla Akureyrar og útibú
Landsbanka íslands, en banka-
starfsemi hófst á neðstu hæð
hússins um miðja s.l. viku. —
Húsið stendur við Ráðhústorg
og er hið myndarlegasta í hvi
vetna. Sama gildir um innrétt-
ingu alla og fyrirkomulag við
afgreiðslu. Þar er öllu smekk
lega og haganlega fyrirkomið
og húsakynnin jafn glæsileg að
innan sem utan.
Útvegsbanki íslands er einn-
ig að byggja nýtt hús fyrir úti
bú sitt á Akureyri og er það
við hliðina á gamla útibúinu.
Loks ætlar svo Útgerðarfé-
lag Akureyrar að byggja stór-
hýsi mikið á Oddeyrinni, sem
er ætlað fyrir fiskverkunar-
stöð.
Auk hinna stærri bygginga
er mikið um íbúðarhúsabygg-
ingar einstaklinga og er mest
byggt í svokölluðu Mýrahverfi.
í heild má fulyrða að mikið
verði um byggingavinnu á Ak-
ureyri í sumar.
Villiöndin, hinn snjalli harmleikur Ibsens, verður sýndur
síðasta sinn í Þjóðleikhúsinu í kvöld, föstudag. Leikritið, sem
frú Gerd Grieg setti á svið, fékk hin bezíu ummæli leikdómenda
eftir frumsýninguna. Á myndinni sjást Jón Aðils sem Gregers
Werle, og Gestur Pálsson sem Hjáiœar Ekdal.
Margar ferilr im næstu helgi.
Ferðír við 'allra 3iæ£i.
Ferðafélag íslands efnir til
tveggja ferða um helgina.
Fyrri ferðin hefst kl. 2 e. h.
á morgun og verður þá farið að
Úthlíð í Biskupstungum og gist
þar í tjöldum. Daginn eftir
verður gengið í Brúarárskörð
og víðar. Náttúrufegurð er
þarna óvenju mikil.
Hin ferðin er til Þingvalla.
Farið verður kl. 9 árdegis á
sunnudagsmorguninn um Hell-
isheiði, Hveragerði, Þrástar-
lund upp með Sogi og síðan
Grafningsleið til Þingvalla.
í kvöld kl. 8 verður farið í
gróðursetningu í Heiðmörk og
eru það vinsamleg tilmæli fé-
lagsstjórnarinnar að félagar
fjölmenni þangað.
Um síðustu helgi efndi
Ferðafélagið til tveggja ferða
með samtals um 70 þátttakend-
um. Var önnur á Snæfellsjök-
ul, en hin á Skálafell .og að
Tröllafossi. Heppnuðust þær
báðar í hvívetna vel.
ekið niður Hreppa um Selfoss
til Reykjavíkur.
Önnur ferðin hefst kl. 13.40
og verður ekið til Krýsuvíkur
—Seivog (Strandarkirkja skoð
uð). Síðan ekið um Selvogs
heiði til I-íveragerðis—Ljósa-
foss — Þingvöll um Mosfells-
heiði til Reykjavíkur.
Fárfuglar.
Farfuglar efna til hjólreiða'
ferðar að Tröllafossi á morgun
og gönguferðar á Esju á sunnu-
dag.
Páll Arason.
Páli Arason efnir til ferðar
austur á Eyjafjallajökul um
helgina. Fer hann kl. 2 e. h. af
stað héðan og ekur þá að Selja
völlum, en á sunnudag verður
gengið á jökulinn.
Genf
Framh, af 1. síðu.
ir þjóðþingið áður en það færi
heim, en stjórnin mundi grípa
til þeirra ráða, sem lög heim
iluðu henni, ef viðhorfið breytt
ist ískyggilega.
Kóreumálið
verður rætt á ráðstefnunni í
dag, en ekki vitað til þess í
morgun, að neinn fundur yrði
haldinn um Indókína, og er
beðið fregna um árangur af
viðræðum Edens og Molotovs.
Dregið í H.H.
í gær var dregið í 6. fl. Happ-
drættis Háskólans.
Vinningar voru að þessu
sinni 800 talsins og 2 aukavinn-
ingar, samtals 377.500 krónur.
50 þúsund krónur féllu á nr.
5944 (hálfmiðar, seldir á Ak-
ureyri og Hvammstanga). 10
þús. kr. féllu á nr. 16665 (á
fjórðungsmiða í umboði Páiínu
Ármanns í Varðarhúsinu). 5
þús. kr. féllu á nr. 34289, sem
var heilmiði í umboði Helga
Siv.ertsens.
Ferðaskrifstofa ríkisins.
Tvær skemmtiferðir verða
farnar á vegum Ferðaskrifstofu
ríkisins á sunnudag.
Fyrri ferðin hefst kl. 9 f. h.
Verður ekið austur Hellisheiði
—-Hveragerði—Grímsnes (ker-
ið skoðað) — Geysi og stuðlað
að gosi. Síðan ekið til Gullfoss,
Fullskipað í
fitigferðir.
Óforeytt stjóm
Loftleiða.
Loftléiðir h.f. héldu aðalfund
sinn í gærkveldi.
Stjórn félagsins var endur-
kjörin, en hana skipa Kristján
Guðlaugsson hrl., formaður,
Sigurður Helgason varaformað
ur, Ólafur Bjarnason ritari. og
„Afmæli“ Breta-
drottningar í gær.
