Vísir - 18.06.1954, Blaðsíða 5

Vísir - 18.06.1954, Blaðsíða 5
í’östudagfnn' 18. júní 1954 YÍSIR S Myndin hér aS ofan er tekin í grennd við sendi ráðsbyggingu Bandaríkjanna Indlandi. Er fiér um mótmselagöngu að ræða, « g mótmælunum beint gegn ■ prólunum Bandaríkjamanita á Kyrrahafi. í Nyju Delhi á mm Starfsmenn Landssímans eru til fyrirmyndar. Hafnarstjórn er einnig skipnl einum starfsmanni stofnunarmnar. Um s.l. mánaðamót flutti Helgi Hallgrímsson fulltrúi útvarps erindi „um daginn og veginn“, og hefur það vakið talsverða athygli. Eru hér birtir nokkrir kaflar þess. í Símablaðinu um áramótin ©r vikið all-ýtarlega að stór- merku nýmæli í félagsmálum. Þannig er mál með vexti að 20. júlí 1953 gaf þaverandi símamálaráðherra, Björn Ólafs- son út reglugerð um stofnun Starfsmannaráðs Landssimans, (breyting við reglugerð 1935). í Starfsmannaráðinu skulu eiga •sæti 2 fulltrúar frá F.Í.S. (Fé- lag ísl símamanna) ásamt 4 fulltrúum frá Símamálastjórn- inni; í reglugerðinni segir svo um hlutverk ráðsins: 1. Að ræða og taka afstöðu til þeirra mála er varða launa- kjör starfsmanna, skipun i stöður, og önnur mál er varða hagsmuni stéttarinnar eða ein- stakra starfsmanna e. s. frv. 2. Að kynna sér hag og rekstur Landssímans, og gera tillögur til póst- og símamála- stjórnar varðandi umbætur á rekstrinum, auka áhuga manna á því sem betur mætti fara í stofnuninni, og er hverjum manni heimilt að senda ráðinu tillögur um umbætur á rekstr- inum, er orðið gæti til hags- bóta fyrir stofnunina og við- skiptamenn hennar, t, d. endur- bætur á símaafgreiðslu og tækni, hagkvæmari vinnubrögð, xeksturssparnað o. þ. u. 1. — Greinin, sem er nokkru lengri, endar á þessuri málsgrein: „Á fyrsta fundi ráðsins eftir hver áramót skal ákveða fasca fundardaga og fundartíma.“ Ritstjórinn, Andrés Þormar, skrifar grein í blaðið og skýrir reglugerðina. Hann kemst m. þannig að orði: „Að mál þau er starfsfólk stofnunarinnar varðar séu ekki lengur rædd á lokuðum fundi símamála- stjórnar út frá meira og minna einhliða sjónarmiði,“ og að lokum segir hann: „Þessi skip- un mála er alger nýjung hér á landi, — og ber vonandi þann árangur, að til fyrir,- myndar verði öðrum opinber- um stofnunum.“ íhlutun starfsfólks. Ekki er eg viss um að þvi ,sé almennt gaumur gefinn hversu fyrirferðarmikill opin- ber rekstur rauhverulega er. Gegnir þétta jáfnt ríki og bæ. Áfkoma þjóðarinnar er sann- arlega háð því hvernig' hér tekst til. Þess er þá heldur €kki að vænta, að við höfum . skipað þessum málum á þann veg, sem bezt má verða. Björn Ólafsson fyrrv. ráð- ráðherra samdi sig að háttum nágranna okkur á Norðurlönd- um með setningu nefndrar reglugerðar. Þar sjá forráð,amenn ríkis. bæja stofnunum ; bezt- borgið með því að fela íWutun vaa stjóm anna. Skilningur hefur ekki verið fyrir hendi hér, í þess- um efnum. En svo sannspár reyndist Andrés Þormar, að nú að loknum síðustu bæjar stjórnarkosningum var einn af starfsmönnum Reykjavíkur- hafnar kjörinn í hafnarstjórn. Er því hafnarstjórn að nokkru orðin hliðstæð Starfsmanna- ráði Landssímans. Þessi ný kjörni starfsmaður, Guðbj. Ólafsson, hafnsögumaður, lagði