Einkaskeyti frá AP. —
London í gær.
í dag er hinn opinberi af-
mælisdagur Bretadrottningar
og er hans minnst með viðhöfn.
um allt Bretaveldi.
Auk þess er birtur listi yfir
þá, sem aðlaðir verða, og fá
ýms heiðursmerki og titla.
Á þeim lista eru nú 916 nöfn
og eru þeirra meðal nöfn hins
viðkunna rithöfundar W. Som-
erset Maughams, sem nú er átt
ræður, og 86 ára gamals múr-
ara, en á listanum eru annars
nöfn manna af öllum stéttum,
þeirra meðal 134 konur.
meðstjórnendur þeir
Elíasson og Kristinn Olsen. —
Framkvæmdastjóri félagsins er
Alfreð Elíasson.
Til Fiugfélags íslands berast
miklu fleiri pantanir um flug-
för milli landa heldur en félag-
ið geíur annað í bili.
Einkum er mikil eftirspurn
eftir flugferðum til Osló og
Khafnar og næsta ferð Gull-
faxa þangað, sem er á laugar-
daginn kemur er fullskipuð og
f jöldi manns á biðlista.
Sama gegnir og með fyrstu
beinu ferð Gullfaxa til Khafn-
ar, sem hefst n.k. miðvikudag,
þann 16. þ.m. Úr því flýgur
Gullfaxi alla miðvikudaga
sumar til Khafnar og til baka
aftur samdægurs. Fullpantað
er í þessa fyrstu miðvikudags
ferð Gullfaxa ög margir á bið-
lista.
Þá er enn fullpantað í laug-
ardagsferðina 19. þ.m. til Ostó
og Khafnar og í aðrar ferðir
Gullfaxa það sem af er mán-
uðinum bæði til London og
Norðurlanda er mikið til full-
skipað.
Allar þessar pantanir um
flugferðir voru þó gerðar áður
en vitað var að til verkfalls far
manna drægi Én nú raá búast
Alfreð við að eftirspurnin eftir flug-
ferðum aukist til muna, a.m.k.
ef ekki dregur bráðlega til
sætta í farmaníiadeilunni.
Útlendingar taka
eftir Rafskinnn.
Rafskinna vekur ekki aðeins
aíhygli og ánægju Reykvíkinga,
sem leið eiga um Austurstræíi.
f fyrrinótt urðu vegfarendur
um þessa götu varir við þvarg
noikkurt fyrir utan skemmu-
glugga Haraldar, þar sem Raf-
skinna er til. liúsa. Voru þar
komnir erlendir kvikmynda-
tökumenn, sem voru í óðaönn
að taka myndir af Rafskinnu,
og létu í ljós undrun sína yfir
þessu fyrirbæri, sem væri sízt
lakara en það, sem þeir hefði
bezt séð erlendis af slíku tagi.
Stal nærri 2000
safngripunk
Einkaskeyti frá AP.
London í gær.
Roskinn safnvörður hefur
játað að hafa stolið nærri 2000
listmunum úr hinu fræga Vict-
oria and Albert-safni hér í borg.
Var hann upphaflega kærð-
ur fyrir að hafa stolið 25 grip-
um á undanförnum 23 árum,
en bað réttinn að taka til greina
þjófnað 1935 gripa að auki. —
Kona mannsins var ákærð fyrir
hylmingu. Maðurinn, John Nev-
ins, kvaðst hafa stolið gripun-
um,af því að honum fannst þeir
fallegir. Hafði hann m. a. stol-
ið mörgum gömlum úrum og
klukkum, sem safnið er sér-
staklega frægt fyrir,
Rætt um kaup
verkfræðinga.
Enn standa yfir viðræður
milli fulltrúa ríkisstjómarinnar
og verkfræðinga.
Eins og Vísir hefir áður greint
frá, sögðu flestir verkfræðing-
ar hins opinbera, hjá ríki og
bæ, upp störfum í vor, flestir
frá 1. júní. Mál þetta er enn á
viðræðustigi, og hafa þeir
skrifstofustjórarnir Gunnl.
Briem og Sigtryggur Klemenz-
son rætt málið við stjórn Verk-
fræðingafélagsins á fundum
imdanfarið. Formaður Verk-
fræðingafélagsins er Hallgrím-
ur Bjömsson.____________ t
Doktarsvorn
og samsæti.
Á morgun kl. 2 ver Halldór
Halldórsson dósent doktorsrit-
gerð sína um myndhverf orðtök
í íslenzku í hátíðasal Háskól-
ans. Um kvöldið kl. 9 halda
nokkrir vinir hans hoftum sam-
1 sæti að Hótel Borg. Þeir, sem
kynnu að vija taka þátt í sam-
sætinu geta skrifað sig á þátt-
tökulista hjá Skartgripaverzl-
un Áma B. Bjömssonar, Lækj-
arvötu 2.
Rússneskir skák-
menn fara vestur.
Moskva. (A.P.) — Sveit
rússneskra skáksnillinga er
lögð af stað til Bandaríkjanna.
Verður þar efnt til keppni
við helztu skákmenn Banda-
ríkjanna, og hefst keppnin 16.
þ. m. Meðal Rússanna eru
Smyslov og Bronstein, en for-
ingi flokksins er Bondarevsky.