því líka strax fram í sjö liðum tillögur til úrbóta um ýms atriði. Ein er sú að ekki skuli einn maður hafður á hafnsögu- bát utan hafnarinnar. Að símakerfi skuli endurbætt, bryggjur og bækistöðvar verði greinilega merktar og sorpílát sett við allar bryggjur í Rvík- urhöfn. Hefi eg þá nefnt nokkr- ar tillagnanna. Ákveðið hefur nú verið að auðkenna bryggj- urnar og koma þar fyrir sorp- ílátum, Eðlilegt er, að yfirsjón þeirra sem að baki hafa langan síarfstíma sé gleggri, og ráð þeirra því vonleg til bóta. En vel á minnst. Er ekki rétt fyrir Reykvíkinga að veita sérstaka eftirtekt síð- asta atriðinu um sorpílátin. Sá ósiður er því miður íúkjandi að margskonar umbúðum og rusli er fleygt hvenær og hvar sem er, af allt of mörgum. — Dag eftir dag og ár eftir ár eru menn um allar götur að sópa saman þessu rusli. Skattabyrð- in eykst drjúgum við sóða- skapinn. Breytingar er hér þörf, en hver eru ráðm? Ekki sjást nú viða sorpílát fyrir vegfarendur. Er ekki ráð að bæta úr þessu? Hver geii hrein fyrir sínum dyrum. Fullorðið fólk ætti að gera tilraun til þess nú þegar að koma börnum og unglingum í skilning um þetta. Ailra ráða er sjálfsagt að, neyta í þeirri viðleitni æskufólki til handa um háttvísi alla, eða góða um- gengni. Verzlunarstjóri nokkur, en hann umgengst fjölda fólks telur að æskunni sé mjög á- bótavant í þessu efni, og að skólarnir munu hér vanrækja hlutverk sitt. Hátíðisdagur okkar, 17. júm, kemur senn. Brjótum þar við blað, en fleygjum því ekki frá okkur. Reykvíkingar ættu annars hver og einn, að gera hreint fyrir sínum dyrum. — í sumum borgum er sá háttur hafður á, að fólkið sjálft ann- ast þetta hreinsunarstarf að verulegu leyti. Mörg símanúmer eða eitt. Óneitanlega leitar margt a hugann með hliðsjón af opin- berum rekstri. Hvernig stendur t.d. á því að ýmsar opinberar stoínamr hafa mörg símanúmer í stað skiptiborðs rneð einu númeri: Ríkisútvarpið hefur .... 14 Skrifstofur Sakadómara 12 Skrifstofur Lögreglustj. 11 Skrifstofur Borgarfógeta 7 Skrifstofur Borgardómara 5 Eru þá nokkrar stofnanir taldar. Hagkvæmara virðist að hringja í nr. 1200 (Bæjar- skrifst.) eða 81500 (Tollstjóra- skrifst.) og fá samband við réttan aðila, heldur en stafa sig gegnum heila blaðsíðu, og síð- an hæpið urri val á réttu núm- eri. — Og að lokum þetta viðvíkj- andi opinberum . fyrirtækjum og rekstri þeirra. Fyi’ir all- mörgum árum átti eg samtal við mann, sem vel var kunn- ugur á Norðurlöndum. Tilefm gamtalsins var það, að tiltekin ríkisstofnun hér á landi hafði aflað sér verðmæta er kostuðu allmikið fé, án þess að auglýsa og biðja um tilboð. Þessi mað- i ur fullyrti að engin hliðstæð j stofnun innan Norðuilanda 1 myndi áforma slíkt. Verzlun- | arhættir þeirrar tegundar hefðu j þegar sætt þeirri gagnrýni, að forstjóri er gerði'sig beran að slíku yrði tafarlaúst látinn víkja frá starfi. Því er ekki að leyna að margir eru þeirra skoðunar, að nokkurs misbrests gæti hér a landi í þessu efni. Engan þann' mann, er veitir opinberum fyrirtækjum forstöðu, má aldrei henda sú villa að haga sér um ákvarðanir sem hann væri með sitt eigið fyrirtæki. Hér er áreiðanlega um tak- markað frjálsræði að ræða, sem af mörgum er misskilið, og því aðhalds þörf. Lyðræði og frelsi í orði, en umfram allt a borði. Vegurinn er vandrataður og skammt í fenið ef út aí ber. Hyggilegt að hafa á öllu gát. Margur grær sem grenitrén gusti vetrar strokin: Starir í botnlaus fúafen, fólks um andann lokin. Kjálkagulur yfir er oddborgara hrokinn. Þannig kveður St. G. St., mestur maður allra ísl. skálda að því að talið er. Skáldin varða veginn veg- farendum til athugunar. „Salka Valka“ fór í nótt. Sænska leikkonan Gunnel Broström (Salka Valka) tók sér far vestur um )haf með Hekln Loftleiða í nótt. Fer hún vestur um haf í einkaerindum, en mun hafa þar skamma viðdvöl. Hún læt- ur hið bezta yfir dvöl sinni hér, en hún hefir, eins og kunnugt I er, dvalið hér undanfarnar vik- ur, í sambandi við töku kvik- myndarinnar Sölku Völku. Fyrr um daginn kom hingacf Josephine Baker, leik- og söng- kona, sem hér mun koma fram nokkrum sinnum í Austurbæj- arbíó á vegum Tivoli. Hún var stödd á Réykjavíkurvelli í gæf- kveldi við komu, Heklu frá Norðurlöndum, en með þeirri flugvél voru undiríeikari henn- ar og annað aðstoðarfólk. Tið- indamaður Vísis náði sem snöggvast tali af"'listakonunrii, Hún býður af sér sérlega góðan þokka, en fas hennar og tal er aðlaðandi. Hún fagnaði því að vera komin hingað og kvaðst hlakka til að koma fram fyrir íslenzka tilheyrendur. Fimmlugnr í dag: Guðjón Einarsson verzlunarmaður Guðjón Einarsson, fulltrúi hjá Eimskip, er fimmtugur í dag. Það er að bera í bakka- j fullan læk að kynna hann bæj- arbúum, því að hann er þegar j löngu landskunnur fyrir marg- J vísleg afskipti af málefnum ; íþróttamanna og annarra fé- ' lagasamtaka. I Hann fékk ungur áhuga á (íþróttum og hefir lagt stund á ' margar íþróttagreinar um dag- ‘ ana, enda enn keikur og léttur ' í spori. I íþróttahreyfingin hefir falið honum margháttuð trúnaðar- störf um dagana, og nú er hann varaforseti íþróttasam- bands íslands. | Formaður Nemendasambands Verzlunarskólans var hann í nokkur ár. 1 Á þessum vettvangi vildi eg þó fyrst og fremst minnast með fáum orðum starfs hans í þágu félags verzlunarfólks hér í bæ, Verzlunarmannafélags Reykja- víkur. Guðjón var fyrst kosinn í varastjórn félagsins 1943, og í aðalstjórn árið eftir. Formaðúr félagsins var hann svo kosinn 1946 og hefir ávallt síðan verið endurkosinn í það mikilvæga starf. Miklir umbrotatímar hafa verið í félaginu síðasta áratuginn, og deilur stundum rísið hátt. Það hefir því reynt á þolrif formannsins að miðla. málum milli manna með ólíkar skoðanir. Þetta hefir Guðjóni tekizt mæta vel, því að hann er maður sáttfús og drengur góður, Guðjón er maður áhugasam- ur um leiklistarmál og er sjálf- ur allvel liðtækur á ,,sviðinu“, eins og hann hefir sýnt með ___: sínum í íjokkrum hlut- verkum. ior' . ■'r-: . ;i Á þessum tímamótum í ævi hans færi eg honum persónu- , þakkii-. :fyrir góða við- kynningu, og V. R. þakkar for- manni sínum heillaríkt starf í ,v. félagsins, og áimar hon- um heilla á ókomnum árúm. Liðu heill, Guðjón. ! V. R.-félági. J

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.